Þjóðviljinn - 28.12.1985, Side 17
AFMÆLl
70 ára
Gísli Benediktsson
Reyðarfirði
ótaldar ánægjustundir. Fjöl-
skylda mín samfagnar honum
með áfangann, en efst í huga er
alúðarþökk fyrir allt hið góða.
sem frændsemi og vinátta áranna
hafa fært okkur. Systir hans og
mágur senda sérstakar þakkir og
hlýjustu heillaóskir.
Megi vorsins birta og angan
verða i för með þér frændi minn
kær unr ótalin ár.
Helgi Seljan
Reykjavík:
Skátabúöin, Snorrabraut 60
Fordhúsið, Skeifunni 17
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
Alaska, Breiðholti
Við Miklagarð
Við Vörumarkaðinn, Eiðistorgi
Á Lækjartorgi.
Garðabær:
Hjálparsveitarhúsið, v/Bæjarbraut.
Akureyri:
Stórmarkaður í Lundi, v/Viðjulund
Verslunarmiðstöð í Sunnuhlíð
Skúr v/Hagkaup
Skúr v/suðurenda á íþróttavelli.
ísafjörður:
Skátaheimilið.
Aðaldalur:
Fljótsdalshérað:
SlátursalaK.H.B.
Oiís, Fellabæ.
Vestmannaeyjar:
Skátaheimiliö, Faxastíg 38
og í Gömlu Völundarbúð.
Dalvík:
Flugeldamarkaður, Gunnarsbraut 4-6.
Hveragerði:
í Hjálparsveitarhúsinu.
Njarðvík:
V/Sparisjóðinn, v/Reykjanesbraut.
Blönduós:
Hús Hjálparsveitar skáta, v/Melabraut.
Flúðir:
Hversu örhratt líða árin hjá.
Horft til baka þykir mér enginn
óratími liðinn frá því að ég fékk
að trítla með frænda mínum unt
fjallið heima, njóta leiðsagnar
hans og ótrúlegrar þolinmæði, að
ógleymdri elskusentinni, sem
ævinlega hefur verið þar í önd-
vegi. En þó eru árin víst ærið
mörg. Og nú er sjötugsaldurinn
víst staðreynd hjá Gísla frænda
mínum og fáeinar afmælisóskir
skulu honum fluttar af því tilefni.
Gísii er húnvetnskrar ættar,
fæddur norður þar og sleit þar
barnsskónum, en betri Austfirð-
ing þekki ég ekki. Systkinahóp-
urinn var stór, hann var einn tólf
systkina, sem upp komust og eng-
inn auður var í garði barnmörgu
hjónanna norður þar, nema auð-
legð hjartans og hún dugði
skammt í hörðurn heimi. Við
Gísla brosti ekki bernska léttra
leikja og ljúfra stunda.
Sem barn urðu foreldrar hans
að senda hann að heintan og þar
var það erfiðisokið, sem beið
barnsherðanna ungu, ótrúlegt
erfiði í augum okkar nútíma-
fólks. En Gísla var í vöggugjöf
gefin góð hreysti, sérstök seigla,
létt lund og þrotlaust þolgæði.
Hann hefur alla tíð verið maður
þessara ágætu eðliskosta, erfiðis-
vinnan hefur verið hlutskipti
hans, en hverju verki hefur hann
skilað óvenju vel, því dugnaður-
inn og kappið að hverju sem
gengið er eru farsælir fylginautar
hans.
Ég ætla ekki að rekja lífshlaup
hans, en yfir tuttugu ár var bú-
skapurinn hans aðalstarf, en ætíð
var unnið mikið utan heimilis,
svo tveir vinnudagar fólust í
hverjum einum og oft ríflega það.
Hann var afbragðs fjármaður,
átti fallegt og afburðagott fé,
natni hans við það var mikil,
hann var fjárglöggur svo af bar og
hafði yndi af umgengni við féð
sitt og það með mörgu öðru
tengdi okkur frændur fast saman.
Gísli var mikill göngumaður á
þessum árum, eftirsóttur til að
fara í eftirleitir og ná fé úr ófær-
um og tókst það giftusamlega, þó
oft væri teflt á tæpasta vað. Mér
er í ríku minni, hversu þolinn
hlaupari hann var, þrek hans í því
sem öðru var sérstakt og einn
barnsdrauma minna var sá að
geta nálgast frænda minn í þessari
list, en það brást sem fleira.
Gísli er einstakur félags-
hyggjumaður, félagslyndur og
hefur af því yndi að blanda geði
við aðra, gamansamur og hlýr,
glettinn í tilsvörum án þess að
meiða nokkurn, athugull vel og
greindur. Sem verkstjóri yfir
unglingum sýndi hann hvoru
tveggja, ntikla lagni og um-
hyggjusemi, sem unglingarnir
kunnu vel að meta, hann varð
vinur þeirra og félagi en hélt þó
ágætum aga. Ógetið er enn þess
þáttar sem ég hefi reynt hvað
ríkastan í skapferli frænda míns,
en það er greiðvikni hans og
hjálpsemi við náungann. Aldrei
hefur hann verið svo önnum kaf-
inn, að ekki hafi verið fundinn
tími fyrir aðra til aðstoðar og
hjálpar og sjaldan um endurgjald
spurt. Þessa hefur undirritaður
og hans fólk notið ótæpilega í
gegnum tíðina. Ég minnti áðan á
félagslyndi Gísla. Hann er ein-
lægur verkalýðssinni, enda var
hann um fjölda ára varaformaður
í verkalýðsfélaginu heima og sat
m.a. sem fulltrúi þess á þingi ASÍ
í því sem öðru reyndist hann hinn
traustasti, sem hverju því er trún-
aður fylgdi.
Frændi minn eignaðist ntikla
öndvegiskonu í Guðrúnu Björgu
Elíasdóttur, en hún lézt löngu
fyrir aldur fram og var honum
harmdauði mikill. Engin óskyld
manneskja hefur verið mér kær-
ari, enda kona kærleika og heil-
inda í hvívetna. Blessuð veri
minning hennar. Sólargeisli
þeirra í lífinu og Gísla nú, er fóst-
ursonurinn Þórir, sem er fjölhæf-
ur og listrænn og hefur marga list-
ina leikið á sviðinu heima og ann-
ars staðar, gamanleikari- og
söngvari af guðs náð.
Eftir erilsaman og langan vinn-
udag ærins erfiðis, hefur heilsan
nokkuð látið sig og nú hefur Gísli
að mestu sezt í helgan stein, gríp-
ur þó í orf og hrífu ásuntrin, en er
hættur fastri vinnu.
Hlýjar óskir munu honum ber-
ast í dag frá samferðafólki og vin-
um með þökk fyrir góð kynni og
kæra samfylgd. Við sendum hon-
um árnaðaróskir sem allra bezt-
ar. Megi framtíðin færa honum
681333mer (ffj DJÓÐVIUINN
VINNINGSNÚMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
-------- DREGtÐ 24. DESEMBER 1985 -
AUDI 100: 149610
TOYOTA COROLLA 1300: 40283 123687
Hjálparsveit skáta, Aðaldal.
Hjálparsveitin Snækollur.
BIFREIÐAR Á KR. 350.000: 82798 159458
VÖRUVINNINGAR Á KR. 50.000:
3998 41849 69174 84765 120648 135821 157796 170744
4858 45189 70735 88436 128094 139674 159758 173891
8067 53655 72822 90036 128193 142465 166066 180587
13590 56845 74178 95795 128906 148636 168613 180737
17187 58978 80902 101746 131301 154340 168864 181928
Handhafar vinningsmiöa framvisi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíö 8, sími 62 14 14.
Kópavogur:
Toyota, Nýbýlavegi 4
Skátaheimilið, Borgarholtsbraut 7
Kaupgarður, v/Engihjalla.
Saurbæjarhreppur
í Eyjafirði:
Hjálparsveitin Dalbjörg.
Flugeldar - blys - gos - sólir - stjörnuljós
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TIVOLÍBOMBUR
OG INNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmönnum
veittan stuðning.
KrabbameinsfélagiÖ
FLUGELDAMARKAÐÍR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Gæ/SÍA