Þjóðviljinn - 14.01.1986, Side 16

Þjóðviljinn - 14.01.1986, Side 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsfmi: 81663. Þriðjudagur 14. janúar 1986 10. tölublað 51. árgangur DJÚÐVILJINN Reykjavíkurborg Drjúgur tekjustofn 143 miljónir í dráttarvexti. Tekjur borgarsjóðs af dráttarvöxtumfóru 50% framúr áœtlun á nýliðnu ári Dráttarvextir af vangreiddum opinberum gjöldum eru að verða ríki og borg drjúgur tekju- stofn. Tekjur Reykjavíkurborgar af dráttarvöxtum í fyrra fóru um 50% framúr áætlun; urðu 143 miljónir í stað 95 miljóna sem áætlað var í upphafi árs. Kristján Kristjánsson fjárhags- áætlunarfulltrúi borgarinnar, sagði í viðtali við Þjóðviljann að skýringarinnar á þessari vanáætl- un væri ekki aðeins að leita í Höfn Togari upp á land Sökkti áður 80 tonna trébáti íhöfninni Togarinn Þórarinn Daníelsson frá Höfn á Hornafirði rak upp í fjöru í gærkvöldi, en áður en þangað kom hafði hann sökkt 80 tonna trébát í höfninni. Björgun- araðgerðir hófust seint í gær- kvöldi, en mikill sjór var kominn í skipið. Að sögn lögreglunnar á Höfn bar þetta þannig að, að þegar færa átti skipið fór eitthvað úr- skeiðis í vél þess og slitnaði það frá bryggju, rak þvert yfir höfn- ina og rakst á bát með þeim af- leiðingum að báturinn sökk. Það- an rak togarann upp á land. Versta veður var á Höfn þegar þetta varð. - gg- Þríblöðin Fundur í kvöld Málfundafélag félagshyggjufólks efnir til fundar í kvöld. Samvinna Blaðaprentsblaðanna á dagskrá Opinn fundur um sameiningu og samvinnu dagblaðanna þriggja ; Alþýðublaðsins, Tímans og Þjóðviljans, verður haldinn í kvöld, þriðjudaginn 14. janúar kl. 20.30 að Hótel Hofi við Rauð- arárstíg. Frummælendur á fundinum verða, Svavar Gestsson, alþingismaður og Bolli Héðinsson, hagfræðing- ur. Fundarstjóri verður Jón Sæ- mundur Sigurjónsson, hagfræð- ingur. Á fundinn mæta: Össur Skarphéðinsson, ritstjóri Þjóðviljans, Helgi Pétursson, rit- stjóri Tímans og Sighvatur Björg- vinsson, sem sæti á í útgáfustjórn Alþýðublaðsins. auknum vanskilum. „Þegar áætl- unin var gerð í upphafi árs var búist við lækkun vaxta“, sagði hann, „eða að vextir myndu alla vega standa í stað. Vextir voru hins vegar hækkaðir og þar með dráttarvextir". Dráttarvextir eru nú 3,75% á mánuði og ef litið er til þess að Reykvíkingar skulda ríki og borg Margeir, ánægður með sigurinn, titilinn og dótturina Elísabet sem skilur hins vegar ekki neitt í neinu. Mynd: Sig. Margeir Pétursson Kom, sá og sigraði Varð sigurvegari í Hastings, fékk 9V2 vinning og er orðinn 5. íslenski stórmeistarinn Margeir Pétursson er kom- inn í stórmeistaraklúbbinn ís- lenska í skák. 9Vi vinningur á skákmótinu í Hastings dugði til þess. Hann kom til landsins í gær og Þjóðviljinn náði tali af honum. Var hann með titil- inn í huga þegar hann fór á mótið? „Nei, eiginlega ekki. En ég sleppti boði á 11 umferða mót í ísrael vegna þess að Hastings mótið var 13 umferðir, sem ég þurfti til að ná þessum áfanga. Þannig að kannski hef ég haft þetta á bak við eyrað. En mér gekk lygilega vel í byrjun mótsins, vann þá nokkra sterkustu keppend- urna á mótinu í fyrstu skákun- um og komst í eitthvert stuð. Þá fór ég nú að sjá fram á það að þetta væri mögulegt. Nú, íslendingum hefur alltaf gengið vel í Hastings, Friðrik sló þarna í gegn fyrir 30 árum, Guðmundur sló þarna í gegn ’74-’75 þannig að kannski var þetta bara eðlilegt framhald“, sagði Margeir. - IH. samtals um 1450 miljónir króna af álagningu nýliðins árs er ljóst að hér er um drjúga tekjulind að ræða. -ÁI Danmörk Sovétmenn á hálum ís Helsingjaeyri — Fjórum sovésk- um diplómötum var í gær bjargað af næfurþunnum ís á Esrum vatni á Norður-Sjálandi. Þeir voru allir með veiðistangir en að því er virðist engin veiðileyfi. íbúar í nágrenni vatnsins til- kynntu um ferðir sovétmannanna og voru björgunarsveitir sendar á vettvang. Ekki varð þess vart að mennirnir gerðu sig seka um veiðiþjófnað og telja margir sennilegra að þeir hafi haft meiri áhuga á ratsjárstöð sem er í grennd við vatnið en þeim kóðum sem leynast kynnu undir ísnum. —ÞH/reuter Skák Tal, Miles Larsen... Þrír tugir stórmeistara á Reykjavíkurmótinu í febrúar Yfir sextíu skákmenn hafa þeg- ar tilkynnt um þátttöku á Reykja- víkurskákmótinu í næsta mán- uði, og líklegt er að tala þátttak- enda verði enn hærri þar sem skráningarfrestur íslendinga er ekki útrunninn. 28 stórmeistarar hafa látið skrá sig til keppni, jrar á meðal skák- stjörnurnar Mikaíl Tal (Sovét), John Miles (Englandi) og Bent Larsen (Danmörku), Efím Gell- er (Sovét) og Bandaríkjamenn- irnir Yassir Seirawan, Larry Christiansen, Lev Alburt og gamla brýnið Samuel Reshevsky, Jim Plaskett hinn enski og ungur lítt þekktur sovétmaður, Valerí Saloff. Enn má nefna þá Ljubom- ir Kavalek, Walter Brown og An- atoly Lein frá Bandaríkjunum, Júgóslavann Predrag, Nikolic, Norska spútnikkinn Simon Agdestein og Svíana Harry Schussler og Lars Carlson. Stórmeistarar úr hópi heima- manna hafa allir tilkynnt um þátt- töku að Friðriki Ólafssyni undan- skildum, - en fregnir herma að hann sé að hugsa sig um, og al- þjóðlegu meistararnir Sævar Bjarnason og Karl Þorsteins verða einnig með í leiknum. Mótið hefst 11. og lýkur 23. febrúar. Verðlaunafé er samtals 34.400 dollarar bandarískir; 1. verðlaun 12 þúsund dollarar (u.þ.b. hálf milljón íslenskar krónur) 2. verðlaun 8 þúsund dollarar og svo framvegis niðrí 12. sæti sem gefur 100 dollara. Teflt verður á Hótel Loftleiðum. Þórshöfn Sækja um niðurfellingu vaxta Utgerðarfélagið á Þórshöfn sem villfá Kolbeinsey ÞH hefur óskað eftir niðurfellingu vaxta á lánum aftogara sínum Stakfelli. Heimildsett innáfjárlög til að verða við þeirri ósk. Þórshafnarmenn fengu á sínum tíma allt kaupverð Stakfellsins lánað Asama tíma og útgerðarfyrir- tækið á Þórshöfn, sem gerir út togarann Stakfell ÞH, sækir það af ofurkappi að fá togarann Kol- beinsey ÞH, sem Húsvíkingar áttu, frá Fiskveiðasjóði, þá fara þeir framá að fá fellda niður vexti af láni ríkisábyrgðarsjóðs, sem þeir fengu þegar þeir keyptu Stakfellið. Þegar útgerðarfyrir- tækið fékk Stakfellið á sínum tíma lánaði ríkisábyrgðarsjóður 80% af kaupverðinu en Fram- kvæmdasjóður 20%. Húsvíkingar bíða sem kunnugt er milli vonar og ótta eftir ákvörðun Fiskveiðasjóðs í dag, um það hvort að þeirra tilboði í skipið verður gengið, eða hvort tilboðinu frá Þórshöfn verður tekið en það er nokkuð hærra. Þess má og geta að ástæðan fyrir því að sótt er um niðurfell- ingu vaxta af lánum Stakfellsins er sú að þau skip sem Fiskveiða- sjóður hafði lánað til, fengu slíka vaxtalækkun, nema Kolbeinsey og þau önnur skip sem boðin voru upp í haust og Fiskveiða- sjóður keypti. Þau fengu ekki vaxtalækkunina vegna þess að þau áttu ekki veð fyrir skuldum skipa sinna. -S.dór

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.