Þjóðviljinn - 20.12.1985, Page 6
Jól
Spœnskur jólasveinn
og svartir aðstoðarmenn
Aðfangadagurjólaerósköp
venjulegur dagur nema hvað
sumirfaratil messu klukkan
tólf á miðnætti en 25. og 26.
desembereru hátíðisdagarí
Hollandi, sagði Leýn De Wolf
frá Arnhem, 200 þúsund
manna borg í Hollandi en nú
búsetturá Islandi.
Það er nokkuð algengt að fólk
taki sér frí frá vinnu milli jóla og
nýárs en í heild má segja að jólin
séu afslöppuð og róleg fjölskyld-
uhátíð. Fyrir suma eru jólin hátíð
kristninnar en fyrir aðra eru þau
rétt eins og hver önnur helgi.
Við borðum góðan mat en það
er ekki til neinn hefðbundinn
jólamatur í Hollandi eins og til
dæmis hangikjöt hér. Það er al-
gengt að fólk borði kalkún á jól-
um en það er reyndár alþjóðlegur
réttur. Það sem tengist jólunum í
Hollandi eru hins vegar sérstök
tegund af brauði og kökum.
Brauðið heitir einfaldlega jóla-
brauð, með hnetum og rúsínum
og sérstöku kryddi sem heitir á
hollensku „spýs“ og er búið til úr
möndlum og sykri. Uppskrift að
brauðinu er svona:
Jólabrauð
500 g hveiti
5 msk púðursykur
40-50 g ger (blautger er best)
Vz msk salt
100 g smjör
1 egg
1 Vz-2 dl mjólk (volg)
rifinn sítrónubörkur
25 g súkkat
100 g kúrennur
300 g rúsínur
(Þvegnar og þurrkaðar)
100 g saxaðar hnetur
200 g „spýs“
flórsykur
Gerið smá holu í hveitið og geri
og sykri blandað saman, og sett
út í hveitið og saltinu stráð yfir
gerblönduna. Bræddu smjöri,
egginu og mjólkinni bætt út í.
Deigið hnoðað í u.þ.b. 15 mínút-
ur og látið hefast í 45 mínútur og
rakur klútur breiddur yfir. Sítr-'
ónuberki, súkkati, kúrennum,
rúsínum og hnetum (allt saxað)
hnoðað saman við deigið. Deigið
mótað í stóra flata köku, „spýs“
lengjan lögð ofaná og brauðið
rúllað upp. Neðri endi kökunnar
látinn standa aðeins lengra út en
sá efri.
Brauðið sett á smurða plötu og
látið lyfta sér í 30 mín. Rakur
klútur breiddur yfir. Bakað neð-
arlega í 220° heitum ofni í um það
bil 30 mínútur. Brauðið látið
kólna, penslað með bræddu
smjöri og flórsykri stráð yfir.
Borðað með smjöri.
„Spýs“
125 g möndlur
125 g sykur
rifinn sítrónubörkur
1 egg
Möndlurnar settar í sjóðandi
vatn og soðnar í Vi mínútu.
Möndlurnar flysjaðar og muldar
og sykrinum blandað saman við.
Sítrónuberki blandað út í.
„Spýs“-ið verður stökkara ef það
er látið bíða í nokkra daga áður
en egginu er hrært út í.
Jólatúrban og
jólahringur
Auk brauðsins eru tvær kökur
dæmigerðar fyrir hollensk jól en
það eru Jólatúrban og Jólahring-
ur.
Jolaturban
300 g hveiti
LeýnDeWolf
segirfráhol-
lenskujólahaldi
50 g púöursykur
20 g ger
1/2 msk salt
50 g smjör
2 egg
11/2 dl volg mjólk
50 g súkkat og eöa rifinn sítrónu-
börkur
200 g rúsínur
flórsykur
Deigið hnoðað eins og í fyrri
uppskriftinni. Látið lyfta sér í 45
mínútur. Súkkati og rúsínum
hnoðað saman við deigið látið í
smurt og hveitistráð hringform.
Deigið látið lyfta sér í 30 mínútur.
Rakur klútur breiddur yfir. Kak-
an er bökuð neðarlega.í 220° heit-
um ofni í um það bil 30 mínútur.
Flórsykri stráð yfir.
Jólahringur
Deig:
100 g hveiti
100 g smjör (kalt)
salt
1/2 dl kalt vatn
nokkrir dropar af ediki
Fylling:
250 g „spýs"
1 egg (þeytt)
apríkósumarmelaði eða glassúr eða
þurrkaðir ávextir og appelsínubörkur.
3A af hveitinu látið í skál.
Smjörið saxað saman við með
tveimur hnífum. Salti bætt út í og
ediki. Vatni bætt út íþar til deigið
verður samahangandi. Hveiti
stráð á borðið og deiginum velt
upp úr því. Deigið flatt út og um
leið snúið nokkrum sinnum.
Deigið brotið þrefalt og flatt út
aftur og geymt í ísskáp í að
minnsta kosti 30 mínútur. Deigið
flatt út í köku sem er 50 cm löng,
12 cm breidd og Vi cm þykk.
„Spýs“-inu blandað saman við
helminginn af þeytta egginu og
dálitlu af þurrkuðum ávöxtum.
Rúllað upp í lengju sem er aðeins
styttri en deigkakan. Lengjan
lögð á miðja deigkökuna sem er
rúllað upp utanum spýs-lengjuna
og límd saman með vatni. Endar
festir saman með vatni svo úr
verði hringur. Hringurinn pen-
slaður með afganginum af þeytta
egginu og bakaður neðarlega í
220° heitum ofni í um það bil 30
mínútur. Stranglega bannað að
opna ofninn fyrstu 10 mínúturn-
ar. Hringurinn er skreyttur með
volgu aprxkósumarmelaði, glass-
úr eða þurrkuðum ávöxtum og
appelsínuberki. Oft eru líka bak-
aðar smákökur úr sama deigi og
hringurinn og þær hengdar í jól-
atréð fyrir börnin að gæða sér á.
Jólatréð er annars skreytt eins og
hér, með kúlum og jólaseríu sem
nú hefur tekið við hlutverki kert-
anna.
Afmœlisdagur
jólasveinsins
Það sem kannski gerir hollensk
jól frábrugðin íslenskum jólum er
það að við gefum engar gjafir á
jólunum. 5. desember er hins
vegar afmælisdagur jólasveinsins
og þá er haldið upp á afmæli hans
og gefnar gjafir. Jólasveinninn
kemur með eimskipi frá Spáni
nokkrum dögum fyrir afmælið
sitt og í fylgd með honum eru
svartir aðstoðarmenn. Börnun-
um er sagt að jólasveinninn verði
1000 ára á hverju ári. Kvöldið
fyrir 5. desember setja börnin
skóinn sinn fyrir framan arininn
eða strompinn og oft poka eða
sokk fyrir jólagjafir. Jóla-
sveinninn ríður yfir húsþökin á
hvítum hesti ásamt meðreiðar-
sveinunum og gefur góðu börn-
unum gjafir. A afmælisdaginn
sinn heimsækir jólasveinninn líka
skóla og ýmsa staði þar sem börn
eru. 5. desember fá allir stóran
staf úr súkkulaði frá jólasveinin-
um, fyrsta stafinn í nafninu sínu.
Aðstoðarmenn jólasveinsins
deila út litlum kökum, svokölluð-
um piparhnetum til barnanna.
Jólasveinninn hefur meðferðis
stóra bók og þar sem í stendur
skrifuð hegðan allra barna yfir
árið. Góðu börnin fá gjafir en
óþekk börn fá að smakka á hrís-
vendi hjálparmannanna. Venjan
er að fjölskyldur safnist saman
þennan dag og skiptist á gjöfum.
Það er gamall siður sem er aftur
að ryðja sér til rúms að börnin
skrifi á litla miða hvers þau óska
sér í jólagjöf en það má ekki vera
dýrt. Miðarnir eru settir í poka og
hver dregur miða. 5. desember
eru svo gjafirnar afhentar og þá á
að fylgja vísa með. Vísurnar eru
enginn fyrirmyndar kveðskapur,
aðalatriðið að þær rími og helst
eiga þær að vísa til einhvers sér-
staks í fari þeirrar manneskju
sem gjöfina fær, kosti hennar,
galla eða venja. Ef ég til dæmis á
bróður sem er latur við að bursta í
sér tennurnar er tilvalið að gefa
honum notaðan tannbursta og
vísu um það, að þar sem hann sé
alltaf að bursta í sér tennurnar sé
tannburstin orðinn svona eyddur
og Ijótur. Þó að 5. desember sé
fyrst og fremst fyrir börnin halda
margir þessu áfram langt fram á
fullorðins ár. Til dæmis hittist
Eins og að halda
jól í fyrsta skipti
Undirbúningur og viðhöfn fyrir
jól þeirra Eþíópíumanna sem til-
heyra koptískri kristinni trú er af-
skaplega lítil og varð ég ekki vör
við að nokkuð væri gert til að
halda upp á þau í Konsó, sagði
Margrét Hróbjartsdóttir hjúkrun-
arfræðingur og kristniboði sem
hefur starfað í fimm ár við
kristniboð meðal Konsómanna í
Eþíópíu.
Orþódox-koptíska kirkjan
dagsetur sín jól 7. janúar og sá
dagur er lítið frábrugðinn öðrum
dögum. Eþíópía er stórt land og
þar búa margir þjóðflokkar hver
með sína trú og siði. Það er bara
lítill hluti þjóðarinnar sem til-
heyrir þessari kristnu kirkju og
hún hefur ekki verið svo virk við
að reyna að ná út til fólks með
hinn kristna boðskap. Það er
meira þannig að fólk fæðist inní
ákveðna stétt, í þessu tilfelli stétt
amhara, yfirstéttina og tekur upp
siði og venjur kirkjunnar kannski
án þess að hjartað fýlgi með.
Áhrif kristninnar hafa í litlum
mæli náð til þeirra sem fyrir utan
standa. Við sem tilheyrum
evangelísku-lútersku kirkjunni
komum inn með þessa siðvenju
að halda jólin hátíðleg og skiptast
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN JÓLABLAÐ
MargrétHró-
bjartsdóttir
segirfrájólum
meðal Konsó-
mannaí
Eþíópíu
á gjöfum til að minnast komu
frelsarans í heiminn, jólagjafar-
innar allra stærstu. Og í gleði
okkar yfir þeirri dýrmætu gjöf,
langaði okkur til að gleðja hvert
annað með því að gefa gjafir. Við
buðum öllu skólafólki og starfs-
fólki kristniboðsstöðvarinnar og
útbjuggum litlar jólagjafir sem
vöktu mikla hrifningu. Jólagjaf-
irnar voru til dæmis sápustykki,
eldspýtustokkur, litir og stíla-
bækur sem við höfðum keypt í
Addis Ababa, en þangað fórum
við einu sinni til tvisvar á ári. Á
okkar mælikvarða voru þetta
smávægilegar gjafir en þau höfðu
aldrei eignast neitt þessu líkt og
þótti mikið til þess koma.
Mest saknaði ég þess að kom-
ast ekki í kirkju á aðfangadags-
kvöld. Ég hef alltaf þurft að fara í
kirkju til þess að sækja heim jól-
in. Við reyndum að gera eins
jólalegt og við gátum og útbúa
okkar eigin kirkju. f því ytra var
ekkert sem minnti á jólahald,
enginn jólasnjór og engar
skreytingar, - en í hjartanu ríkti
samt jólagleði. Þessi fyrstu jól
sem við héldum með eþíópskum
vinum okkar voru eins og að
halda jól í fyrsta skipti. Innihald
þeirra og fagnaðarboðskapur
voru alveg ný þegar fyrir þeim og
urðu það um leið fyrir okkur.
„Mig vantar vatn“
íslenska kristniboðsstöðin,
Kónsóstöðin var byggð 1954 uppí
fjallshlíð og eru tvö þorp sitt-
hvoru megin við en önnur ofar í
hlíðinni. Eþíópía er fagurt land,
þar sem skiptast á fjöll, dalir og
miklar sléttur þar sem villidýrin
ráfa um. f Konsó er loftslagið
ákaflega þurtt en það er þó miklu
þægilegra en þar sem rakt er.
Þarna var hver vatnsdropi af-
skaplega dýrmætur og þurfti að
fara langar leiðir til að finna vatn.
Margrét: Saknaði þess mest að komast ekki í kirkju á aðfangadagskvöld.
Ljósm.: Sig.
Fyrsta setningin sem ég lærði á
amharísku sem er ríkismálið var -
„mig vantar vatn“. Vatnið
keyptum við af Konsókonum
sem sóttu það niður í dal, báru
síðan á bakinu í stórum vatnsker-
um upp fjallshlíðina og seldu.
Núna er þó búið að grafa brunna
og rigningarvatni er safnað í stór-
ar vatnsþrær.
Til að byrja með bjuggum við
mjög frumstætt og átti það vel við
okkur. Það var ekki erfitt að
koma til Eþíópíu, því við vorum
undir það búin að allt væri mjög
frumstætt. En þegar við komum
aftur heim eftir fimm ára dvöl,
má segja að við höfum fengið
„kúltúrsjokk“. Mest langaði mig
til að flýta mér út aftur.
íslenska kristniboðssamband-
ið og norska lúterska kristniboðs-
sambandið starfa undir sameigin-
legri yfirstjórn í Eþíópíu. Þau
hafa fengið að starfa þarna áfram
eftir byltinguna. Ástæða þess að
stjórnvöld hafa ekki amast við
kristniboðsstarfinu er kannski sú
að á vegum þess er rekið mikið
líknarstarf. Mörg sjúkrahús eru
rekin með miklum myndarbrag.
Starfsemi á öðrum sviðum er líka
öflug og vel rekin og hefur staðið
þarna föstum fótum. Þörfin fyrir
sjúkrastarfið er óskaplega brýn,
það eru ekki margir læknar fyrir
allan þennan íbúafjölda og þeir
mega ekki við því að missa lækna
og hjúkrunarfólk. Innlendum
læknum og hjúkrunarfólki er að