Þjóðviljinn - 24.11.1985, Síða 4
Rauð-
hóla-
Ransí!
Næsta verkefni sem Hitt
leikhúsið sýnir nefnist
Rauðhóla-Ransí og er um
margtóvenjulegt leikrit. Það
gerist nefnilega í fjölbragða-
glímuhring.
Hringurinn var keyptursér-
staklega til landsins vegna
sýningarinnar enda enginn
slíkurtil álandinu þarsem
þessi íþrótt er strangt tekið
bönnuð hér ásamt með
hnefaleikum. En í leikhúsi
leyfist allt nema að vera
leiöinlegur, og nú þjálfa sjö
ungir leikarar af kappi fjöl-
bragðaglímu undirstjórn
tveggja slagsmálahönnuða
frá Bretlandi og leikstjórans
Páls Baldvins Baldvinssonar.
Við brugðum okkur í vikunni á
æfingu með Ijósmyndara inni í
Líkams- og heilsuræktarstöð-
inavið Bolholtið. Þarmátti
heyra óp og öskur fram á
gang, en er inn kom stóðu
þær Kristín Kristjánsdóttir og
Edda Heiðrún Bachmann,
sem leikur Ransí, gnístandi
tönnum hvor á móti annarri í
hringnum. Höfundurinn er
kona, Clare Luckham.
„Verkið er meira en saga fjöl-
bragðaglímukonu, þótt það hafi
upphaflega átt að vera heimilda-
verk um Evrópumeistara kvenna
í fjölbragðaglímu, Mutzie
Muller. Það er um leið verk um
konur í karlaíþrótt, konur í karla-
samfélagi. Hringurinn er ekki
bara glímuhringur, hann er líka
samfélagið þar sem Ransí glímir á
heimavelli - og utan. Og að sjálf-
sögðu setjum við verkið upp í ti-
lefni af lokum kvennaáratugar,“
sagði Páll Baldvin sem auk þess
að leikstýra er þýðandi með Meg-
asi. Leikarar eru sex, sjöundi
leikarinn er Kolbrún Halldórs-
dóttir, sem situr á varamanna-
bekknum, en þjálfar með hinum
leikurunum. Auk Eddu og Krist-
ínar leikur Edda Björgvinsdóttir í
verkinu og karlmennimir eru
þrír, - Andrés Sigurvinsson,
Guðjón Pedersen og Andri
Clausen. Slagsmálahönnuðirnir
eru breskir feðgar, Clifford
Wemlow og Brian Wete,
þrautþjálfaðir í hverskyns brögð-
um og auk þess vanir að vera
staðgenglar í kvikmyndum.
„Þetta er fimur og flinkur hóp-
ur, - þeim gengur ótrúlega vel,“
sagði Brian aðspurður. Að sjálf-
sögðu eru allir leikaramir slysa-
tryggðir, en „ef rétt er að farið á
enginn að slasast,“ upplýsti Páll.
Ekki er ennþá ákveðið hvar
verkið verður frumsýnt, -
nauðsynlegt er að sýna það þar
sem hægt er að hafa áhorfendur á
þrjá eða fjóra vegu og slíkt húsn-
æði er ekki á hverju götuhorni í
henni Reykjavík.
Fmmsýningin verður 10. janú-
ar og þangað til er glímt í hringn-
um frá 8 á morgnana til 3 á dag-
inn. Tónlist og dans munu einnig
gegna þýðingarmiklu hlutverki í
sýningunni.
þs
Rauðhóla-Ransí, fullu nafni Ragnhildur Björt - á fullu. (Edda Heiðrún)
Bresku slagsmálahönnuðirnir Clifford og Brian með Pál á milli sín.
- svo er að detta án þess að slasa sig...
„Það er vissara að mæta okkur ekki á fáfarinni götu að næturlagi. Við segjum ekki rneira." Eddumar, Kristín og Kolbrún I
pásu. Ljósm. Sig.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. nóvember 1985