Þjóðviljinn - 07.11.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.11.1985, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN FRETTIR Eftir afhendingu röntgentækisins, Anna B. Ólafsdóttir og Sigríður Kristjánsdóttir röntgentæknar og Baldur F. Sigfússon yfirlæknir. Ljósm. Sig. Krabbameinsfélagið Röntgentæki frá Rauða krossinum íbúð - S.O.S. Vantar tilfinnanlega litla íbúð um næstu mánaðamót fyrir einhleypan karlmann, traustan og rólegan, fyrir- myndarleigjanda. Upplýsingar í síma 31197 eftir hádegi og á kvöldin. Til sölu Silver Cross tvíburavagn, með skermana á móti hvor öðrum. Einnig er hægt að nota hann sem rúmgóðan svalavagn fyrir 1 barn. Verð kr. 3.500,- Uppl. í síma 75337. Rafmagnsritvél í prýðilegu lagi, til sölu. Smith Corona 250 á 8000 kr. Einnig tveir úrvals há- talarar á 3000 kr. og öndvegis út- varpsmagnari á 2500 kr. Sími 23681. ísskápur - barnabílstóll - barnastóll á reiðhjól Erum með gamlan ísskáp, sem við viljum gefa eða selja fyrir lítið. Á sama stað er til sölu barnabílstóll á kr. 1000 og barnastóll á reiðhjól á kr. 500. Upplýsingar í síma 32098. Húsnæði óskast Hjón með 2 börn óska eftir 2-4ra her- bergja íbúð. Góðri umgengni og skil- vísum greiðslum heitið. Upplýsingar í síma 39833. Óska eftir ódýrri barnagöngugrind. Upplýsingar ísíma 77615. ísskápur til sölu Til sölu er vel með farinn Electrolux ísskápur, hæð 150 sm, með sér frystihólfi. Verð kr. 10 þúsund. Upp- lýsingar í síma 53713. Til sölu 3 raðstólar á kr. 1000 og burðarrúm á kr. 500. Á sama stað fæst gefins stak- ur sófastóll. Upplýsingar í síma 12747. Haglabyssa Vil kaupa lipra haglabyssu, ekki síst gamla og góða. Upplýsingar í vinnu- síma 17100 á daginn og heimasíma 31216 á kvöldin. Húsnæði óskast Óskum eftir að taka á leigu 3-4ra her- bergja íbúð. Helst strax. Skilvísum mánaðargreiðslum heitið og góðri umgengni. Einhver fyrirframgreiðsla. Vinsamlegast hringið í síma 40667 eða 39966. Kona óskast 61 árs gamall maður óskar eftir konu til að sjá um heimili fyrir sig gegn húsnæði. Hún má gjarna hafa með sér eitt barn. Tilboð sendist auglýs- ingadeild Þjóðviljans fyrir 12. nóvem- ber merkt „ráöskona". Til sölu húsgögn Til sölu borðstofuborð og 6 stólar, verð 6000 kr. Einnig skápur, verð 2000 kr. Allt úr tekki. Upplýsingar í síma 54708 e.kl. 16. Ýmislegt til sölu 5 gamlar, spónlagðar hurðir, bað- innrétting, Silver Cross barnavagn (verð 7 þús.). Allt notað. Hringið í síma 54504 fyrir hádegi og 50909 eftir hádegi og á kvöldin. Óska eftir stillanlegum hægindastól með stoð fyrir höfuð og fætur (skammel). Upplýsingar eftir kl. 18 í síma 39109. Okkur vantar tvö afturdekk á kassabíl. Þið sem eigið slíkt vinsamlegast hringið í síma 20943 við fyrsta tækifæri. Til sölu sem ný, finnsk mokkakápa. Upplýs- ingar í síma 42935 eftir kl. 19. Fataskápur óskast Okkur bráðvantar fataskáp (gjarnan gamlan og/eða bilaðan) á hagstæðu verði. Upplýsingar í síma 621945 eftir kl. 17. Vatnslitamynd af ísafjarðarkirkju og nágrenni til sölu. Mjög fallegt lista- verk, eftir Jónas „stýrimann" Guð- mundsson. Selst af sérstökum ástæðum. Á sama stað er til sölu gamall, tvíofinn borðdúkur af mjög sjaldgæfri tegund. Upplýsingar í síma 29105. Bíli til sölu Trabant station árgerð 1980 til sölu. Verð 25.000 kr. Upplýsingar í síma 28692. Flóamarkaður Dýraverndunar- sambandsins að Hafnarstræti 17, kjallara, er opinn mánudaga, þriðjudaga og miðviku- daga frá kl. 2 - 6 e.h. Fjölbreyttur varningur á boðstólum. Gjöfum veitt móttaka á sama stað og tíma. Ykkar stuðningur - okkar hjálp. Samband dýraverndunarfélaga islands. Dúkkurúm til sölu hvít með handmáluðum rósum í tveimur stærðum. Rúmin eru skrúfuð saman og límd og er óhætt að fullyrða að þau endast í mannsaldur. Auður Oddgeirsdóttir, sími 611036. Til sölu hekluð lopateppi. Falleg gjöf til vina hérlendis sem erlendis. Upplýsingar í síma 79248. Hjálp! - herbergi Ég er 23 ára gömul stelpa, og bráð- vantar herbergi strax. Eg er á göt- unni. Herbergið má vera í íbúð þar sem margir leigja saman. Eldunar- og snyrtiaðstaða verður að vera fyrir hendi. Ég fer í skóla eftir jól og get því ekki greitt neitt fyrirfram, en heiti skil- vísum greiðslum og góðri umgengni. Húsnæðið þarf helst að vera mið- svæðis í Reykjavík. Uppl. í síma 16340. Til SÖIu snyrtiborð með spegli á kr. 500 og ísskápur á kr. 5000. Upplýsingar í síma 30947 eftir kl. 17. Húsgögn til sölu Einfalt sófasett (1 + 1+2) á kr. 1000. Sófaborð, ílangt (50x120 sm) á 800 kr. Tveir borðstofustólar á kr. 400 stykkið. Tekk-skrifborð með skúffum og skáp (75x150 sm) á kr. 3000. Ef allt er keypt í einu fæst „pakkinn" á 4500 kr. Upplýsingar í síma 36474 eftir hádegi og á kvöldin. Til sölu tvær svampdýnur með grænleitu á- klæði á tvískiptri viðargrind. Hentugt fyrir þá sem eru að byrja búskap eða í sumarbústaðinn. Upplýsingar í símum 24149 og 14309 (á kvöldin). Múrviðgerðir - sprungu- viðgerðir - mótarif Tökum að okkur allar múr- og sprunguviðgerðir, einnig mótarif og hreinsun. Vanir menn. Föst tilboð eða tímavinna. Uppl. ( síma 42873, eftir kl. 18. Þýðingar Tek að mér þýðingar á smærri og stærri verkefnum. Þýði úr ensku og Norðurlandamálum. Vönduð vinna, fljót og góð afgreiðsla. Upplýsingar í síma 651209. Krossgátur Bý til stórar og smáar krossgátur, samkvæmt óskum hvers og eins. Til- valið fyrir blöð og tímarit. Hringið í síma 651209. Til sölu er springdýna á grind með hjólum 2x150 sm, kostar 1000 kr. Uppl. í síma 622103. Ljósritunarvél - pappír Gömul, stór Ijósritunarvél, ásamt miklu af pappír, fæst nánast gefins. Uppl. hjá Bókaforlaginu Svart á hvítu, Borgartúni 29, sími 18860. Frá Auglýsingadeild Þjóðviljans Flóamarkaður Þjóðviljans er ókeypis þjónusta við áskrifendur blaðsins, sem geta hringt inn auglýs- ingar sínar. Þeir sem ekki eru áskrif- endur þurfa að koma með auglýsinga og fá hana þá birta gegn 250 kr. gjaldi. Fólk er vinsamlegast beðið að koma eða hringja fyrir kl. 16 daginn fyrir birtingu. Flóamarkaðurinn er í blaðinu á þriðjudögum og fimmtudögum. Þeir sem eru svo óheppnir að vefa ekki áskrifendur spyrji starfsfólk auglýsingadeildar- innar um kynningaráskriftina vin- sælu. Itilefni 60 ára afmælis síns í des- ember 1984 ákvað Rauði kross íslands að færa Krabbameinsfé- lagi íslands að gjöf mjög fullkomið röntgentæki til mynda- töku af brjóstum, ásamt nýtísku búnaði tU töku frumusýna. Með þessum tækjum aukast mögu- leikar á að greina brjóstakrabba- mein á byrjunarstigi. Röntgentækið, sem er franskt að gerð, „Senographe 500 T“, hefur nú verið tekið í notkun og Lionsklúbburinn Ægir heldur bingó og kabarattskemmtun í Broadway í kvöld kl. 20:00 tU Qáröflunar vegna framkvæmda að Sólheimum í Grímsnesi, en eins og kunnugt er hefur nýtt hús verið í byggingu fyrir íþróttaiðk- un og leikstarfsemi vistmanna. Flestir muna frækUega göngu Reynis Péturs Ingvarssonar um- hverfis landið síðastliðið sumar tU að afla fjár tU byggingarinnar með frábærum viðtökum allra landsmanna. Reynir Pétur verð- ur sérstakur heiðursgestur á Sól- heimakvöldinu ásamt forstöðu- manni heimUisins, HaUdóri Júlíussyni. Hafnarfjörður /Garðabœr Ný stjórn í Fylkingunni Aðalfundur Æskulýðsfylking- arinnar í Hafnarfirði og í Garða- bæ var haldinn nýlega. Ný stjórn var kjörin á fundinum og er Reynir Sigurðsson formaður Fylkingarinnar. Auk Reynis voru kjörin í stjórn Katrín Kristjánsdóttir var- aform., Ámi Björn Ómarsson gjaldkeri. Guðbjörn Ólafsson rit- ari og Ásdís Geirsdóttir með- stjórnandi. í varastjóm eiga sæti jjeir Sindri Sveinbjömsson og Bjarki Hreinsson. var formlega afhent 1. nóvember 1985. Er það m.a. búið hreyfan- legri geislasíu tiþað útiloka svo- nefnda dreifigeislun og auka þar með andstæður í myndinni: Einn- ig fylgir búnaður til að taka myndir af litlum svæðum, með beinni stækkun og auknum myndgæðum. Er hann mjög mikilvægur við nánara mat á ó- ljósum breytingum eða breyting- um sem vekja grun um krabba- mein og sést hafa á venjulegum myndum, þannig að myndgrein- Lionsklúbburinn Ægir hefur allt frá stofnun árið 1957 stutt starfið á Sólheimum með sjálf- boðaliðsvinnu klúbbfélaga á staðnum og öflugu starfi við fjár- öflun, er farið hefur til kaupa á efni, áhöldum og tækjum fyrir heimilið. Nú er ætlunin að afla viðbótarfjár til að hraða fram- kvæmdum og mun ágóði af skemmtikvöldinu renna óskiptur til Sólheima. Dagskrá kvöldsins er vönduð og fjölbreytt. Landsþekktir skemmtikraftar koma fram og mjög góðir vinningar eru í bingói og happdrættinu, en aðgöngu- miðar gilda sem happdrættismið- ar. Allir þeir sem leitað hefur ver- ið til hafa sýnt verkefninu mikla velvild, enda eru skemmtiatriði, vinningar og endurgjaldslaus af- not af veitingahúsinu Broadway rausnarleg framlög velunnara málefnisins. Sama gildir um þau fyrirtæki sem styrkt hafa auglýs- ingar til kynningar á Sólheima- kvöldinu. Einkunnarorð Sólheima-bing- ósins og kabarettsins á Broadway eru: Gott málefni - góð skemmt- un - góðir vinningar. Gera má ráð fyrir því, að fjöl- menni verði á SÓLHEIMAK- VÖLDINU og menn heiðri með þeim hætti Reyni Pétur og for- stöðumanna Sólheima Halldór Júlíusson jafnframt því að leggja nokkuð af mörkum til stuðnings við Sólheimastarfið. ing verður mun nákvæmari en áður. Tæki það sem ætlað er til töku frumusýna frá grunsamlegum breytingum, einkum þeim sem sést hafa á brjóstamyndum en eru ekki þreifanlegar, er nefnt Cyto- guide og hannað í Svíþjóð sér- . staklega fyrir Senographe 500 T og tengist því beint. Breytingin er staðsett nákvæmlega og stungið í hana með fínni nál, eftir að stungustaður og dýpt hafa verið reiknuð út í tölvu með hjálp tveggja skámynda. Slík tækni, sýnistaka með rúmstýringu („stereotaxis"), er mun nákvæm- ari en áður hefur tíðkast með ein- faldari útbúnaði, þannig að unnt er að ná sýni frá breytingum sem eru aðeins nokkrir millimetrar í þvermál. Hin myndarlega gjöf Rauða kross íslands og aukin þekking á þessu sviði munu væntanlega leiða til bættrar greiningar krabbameins í brjóstum, þannig að sjúkdómurinn greinist fyrr og í færri tilvikum en ella þarf að taka skurðsýni. Mun þetta einkum koma að gagni, þegar hafin verð- ur skipuleg leit að brjóstakrabba- meini með almennri myndatöku kvenna í ákveðnum aldurshópum um land allt, en stefnt er að því að slík leit hefjist innan tveggja ára. Viðskipti Finnarkaupa mokkaskinn Góðar söluhorfur Söluhorfur á skinnaiðnaðar- vörum Sambandsins eru nú góðar og hafa þær hækkað í verði frá sfðasta ári. Gerður hefur verið samningur við finnska fyrirtækið Friitala um sölu á 250 þús. ferfet- um af mokkaskinni. Er sölu- verðmætið um 1 milj. dollara. Ætlunin er að súta og fullvinna í mokkaskinn um 3 miljónir fer- feta eða um 415 þús. skinn, auk annarrar framleiðslu í verksmiðj- unni. Aðalmarkaðir fyrir full- unnin skinn eru í Finnlandi, Nor- egi, Danmörku, Vestur- Þýskalandi, Bretlandi og Banda- rfkjunum, en fyrir fatnaðinn á Norðurlöndunum og í Sovétrikj- unum. -mhg Er ekki tilvalið að gerast áskrifandi? DJÓÐVILJINN Broadway í kvöld Bingó og kabarett Fjár aflað tilframkvœmda að Sólheimum í Grímsnesi 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. nóvember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.