Þjóðviljinn - 14.01.1986, Blaðsíða 7
JóhannG. Jóhanns-
son stjórnaöi kór
Leikfélagsins og
blásturskvintett sem
lékmeðkórnumogí
upphafi athafnarinnar.
(lokinvarsungiðloka-
lag úr „Ævintýri á
gönguför" sem sýnt
hefurverið oftaren
nokkuðannað verká
89árasöguLeikfé-
lagsins.
Stefán Baldursson leikhússtjóri rakti
sögu Leikfélagsins og húsbygging-
armálsins í stuttu máli og afhenti
borgarstjóra mynd af gömlu Iðnó frá
Leikfélaginu fyrir dyggilega fram-
göngu við byggingu Borgarleikhúss-
ins.
Sveinbjörn Sigurðsson húsasmíða-
meistari bar hitann og þungann af
uppsteypu hússins.
Mikið fjölmenni var við lagningu hornsteinsins og var það mál manna að
Hornsteinn lagður að Borgarleikhúsi
athöfnin hefði verið bæði hátíðleg og skemmtileg.
Fullur rekstur
hefst 1988
Hornsteinn var lagður að
Borgarleikhúsinu s.l. laugardag
að viðstöddu mikiu fjölmenni.
Borgarstjóri, Davíð Oddsson,
lagði hornsteininn, kór Leikfé-
lagsins söng ný og gömul lög,
Hljómskálakvintettinn lék og
Stefán Baldursson leikhússtjóri
flutti ávarp.
Áður en hornsteinninn var
lagður rakti borgarstjóri bygging-
arsögu hússins og lýsti gerð þess.
Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgarstjórnar og Þorsteinn Gunnarsson leikari
og einn arkitekta hússins. Ljósm. Sig.
Eins og fram hefur komið eru í
því tveir salir.annar með 540 sæt-
um á hallandi gólfi og hinn tekur
170-270 manns í sæti og er hægt
að leika þar á ýmsa vegu eftir
sætaskipan og stærð leiksvæðis.
Gryfja er fyrir 50-56 hljóðfæra-
leikara og sviðsbrún í stærri saln-
um. í ræðu borgarstjóra kom
fram að stefnt er að því að byrjað
verði að leika í húsinu í sept.
1988.
Athöfnin fór fram í anddyri
hússins, sem er mjög rúmgott,
700 m2 salur sem rúmar fata-
geymslu,veitingasölu o.fl. Allur
aðbúnaður jafnt að áhorfendum
sem starfsmönnum verður mjög
góður, en jafnframt því sem
leikstarfsemi verður í húsinu hef-
ur Reykjavíkurborg afnot af því
fyrir ráðstefnur og fundi.
í hornsteininn var settur blý-
hólkur með hornsteinsskjali þar
sem fram kemur hverjir eiga sæti
í borgarráði, bygginganefnd o.fl.
auk þess var „Stofnskrá fyrir
borgarleikhús“ frá 1975 undirrit-
uð af þáverandi leikhússtjóra
Vigdísi Finnbogadóttur og þáv.
Davíð Oddsson borgarstjóri og jafn
framt formaður bygginganefndar
Borgarleikhússins ber sig fagmann
lega að við lagningu hornsteinsins.
borgarstjóra Birgi Isl. Gunn-
arssyni sett í blýhólkinn, einnig
teikningar af húsinu og afrit af
fundargerð stofnfundar Leikfé-
lags Reykjavíkur frá 11. janúar
1897.
Næsta sumar á afmæli borgar-
innar verður umfangsmikil
tæknisýning í anddyri leikhússins
og einnig verður leiksýning á litla
sviðinu, þótt það verði ekki full-
búið.
í byggingarnefnd borgar-
leikhúss eru auk Davíðs Odds-
sonar, sem er formaður, Guð-
mundur Pálsson leikari og Pórð-
ur Þorbjarnarson borgarverk-
fræðingur.
Þriðjudagur 14. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7