Þjóðviljinn - 20.12.1985, Page 10

Þjóðviljinn - 20.12.1985, Page 10
... ollt í máli pvo ,eð W‘ ttak°n w«" Þ,0'‘' ryUfin ukv ceði kem ég rnóga^011; í Hi^^ðV5 þyna né hW vona fl0 V; rninnfl, , um sU ftrðu - . er Hv°r iflrgað ^„aiéljan1 , jörðfl ég flr mínflr' , sVuntflr^r sírvar a^^hre “"'íð Vasflklf,aHoUur 08 8 þó pað veU i mer má P' flssa rninn. þinn- ,ðki„, He^P0^ A 'sí> hann ur sVeinn af eU.'rráeW si"”,"oB K. rr„P>ofi8,° ItfaÞf s;:fe litp «„toð TgS.eni , ,„vr.a P':n“ ^inning e .,„rflláar ersa ber sölaa1 á at di ufs M.ae^fv^ÍJuS’S^'os ef *£.£ Vn£dfla?fl^ ^3^ nei og Jo m<W u' ■^na ofan **. lö um ^10 há og rnörg dvelur, ðast Þar ferO»- ' Þl„ «'Sy Íl'ó'f LIS°' finíi gi°rð _ Slðfln P nU. , rðið búid fð '*ið seeiC > Erflö,_,,i bezt flð . nö eigfl g bliHfl sl] í heimt' EÍ«i‘kir,rg>‘”S5“ivo“' á'h,Kfa„i“"eSirfa>i,ney '■■■ flngflr e Þeir skaftfellsku skútukarlar Jóhannes Sveinsson og Þórbergur Þórðarson áttu það sameiginlegt að hefja skáldferil sinn sem þrælar á galeiðu Einars Benedikts- sonar. Von bráðar stukku þeir samt í land, og leiðir skildi með þeim leysingj- unum - og þó. Báðir hlutu þau örlög að verða aldrei teknir alvarlega sem ljóð- skáld, jafnvel ekki Þórbergur, sem þó orti jafnan kórrétt samkvæmt bragreglunum. Önnur ritstörf hans skyggðu fullkomlega á getu hans á sviði ljóðlistarinnar. Um Kjarval gegndi því máli að eðlilegast var fyrir hann að „skrifa” með lit og línu, og hann bar gæfu til að geta helgað sig þess- konar ritstörfum ævilangt. Þegar hann bar það við að yrkj a í ljóðformi, þá var honum „fyrirgefið” það og litið á það af um- burðarlyndri góðvild, eða þegar bezt gegndi hlegið að því. Fátt eða ekkert af yrkingum hans varð alþjóðareign eða al- menningi munntamt, kannski með einni undantekningu þó. Fyrir u.þ.b. hálfri öld, þegar banda- rískri konu tvífráskilinni, Wallis Simpson að nafni, tókst að krækja sér í sjálfan Ját- varð áttunda Englandskóng, þá efndi Morgunblaðið til samkeppni um vísubotn þar sem fyrrihlutinn var svona: Simpson kemur víða við, veldur breyttum högum. Ætli botnarnir sem bárust séu nú ekki flestir gleymdir, nema þessi frá Kjarval: Mogginn kemur ekki út árla á mánudögum. Þann botn lærðu allir á sinni tíð. Menn geta spurt: Tók Kjarval sjálfur sig ekki alvarlega sem Ijóðskáld? Jú, það held ég hann hafi gert - að því eina marki sem öllu máli skiptir: að hann orti af innri þörf, á.þeim stundum þegar annað tján- ingarform var honum ekki eðlilegra eða nærtækara, Hvort honum var alveg sama eða ekki um það hvernig viðtökur ljóð hans fengu, er svo annað mál og enginn fær um að dæma þar um lengur. Sum Ijóða hans voru tækifæriskvæði í tilefni af af- mælum vinafólks - eða jafnvel Eimskipa- félagsins. Og það er segin saga, að þrátt fyrir áberandi galla frá sjónarmiði strangrar formfestu - að maður tali nú ekki um óskeikulleik „rökhugsunar” - þá yrkir hann ekki svo ómerkilegt tækifæris- ljóð að ekki glói þar á frumlega hugsun eða orðalag, sem alls engu öðru íslenzku Ijóðskáldi hefði auðnazt að tjá - eða þá þorað að bera á borð: Sálfrœðilegast af öllu til og frá er allt í máli milli nei og já yrkir hann í „Afmæli úti í heimi”, og hafa ekki mörg skáld spannað víðfeðmari sannleik í jafn stuttu máli. Menn hafa sett það fyrir sig, að í ljóðum Kjarvals skorti á „samhengi” hugsan- anna, eða „rökhugsun”, eða jafnvel „formskynjun” hjá sjálfum meistara formsins. Þetta má allt vera rétt, ef lagður er á hann mælikvarði hefðbundinnar kröfu og látið eins og t.d. surrealisminn hafi alls ekki verið til. Menn skulu nefni- lega ekki gleyma því, að Kjarval var alla daga, allt sitt líf, að uppgötva nýjan og nýjan surrealisma, hvorki meira né minna. - Sannleikurinn er sá, að yfirleitt var hann ekki vísvitandi að njörva sig í neina háttfestu stíls t. d. Einars Benedikts- sonar eða annarra opinberlega viður- kenndra stórskálda, þótt hann hylltist til þess í sumum elztu kvæða sem til eru eftir hann, heldur fer mjög eigin leiðir. Þess vegna eru ljóð hans í heild merkilegt sam- bland af gröndölsku gamni og alvöru, forneskju eddunnar og hversdagslegum nútíma skringilegheitum í orðavali, oft í einum hrærigraut, þannig að úr þessu verður furðu einstætt fyrirbæri: skáld, sem enn hafa ekki verið gerð nein bók- menntaleg skil, en stendur í skugga af meistara litar og línu. Þó verður, ef grannt er skoðað, ekki auðveldlega skilið á milli þeirra tveggja hvað inspírasjónina varðar. Og knörrinn þinn með skáldhörpu í skut skrýtilega stillta, einatt myrkt, sœkir á dular mið hinn mesta hlut. var ort til hans-þegar hann varð sjötugur. Víða í ljóðum sínum er Kjarval nefni- lega enn farmaðurinn, skútukarl í landi - rétt eins og í myndlist sinni, einkum fram- anaf. Hann vinnur t.d. það afrek, liggur mér við að segja, að yrkja ljóð um Snæ- fellsjökul upp á níutíu og þrjár línur, þar sem ekki er minnzt einu orði á jökulinn fyrr en í þrem síðustu línunum, heldur er allt kvæðið um sjóinn undan Jökli, röst- ina, brimið við ströndina og um veður- lagið. Þar eru það viðhorf og lífssýn sjó- mannsins sem gilda. Eitthvert persónulegasta ljóð Kjarvals má telja „Hugarsteinsmál”, þar sem ekki verður betur séð en hann sjálfur sé ýmist í 1. eða 3. persónu og gott ef ekki líka í ávarpinu til 2. persónu. Áhrif frá Einari Ben? Varla að ráði; það mætti þá alveg eins tilnefna William Shakespeare eða legíó annarra skálda. En það er fyrst og fremst hugleiðing manns sem reynir að komast að siðferðilegum niðurstöðum; einlægur, óspiiltur og grandvar, á tali við samvizku sína. Hann birti sjaldan ljóð sín á prenti, og alls ekki síðari áratugina, nema hvað hann safnaði mörgum þeirra saman í snoturt kver árið 1956 og gaf út undir nafninu „Ljóðagrjót”. Auðvitað grjót. Honum v,ar jafnan hugstætt þetta upprunalegasta efni jarðhnattarins og gerði því enda skil í sínum beztu verkum. Ljóð þau, sem hér koma á prent, eru öll úr fyrrnefndri bók, að einu undanteknu, sem hér er birt undir fyrirsögninni „Áður óbirt ljóð”, því mér er ekki kunnugt um 10 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN JÓLABLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.