Þjóðviljinn - 28.12.1985, Page 4
LEIÐARI
Búskussar stjómarinnar
Þaö er stundum erfitt aö átta sig á því hvaöa
stefnu Sjálfstæðisflokkurinn hefur. Þó er þaö
hreinasti barnaleikur hjá því aö reyna aö skilja
hvaða stefnu formaöur flokksins, Þorsteinn
Pálsson, fylgir í þaö og þaö sinnið.
Hiö undarlega áttaskyn formannsins hefur
hvergi betur birst en einmitt í svokallaðri „skatt-
alækkunarstefnu" hans. En einsog alþjóö veit,
þá hefur Þorsteinn Pálsson um fátt talaö jafn oft
og jafn lengi á síðustu tveimur árum en einmitt
nauösyn þess aö lækka tekjuskatt fólksins í
landinu. Þegar honum, eftir langan og strangan
barning, tókst svo loksins aö bola Albert Guö-
mundssyni úr stóli fjármálaráðherra og setjast
þar sjálfur, þá var eitt fyrsta verk hans aö bíta í
skjaldarrendur og lofa aö úr þessu þyrftu menn
nú ekki iengi aö bíöa tekjuskattslækkunarinnar.
Síöari þáttur þess leikrits sem Þorsteinn hóf
þá, var svo leikinn viö afgreiðslu fjárlaganna
fyrir jól. Marga kynduga uppákomuna bar þá
fyriraugu úrbúöum stjórnarsinna. En engajafn
furðulega og þegar í stólinn sté Þorsteinn Páls-
son, sérlegur talsmaður skattalækkunar, og til-
kynnti að stjórnin heföi nú ákveðið aö falla frá
marglofaöri lækkun tekjuskatts um 400 miljónir!
Þar meö hefur Sjálfstæöisflokkurinn náö
þeim sérstæöa áfanga aö hafa brotið öll kosn-
ingaloforðin frá 1983. Flokkurinn, sem lofaöi aö
lækka, og síðar útrýma tekjuskatti, hefur nú
forgöngu um aö hindra aö lækkunarloforð nái
fram aö ganga. Og til aö gera fáránleika þessa
absúrdleikrits enn sterkari er þaö svo Þorsteinn
Pálsson, gamli skattalækkunarklifarinn, sem er
látinn tilkynna gjörninginn!
Þetta kann aö hljóma einsog gamall og lúinn
farsi í eyrum marga. Hins vegar var þetta mjög í
stíl viö annað sem kom fram viö afgreiðslu fjár-
laganna.
Tökum dæmLupphæðin sem í fjárlögum er
veitt til Lánasjóös íslenskra námsmanna er aö
minnsta kosti 200 miljónum minni en þarf til aö
veita lán til námsmanna aö óbreyttum reglum.
Meö þessu er auðvitað stefnt að því aö hrekja
frá námi fjölda manna, einmitt á tímum þegar
þekking og menntun ákvaröar aö verulegu leyti
afkomu þjóöa. Þó er mun lægra hlutfall mennta-
manna í atvinnulífi íslendinga en meö mörgum
öörum þjóöum, sem einmitt standa á hærra
tekjustigi en viö. Og þaö skaðar ekki aö minna
á, aö lán til námsmanna eru aö fullu verö-
tryggö.
Eitt af markmiðum nýrra fjárlaga á aö vera, aö
ekki veröi meira tekiö af erlendum lánum af
opinberum aöilum, en sem nemur „afborgunum
eldri gengisbundinna lána“, einsog sagöi í
greinargerð meö frumvarpinu. Geir Gunnars-
son hefur þó sýnt fram á, aö afborganir á næsta
ári af eldri lánum opinberra aöila munu veröa
2,9 miljarðar en fyrirhugaöar erlendar lántökur
næsta árs hins vegar 3,7 miljaröar. Þannig
munu nýjar lántökur fara verulega fram úr af-
borgunum eldri lána, og baggi erlendra skulda
mun því enn vaxa og þyngjast.
Þaö vantar sárlega fjárframlög til aö Ijúka
skólum, sjúkrahúsum og til aö byggja heilsu-
gæslustöðvar út um allt land. Um það eru flestir
sammála. Er þá ekki nöturleg staöreynd, aö
óstjórnin í fjármálum ríkisins er orðin slík, aö
einungis vaxtagreiöslur af auknum fjárlagahalla
þessa árs, eru meiri en nemur öllum fram-
lögum til einmitt bygginga skóla, heilsugæslu-
stööva og sjúkrahúsa?
Fjárlagahallinn er auövitaö farsi útaf fyrir sig.
Þaö er hollt aö rifja þaö upp, aö Geir Gunnars-
son sagöi einmitt í fyrra, viö afgreiöslu fjárlaga
þess árs sem nú er að Ijúka, aö fjárlagahallinn
yröi ekki 750 miljónir einsog ríkisstjórnin sagöi
þá, heldur yröi hann 2 miljarðar. Raunin varö
auövitaö sú, aö Geir hafði betra vit á fjármálum
stjórnarinnar en stjórnin sjálf, því fjárlagahallinn
varö 2,5 miljarðar.
Stjórnarliöar heföu því gott af aö ganga í læri
til Geirs til aö skilja þau fjárlög sem þeir voru aö
samþykkja fyrir jólin. Sjálfir telja þeir aö fjár-
lagahallinn verði „ekki nema“ 1800 miljónir.
Geir Gunnarsson telur hins vegar aö hann veröi
að minnsta kosti um 2,5 miljarðar. Og þá er
spurt: hvar á aö taka peningana?
Væntanlega meö því aö fara aö fyrri ráöum
Þorsteins Pálssonar og fá mismuninn aö „láni“
hjá Seðlabankanum. Þannig ætlar Sjálfstæöis-
flokkurinn enn aö fara þá gömlu leið aö prenta
seðla og auka erlendar skuldir.
Er nema von þó illa fari.
- ÖS.
Ó-ÁUT
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýöshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófartcalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Utlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Símvarsla: Siaríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Ágústa Þórisdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
UtbreiÖ8lustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, simi 681333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 35 kr.
Sunnudagsblað: 40 kr.
Áskrift á mánuði: 400 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. desember 1985