Þjóðviljinn - 07.11.1985, Side 14

Þjóðviljinn - 07.11.1985, Side 14
ÍÞRÓTTIR Úrslit leikja í Evrópumótunum í knattspyrnu í gærkvöldi. Si'ðari leikir 2. umferðar, samanlögð úrslit í svigum. Evrópukeppni meistaraliða: Ahardeen (Skotlandi)-Servette (Sviss)..................................1-0 (1-0) Austria Wien (Austurriki)-Bayern Munchen (V.Þýsk.).....................3-3 (5-7) Fenerbache(Tyrklandi)-Gautaborg(Svíþjóð)...............................2-1 (2-5) Juventus ((talíu)-Verona (Italíu)......................................2-0 (2-0) L-'ithi (Finnlandi)-Zenit Leningrad (Sovétríkjunum)....................3-1 (4-3) Omonia Nicosia (Kýpur)-Anderlecht (Belgíu).............................1-3 (1-4) Porto (Portúgal)-Barcelona (Spáni).....................................3-1 (3-3) Sieaua (Rúmeníu)-Honved (Ungverjalandi)................................4-1 (4-2) Evrópukeppni bikarhafa: AIK (Svíþjóð)-Dukla Prag (Tékkoslóvakíu)...............................2-2 (2-3) AtleticoMadrid(Spáni)-BangorCity(Wales)................................1-0 (3-0) Dynamo Dresden (A.Þýskalandi)-HIK (Finnlandi)..........................7-2 (7-3) DynamoKlev(Sovétríkjunum)-Craiova(Rúmeniu).............................3-0 (5-2) Fram ((slandi)-Rapid Wien (Austum'ki)..................................2-1 (2-4) Galatasaray(Tyrklandi)-BayerUerdlngen(V.Þýsk.).........................1-1 (1-3) Rauða Stjarnan (Júgóslavíu)-Lyngby (Danmörku)............................frestað; Sampdoria((talíu)-Benfica(Portúgal)....................................1-0 (1-2) UEFA-bikarinn: Atletico Bilbao (Spáni)-Liege (Belgíu).................................3-1 (4-1) Bohemians (Tékkoslóvikau)-Köln (V. Þýskalandi).........................2-4 (2-8) Dnjepr(Sovétn'kjunum)-PSVEindhoven(Hollandi)...........................1-0 (3-2) FC Briigge (Belgíu)-Spartak Moskva (Sovétríkjunum).....................1-3 (1-4) Ha|dukSplit(Júgóslavíu)-Torino(ltalíu).................................3-1 (4-2) Inter Mllano (Italíu)-Linz (Austurriki)................................4-0 (4-1) Legia (Póllandi)-Videoton (Ungverjalandi)..............................1-1 (2-1) Lokomotiv Leipzig (A.Þýskal.)-AC Milano (Italíu).......................3-1 (3-3) Mönchengladbach (V.Þýskal.)-Sparta (Hollandi)..........................5-1 (6-2) Nantes (Frakklandi)-Partizan Belgrad (Júgóslavíu)......................4-0 (5-1) Neuchatel (Sviss)-Lokomotiv Sofia (Búlgaríu)...........................0-0 (1 -1) Odessa (Sovétríkjunum)-Real Madrid (Spáni).............................0-0 (1-2) Osasuna Pamplona (Spáni)-Waregem (Belgíu)..............................2-1 (2-3) Sportlng Lissabon (Portúgal)-Dinamo Tirana (Albaníu)...................1 -0 (1 -0) St. Mirren(Skotlandi)-Hammarby(Svíþjóð)................................1-2 (4-5) Vardar Skopje (Júgóslavíu)-Dundee Utd. (Skotlandi).....................1-1 (1-3) E vróp uleikirnir Juventus vann Halíusiaginn Evrópumeistarar Juventus höfðu betur gegn Ítalíumeisturum Verona þegar samlandar mættust fyrir lukt- um dyrum í Torino í gær. Juventus var að taka út refsingu fyrír sinn þátt í harmleiknum í Brússel sl. vor en það virtist engin áhrif hafa á liðið að fá engna stuðning sinna áhorfenda. Ju- ventus vann 2-0, mjög örugglega, og leikur því í 8-liða úrslitum Evrópu- keppni meistaraliða. Michel Platini skoraði úr umdeildir vítaspyrnu á 19. minútu og Aldo Serena innsiglaði sig- urínn á 50. mínútu. Frank McDougali kom Aberdeen í 8-liða úrslit með því að skora eina markið gegn Servette frá Sviss. Lathi frá Finnlandi vann frækinn sigur á nágrönnunum frá Leningrad í Sovét- ríkjunum, 3-1, eftir framlengingu. Það voru ein óvæntustu úrslit gær- kvöldsins. Bayern Múnchen komst í mikla hættu gegn Austria í Vín en náði 3-3 jafntefli eftir æsispennandi lokamínútur. Bayern vann 7-5 samanlagt. Benfica slapp í gegnum stærstu viðureignina í Evrópukeppni bikar- hafa þrátt fyrir 1-0 gegn Sampdoria á Ítalíu. Portúgalska liðið vann 2-1 samanlagt. Austur-Evrópuliðin Dy- namo Dresden, Dynamo Kiev og Dukla Prag komust nokkuð sannfærandi í gegn en mótspyrna Knattspyrna Njáíf þjálfar Einherja Njáll Eiðsson hefur verið ráð- inn þjálfari 2. deildarliðs Ein- herja frá Vopnafirði fyrir næsta sumar. Njáll er í hópi þekktari knatt- spymumanna landsins. Hann lék með KA síðustu tvö keppnis- tímabilin en lék áður með Val, Þrótti Neskaupstað og KA. Hann hefur leikið þrjá landsleiki fyrir íslands hönd, m.a. HM-leikinn gegn Walesbúum í Cardiff fyrir rúmu ári. Njáll Eiðsson er 27 ára gamall og leikur að sjáifsögðu með liði Einherja samhliða þjálfuninni. Hann kannast vel við sig á Austurlandinu, er frá Borgarfirði eystra og hóf knattspyrnuferil sinn á Eskifirði auk þess að leika í Neskaupstað um skeið. - VS. Bangor City frá Wales gegn Atletico í Madrid kom mest á óvart. Atletico var spáð risasigri en varð að láta 1-0 duga. Hammarby frá Svíþjóð vann eitt mesta afrekið í UEFA-bikarnum með því að vinna St. Mirren 2-1 í Skotlandi. Skotarnir voru yfir þar til þrjár mínútur voru til leiksloka að Hakan Ivarsson og Michael Anders- son skoruðu tvívegis fyrir Hammarby og tryggðu liðinu 5-4 sigur samanlagt. Nantes, mótherjar Vals í 1. umferð, sýndu styrk sinn með því að mala Partizan Belgrad 4-0. Amisse skoraði 2 mörk og Burruchaga og Bracigliano eitt hvor. Sandro Altobelli skoraði 3 mörk fyrir Inter Milano og Liam Bra- dy eitt í 4-0 sigri á Linz frá Austurríki. AC Milano slapp hinsvegar naumlega gegn Lokomotiv í A.Þýskalandi og þriðja ítalska liðið í keppninni, Tor- ino, féll fyrir Hajduk Split. - VS/Reuter. Knattspyrna McGhee til Celtic Glasgow Celtic keypti í gær skoska landsliðsmiSherjann Mark McGhee frá Hamburger Sportverein fyrir 200 þúsund pund. McGhee hefur veriS meS eindæmum óheppinn þau tæpu tvö ár sem hann hefur leikiS í Vestur- Þýskalandi. - VS/Reuter Pétur Ormslev í sannkölluðu dauðafæri á 12. mínútu leiksins gegn Rapid. Markið galopið - en hann skaut yfir. Mynd: E.ÓI. Fram-Rapid „Sýnir stöðu ís- lenskrar knattspymu“ Fram betra og gat verið komið í 3-0 eftir 18 mínútur. Fyrsti sigurleikur íslensks liðs Í2. umferð „þaS sýnir stöSu íslenskrar knatt- spyrnu í dag aS maSur skuli geta leyft sér aS vera svekktur eftir 2-1 sigur á Rapid Wien, úrslitaliSinu i Evrópu- keppni bikarhafa sl. vor. Austurríkis- mennirnir sluppu vel meS þessi úrslit, þeir skoruSu ódýrt mark og fengu engin færi“, sagði Guðmundur Torfa- son eftir sigur Fram á Rapid á Laugardalsvellinum í gærdag. Þrátt fyrir leiktímann mættu um tvö þúsund áhorfendur á völlinn í gær og þeir sáu Framara standa sig frá- bærlega gegn hinu sterka austurríska Iiði. Eftir 18 mínútur hefði staðan hæglega getað verið orðin 3-0. Á 5. Kraftakeppnin Jón Páll sterkastur Jón Páll Sigmarsson sigraði ör- ugglega í keppninni um titilinn ,ýSterkasti maður íslands“ sem fram fór í Laugardalshöllinni í fyrrakvöld. ’ Hann keppir því í Portúgal um miðjan þennan mán- uð um titilinn „Sterkasti maður heims“ en Jón Páll er handhafi hans eins og kunnugt er. Hann hafði hinsvegar lýst því yfir að ef hann næði ekki að sigra í keppn- inni hér heima hefði hann ekkert til Portúgal að gera. Hjalti Árnason varð annar í keppninni í fyrrakvöld og Magn- ús Ver Magnússon þriðji. Hinir þrír keppendumir sem komust í aðalkeppnina náðu ekki að ljúka þrautunum. Guðni Sigurjónsson handleggsbrotnaði, Baldur Borg- þórsson ofkeyrði sig í byrjun keppninnar og Torfi Ólafsson tognaði. Keppt var í sekkjahleðslu, bíla- drætti, rafgeymalyftu og sjó- manni og auk þess var Húsafells- hellunni frægu lyft. f>á voru talin með stig úr undankeppninni sl. sunnudag þegar keppendur drógu Scania-tmkk. - VS. mín. átti Ómar Torfason glæsisend- ingu innfyrir vörn Rapid á Pétur Ormslev. Hann átti í erfiðleikum með að ná boltanum fyrir tærnar á sér og var þá kominn nálægt markmannin- um og skaut f hann. „Hann lokaði markinu en ég hefði átt að vippa yfir hann“, sagði Pétur. Á 12. mín. sendi Guðmundur Steinsson frábæra send- ingu frá vinstri og á markteignum við fjærstöng var Pétur aleinn en skaut viðstöðulaust yfir opið mark. ,J»að var enginn maður nálægt og markið galopið - það var hrikalegt að skora ekki þarna“, sagði Pétur. En á 18. mínútu tók Fram foryst- una, reglulega sanngjarnt. Guð- mundur Torfason sendi fyrir frá hægri, boltinn fór í jörðina og spýttist framhjá Guðmundi Steinssyni og Konsel markverði sem renndi sér á móti. Á miðjum markteig var Krist- inn Jónsson og skallaði í autt markið, 1-0. „Ég átti ekki von á að fá boltann en annars var ekki hægt annað en að skora úr þessari stöðu“, sagði Krist- inn. Heldur dofnaði yfir leiknum eftir markið. Liðin sóttu til skiptis og helstu hættunni afstýrði Friðrik Frið- riksson markvörður þegar hann „rennitæklaði" Kranjcar rétt utan vítateigs á 43. mín. Seinni hálfleikur var jafn og nokk- uð þófkenndur. Rapid bætti við varn- armanni fyrir sóknarmann og tafði við öll möguleg tækifæri. Úr skyndi- sókn komst Pacult í dauðafæri á 63. mín. en skaut framhjá. Hann jafnaði síðan á 67. mín., 1-1, þegar Friðrik missti af langri sendingu innfyrir vörn Fram. Boltinn fór framhjá honum og Pacult skoráði auðveldlega. „Ég fór á fullri ferð á móti boltanum, leit af honum eitt andartak og það var nóg. Ég rann og boltinn skrúfaðist framhjá mér“, sagði Friðrik um þetta slysa- mark. Friðrik bætti þetta upp á 71. mín. þegar hann hálfvarði skot frá Haliovic og elti síðan boltann uppi og náði honum á marklínunni. Sigurmarkið kom tveimur mínút- um fyrir leikslok. Fallegt spil Fram tætti vöm Rapid í sundur - Ormarr Örlygsson lék inní vítateiginn þar sem honum var bmgðið. ,JEg ætlaði að skjóta en varnarmaðurinn fór fyrst i lappirnar á mér og hrínti síðan á bakið þannig að ég missti jafnvægið", sagði Ormarr. Úr vítaspyrnunni skoraði Guðmundur Torfason af ör- yggi, 2-1. Annar sigur íslensks liðs á atvinnuliði í Evrópukeppni á þessu hausti var staðreynd. „Hughreyst- ing“, sagði Guðmundur um markið, „við áttum að vinna stærri sigur“. Framliðið stóð sig mjög vel í heild - mun betur en hægt var að vonast eftir með einhverri sanngirni. Sigurviljinn var fyrir hendi og þá er stórt skref stigið. Guðmundur Torfason, Ómar, Viðar, Pétur, Friðrik og Sverrir Ein- arsson léku allir mjög vel og aðrir stóðu þeim ekki langt að baki. Ásgeir Eh'asson þjálfari kom inná og lék síð- ustu 8 mínútumar. „Þetta var kveðju- leikurinn minn og það var sætt að sigra þetta lið. Við hefðum getað leitt 3-0 í hálfleik án sérstakrar heppni - það var gaman að sjá að það er hægt að leika sóknarleik með góðum ár- angrí gegn svona sterku liði - það þarf ekki alltaf að liggja i vörn til þcss“, sagði Ásgeir. Framarar slógu botninn í fengsæla knattspymuvertíð með sigrinum í gær. Þeir urðu fyrstir íslenskra liða til að vinna leik í 2. umferð Evrópu- keppni og mega vera stoltir yfir því. Ekki síst þar sem sigurinn var fyllilega verðskuldaður og í minnsta lagi. Rap- id Wien vann 4-2 samanlagt - miðað við frammistöðu Fram í Vín og síðan á Laugardalsvellinum í gær má þetta sterka lið hrósa happi yfir þeirri markatölu. - VS. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 7. nóvember 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.