Þjóðviljinn - 17.12.1985, Síða 6

Þjóðviljinn - 17.12.1985, Síða 6
Athugasemd fra Þjóðhagsstofnun í laugardagsblaði Þjóðviljans, 30. nóvember síðastliðinn, er fjallað um mismun á tekjum landsmanna eftir landshlutum í grein, sem berheitið: „Reykjavík - láglaunasvæðið?“. Auk þess er frétt á forsíðu blaðsins um sama efni. Þar sem heimildir blaðsins eru að meginhluta sóttar í vinnus- kjal frá Þjóðhagsstofnun, sem ekki var ætlað til birtingar og get- ur alls ekki staðið undir þeirri túlkun, sem fram kemur í greininni, vill stofnunin koma á framfæri eftirfarandi athuga- semdum: FÓLKÁFERÐ! ^ Þegar fjölskyldan ferðast er mikilvægt að hver sé á sínum stað — með beltið spennt. yUMFERÐAR RÁÐ FLÓAMARKAÐURINN Góð kona óskast eftir áramótin til að gæta lítillar stúlku, 4 mánaða, og taka á móti stóru systur sem er 9 ára, að loknum skóladegi. Um er að ræða ca 10 tíma á viku. Við búum við Langholtsveg og best væri að konan góða gæti verið heima hjá okkur. Nánari upplýsingar í síma 32344. Til sölu Trabant 79 þartnast viðgerðar, selst ódýrt. Upplýsingar í síma 37978 e. kl. 18.00. Til sölu Gardínur mjög ódýrar, upplýsingar í síma 618854. Til sölu Sinclair Spektrum tölva með Joy Stick og Inter face kasettutæki og nokkrum leikjum. Lítið notuð. Upplýs- ingar í síma 667227, e. kl. 16.00. Candy þvottavél til sölu, ennfremur Indesit ísskápur. Upplýsingar í síma 45923. Okkur vantar íbúð í Reykjavík. Ef þú hefur svona eins og eina lausa á þínum snærum þá máttu gjarnan hringja í síma 45653. Anna og Gísli. Til sölu sófi og tveir stólar með ullaráklæði. Selst ódýrt. Uþplýsingar í síma 41458 eftir kl. 7. Svart borðstofusett Einnig kringlótt sófaborð 1,10 m í þvermál og aflangt tekksófaborð u.þ.b. 130 cm á lengd. Upplýsingar í síma 27798. Dúkkurúm Er nú með blómlegu rúmin í þremur stærðum. Einnig með rúm úr furu. Verð á útimarkaðinum á torginu alla laugardaga fram að jólum. Uppl. í síma 611036. Auður Oddgeirsdóttir. Jolabasar Vesturgötu 12 Höfum opnað basar með handunn- umjólavörum. Eldhúsdúkkurog tusk- udúkkur, 5 stærðir og margt hentugt til jólagjafa. Bokhald Ertu með bókhaldið í ólagi? Tek að mér bókhald fyrir lítil fyrirtæki. Uppl. í síma 30854 e. kl. 6. Til sölu Parket, 4 m2 af eik nistical. Selst á 1000 kr. Upplýsingar í síma 36858 eftir kl. 7.00 Barnabílstóll til sölu Barnabílstóll af gerðinni KL, sem viðurkenndur er af Bifreiðaeftirlitinu. Ennfremur 2 nýir telpnakjólar á aldur- inn 6 - 8 ára og 2 barnaskrifborð. Upplýsingar í síma 27101. Húsnæði óskast Ungur reglusamur maður óskar eftir einstaklingsíbúð á leigu eða 15-20 fm herbergi, með aðgangi að baði, eld- unaraðstöðu og þvottaaðstöðu, frá 15.-20. janúar 1986. _ Fataskápur mætti fylgja. Helst ekki í Árbæjar- eða Breiðholtshverfi. Öruggar greiðslur og góð umgengni. Uppl. í síma 37697, eftir kl. 18 á kvöldin. Eldavél Gömul Rafha eldavél í góðu lagi, fæst gefins. Uppl. í síma 11251 eftir kl. 16 og 14917. Gólfteppi fæst gefins Notað gulbrúnt gólfteppi ca 40 m2 fæst gefins gegn því að það sé sótt, 17. eöa 18. desember. Upplýsingar í síma 686379. Gervijólatré óskast Þarf ekki einhver að losna við gamla gervijólatréð sitt úr kompunni? Þarf ekki endilega að vera stórt. Upplýs- ingar í síma 17918. íbúð til leigu 2ja-3ja herbergja íbúð til leigu í Selja- hverfi. Reglusemi og góð umgengni. Tilboð merkt „Ibúð 3+2“ eða uppl. á auglýsingadeild Þjóðviljans s.: 681333. Til sölu ódýrt 1. Gluggatjöld, 6. st. 2,50x1,40 m. Aðallitur drapp, brúnar rendur. Lausofið efni. Nýhreinsaðar kr. 3.600. 2. Eldhúsgögn frá Stálhúsgögnum: Borð 120x75 sm, 2 stólar kr. 2.000. Sólheimum 37, sími 35364. Sjúkrastöð í El Salvador Við söfnum rekstrarfé fyrir sjúkrastöð í Santa Barbara í El Salvador. Póstgíró 303-26-10401. Merkt: Pósthólf 1032, 121 Reykjavík. Jóla - hvað? Vantar ykkur jólasveina í heimsókn á jólaskemmtanir? Kertasníkir og Gáttaþefur eru til í slaginn. Uppl. í símum 13741 og 20461. „Undir Mexíkómána" Langar ykkur ekki til að eignast „Undir Mexíkómána" er út kom 1982?. Verð aðeins 300 kr. Fræð- andi og forvitnileg bók. Ódýr og góð jólagjöf á þessum síðustu og verstu tímum. Hringið í síma 43294 á kvöld- in. Til sölu Vel með farin unglingaskíöi (165) og stafir fást ódýrt. Upplýsingar í síma 18317 eftir kl. 5.00. Eldavél Gömul Rafha eldavél vel útlítandi og í góðu lagi fæst gefins fyrir þann sem vill sækja hana. Uppl. í síma 32380, Droplaug Pétursdóttir Laugarnes- vegi 94. Borðstofuborð Svart borðstofuborð til sölu 150x70 cm á kr. 3.000.-. Upplýsingar í síma 27798 eftir kl. 18.00. Kuldaskór til sölu ca. 25 sm háir, vandaðir, Ijósbrúnir kuldaskór úr leðri til sölu. Skórnir eru lítið notaðir og án ullarfóðurs. Hæl- arnir eru ca. 6-7 sm háir og táin mjó. Skórnir eru nr. 39, en þetta er lítið númer, myndi passa á fætur sem nota skó nr. 37. Hugsanlegt verð 2000 krónur, til viðræðu um lægra verð. Ég verð heima í dag til kl. 15 í Mávahlíð 12, 1. hæð og eftir kl. 18 í kvöld. Á morgun e.kl. 18. Síminn er 621945 á kvöldin. Tilvalin jólagjöf 2 fallegir og spakir páfagaukar í mjög vönduðu búri til sölu. Upplýsingar i síma 671254 eftir kl. 14.00. 1. Vinnuskjalið, sem lagt er til grundvallar frétt Þjóðviljans, sýnir niðurstöður úrtaksathugun- ar Þjóðhagsstofnunar og skatt- stjóra úr skattframtölum fyrir árin 1983 og 1984, sem gerð var í mars/aprfl 1985. Athuganir af þessu tagi hafa verið gerðar ár- lega mörg undanfarin ár í sam- vinnu við skattstjóra á öliu landinu. Tilgangurinn er ein- göngu sá að fá fyrstu hugmyndir um tekjubreytingar milli ára, en ekki tekjur í krónum talið. End- anlegar niðurstöður um tekju- breytingar og meðaltekjur liggja hins vegar ekki fyrir fyrr en úr- vinnslu úr öllum framtölum er lokið, yfirleitt í október/ nóvember ár hvert. Reynslan undanfarin ár sýnir, að úrtaksathugun af þessu tagi gerð á þessum árstíma gefur all- góða mynd af tekjubreytingum milli ára, en hins vegar hefur úr- takið ekki gefið rétta mynd af tekjum í krónum talið, hvorki fyrir landið í heild né einstök skattumdæmi. Enda nær athug- unin aðeins til • fárra þéttbýlis- staða í hverju skattumdæmi og getur þess vegna alls ekki verið grundvöllur áætlunar um tekju- fjárhæðir í umdæmunum í heild. Ennfremur er rétt að nefna, að þótt úrtakið hafi oftast farið ná- lægt endanlegum niðurstöðum um tekjubreytingar milli ára, fyrir landið allt, hefur það yfir- leitt sýnt meiri breytingar en end- anleg úrvinnsla. Þess vegna hefur Þjóðhagsstofnun ávallt haft fyrir- vara á niðurstöðum úrtaksins, sem meðal annars má ráða af því, að niðurstöðurnar hafa ekki ver- ið birtar opinberlega, heldur not- aðar með öðru efni til þess að áætla breytingar heildartekna en alls ekki til þess að meta tekju- fjárhæðir eftir landshlutum. 2. í grein Þjóðviljans er lagt út af niðurstöðum úrtaksathug- unarinnar á tvennan hátt. í fyrsta lagi með því að bera saman heildartekjur í krónum talið. í öðru lagi með því að líta á tekju- breytingar milli áranna 1983 og 1984. í báðum tilvikum er ekki síst litið á höfuðborgarsvæðið annars vegar, einkum þó Reykja- vík, og „landsbyggðina" hins veg- ar. Greinarhöfundur dregur síð- an af þessum tölum tvær megin- ályktanir; í fyrsta lagi að tekjur Reykvíkinga liggi undir lands- meðaltali og séu raunar óvíða lægri; og í öðru lagi að tekju- breytingar milli 1983 og 1984 séu víðast hvar meiri en á höfuðborg- arsvæðinu. Eins og fyrr var nefnt telur Þjóðhagsstofnun mjög varasamt að draga af þessari úrtaksathug- un ályktanir um tekjufjárhæðir eftir landshlutum. Úrvinnslu Þjóðhagsstofnunar úr öllum skattframtölum einstaklinga á landinu árið 1984 er enn ekki að fullu lokið, en á grundvelli henn- ar er þó unnt að draga fram nið- urstöður fyrir tekjur og tekju- breytingar eftir landshlutum. Þar sem þær niðurstöður ganga í veigamiklum atriðum þvert á túlkun Þjóðviljans á úrtaksathug- uninni, er nauðsynlegt að fara um þær nokkrum orðum. 3. Samkvæmt heildarúr- vinnslu Þjóðhagsstofnunar úr skattframtölum einstaklinga fyrir tekjuárið 1984 námu heildartekj- ur 263 þúsundum króna á hvern framteljanda. Þar af voru at- vinnutekjur 223 þúsund krónur, en mismuninn má rekja til ann- arra tekna, svo sem tilfærslu- tekna ýmiss konar og eignatekna. Þessar tölur segja þó ekki alla söguna, því að þær eru meðaltöl fyrir alla framteljendur. Ef ein- göngu er litið á tekjur þeirra framteljenda, sem ætla má að hafi verið í sem næst fullu starfi 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN allt árið (skilgreint þannig að fram komi 40-52 vinnuvikur hjá viðkomandi), kemur í ljós, að heildartekjur þessa hóps námu 380 þúsundum króna á mann á árinu 1984; þar af voru atvinnu- tekjur 317 þúsund krónur á mann. Þegar litið er á tekjur í einstök- um skattumdæmum, kemur í ljós, að tekjur í Reykjavík og Reykjanesumdæmi eru yfir landsmeðaltali, gagnstætt því sem Þjóðviljinn telur úrtaksat- hugunina benda til, hvort sem miðað er við heildartekj ur eða at- vinnutekjur. Þetta sýnir best, hversu varhugavert er að byggja á úrtakinu, hvað tekjufjárhæðir snertir. Svipaða niðurstöðu má raunar líka lesa út úr skýrslu Áætlanadeildar Framkvæmdast- ofnunar ríkisins, Vinnumarkað- urinn 1983 (útg. í febrúar 1985). Þar kemur fram, að meðallaun á hvert ársverk 1983 eru hæst á Reykjanesi en næst hæst í Reykjavík. 4. Niðurstöður heildarúr- vinnslu Þjóðhagsstofnunar um tekjubreytingar milli áranna 1983 og 1984 fara hins vegar mun nær vísbendingum úrtaksins, enda er það megintilgangur úrtaksathug- unarinnar að fá hugmynd um þessar stærðir. Þar kemur meðal annars fram, að tekjubreyting á hvern framteljanda ervíðast hvar meiri en í Reykjavík. Á hinn bóg- inn er rétt að benda á, að tekju- breytingin í Reykjanesumdæmi er yfir landsmeðaltali samkvæmt heildarúrvinnslunni, gagnstætt því sem úrtakið gaf til kynna. Samanlagt er tekjubreytingin í Reykjavík og Reykjanesumdæmi rétt um landsmeðaltal þegar mið- að er við hvern framteljanda. Ef litið er á tekjubreytingar í heild hins vegar, þ.e. að teknu tilliti til fjölda framteljenda, kemur í Ijós, að tekjur hækka mest í Reykja- nesumdæmi, og samanlagt er hækkun tekna í Reykjavík og Reykjanesumdæmi („höfuð- borgarsvæðið“ í víðri merkingu) talsvert yfir landsmeðaltali. Að- eins á Vestfjörðum og á Norður- landi vestra er tekjubreytingin meiri. Af þessu má ráða, að fram- teljendum hafi fjölgað meira í Reykjavík og Reykjanesumdæmi en víða annars staðar á landinu, eða um tæplega 2% samanlagt milli 1983 og 1984, samanborið við 1,3% fjölgun á landinu í heild. 5. Það er virðingarvert, að blaðamenn leitist við að draga fram ýmsa þá þætti efnahags- mála, sem í senn geta talist frétt- næmir og fróðlegir. Á hitt verður þó að leggja áherslu, að jafnan sé reynt að byggja á sem bestum heimildum. A miðju síðastliðnu sumri bentu starfsmenn Þjóð- hagsstofnunar blaðamanni Þjóð- viljans á, að úrtaksathugunin hefði mjög takmarkað gildi sem undirstaða ályktana um tekju- fjárhæðir eftir landshlutum. Þær tölur, sem hér hafa verið tilfærð- ar og fram koma í meðfylgjandi töflu, skýra þetta enn frekar. Það verður því að harma, að tölur úr vinnuskjölum, sem stofnunin hefu ekki afhent blaðinu, séu notaðar á þennan hátt. Reykjavík, 2. desember 1985. Virðingarfyllst, f.h. Þjóðhagsstofnunar, Bolli Þór Bollason. Frá ritsjóra: 1) í Innsýnargreininni sem til er vitnað er lögð mikil áhersla á að um úrtak hafi verið að ræða og að Þjóðhagsstofnun hafi ekki birt það opinberlega. 2) Það er ekki rétt að í grein Þjóðviljans sé „lagt útaf niður- stöðu úrtaksathugunarinnar á tvennan hátt“, einsog segir í at- hugasemdum Þjóðhagsstofnun- ar, þ.e. að greinarhöfundur hafi dregið tvær meginályktanir, þær að tekjur reykvísks launafólks liggi undir landsmeðaltali og að tekjubreytingar séu víðast hvar meiri en á höfuðborgarsvæðinu. Hér er ekki um niðurstöðu greinarhöfundar að ræða, heldur niðurstöður úrtaksins sjálfs. f greininni er tekið fram að um við- kvæmt mál sé að ræða og ekki gerðar tilraunir til túlkunar á niðrstöðunum. 3) Úrtakið og umfjöllun Þjóð- ■ viljans ' náðu einungis til fullvinnandi launafólks en ofan- ritaðar upplýsingar Þjóðhags- stofnunar og taflan ná til heildar- árstekna allra framteljenda árin 1983 og 1984, - þarmeð nær ta- flan jafnt yfir tekjulausa sem aðra. í Innsýnargreininni er ein- ungis fjallað um launafólk. 4) Þjóðviljinn lagði ríka áherslu á að úrtakskönnunin gæti aðeins gefið vísbendingar en væri ekki síðasta orðið í þessum mál- um. Jafnframt var sagt að Þjóð- hagsstofnun hefði „varað við túlkunum á henni“. En hvort tveggja; úrtakskönnunin og at- hugasemdir Þjóðhagsstofnunar hafa verið upplýsandi og engin ástæða til að harma það. Þvert á móti þakkar blaðið fyrir upplýs- ingar og athugasemdir Þjóðhags- stofnunar. Með: jólakveðjum, von um bættan þjóðarhag og hærri laun - og virðingu. Oskar Guðmundsson B]Ú0WCSSt0FH« Hellddrárstekjur frawtgljenda 1963 og 1964. Tll samantxjrðar: Medaltekjur á hvern fram- teljanda m.v fram- Tekjubrevtingar Medaltekjur á hvern fram- teljendur í sem n*st 1983-1984 að teljanda m.v. aila heilsársstarfi meðtalinni fjölgun framtelJendur 1) (áO-52 vinnuvikur) framteljenda 1963 198Á Breyting 1983-1964 1983 1984 Breyting 1983-1984 Atvlnnu- tekjur Heildar- tekjur þús.kr. þús.kr. % þús.kr. þús.kr. % % % Landið allt 206 263 26,2 300 380 26.6 29,5 2 7,9 Reykjasík 213 266 24,9 319 402 -26,4 26,7 27,2 Reykjanes 221 252 27.6 326 415 27,3 31,4 30,6 Reykjavík og Reykjanes 21Ó 272 26,1 321 407 26,8 29.8 29,5 Vesturland 199 250 25,6 271 342 26,2 28,4 26,0 Vestfirðir 217 28? 30,0 300 379 26,0 31,7 29,7 NonJjriand vestra 182 233 26,0 237 304 29,3 33,1 29,0 Norðurland eystra 193 243 25,9 275 348 26,5- 28,3 26,2 Austurland 199 245 23,7 274 336 22,6 27,0 24,7 Suðurland 194 244 25,8 261 331 26,8 28,2 26,7 1) 1 þessun tölun er heildartekjum framteljenda samkvamt skattfr<*ntöltfn og launamlðaskýrslein skipt niöur miðað við heildarfJölda framtelJenda, þ.e. Jafnt tekjulausa sem aðra.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.