Þjóðviljinn - 28.12.1985, Side 8
GLÆTAN
Árni Egilsson, 15 ára nemi:
Það hefur ekki mikið verið gert.
Mér finnst að það þyrfti að gera
eitthvað í sambandi við atvinnu-
mál unglinga fyrst og fremst. Ég
held að félagslíf sé allt í lagi og
nóg um að vera fyrir unglinga til
dæmis í skólunum, og félagsmið-
stöðvarnar eru ágætar.
Guðný Ólafsdóttir, 14 ára nemi:
Mér finnst ekkert sérstakt hafa
verið gert. Við krakkarnir getum
aldrei farið neitt og það þyrfti að
gera miklu meira, eins og til
dæmis opna fleiri félagsmið-
stöðvar fyrir okkur.
Óthar Edvards, 14 ára nemi:
Mér finnst lítið sem ekkert hafa
verið gert á ári æskunnar og ég
vildi að það yrðu opnaðir að
minnsta kosti tveir skemmtistaðir
fyrir unglinga og æskuiýðshöll.
Ég vildi líka að það væri enginn
heimalærdómur um helgar.
Atli Sævarsson, 13 ára nemi:
Ja, það hefur voða lítið verið gert
fyrir unglinga á þessu ári, lítið
meira en vanalega. Það mætti
hafa verið meira gert til dæmis á
vegum æskulýðsráðs, eins og að
halda böll og skemmtanir.
Magnús B. Kærnested, 19 ára
nemi:
Eitthvað hlýtur að hafa verið gert
þó það sé kannski lítið. Ég veit að
á hinum Norðurlöndunum var
mest gert í sambandi við atvinnu
unglinga svo það er kannski eðli-
leg skýring á því hvers vegna lítið
var gert í málum unglinga hér á
ári æskunnar því hér er lítið
atvinnuleysi. Ég veit heldur ekki
hvert var markmiðið með þessu
ári, jú það var prentaður alls kon-
ar áróður á mjólkurfernur.
Það er erfitt að svara því hvað
hefði átt að gera. Helst hefðum
við átt að fá að gera eitthvað sjálf
og fá að taka þátt í því sem er að
gerast í kringum okkur. í sam-
bandi við það sem reynt var að
gera á ári æskunnar fannst mér
skorta á samstarf íslands við hin
Norðurlöndin, það má taka
Nordjobb sem dæmi.
Einar Traustason, 19 ára nemi:
Það hefur frekar lítið verið gert,
að minnsta kosti hefur maður
ekki tekið neitt æðislega eftir því.
Ég hefði gjarnan viljað að
eitthvað hefði verið gert í sam-
bandi við ferðalög til Norður-
landanna, til dæmis lækka far-
gjöldin þannig að auðveldara
yrði að ferðast. Ég veit að það
voru einhver æskulýðssamtök
með undirskriftasöfnun til að fá
fargjöldin lækkuð en það kom
ekkert út úr því.
Hvort eitthvað hefði átt að gera í
sambandi við félagslíf unglinga
þá held ég að það sé ekkert sem
yfirvöld geta nema þá kannski
fyrir yngri ungiinga. Það vantar
staði fyrir unglinga 16 ára og
yngri. Hvort ekki hafi verið þörf
á ári æskunnar? Ég veit það ekki,
það ríkir svo sem ekkert neyðará-
stand í málum unglinga á fslandi.
Axel Viðar Hilmarsson, 20 ára
nemi:
Ég er nú kannski of gamall til að
meta það hvort eitthvað hafi ver-
ið gert á ári æskunnar. Það hefur
þá allavega ekki verið neitt
merkilegt. Það sem hefði mátt
gera er að auka atvinnutækifæri
fyrir unglinga, þá á ég fyrst og
fremst við sumarvinnu skóla-
fólks. Láta það gera eitthvað
gagnlegt en ekki eins og í ung-
lingavinnunni sem virðist mest
vera leikur enda kaupið eftir því.
Það er algjör klíkuskapur ef fólk
fær einhverja almennilega vinnu
og það er dýrt til dæmis að byrja í
menntaskóla. Einnig er erfiðara
að fá vinnu þegar maður fer að
nálgast tvítugt.
Hvað varðar úrbætur í sambandi
við félagslíf unglinga var til dæm-
is enginn félagsmiðstöð í þeim
bæjarhluta þar sem ég ólst upp.
Maður gerði lítið annað í
skemmtanalífinu en að sjá allar'
myndir sem voru í bíó. Á ári
æskunnar hefur mest verið rætt
um úrbætur í sambandi við
félags- og skemmtanalíf unglinga
en ekkert verið komið inná
samfélagsleg vandamál sem
koma upp þegar foreldrar hafa
svona lítinn tíma til að sinna upp-
eldishlutverkinu, þar sem þeir
eru yfirleitt bundir í öðru;það er
að segja þurfa að vinna úti langt
fram á kvöld til að hafa í sig og á.
Mér finnst að það þyrfti að taka
þetta sérstaklega fyrir.
Skjóttu
þínum manni
é stjörnuhimininn
12gerðirafflugeldum
sem tileinkaðir eru
stórsprengjum stjórnmálanna.
Skjóttu þínum uppáhalds stjórnmálamanni
upp á stjörnuhimininn.
ITI FLUGELDAMARKAÐIR
■■ ■HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Jón Baldvin
Hannibalsson
Matthías Á.
Mathiesen
Steingrímur
Hermannsson
Albert
Guðmundsson