Þjóðviljinn - 21.12.1985, Side 1

Þjóðviljinn - 21.12.1985, Side 1
Fjársvikin Okrarinn aftur á stjá Hermann Björgvinsson byrjaðurað innheimta okurlánin. Fullvissar eigendur okurbankans um aðþeirfái allt til baka. Hallvarður Einvarðsson: Afhentum Hermanni engin skjöl. Saksóknara að gera kröfu um upptöku skjalanna Kolbeinsey Hermann Björgvinsson okur- lánari sem sat í rúman mánuð í gæsluvarðhaldi fyrr í vetur og varð laus úr haldi um sl. mánaða- mót er með aðstoð lögmanns síns byrjaður að innheimta okurkröf- ur hjá skuldunautum og hcfur jafnframt fullvissað þá sem lögðu fram fé í okurstarfsemina um að þeir fái allt sitt til baka. Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri ríkisins sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að hann gæti ckki svarað því hvort rannsóknarlögreglunni væri kunnugt um þessi inn- heimtustörf Hermanns. Samkvæmt áreiöanlegum heimildum Þjóðviljans hefur Hermann undir höndum ná- kvæma skrá yfir tékka og verðbréf sem Rannsóknarlögreglan lagði hald á á skrifstofu hans, samtals að upphæð um 200 miljónir. Hallvarður Einvarðsson vildi lítið ræða þessi mál í samtali við Þjóðviljann í gær en upplýsti þó að Rannsóknarlögreglan hefði ekki látið Hermanni í té nein skjöl þegar honum var sleppt lausum. Þau skjöl sem lögreglan lagði hald á vegna rannsóknar málsins yrðu fljótlega send sak- Bráðum koma blessuð jólin, hafa krakkarnir í Melaskóla eflaust sungið þegar Ijósmyndari Þjóðviljans var þar áferð í gær. Ljósm. Sig. S Ihaldið Teikning: Edda Hrönn Sveinsdóttir 8 ára, Heiðarvegi 20, 730 Reyðarfirði. 3 dagar til\é\ i arna er verið að hækka lífsnauðsynleg þjónustugjöld m.a. fólks sem í hópum leitar á náðir Fclagsmálastofnunar um fjárhagsaðstoð svo það eigi fyrir salti í grautinn sinn. Það hljóta að vera til breiðari bök fyrir meiri- hlutann í borgarstjórn að græða á, sagði Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi í samtali við Þjóð- viljann í gær. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn samþykktu í fyrradag að hækka dagvistargjöld um 20% og tekur hækkunin þá gildi 1. janúar n.k. Tillaga um þessa hækkun kemur frá stjórnarnefnd dagvista og var samþykkt í félagsmálaráði nýlega með fjórum atkvæðum gegn at- kvæðum Guðrúnar Ágústsdóttur og Ingibjargar Hafstað fulltrúa Kvennaframboðs í ráðinu. Eftir hækkunina munu dagvistargjöld fyrir svokallaða forgangshópa fara í 3.300 krónur á mánuði og fyrir aðra 5.000 krónur á mánuði. Þess má geta að í ársskýrslu Félagsmálastofnunar borgarinn- ar árið 1984 kemur fram að fjórð- ungur einstæðra foreldra í Reykjavík leitaði á náðir stofn- unarinnar með fjárhagsaðstoð það árið, og útgjöld vegna þess- arar aðstoðar hefur aukist til muna á þessu ári. -gg sóknara ásamt öðrum rannsóknargögnum og það væri hans að ákveða hvort lögð yrði fram krafa um upptöku á þessum innheimtubréfum. Aðspurður hvort þeir sem stóðu á bak við Herntann og lögðu honum til fé í okurlánin hefðu skilað kröfum sínum til Rannsóknarlögreglunnar upp- lýsti Hallvarður að lögreglan hefði ekki allar þær kröfur undir höndunt og aðeins ljósrit af sumum þeirra. Frekar vildi liann ekki ræða þau mál. Rannsóknarlögreglustjóri vildi ekki svara þeirri spurningu hvort Hermanni Björgvinssyni væri heimilt að innheimta okurlánin þar sem kröfurnar hefðu ekki verið gerðar upptækar. Hvort til þyrfti að koma sérstök kæra svo þessar innheimtuaðgerðir Her- manns síðustu daga yrðu teknar til rannsóknar, svaraði Hallvarður því til að rannsókn þessa okurmáls færi fram í hví- vetna eins og sakarefni gæfu til kynna og hann vonaði að það kæmist í þeim efnum allt það til skila sem rannsóknarvaldinu bæri að taka til meðferðar. -lg./-ÁI Sex aðilar bjóða Húsvíkingar fá samkeppni/ Húsvíkingar fá greinilega sam- keppni varðandi tilboð í tog- arann Kolbeinsey ÞH, sem Fisk- veiðasjóður auglýsti eftir tilboð- um í á dögunum. Fyrir utan Hús- víkinga hafa fimm aðrir aðilar boðið í skipið. Fiskveiðasjóður hefur ekki viljað gefa upp hvaða aðilar hafa boðiðískipið, en Þjóðviljinn hef- ur það eftir öðrum leiðum og fullkomlega öruggum að tilboð hefur borist í Kolbeinsey frá Ak- úreyri, Kópaskeri, Olafsfirði, Skagaströnd og Hafnarfirði. Hvert þessara tilboða er hag- stæðast fæst ekki uppgefið, en Þjóðviljinn hefur heyrt að Akur- eyrartilboðið sé hæst. Það mun hafa verið ákveðið hjá stjórn Fiskveiðasjóðs, að heimamenn, þ.e. Húsvíkingar geta gengið inní hæstaboðið. -S.dór Dagvistargjöld hækka um 20% Dagvistargjöld upp í5000 um áramót. Guðrún Ágústsdóttir og Ingibjörg Hafstað: Oraunsœtt og óábyrgt. Þriðjungur lœgstu launa hjá borginni. Fjórðungur einstæðra foreldra á fátœktarmörkurn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.