Þjóðviljinn - 07.11.1985, Blaðsíða 16
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Þing LÍÚ
Allt er á uppleið
Kristján Ragnarssonformaður LÍÚ: Afkoman góð hjá skuldlitlum
skipum. Afkoma loðnuveiðiskipanna hefur stórbatnað. Frystiskipin
blómstra
Ping Landssambands ísl. út: rœðu formanns LÍÚ, Kristjáns *r á uppleið hjá íslenskum
vegsmanna var sett í gær. f Ragnarssonar, kom fram að allt útgerðarmönnum, nema þeim
sem eru með mikinn skuldahala.
Kristján sagði að afkoma fisk-
veiðanna á þessu ári hefði verið
betri en undanfarin ár, sérstak-
lega eftir síðustu fiskverðhækk-
un, en þá hafa bátarnir 10% af
tekjum til að standa undir fjárm-
agnskostnaði og togararnir um
16%. Afkoman væri því góð hjá
þeim sem eiga skuldlítil eða
skuldiaus skip en erfið hjá þeim
sem skulda mikið.
Kristján gat þess að afkoma
loðnuveiðiskipanna hefði verið
sérlega góð nú eftir þann við-
bótar kvóta sem ákveðinn hefur
verið á loðnuveiðunum. Auk
þess færi verð á loðnuafurðum nú
hækkandi á heimsmarkaði.
„Sérstök ástæða er til að gleðj-
ast yfir góðri afkomu útgerðar og
áhafna þeirra skipa sem frysta
aflann um borð. Framleiðslu-
verðmæti þeirra er undravert og
er unnt að nefna dæmi um að
framleiðsluverðmæti á bak við
hvern áhafnarmann er 7-8 milj-
ónir króna...“ sagði Kristján
Ragnarsson.
-S.dór
Þorskkvótinn 1986
Leyft að veiða
300 þúsund lestir
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra:
Endurnýjunfiskiskipaflotans orðin nauðsynleg
Sjávarútvegsráðherra skýrði
frá því á þingi LÍÚ sem hófst í
gær að hann hafi ákveðið að
hækka þorskaflamarkið um 10%
á næsta ári frá því sem var í ár,
þannig að leyft verður að veiða
um 300 þúsund lestir. Aftur á
móti verður aflamark annarra
botnfisktegunda á næsta ári það
sama og var í ár.
Þá kom fram í ræðu sjávarút-
vegsráðherra, að ekki verði fram
hjá því horft að endurnýjun fiski-
skipaflotans standi fyrir dyrum
þar sem megnið af bátaflotanum
sé byggður á sjöunda áratugnum
og því orðinn 20 ára. Hann benti
á að ef endurnýjun dregst miklu
lengur sé hætta á að tæknileg þró-
un, sem ávallt fylgir nýjum
skipum, fari hjá garði hér á landi.
Eins væri hætta á að holskefla ný-
bygginga skelli yfir í stað þess að
endurnýjun sé jöfn og stöðug.
Þess má geta að margir útgerð-
armenn halda því fram að við
séum orðin of sein í þessum efn-
um og holskeflan muni skella yfir
en staðið hefur verið í vegi fyrir
allri endurnýjun á fiskiskipum
um 2ja til 3ja ára skeið.
-S.dór
DJOÐVIUINN
Flmmtudagur 7. nóvember 1985 267. tölublað 50. órgangur
„Þú og ég“
Nær dýrinu
en manninum
Ný kynfrœðslubók ekki afgreidd til
skólabókasafna.
Ibókinni eru slíkar myndir að
okkur finnst að við séum komin
nær dýrinu en manninum, sagði
Jenna Jensdóttir um bókina „Þú
og ég“ sem skólasafnanefnd hefur
ákveðið að mæla ekki með að
keypt verði á skólabókasöfn.
Bókin er ætluð til kynfræðslu
fyrir unglinga og hefur að sögn
Halldórs Guðmundssonar hjá
Máli og menningu fengið einróma
hrós frá þeim sem bókaútgáfan
hefur beðið að iesa hana yfir, þar
á meðal frá starfsfólki á kynfræð-
sludeild Heilsuverndarstöðv-
arinnar.
Kennarar sem hafa pantað
bókina á skólasöfn sín frá Skóla-
safnamiðstöðinni hafa ekki feng-
ið hana til kennslu, og er það í
samræmi við þá ákvörðun skóla-
safnanefndar Reykjavíkur að
hafa bókina „Þú og ég“ ekki á
þeim lista sem nefndin tekur sam-
an yfir bækur sem nefndin telur
„heppilegar og gagnlegar“ með
orðum Braga Jósefssonar. Auk
hans og Jennu Jensdóttur á Sig-
ríður Ragna Sigurðardóttir sæti í
nefndinni og voru þau sammála
um bókina.
„Þarna eru atriði þess eðlis að
okkur þótti ekki heppilegt að
mæla með bókinni“ sagði Bragi
við Þjóðviljann í gær en vildi á
þessu stigi málsins ekki nefna
dæmi.
„f bókinni er ýmislegt sem ekki
samræmist því að hún liggi
frammi á skólabókasafni þar sem
böm ganga um og fá að lesa hvað
sem er“ sagði Jenna Jensdóttir
við Þjóðviljann. „Á þessum tím-
um þegar hættulegir sjúkdómar
geisa verðum við að hugsa okkur
um áður en svona bækur eru sett-
ar á skólabókasöfn. Það verður
að minnsta kosti að nema staðar á
þessum síðustu og verstu tím-
um“.
Jenna segir að þarmeð sé ekki
sagt að einstökum kennurum sé
meinað að panta bókina og nota
hana. Bragi segir lista nefndar-
innar ætlaðan sem ráðgjöf fyrir
skólasafnamiðstöðina sem sér
um innkaup á söfnin. Ætla megi
að forstöðumaður hennar taki
mið af listanum.
Skólasafnanefndin er undir-
nefnd fræðsluráðs Reykjavíkur.
Þess má geta að fyrir skömmu
voru birtir kaflar úr bókinni „Þú
og ég“ á unglingasíðum Þjóðvilj-
ans, „Glætunni“.
Austurbæjarbíó
í dag
kl. 17.15
7. LANDSFUNDUR /ÍB^ÐUBANDALAGSINS 1985
á giæsilega setningarathöfn
Við bjóðum alla félags-
menn og velunnara okkar
velkomna á setningarat-
höfn landsfundarins í
kvöld, fimmtudaginn 7.
nóvember kl. 17.15 í Aust-
urbæjarbíói.
Dagskrá:
Húsið opnað kl. 17.15,
baráttusöngvar
Ávarp: Eiríkur Hjálmarsson
Ávarp: Gerður Gestsdóttir
Söngur: Kristinn Sigmundsson
og Katrín Sigurðardóttir
rl fl f]
Elríkur Geróur Krlstlnn Katrín Elnar
i Á- - ^
■
j' fT+'***
m ^ J ii- 4 1
fÖr jTPnl
Upplestur: Einar Kárason
Skemmtiþáttur:
Höfundur: Jón Hjartarson
Flytjendur: Jón Hjartarson, Soffía
Jakobsdóttir og Stephan Yates
Ávarp: Ásdís Þórhallsdóttir
Söngur: Katrín Sigurðardóttir
Ávarp: Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins
Fjöldasöngur og samkomuslit
Fundarstjóri: Baldur Óskarsson
Jón
Soffía
Ásdís
Svavar
Baldur
Alþýðubandalagið
Þessi
boðsmiði
gildir fyrir þig
og fjölskyldu þína