Þjóðviljinn - 28.12.1985, Page 7
Ár œskunnar
Hefur eitthvað gerst?
f upphafi ársins sem nú er senn á
enda höfðu menn uppi stór orð um
að bœta hag œskufólks.
Stjórnmálamenn og aðrir fullyrtu
hver upp í annan að œskan œtti
að erfa landið og því þyrfti að hlúa
vel að henni líkt og trjágróðrinum á
ári trésins. Skipaðar voru nefndir á
nefndir ofan og alls kyns uppá-
komur skipulagðar til að vekja at-
hygli á œskufólki, störfum þess og
leik. En nú þegar þetta 12 mánaða
skeið er á enda er rétt að stinga
ögn við fótum og spyrja krakkana
sjálfa hvað hafi í raun áunnist.
Glœtan fór á stúfana og hitti
nokkra unglinga að máli og lagði
fyrir þá ofangreinda spurningu.
Berglind Ármannsdóttir, 19 ára af-
greiðsiustúlka:
Það hefur ekkert verið gert, alla-
vega hefur þá lítið borið á því. Ég
held það vanti ekki staði fyrir
unglinga yngri en 16 ára, félags-
miðstöðvarnar eru mest fyrir þá
og ég er ekki viss um að það vanti
staði fyrir heldur eldri unglinga,
vantar frekar stemmningu.
Ég hef ekki orðið vör við að það
væri sérstaklega erfitt fyrir ung-
linga að fá vinnu en ég held að
það sé dálítið atvinnuleysi núna
en það er almennt og ekki bundið
við ákveðinn aldurshóp.
Guðmundur Arnarson, 14 ára
nemi:
Mér finnst hafa verið gert mjög
mikið fyrir okkur á ári æskunnar.
Við getum tekið karnivalið í
Höllinni sem dæmi og í þessum
skóla getur fólk mætt á hverju
fimmtudagskvöldi. Svo voru
skátarnir með félagsmiðstöð
hérna og það á víst að opna hana
aftur. Það er líka jákvætt að það
verði opnuð félagsmiðstöð í KR-
heimilinu. En það ætti kannski að
gera meira fyrir krakka sem eru
yngri en 16 ára og svo sting ég upp
á að það verði líka ár barnanna
yngri en 10 ára.
Ragnheiður Skúladóttir, 15 ára
nemi:
I raun og veru hefur ekkert verið
gert. Til dæmis þessi sjónvarps-
þáttur, hann var bara til að bjarga
þessum köllum fyrir horn. Þeir
sögðu ekkert, bara já við öllu sem
krakkarnir sögðu. Við fórum líka
með undirskriftarlista til borgar-
stjóra þar sem við fórum fram á
lækkun fargjalda með strætó og
ekkert kom út úr því.
Það sem liggur mest á er að
opna geðdeild fyrir unglinga og
stað fyrir afbrotaunglinga og það
þarf að vinna meira fyrirbyggj-
andi starf og sýna einhvern lit í
þessum málum.
Mér finnst ömurlegt hvernig að
þessu ári æskunnar hefur verið
staðið og tek undir þau orð að
góðir pólitíkusar sinni líka þeim
sem eiga að kjósa seinna, ekki
bara þeim sem eru komnir á
kosningaaldur.
Helga Sveinsdóttir, 15 ára nemi:
Það hefur eitthvað verið gert en
ekki mikið. Og til dæmis borgar-
stjórnarfundur unglinga fékk
sama og enga umfjöllun í fjöl-
miðlun. Það mætti opna staði
fyrir unglinga sem hafa lent í
afbrotum eða eru í fíkniefnum.
Ég held að það séu til peningar til
að gera ýmislegt og ég er til dæm-
is með nokkrar sparnaðartillög-
ur, eins og það að borgarstjórnar-
fulltrúar borgi bílana sína sjálfir
og hætt sé að eyða peningum í
veislur borgarstjóra. Einnig
mætti stoppa allar fjárveitingar til
Tjarnarskólans og það hefði mátt
setja íslenskt grjót á Laugaveginn
í staðinn fyrir rándýrt portúgalskt
grjót.
Magnea Lena Björnsdóttir, 18 ára
afgreiöslustúlka:
Mér finnst lítið hafa verið gert.
Það hefði mátt leggja áherslu á
félagslíf unglinga. Félagsmið-
stöðvarnar eru ágætar en þær eru
eiginlega takmarkaðar við vissan
aldur. Það er ekki til neinn staður
þar sem unglingar til dæmis eldri
en 16-17 ára geta hist.
Það þyrfti líka að gera eitthvað í
atvinnumálum, til dæmis koma á
fót sérstakri atvinnumiðlun fyrir
unglinga því það er erfitt að fá
vinnu ef maður er ekki orðinn 18
ára. Atvinnumiðlunin þar sem
hægt er að sækja um unglinga-
vinnu er bara starfandi á vorin og
miðast við þá sem fara í unglinga-
vinnuna á sumrin.
Árni Árnason, 15 ára nemi:
Mér finnst ekki mikið hafa verið
gert, það mætti gera meira og
sýna einhvern lit, til dæmis opna
fleiri staði fyrir unglinga. Einnig í
sambandi við vinnu, það er erfitt
að fá vinnu og ef maður fær vinnu
er það yfirleitt í gegnum klíku.
Það er sennilega nógar félags-
miðstöðvar í Reykjavík en af
hverju ekki einhverjar fleiri út á
landi?
Þóra Hjaltadóttlr, 14 ára nemi:
Það hefur mjög lítið verið gert
fyrir unglinga á ári æskunnar. í
sambandi við félagslíf hefur þó
ýmislegt verið reynt eins og með
Óðal í haust en allt lagst niður
aftur. Það vantar félagsmiðstöð
hér í vesturbæinn en hún á víst að
koma um áramótin. Mér finnst
vanta staði þangað sem krakk-
arnir geta farið. Það sem hefur
verið gert og er jákvætt er til
dæmis svona umræðuþættir eins
og voru í sjónvarpinu um og með
unglingum.
Særún Samúelsdóttir, 13 ára
nemi:
Það hefur ógeðslega lítið verið
gert. Það ætti að gera meira,
opna fleiri staði fyrir unglinga
hafa meira í sjónvarpinu fyrir
okkur, til dæmis Skonrokk einu
sinni í viku og fleiri tónlistar-
þætti. Það mætti líka hafa beinar
útsendingar frá popptónleikum í
staðinn fyrirsinfóníutónleika. En
það hefur líka eitthvað verið gert
eins og til dæmis halda borgar-
stjórnarfund unglinga, það
fannst mér mjög gott.
Reynir Jóhannesson, 14 ára:
Það hefur ýmislegt verið gert eins
og karnivalið uppí Höll, þó mér
þætti það ekkert spes. Það mætti
líka opna fleiri félagsmiðstöðvar
eða æskulýðshöll. Ég vildi líka að
kennsluháttum í skólum yrði
breytt og okkur krökkunum yrði
leyft að taka meiri þátt í tímum,
að heimalærdómur yrði minni og
enginn um helgar.
Sævar Einarsson, 15 ára af-
greiðslumaður:
Ég veit það nú ekki hvort
eitthvað hefur verið gert fyrir
unglinga á ári æskunnar. Meiri-
hluta ársins var ég fyrir norðan en
mér finnst ástandið ágætt hér í
Reykjavík. Það mætti þó hafa fé-
lagsmiðstöðvarnar opnar lengur
um helgar. Ástandið í atvinnu-
málum unglinga er ekki gott, það
er erfitt að fá vinnu og ntér finnst
tvímælalaust að það mætti bæta
úr því.
Laugardagur 28. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7