Þjóðviljinn - 17.11.1985, Síða 19
Amnesty International
Fangar mánaðarins
- nóvember 1985
Mannréttindasamtökin
Amnesty International vilja
vekja athygli almennings á
máli eftirfarandi samvisku-
fanga í nóvember. Jafnframt
vonast samtökin tii að fólk sjái
sér fært að skrifa bréf tii hjálp-
ar þessum föngum og sýna
þannig í verki andstöðu sína
við að slík mannréttindabrot
eru framin.
EÞÍÓPÍA. Mengesha Gebre-
Hiwot er 55 ára sérfræðingur í
kennslumálum, fyrrum aðstoðar-
maður menntamálaráðherra og
starfsmaður SÞ. Hann er einn úr
hópi 18 manna sem hafa verið í
haldi síðan í desember 1983
vegna meintrar aðildar að stjórn-
málaflokki (EPDA) sem hefur
gagnrýnt samband ríkisstjórnar-
innar við Sovétríkin. Þeim er gef-
ið að sök að hafa dreift „andbylt-
ingarsinnuðum” flugritum „sem
lið í tilraun heimsvaldsinna til að
kæfa eþíópísku byltinguna”.
Ekkert virðist benda til að flokk-
ur þessi hafi beitt eða hvatt til
ofbeldis. 18-menningarnir hafa
að sögn verið beittir pyntingum í
yfirheyrslum, m.a. með höggum
á iljar. Samkvæmt upplýsingum
AI hefur Mengesha Gebre-
Hiwot misst annan fótinn af þess-
um sökum. Nú er óttast um líf
hans, þar sem fjölskyldu hans er
ekki lengur leyft að senda honum
mat, en það var íeyft áíyrri heim-
ingi þessa árs.
HAITI. William Josma er 37
ára gamall verkfræðingur sem
haldið hefur verið án ákæru eða
dóms síðan í apríl 1981. í tilkynn-
ingu frá stjórnvöldum frá því í
febrúar 1984 er hann sakaður um
hryðjuverkastarfsemi, en form-
leg ákæra hefur ekki verið lögð
fram, og yfirvöld haf hvorki rétt-
að í máli hans né lagt fram sann-
anir máli sínu til stuðnings. AI
telur Josma í haldi vegna friðsam-
legrar andstöðu hans við stjórn
Jean-Claude Duvalier. Josma
bauð sig fram á eigin vegum til
þings árið 1979, en dró framboð
sitt til baka vegna þrýstings frá
stjórnvöldum. Þrátt fyrir ákvæði í
stjórnarskránni um frelsi til að
bindast stjórnmálasamtökum eru
þeir sem reyna að stofna stjórnar-
andstöðuflokka tíðum fangelsað-
ir eða verða að sæta yfirgangi af
ýmsu öðru tagi. William Josma
var ekki í hópi 37 pólitískra fanga
sem hlutu náðun í apríl 1985, og
vegna fullyrðinga yfirvalda um að
„enginn sé lengur í haldi vegna
afbrota af pólitískum toga” er
óttast um afdrif hans.
MALAYSÍA. Loo Ming Leong
er 42 ára verkamaður á gúmmí-
plantekrum, sem hefur verið í
haldi í 13 ár án ákæru eða dóms,
vegna meintrar aðildar hans að
Kommúnistaflokki Malaysíu sem
er bannaður. Fangelsun hans
styðst við hæpnar lagagreinar
sem heimila stjórnvöldum að
hafa í haldi í tvö ár í senn fólk sem
þau telja hættulegt öryggi lands-
ins. Aðbúnaður í fangelsisvist-
inni hefur verið afar slæmur. Pól-
itískir fangar í Batu Gajah fang-
elsinu þar sem Leong var til
skamms tíma máttu þola einang-
run í 22 klst. á sólarhring, og í
Taiping fangelsi, þar sem hann er
núna, er föngum haldið í heitum
og illa loftræstum fangaklefum,
og er hreyfing og læknishjálp
ónóg. Loo Ming Leong er sagður
þjást af nýrnabilun og háum
blóðþrýstingi.
Þeir sem vilja leggja málum
þessara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt,
eru vinsamlegast beðnir að hfa
samband við skrifstofu íslands-
deildar Amnesty, Hafnarstræti
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
15, Reykjavík, sími 16940. Skrif-
stofan er opin frá 16.00-18.00 alla
virka daga. Þar fást nánari upp-
lýsingar sem og heimilisföng
þeirra aðila sem skrifa skal til.
Einnig er veitt aðstoð við bréfa-
skriftir ef óskað er.
Hafnarbúðir
Hver hefur áhuga á að vinna í hlýlegu, björtu og heim-
ilislegu umhverfi í hjarta borgarinnar? Okkur vantar
fáeina hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og aðstoðar-
fólk. Einnig vantar sjúkraþjálfara í hálft starf fyrir
hádegi. Starf sem sýnir fljótt árangur.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri alla virka daga í
síma 19600-220-300 og yfirsjúkraþjálfari í síma
19600-266.
Reykjavík 14.11.1985
HELMINGURINN
Ef þú kaupir dilkakjöt í heilum skrokkum færðu helminginn ókeypis
miðað við verð í stykkjatölu.
Nú greiðir þú aðeins
T75.80
fyrir kílóið
í verðflokki Dl. Og skrokknum er skipt eftir þínum óskum.
Og hvílíkur aragrúi spennandi kræsinga
sem úr heilum lambaskrokki getur orðið:
Gamla góða steikin, innbakaðar lambalundir, Guðrúnar kjöt í káli,
Lambapottur torgsalans, ítalskar lambarifjur,
Kjötbollur Sollu frænku, Hakk með sál, Besta kæfan hennar Kötu ofl. ofl.
Hugmyndaflugið og íslenska lambakjötið eru sælgæti saman.
FRAMLEIÐENDUR