Þjóðviljinn - 21.12.1985, Blaðsíða 13
fOftlAQiÐ
TILMAN ROHRIG
EKKERT STRIÐ
ÞÝSKU BARNA- OG UNGCINGABÓKAVEROLAUN
1984
Sagan gerist í Þýskalandi í
þrjátíu ára stríðinu á 17. öld og
aðeins elstu menn muna hvað
friður merkir. Jockel er fimmtán
og skotinn í Katrínu, en það eru
litlir möguleikar á að vera saman
í stríðinu. Að lokum tekst Jockel
þó að sýna henni hug sinn.
„Meistaralegt framlag til frið-
arumræðu okkar daga“, segir í
bókarkynningu Forlagsins,
„spennandi og rituð á máli sem
börn og unglingar skilja". Bókin
hlaut í fyrra þýsku barna- og ung-
lingabókaverðlaunin.
Þorvaldur Kristinsson þýddi.
Barnabœkur
Rasmus
Klumpur
áenníœvintýrum
Bókaútgáfan Orn og Orlygur
hefur nú gefið út fjórar nýjar
teiknimyndasögur um hina vin-
sælu söguhetju barnanna, Rasm-
us Klump. Þær nefnast:
Rasmus Klumpur á pínukríla-
veiðum, Rasmus Klumpur í kynja-
skógi, Rasmus Klumpur í undir-
djúpunum og Rasmus Klumpur og
Sóti lestarstjóri.
Aður hafa komið út 11 bækur í
þessum flokki. Höfundur bók-
anna eru þau Carla og Vilh.
Hansen en þýðandi er Andrés
Indriðason.
Ekki þarf að því að spyrja að
Klumpur og félagar hans lenda
enn sem fyrr í ýmsum ævintýrum.
Hafa þeir kumpánar lengi verið
góðvinir íslenskra barna og
teiknimyndasögur um þá birst
bæði í Vikunni og Þjóðviljanum.
Prentstofa G. Benediktssonar
hefur filmusett bækurnar en þær
eru prentaðar og bundnar í
Þýskalandi. -mhg
Tóbías
Tóbías trítillinn minn er ný bók
eftir Magneu frá Kleifum um Tó-
bías þann sem var á ferð í fyrri
bókum Magneu, Tóbías og
Tinna, og Tóbías og vinir hans.
Þetta er sjálfstætt framhald
þeirra bóka, en allar lýsa þær
samskiptum Tóbíasar við Sighvat
málara og Tinnu dóttur hans.
Mæður Tóbíasar og Tinnu eru nú
í útlöndum og þau fara með Sig-
hvati og kettinum Snjáldu í úti-
Iegu. Þar er gaman þangaðtil bréf
með slæmum fréttum berst utan
úr heimi, og reynir þá á vináttu
Sighvats og barnanna.
I bókinni eru teikningar eftir
Sigrúnu Eldjám. Iðunn gefur út.
pukrast með ýmis leyndarmál.
Þetta gengur ekki alltaf vel, en
Jóakim sýnir stundum styrk sem
hann vissi ekki af...
Njörður Njarðvík þýddi.
Gott óttu
Þú átt gott, Einar Áskell heitir
ný bók um Einar Áskel hjá Máli
og menningu.
Þegar sagan hefst eru jólin
búin og Einari Áskeli og föður
hans leiðist ægilega. Amma segir
hinsvegar að ekkert væri
skemmtilegt ef okkur leiddist
ekki inná milli, - og Einar Áskell
sér af hyggjuviti sínu að bráðum
hljóti að gerast eitthvað
skemmtilegt. En hvað?
Höfundur er svíinn Gunilla
Bergström og þýðandi Sigrún
Árnadóttir.
Jóakim
Hjá Iðunni er komin út bókin
Jóakim eftir norska rithöfundinn
Tormod Haugen, og er þetta
önnur bók höfundar þýdd á ís-
iensku, sú fyrri var Náttfuglarnir
og var um sömu söguhetju.
Jóakim er að verða níu ára, og
þarf að fóta sig í ótryggum heimi
þarsem krakkarnir geta verið
andstyggilegir og fullorðna fólkið
Ekkertstríð
Ekkert stríð heitir barna- og
unglingabók frá Forlaginu og er
eftir þjóðverjann Tilman Röhrig.
Kennara vantar
að Laugalandsskóla, Holtum, frá áramótum í 18
kennslustundir á viku. Vinnutími: mánudag 12.45-
15.45, þriðjudag 9.00-14.05, fimmtudag 12.45-15.45,
föstudag 9.00-12.05.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 99-5540 og heima
í 99-5542.
Vistheimilið
Seljahlíð
í aprílmánuði 1986 er áætlað að taka í notkun vist-
heimilið Seljahlíð við Hjallasel.
Hér er um að ræða 60 einstaklingsíbúðir og 10 hjóna-
íbúðir.
Vistheimilið verður rekið í daggjaldaformi og er því allt
fæði og þjónusta innifalið í dvalargjaldi.
Hér er ekki um að ræða hjúkrunarheimili og er því ekki
gert ráð fyrir að hjúkrunarsjúklingar fái þar vistun.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Vonarstræti 4 og
Tjarnargötu 11.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1986.
Nánari upplýsingarverðagefnarmánudaga, miðviku-
daga og föstudaga frá kl. 9.00-10.00 í síma 25500.
Laus staða
Staða aöalgjaldkera við embætti bæjarfógeta í Kópa-
vogi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. jan. 1986.
Laun samkvæmt launakerfi BSRB.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og
menntun sendist bæjarfógeta í Kópavogi.
Allar upplýsingar veittar í síma 44022.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
St. Jósefsspítali
Landakoti
Okkur vantar starfsmann við ræstingar, 75% vinna.
Einnig vantar starfsmann í býtibúr, 100% vinna. Þeir
sem hafa áhuga hafi samband viö ræstingastjóra í
síma 19600-259.
Reykjavík, 20.12. 1985