Þjóðviljinn - 21.12.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 21.12.1985, Blaðsíða 16
Hamingjan Höll hamingjunnar heitir nýj- asta bók Ingibjargar Sigurðar- dóttur og er gefin út hjá Oddi Björnssyni. Þetta er skáldsaga í stíl við fyrri verk höfundar, og er lesandinn leiddur á vit ástar og ævintýra misblíðra hér og hvar í löndum. Ingveldur Komin er önnur útgáfa af Mynd- um og minningarbrotum eftir Ingveldi Gísladóttur. Bókin var helguð aldarmóta- minningu móður höfundar 1973, segir í bókarkynningu „og fjallar um líf alþýðukonu um og uppúr aldamótunum síðustu. Þrá henn- ar til mennta - hin hörðu örlög lítilmagnans - veikindi - upp- lausn heimilis - sveitaflutningar - og þrotlaus barátta einstæðrar móður að halda yngsta barninu sínu hjá sér. Þrek og þrautseigju er hún 1916 fær leiðrétt með dómi að kaupakonu beri ekki að þjóna kaupamanni í sínum frítíma, einn fyrsti dómur um jafnréttismál á íslandi. Rifjuð upp nöfn og útlit húsanna efst við Hverfisgötu og Laugaveg í Reykjavík, þegar húsin höfðu nöfn en ekki aðeins númer við götu. Gættu þín Helga eftir Birgittu H. Halldórsdóttur er komin út hjá Skjaldborg. Helga fer eftir alvarlegt bílslys til Ásdísar frænsku sinnar sem býr í sveitinni. Rúnar unnusti Helgu hefur snúið við henni baki eftir slysið, - en ekki vantar at-i burði í líf Helgu: loft verður lævi blandið og ástir, afbrýði og glæpir spinna vef sinn í kringum hana. Þetta er þriðja skáldsaga Birg- ittu. Hinar fyrri voru Háski á Hveravöllum og Inga. Á blóþrœði Hjá Iðunni er komin út önnur skáldsaga Gísla Þórs Gunnars- sonarÁbláþræði. Sagt er frá Pétri, áttavilltum menntaskólanema sem skyndi- lega verður húseigandi og ákveð- ur að lifa eigin lífi. Þarna verður sambýli ungs fólks og gengur nokkuð skrykkjótt í samræmi við samsetning íbúa: hommi, eitur- lyfjaneytandi, einstæð móðir, landflótta ítalskur jógi. „Áhuga- verð og skemmtileg skáldsaga um ungt fólk í háska“ segir útgef- andi: „ungt fólk í leit að sjálfu sér“. Gísli Þór er fæddur 1958. Hann hefur áður skrifað söguna Kær- leiksblómið. MINNING Þórður Harðarson Fœddur 13.4. 1964 - dáinn 15.12. 1985 Páska ber stundum upp á jól, og hátíð ljóssins fær á sig annar- legan blæ. Þá reynir á þolgæði og trú þeirra sem misst hafa ástvin. Þórður lét engan þess ósnort- inn að þar fór maður ljóssins. Vináttan, sem hann vakti hjá öllum, vottar ljóst um það, og mun óþarfi að telja upp alla þá kosti sem manninn prýddu. Lífshlaup hans allt lýsir þeim best. Lífsþróttur og gleði voru þó þau einkenni sem hæst baru, og óhætt að segja að hann kunni að njóta lífsins. Ekki fór mikið fyrir kröfum til gæða efnisheimsins; hann tók öllu sem að höndum bar með stöku jafnaðargeði. Þegar þvílík- ir menn yfirgefa samfélag manna Ó hve létt er þitt skóhljóð ó hve lengi ég beið þín það er vorhret á glugga napur vindur sem hvín en ég veit eina stjörnu eina stjörnu sem skín og nú loks ertu komin þú ert komin til mín Það eru erfiðir tímar það er atvinnuþref ég hef ekkert að bjóða ekki ögn sem ég gef nema von mína og líf mitt hvort ég vaki eða sef þetta eitt sem þú gafst mér það er allt sem ég hef En í kvöld iýkur vetri sérhvers vinnandi manns en á morgun skín maísól það er maísólin hans það er maísólin okkar okkar einingarbands fyrir þér ber ég fána þessa framtíðarlands Halldór Laxnes Með þessu uppáhaldskvæði Þórðar, þökkum við honum fyrir það sem hann gaf okkur. Minning hans mun ávallt lifa á meðal okk- ar. Systkini eru jólin þeirra tími. Á tímum sem þessum er tilefni til að staldra við og ígrunda nánar hvað hátíð sem þessi er fyrir fólki. Ég ætla aðeins að segja frá hvernig ég kynntist Þórði. Við vorum lengi málkunnugir, þar til mægðir urðu með okkur, er ég stofnaði til búskapar með systur hans Hrönn. Þá flutti hann með okkur, þangað sem við núna búum, og bjó með okkur í nær - fellteitt ár. Hverskonar félagar hann og sonur minn á fyrsta aldursári voru, minnir mann frekar á bræður en eitthvað ann- að. Svo bar við að á þeim tíma voru miklir umsviptingar í mínu lífi; ábyrgð sem fylgir barneign og fvrirvinnu var nýstárleg reynsla. Á þeim tíma færði hann æsku og fjör inn á heimili okkar með góð- um vinum og hugsunum. Hugsun sem ég gat alltaf leitað til í spurn- ingum sem á mig leita. Það var alveg sama hvar mann bar niður, skilning sinn tjáði hann ávallt í einföldum sannleika. Fyrir hann og okkur var það einmuna lán er hann síðar kynntist Maríu Jónsdóttur og Kristínu Maríu dóttur hennar, sem voru honum kona og barn síðustu sporin. Þeim vil ég sér- staklega votta samúð og þakklæti fyrir ómuna kjark sem María sýnir á hverju sem gengur. t Á & % Yf & Vasadiskó. Verð frá kr. 1.695,- AC ~7 E3 9 -r- -J~ \m <4 5 B X o/o M- 1 2 3 — +/- r= -f- CE/c SC-92 SOLAR M+ O örþunnar vasatölvur Þessi vasatölva er aðeins á stærð við venjulegt kreditkort og þvf tilvalin í brjóstvasann eða tösk- una. Þetta þarfa tæki er tilvalið handa þeim sem sf og æ þurfa að geta reiknað í sig allan sannleik- ann á svipstundu. Tölvan kostar aðeins 795 krón- ur. Gas lóðbolti Hvar og hvenær sem er! Ekkert snúru- eða rafmagnsvandamál! Notar venjulegt kveikjaragas! Hitnar á örskömmum tíma! Allt að 1 klst. stanslaus notkun! Stillanlegur frá 10 til 60W! Hiti á spíss allt að 400°C! Gasfylling á nokkrum sek. I Á stærð við tússpenna I Þrjárstærðirspíssa! Hlífðarlok fylgir! Hægt að hafa í vasa eins og penna n Verðaðeins kr. 1.585,- Sendum í póstkröfu! i r D i i ÍXdulO Ármúla 38 (Selmúlamegin) 105 Reykjavík Símar: 31133 - 83177 - Pósthólf 8933 Garðakaup v/Garðatorg Lífsviska er eitthvað sem fs- lendingar munu ætíð hafa til að bera og vil ég að lokum minna á þau sígildu orð: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur hið sama, en orðstír, deyr aldregi, heim er sér góðan getur. Úr Hávamálum. Hermann Bjarnason. Á morgun, 23.12. verður vinur vinur okkar Þórður Harðarson jarðsettur. Okkur langar til að minnaast hans með örfáum orð- um sem þó eru svo vanmáttug þegar svona stendur á. Við nut- um vináttu Þórðar í 9 ár og oft var talað um hvað þessi tími hefði verið fljótur að líða en einnig hvað margt væri skemmtilegt eftir. Nú er Þórður farinn frá okkur og hópurinn verður aldrei sá sami en fallegar minningar um góðan vin munu alltaf lifa í hug- um okkar. Þórður átti yndislega fjöl- skyldu og unnustu sem nú sakna sárt. Elsku María, foreldrar og systkini, við sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Úr Spámanninum: „Lát ekki öldur hafsins skilja okkur að, og árin sem þú varst með okkur verða að minningu. Þú hefur gengið um meðal okkar og skuggi anda þíns verið Ijós okkar. Því að hvað er það að deyja annað en að standa nakinn í blœnum og hverfa inn í sólskinið. Heitt höfum við unnað þér. “ Helga Hrönn Júlli, Kiddi, Pálmi, Stebbi. Ertu feiminn? Iðunn hefur gefið út bókina Felmni eftir dr. P.G. Zimbardo sem mun hafa sérhæft sig í rann- sóknumáfeimni. „Ótrúlega margir líða fyrir feimni einhvern hluta ævinnar", segir í bókarkynningu, „en þessi bók sýnir á aðgengilegan hátt, að hægt er að brjóta af sér feimni- fjötrana ef einlægur ásetningur og vilji er fyrir hendi. Höfundur leitar svara við orsökum feimni og lýsir áhrifum hennar, hvernig vanmetakennd og áhyggjur af áliti annarra lita hegðun og til- finningar. Seinni hluti bókarinn- ar fjallar um hvað gera skal. Raktar eru ítarlegar og greina- góðar leiðbeiningar heilræði og æfingar sem hver og einn getur beitt og reynst hafa áhrifaríkar til að sigrast á feimni. 16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.