Þjóðviljinn - 28.12.1985, Page 3
FRETTIR
Símaskatturinn:
Osvííin skattheimta
Þröstur Ólafsson: „Komið aftan að launafólki. ”
Ríkisstjórnin er einfaldlega að
koma aftan að mönnum með
því að innheimta almennan skatt í
gegnum Póst og síma. Hver veit
hvað kemur næst - kannski er
það útvarpið sem á nú að fara að
skila afgangi í ríkissjóð eða þá
sjúkrahúsin í Iandinu, sagði
Þröstur Olafsson, framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar um nýja sím-
askattinn. „Þarna er komið aftan
að launafólki og verið að brjóta
niður hefðbundna skattheimtu í
landinu á óvenju ósvífinn hátt.”
Eins og skýrt hefur verið frá i
Þjóðviljanum er ætlun ríkis-
stjórnarinnar að hækka gjald-
skrár Pósts og síma um 17% 1.
febrúar n.k.. 188 miljónir at
þeirri hækkun eiga að renna beint
í ríkissjóð sem „arðgreiðsla” og
ofaná það bætist 25% sölu-
skattur, þannig að ríkissjóður fær
235 miljónir króna í sína hít.
Þröstur Ólafsson sagði að ekki
hefði enn gefist tóm til að reikna
áhrif þessarar nýju skattlagning-
ar á framfærsluvísitöluna en fleiri
hækkanir eru í farvatninu, svo
sem 14-17% hækkun á rafmagni
og 15% hækkun á gjaldskrá
Ríkisútvarpsins nú um áramótin.
„Þessi nýja skattheimtuaðferð
finnst mér vera fyrir neðan al-
mennt velsæmi,” sagði Þröstur.
„Ég get hins vegar ekki annað
sagt en mig hafi grunað þetta rétt
eins og niðurskurðinn á fram-
lögum til dagvistarheimila. Þess
Þjóðviljinn
Munið
happdrættid
Velunnarar Þjóðviljans eru
minntir á að gera strax skil í
Happdrætti Þjóðviljans. Opið á
afgreiðslu blaðsins í dag fram að
hádegi.
vegna setti ég fram í haust hug-
myndir um að verkalýðshreyfing-
in semdi um þessi atriði og
reyndar fleiri í sérstökum lífs-
kjarasamningi. A tímum fjand- utan við launin sjálf og tel þessi
samlegrar ríkisstjórnar tel ég nýju tíðindi aðeins ítreka þá
brýna nauðsyn til að verkalýðs- nauðsyn.”
hreyfingin semji um svið sem eru -\\
Skátar ásamt fleirum sjá landsmönnum fyrir flugeldum um þessi áramót eins og endranær og er búist við að við verjum
á annan tug miljóna til kaupa á púðurverkinu. Ljósm. E.ÓI.
Flugeldar
Skotið upp fyrir á
annan tug miljóna
Skátar, slysavarnamenn og KR-ingar með
innflutninginn. Langmestfluttinnfrá Kína
Hafskipsmálið
Rannsóknamefhdin
skipuð eftir nýár
Aðeins 1 þingmaður var á móti í neðri deild.
ÞingmennAB sátu ýmist hjá eða studdu
tillögu um nefndina. Svavar Gestsson:
„Gengur ofskammt. ”
Pór Vilhjálmsson, hæstaréttar-
i
dómari sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að vart yrði
gengið frá skipan 3ja manna
rannsóknarnefndar vegna Haf-
skipsmálsins fyrr en eftir nýár, en
lögin um að Hæstiréttur skyldi
skipa slíka nefnd náðu ekki prent-
un í Lögbirtingi fyrr en á Þor-
láksmessu. Fyrr var ekki hægt að
senda formlegt bréf til réttarins
að sögn Matthíasar Bjarnasonar,
viðskiptaráðherra.
Svo sem skýrt hefur verið frá í
Þjóðviljanum fengu stjórnar-
andstæðingar á alþingi því fram-
gengt að starfssvið nefndarinnar
var víkkað út og tekur nú einnig
til viðskipta Hafskips við önnur
fyrirtæki en Útvegsbankann auk
þess sem áskilið var að nefndin
hraðaði störfum.
Hins vegar voru felldar tillögur
þeirra um að alþingi skipaði eftir-
litsnefnd með rannsókninni. Að-
eins 1 þingmaður í neðri deild,
Guðmundur Einarsson, BJ,
greiddi atkvæði gegn nefndar-
skipaninni en flokksmenn hans í
efri deild sátu hjá. Þar greiddu
aðrir þingmenn stjórnarandstæð-
inga tillögunni atkvæði með þeim
orðum að þeir vildu ekki standa í
vegi fyrir rannsókn eftir að komið
hefði verið til móts við óskir
þeirra um vinnubrögð að nokkru
leyti.
í neðri deild greiddu Garðar
Sigurðsson, Geir Gunnarsson og
GuðmundurJ. Guðmundsson at-
kvæði með tillögunni á þessari
sömu forsendu en Svavar Gests-
son, Steingrímur J. Sigfússon og
Guðrún Helgadóttir sátu hjá. 1
nefndaráliti Svavars segir að
ríkisstjórnin þori ekki að fallast á
opna rannsókn Hafskipsmálsins
og þó hún hafi neyðst til að koma
til móts við stjórnarandstöðuna
þá sé þar of skammt gengið að
hans dómi.
-ÁI
Að líkindum munu landsmenn
skjóta upp flugeldum um ára-
mótin fyrir hátt á annan tug milj-
óna. Þrátt fyrir sívaxandi sam-
keppni á flugeldamarkaðnum eru
söluaðilar bjartsýnir og segjast
eiga von á góðri sölu nú fyrir ára-
mótin og þrettándann.
Þrír aðilar flytja inn flugelda til
landsins, Hjálparsveit skáta, KR
og Slysavarnadeildin Fiskaklett-
ur í Hafnarfirði. Langstærsti hluti
flugeldanna er keyptur frá Kína
en einnig eru fluttir inn flugeldar
frá V-Þýskalandi. Þessir þrír
innflutningsaðilar selja ýmsum
félagasamtökum bæði á Reykja-
víkursvæðinu og út um allt land
flugelda auk þess að vera sjálfir
með fjölmarga útsölustaði.
Að sögn Benedikts Þ. Gröndal
hjá Hjálparsveit skáta verða
skátar með 8 útsölustaði í
Reykjavík. Boðið er m.a. upp á
svokallaða fjölskyldupakka og
kostar sá ódýrasti 850 kr. en sá
dýrasti 3.200 kr. KR-ingar verða
með útsölur á 4 stöðum og á
Lækjartorgi á gamlársdag að
sögn Lúðvíks Georgssonar. Boð-
ið er upp á fernskonar fjölskyldu-
poka, þann ódýrasta á 700 kr. og
þann dýrasta á 2.400 kr. Geysileg
aukning hefur orðið í sölu svo-
kallaðra tívolíbomba á síðustu
árum en þær kosta í ár frá 260 kr.
Þeim verður að skjóta úr sérstök-
um stálhólkum.
Jón Birgir Þórólfsson hjá Fisk-
akletti í Hafnarfirði sagði í gær að
flugeldar frá Kína væru á mjög
hagstæðu verði í ár. Slysavarna-
menn bjóða upp á fjölskyldu-
poka sem kosta frá 500-1900 kr.
„Við erum alltaf bjartsýnir en
veðráttan ræður miklu um söl-
una,” sagði Jón Birgir.
-lg-
Seyðisfjörður
400 lestir
af olíu
í sjóinn
Snjóflóðið raufleiðsluna
við svartolíutankinn.
Fjörur orðnar mengaðar
afolíu. Vontveður haml-
ar varnaraðgerðum
Á annan dag jóla féll snjóflóð á
Seyðisflrði og lenti það á olíu-
-tanki í eigu OIís, rauf löndunar-
leiðsluna alveg við tankinn, með
þeim afleiðingum að um 400 lestir
af svartolíu runnu í sjó fram.
Að sögn Þorvaldar Jóhanns-
sonar bæjarstjóra var veður og
færð með versta móti þegar þetta
gerðist og tók það því nokkurn
tíma fyrir björgunarmenn að
komast að tanknum og stöðva
lekann.
Strax um kvöldið var hafist
handa um að fá olíugirðingu frá
Siglingamálastofnun og voru
menn að reyna að koma henni
fyrir í gærdag en gekk heldur illa
vegna veðurs. Björgunarsveitir
og 3 bátar unnu að því að hefta
útbreiðslu olíunnar á firðinum.
Ljóst er að olían hefur þegar
valdið skaða, fjörur eru oðrnar
mengaðar af olíu og olíufnyk
leggur yfir bæinn að sögn Þor-
valdar. Hann sagði að vegna
dimmviðris væri engin leið að
geta sér til um hve miklum skaða
þetta olíuóhapp hefði valdið, en
menn óttuðust að það væri mikið.
-S.dór.
El Salvador
150 þúsund
til sjúkra
stöðvar
Stefnt er að því að safna 400
þúsund krónum
Um 150 þúsund krónur hafa nú
safnast fyrir rekstri sjúkrastöðvar
í Santa Barbara í E1 Salvador.
Það er E1 Salvador-nefndin hér á
landi sem stendur fyrir söfnun-
inni og að sögn Ragnars Stefáns-
sonar stjórnarmanns hefur þátt-
taka verið mjög almenn.
„Við vonumst til þess að upp-
hæðin fari yfir 200 þúsund nú um
áramótin og hægt verði að senda
það til Santa Barbara í byrjun
janúar,” sagði Ragnar í samtali
við blaðið í gær.
Söfnunin mun halda áfram þar
til am.k. 400 þúsund krónur hafa
safnast en þar með á að fjár-
magna rekstur sjúkrastöðvarinn-
ar fyrsta ársfjórðung næsta árs.
Við minnum á gírónúmer söfnun-
arinnar, 303-26-10401. Framlög
sendist til: E1 Salvador-nefndin
pósthólf 1032, 121 Reykjavík,
eða að Mjölnisholti 14. _gg
VIÐ HOFUM
SKIPT UM NAFN!
Samtök járnsmiðja, sem hingað til hafa borið nafnið Meistarafélag
járniðnaðarmanna, heita nú Félag málmiðnaðarfyrirtækja.
Félagið er samtök 126 málmiðnaðarfyrirtækja, sem dreifast um allt land, og gætir hagsmuna
þeirragagnvart opinberum aðilum og öðrum þeim, sem greinin þarf aðskipta við. Það- ásamt
heildarsamtökum, sem félagið er aðili að-veitir aðildarfyrirtækjum sínum ýmiss konar aðstoð
og þjónustu.
FÉIiAC MÁIiMIÐNAÐARFýtliRfMKJA
Hverfisgötu 105 -
sími: 91-621755.
101 Reykjavik