Þjóðviljinn - 20.12.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.12.1985, Blaðsíða 12
 Snœfellsjökull Sagnir, átrúnaður og eldgos „Klukkan eitt um nóttina fyrir 1. júlí lögöum viö af staö. Viö höfðum meö okkur áttavita, kvikasilfurshitamæli og áöur- nefnda loftvog. Að landvenju gengum viö á þunnum skóm sem eru léttari öörum skóm og örugg- ara aö ganga á þeim einkum í hálku. Viö höföum einnig meö okkursterka taug vegnajökul- sprungna ef einhver skyldi falla í þærsem stundum ber viö á Jökulhálsinum; þá tókum viö einnig slæöur meö til aö binda fyrir augun ef birtan yröi allt of sterk, og loks höföum viö njarðar- vött (svamp (ATG)), vættan ediki til aö þefa af ef loftiö uppi á jöklin- um reyndist allt of létt og þunnt”. „Menn töldu fyrirœtlun okkar... fullkomna fífldirfsku” Ofanskráð tilvitnun úr ferða- bók þeirra Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar er frá árinu 1757. Þeir félagar eru á leið í fyrstu för á eitt þekktasta fjall ís- lands: Snæfellsjökul. Ekki ein- asta var það talið hæst allra fjalla hérlendis heldur og að þess væri vandlega gætt af huldufólki, dvergum, tröllum og síðast en ekki síst af afturgöngu sjálfs Bárðar Snæfellsáss. Fólk taldi fjallgönguna óðs manns æði. En ný viðhorf og hugmyndir hrundu þeim Bjarna áfram: Skynsemin, ný vitneskja raunvísindanna og fróðleiksþorsti 18. aldarinnar. Eggert og Bjarni höfðu áður unnið skyld afrek og boðið hjátrú birginn. Peir gengu fyrstir manna á Heklu 1750, á Geitlandsjökul 1753 og á Torfajökul 1755. Og upp komust þeir: „Kuldinn jókst svo mjög að sólarhitinn vó lítið upp á móti honum og loftið þynntist óðum. Við urðum mátt- farnir þótt brekkan væri enn af- líðandi”... „Loks tókst okkur að höggva spor í ísinn með brodd- stöfum og veiðihnífum og gengum þannig upp á austustu þúfuna sem er hæst og mjóst og Íík sykurtoppi í lögun”... Þeim heppnuðust ýmsar athug- anir þarna uppi. Til dæmis segja þeir í skýrslu sinni að „í jöklinum hafi tvímælalaust verið megin- upptök jarðelds þess sem umbylt hefir nesinu þar í kring á alla vegu”. En þeim skjöplaðist illi- lega um hæðina. Frumstæð kvik- asilfursloftvog þeirra sýndi allt of lágan þrýsting þannig að þeim reiknaðist hæðin vera 6862 fet eða um 2000 metrar, eftir saman- burðarmælingar með 60 faðma málbandi og hornamæli. Rétt tala er 1446 metrar. Næstu þrjár uppgöngur á snjó- fjallið voru vafalítið ekki eins umdeildar. Árið 1789 fóru sex Englendingar, einn Dani og einn fslendingur á jökulinn. Aðeins tveir, sir John Stanley og mr. Wright, náðu alla leið. Árið 1810 ganga svo tveir Eng- lendingar og þrír ónafngreindir íslendingar á Snæfellsjökul og loks biblíusalinn Ebenezer Henderson við fjórða mann fimm árum síðar. Með þessum upp- göngum og fleiri síðan komst Snæfellsjökull á spjöld í mörgum ferðabókum. Ófáar koparstung- ur eru til af honum og er jafnan heldur hrikalegra yfirbragð yfir fjallinu en við könnumst við. Segir það sitt um ólíkan hug- myndaheim 19. aldar manna og okkar. „Snœfellsjökull er aflsmiðja...” Eggert og Bjarni segja hindur- vitnin tengd Snæfellsjökli skiljan- leg því þannig sé því varið um alla Óskum starfsfólki okkar á sjó og landi, svo og viðskiptavinum Gleðilegra jóla góðs ogfarsœls nýs árs 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN JÓLABLAÐ óaðgengilega og agalega staði. Upp eru spunnar sögur og kenn- ingar settar fram. Flestir okkar kannast við sögurnar um hlið hel- vítis í Heklu og járnfuglana sem þaðan flugu til að sækja for- dæmdar sálir. Oft er það svo að átrúnaðurinn er lífsseigur; breytir aðeins um inntak með þjóðfélagsframvindunni. Hvað Snæfellsjökul áhrærir ná sögurn- ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON ar um hann allt frá landnámstíð fram á vora daga. Náið sambýli við náttúruna er ein ástæðan fyrir þvílíku á sjálfri 20. öldinni. Sagnirnar um Bárð Snæfellsás eru elstar allra sagna um Snæ- fellsjökul. Bárður var hálftröll; sonur konungs norðan úr Dumbshafi er átti föðurætt til risa. öárður var svo giftur berg- búadóttur úr Noregi en flæmdist til landleitar. Hann nam land á Snjófellsnesi eins og það þá var kallað og bjó að Laugarbrekku. Eftir að Helga dóttir Bárðar hafði hlaupist á brott með Skeggja nokkrum, og hann drep- ið tvo unga bróðursyni sína og bæklað bróður sinn hvarf hann til fjalla og töldu menn hann búa í helli í Snæfellsjökli. Var hann þá tekinn í heitguða tölu og dugði mörgum vel að sögn; fór víða bú- inn gráum kufli, með reipi um sig miðjan og staf mikinn í hendi. Einnig er sagt að hann hafi geymt gilda sjóði í hellinum. Sonur Bárðar sem Gestur hét var um margt Iíkur karli föður sínum og fj allar hluti Bárðar sögu Snæfells- áss um þann kappa. I henni eru sögð dæmi um aðstoð Bárðar við ýmsa menn og víst er að sögurnar hafa orðið fleiri síðar eins og ýmis örnefni sýna (t.d. Bárðarkista). Karl einn þekkti ég í Ólafsvík sem hafði oft spjallað við Bárð í svefni eða séð hann og svo mikla virðingu bera menn enn til þessa landvættar Nessins að honum var reist virðulegt minnismerki eftir Ragnar Kjartansson rétt við byggðina að Arnarstapa. Af nógu öðru er að taka. Af fjölkunnugu fólki fara ýmsar sögur og virðast sum héruð undir Jökli hafa verið setnari af galdra- mönnum en mörg önnur. í einni sögn í Þjóðsögum Jóns Árnason- ar segir frá sjö galdramönnum undir Jökli sem sendu sjö drauga norður í land til að reyna þolrifin í Arnóri galdramanni á Sandi í Að- aldal. Að Fróðá undir Jökli bjó Þórgunnur fjölkunnuga sem gekk aftur og getið er um í Eyrbyggja sögu. Meira að segja betlarar og flakkarar undan Jökli kunnu eitt og annað fyrir sér eins og Jökla-Pétur sem gerði mönnum þann greiða að kveða niður dauga hér og hvar. Af tröllum fer líka nokkrum sögum; t.d. af skessunni á Jökul- hálsi sem elti Vigfús nokkurn Helgason frá Hellnum og hvarf ekki frá fyrr en hann hafði sært hana með hnífi. Var það svo trú manna lengi síðan að öll hans ætt hafi liðið fyrir álög sem skessan hafi kallað yfir hann fyrir benið. Á okkar tímum segir minnst af hulduvættum og tröllum en þeim mun meira er rætt um jökulinn sem „andlega uppsprettu" og merkilega miðju einhverra dul- inna krafta. Það gera sumir ís- lendingar og stundum sést slíkt haft eftir útlendingum. Sumir segja jökulinn magna góðar hugsanir og einnig vondar, allt eftir því hvað hver hugsar. Allt eru þetta auðvitað ótrúlegar full- yrðingar sem ekki verða sannað- ar. Væntanlega eru höfundarnir að fullnægja eigin þörf fyrir ár trúnað. Flestu fólki er Snæfellsjökull aðeins reisulegt fjall. Sá galdur og sú aflsmiðja sem við jarð- bundnir menn sjáum er einungus góð tilfining; sú hin sama og við fínnum er horft á aðra áhrifa- mikla náttúru. Þar í er ekkert yfirnáttúrulegt, óskiljanlegt eða háleitt. Frá undirheimaför til kristnihalds Jónas blessaður Hallgrímsson orti ljóð um Snæfellsjökul af vin- arhug; spyr hvort þú sjáir „Snæ - fells snjóvgan tind“ og kallar hann fósturjarðar vörð. A undan Jón- asi kemur Snæfellsjökull fyrir í bókmenntum og þá ekki síður eftir hans dag. Væntanlega hefur Kolbeinn Jöklaskáld skellt nokkrum vísuhelmingum um fjallið á skrattann þar sem hann kvaðst á við hann á Þúfubjargi fyrrum. Og svona er sagt að ver- maður einn á Djúpalónssandi hafi heyrt kveðið í draumi: Verður á morgun skip skarða skeður furðu tilburður; farðu ei á morgun forvarða furða ber til, Sigurður. Daginn eftir fórst skip með þeim skipverjum sem tekið höfðu gamla kerlingu og skorið í beitu; nema hálfdrættingnum Sigurði sem beitti verr. Annar Sigurður, kraftaskáld á Öndverjarnesi, rak burtu ís með dýrum kveðskap eins og eftirfarandi sýnishorn er gott dæmi um: Sunnanvind á sjóinn sendi af landátt gróinn svo maurungs rífi upp móinn magnefld vargfuglsklóin með hríðum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.