Þjóðviljinn - 17.11.1985, Síða 6

Þjóðviljinn - 17.11.1985, Síða 6
SUNNUDAGSPISTILL Biblían er sem bögglað roð.... Með Magnúsi Magnússyni á Biblíuflakki um Austurlönd nœr Grátmúrinn í Jerúsalem er leifar af undirstöðunni undir musteri Heródesar. í baksýn moskan á klettinum. Magnús Magnússon. A söguslóðum Biblíunnar. Dagur Þorleifsson þýddi. Bókaútgáfan Örn og Örlygur 1985. Ég hætti seint að undrast það, hve mörg og ófyrirsjáanleg og margvísleg spor ein bók, Biblían, hefur skilið eftir sig í sandi tím- ans. Okkar þjóðhetja elskuleg, Skugga-Sveinn, segir að vísu, að sú bók komi „aldrei að gagni neinu“, en við leyfum okkur að trúa því svona rétt mátulega. Að minnsta kosti verð ég að telja mig í hópi þeirra sem finnst fátt skemmtilegra en að gefa sér tíma til að leita frétta af flakki Biblíunnar um heiminn. Hvort sem hún hrindir af stað nýjum trúarbrögðum, stórstríðum, mál- vísindaþrætum eða mótar nafna- siði Vestfirðinga. (Með ykkar leyfi: ég ætla að segja eina sögu af þeim vettvangi. Þaðvareitt sinn, aðhjón komu til prests og vildu skíra dóttur sína nýfædda og átti barnið að heita Jedok. Jedok, sagði prestur, svo- leiðis nafn er ekki til. Víst, sögðu hjónin, það erí Biblíunni: Jedok, dóttir Faraós... Sannleikurinn var sá, að for- eldrarnir biblíuföstu höfðu fyrir sér gamla Biblíuþýðingu úr þýsku, en þar hafði þýskt smáorð komist framhjá mannviti þýðar- ans og var orðið að fósturmóður Móse: Jedoch, die Tocther Phar- aos: Samt sem áður (gekk) dóttir Faraós...). Golíat og Glámur Þegar ég var strákur í stríðinu las ég það einhversstaðar, að eftirlætisgeneráll minn um þær mundir, Montgomery hinn breski, hefði það fyrir sið að lesa kafla úr Biblíunni á hverju kvöldi áður en hann færi að sofa. Ég vildi ekki vera minni maður en hann og reyndi þetta líka. Vita- skuld fór margt fyrir ofan götur og neðan hjá strákpatta í svo fornum texta, en allar götur síðan hafa mér verið einkennilega hug- stæðir Anraham patríarki, Jósep sem réð draumana, Móse sem skeggræddi við guð á fjallinu, Davíð sem girntist Batsebu og fleira merkilegt fólk. Þetta voru sögur og ein- hvernveginn fannst manni það ekkert áríðandi að vita, hvað væri í þeim satt og hvað logið. Davíð og Golíat voru einhversskonar hliðstæða við Gretti og Glám í hinum „syntetíska" tíma barns- ins. Og einmitt þessvegna fannst mér gaman að heyra Magnús Magnússon segja það á dögun- um, þegar hann var að kynna bók sína um Biblíuna, að ráðlegast væri að lesa Gamla testamentið með svipuðu hugarfari og menn lesa íslendingasögur. Leitið og þér finnið Síðar meir var maður að rekst hér og þar á tilraunir, stundum bæði furðulegar og hugvitssamar, til að koma saman fornleifafræði og líkindareikningi og svo ýmsum undrum og stórmerkjum úr Bib- líunni. Hvers vegna drukknuðu Egyptar í Rauða hafinu? Var eyðing Sódómu og Gómorru ekki eldgos? f bók Magnúsar Magnús- sonar er einmitt drjúga skemmtun að hafa af því kappi, sem menn hafa lengi lagt á að „sanna“ Biblíuna. Menn hafa vaðið um Palestínu og nálæg lönd - og gera reyndar enn í dag að því er Magnús hermir - með Biblíu í annarri hendi og skóflu í hinni og vitanlega hafa þeir fundið það sem þeir leituðu að. Einn finnur einmitt þá veggi Jeríkóborgar sem hrundu þegar Jósúa og hans menn blésu í trómet, annar finn- ur sjálft Syndaflóðið í leirlögum í ruslahaugum í Mesópótamíu, hinn þriðji finnur egypskt vegg- málverk af Hebreum, sem „gætu vel verið“ bræður Jósefs að semja við egypska landamæraverði. Góð leiðsögn Magnús Magnússon fer mjög skemmtilega með þetta allt. Hann sýnir sönnunarákefðinni vissa kímni og samúð - án þess að ánetjast henni. Hann sýnir vel hvernig sumir koma vitleysum af stað og aðrir starfa svo við að koma þeim sömu eroribus fyrir kattarnef og „hefur svo hver nokkuð að iðja“, eins og Árni Magnússon sagði um þá sem í handritum grúska. Þegar á heildina er litið er afstaða Magn- úsar mjög skynsamleg. Hún er eitthvað á þá leið, að ef menn hafa hugann of mikið við sagn- fræðilegt gildi Biblíunnar, þá eigi þeir erfiðara með að meta hana sem bókmenntir eða skilja hana sem trúarrit. Á hinn bóginn veit hann náttúrlega vel af því, að Biblían er ekki skrifuð í tóma- rúmi og skilur hana eins og marg- ir aðrir, margt einmitt út frá þörf- um þjóðar í nauð, þörfum Biblíu- ritunartíma fyrir ákveðna túlkun á fortíð, sem er að miklu leyti gleymsku hulin þá þegar. Magn- ús Magnússon er ekki atvinnu- maður í Biblíufræðum, en hann sýnist mjög vel að sér um forn- leifarannsóknir síðari tíma og er skemmtilegur og aðlaðandi leiðsögumaður um þessar slóðir, dregur vel saman Biblíusögur, aðrar heimildir og fornleifarann- sóknir, svo mönnum má allvel skiljast, hvað er vitað og hvað verður seint hægt að vita um Bibl- íutíma. Bœkur þar um þegja Ef ég ætti að gera grein fyrir því, í hverju bók sem þessi hér helst víkur frá þeim „fordómum" sem í mér sitja frá fyrstu kynnum af Biblíunni, þá er það helst til að taka, að margbölvaðir Kanaanít- ar og Filistear fá einskonar upp- reisn æru hjá höfundi og fá þeir þá mestan stuðning úr gallharðri fornleifafræði. í annan stað hefur höfundur nokkra tilhneigingu til að hnýta í spámenn ísraels fyrir ofstæki þeirra - enda passa þeir víst lítt í kram okkar kæruleysis- tíma, þegar enginn vill vera sannfærður um neitt lengur. Þessi lesandi hér þóttist vita, að Móses gat hvergi fundist í öðrum heim- ildum, en maður hallast að því að taka undir með þeirri gyðinga- skrýtlu sem segir: „Móse hefur kannski aldrei verið til en hann átti áreiðanlega frænda sem hét Móses". Hann þóttist líka vita, að frásagnirnar af dýrð Salómons og miklu veldi væru langt frá því sem sennilegt mætti teljast. En það kom mér satt best að segja nokkuð á óvart, að þeir feðgar Davíð og Salómon eru hvergi til utan Biblíunnar. Aðrar heimildir þegja um þá. Þetta þótti mér satt að segja leiðinlegt vegna gamals kunningsskapar. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að karl- arnir stæðu svona veikum fótum í staðreyndafeninu. En það er líka spennusaga út af fyrir sig að fylgjast með því, hvernig frásagnir Biblíunnar þokast smám saman inn í þá birtu, sem hægt er að hafa af öðr- um heimildum, og verða nú æ fleiri rit og áletranir samferða yfir herleiðingar Assýríumanna og Babýloníumanna og allt fram á daga Krists. Lengi von á einum Reyndar er bók af þessu tagi örfandi lesning. Við erum stödd í miðju ævintýri. Annarsvegar standa fomir textar, sem hafa verið helgir gjörðir, mótað þrenn af helstu trúarbrögðum heims, textar sem hefur verið beitt í sið- fræði og stórpólitík. Og hinsveg- ar er skotið á þessa texta úr borg annarra heimilda, þar sem finna má fleygrúnir fornar, áletranir, lágmyndir, leirker og húsatóftir og vatnsleiðslur og fleira, sem síf- ellt er að koma upp úr þeirri Par- adís fornleifafræðanna sem Austurlönd nær eru. Og hvort munu þeir fundir hafna Biblíunni eða samþykkja hana? Það fylgja líka vissir töfrar þeirri vitneskju, að á þessum slóðum er fullt af gátum sem aldrei verður ráðið fram úr til fulls, eins þótt menn geti smám saman komist nær sannleikanum en gátu feður þeirra og afar. Og sífellt er von á nýjum fundum og merkilegum. Dauðahafshandritin fundust á okkar dögum og það er ekki lið- inn nema áratugur síðan það fannst í Tell Mardik á Sýrlandi skjalasafn mikils semitísks ríkis, sem áður var fátt um vitað. Og í þeim skjölum eru nöfn sem koma kunnuglega fyrir sjónir: Abra- ham, Esaú, ísmael, ísrael og enn vita menn ekki sem skyldi hvað þetta á að þýða. Já og enn eru menn að: Nú síð- ast hefur Líbani einn vakið upp nokkurn úlfaþyt með því að halda því fram, að Gyðingaland til forna hafi ekki verið í Palestínu heldur á vissu svæði í vesturhluta Saudi-Arabíu! Kenning þessi stendur á brauðfótum - aðalrök- semdin er samsvaranir hebreskra ,og arabískra staðarnafna, en með því að í þessum tungum eru sér- hljóðar ekki skráðir heldur að- eins samhljóðar hefur ímyndun- araflið helst til frítt spil, ef menn vilja endilega hleypa því á skeið. Málfræðingar eru hinir verstu út í þessa kenningu, Gyðingar og Saudi-Arabar sömuleiðis en sem- sagt: Lengi munu menn þessa steina klappa, það eitt er víst. Hressileg þýðing Eins og margir vita er bók þessi byggð á sjónvarpsþáttum um Biblíuslóðir, sem Magnús Magnússon stjórnaði og hafa ver- ið sýndir hér. Sá myndbundni uppruni verður bókinni ekki til trafala sem betur fer. Dagur Þor- leifsson hefur þýtt bókina með ágætum og er lítill þýðingark- eimur af starfi hans, texti hans er einatt vel kjarnyrtur og sneitt er hjá freistingum flatneskjunnar og svo höfuðsynd margra þýðara nú um stundir - að rekja sig áfram eftir margliða eignarfallaband- ormi. Á.B. Grafið ofan af múrum Jeríkóborgar á sjötta áratugnum. 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. nóvember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.