Þjóðviljinn - 15.01.1986, Qupperneq 1
„Kalt stríð“
Lokað á Rússa
Geir Hallgrímsson afturkallar rannsóknarleyfi sem búið var að veita
sovéskum jarðvísindamönnum. Orkustofnun átti aðfylgjastmeð ogfá
niðurstöður. Utanríkisráðuneytið:
ekki talið heppilegt að svona rannsóknirfarifram upp við landsteina
Geir Hallgrímsson utanríkis-
ráðherra afturkallaði skyndi-
lega leyfi sem Rannsóknarráð
ríkisins hafði veitt sovéskum vís-
indamönnum til rannsókna í sam-
vinnu við Orkustofnun á set-
lögum við suðurströnd landsins.
Rannsóknirnar áttu að kosta 5-10
miljónir og ætluðu Sovétmenn að
greiða allan kostnaðinn. Karl
Gunnarsson jarðeðlisfræðingur
tjáði blaðinu að verulegur akkur
hefði orðið af rannsóknunum
fyrir íslendinga, en hann telur að
nú verði ekki af þeim.
Eftir að Rannsóknarráð hafði
veitt leyfið til rannsóknanna tók
utanríkisráðuneytið í taumana og
bar fyrir sig að erindið um
rannsóknina hefði ekki borist
með 6 mánaða fyrirvara, einsog
lög frá 1979 mæla fyrir um.
Hjálmar W. Hannesson sendi-
fulltrúi hjá utanríkisráðuneytinu
staðfesti að leyfið hefði verið
afturkallað og sagði að ekki væri
„talið að öllu leyti heppilegt að
svona rannsóknir færu fram uppi
í landsteinum. Það þarf lengri
tíma til að kanna þetta nánar, og
það er óumdeilt að
rannsóknarerindið barst ekki
með þeim fyrirvara sem lög fyrir-
skipa“.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hefur umræddri lagagrein
aldrei verið beitt með þessum
hætti fyrr.
Gunnar Björn Jónsson hjá
Rannsóknarráði staðfesti að
ráðið hefði verið búið að veita
leyfið. „En við urðum að aftur-
kalla það eftir að ráðuneytið
benti á lagagreinina um 6 mánaða
fyrirvarann“.
Karl Gunnarsson jarðeðlis-
fræðingur sem átti að verða um-
sjónarmaður fyrir hönd Orku-
stofnunar, kvað þurfa mjög sér-
hæft skip til setlaga-
rannsóknanna, og sovésku vís-
indamennirnir hefðu ekki vitað
fyrr en í desember sl. að þær gætu
komist með skipið hingað í lok
janúar. Tveir íslendingar áttu að
vera um borð og fylgjast með
rannsóknum og allar niðurstöður
átti að setja í hendur íslendinga.
„Þetta var óheppilegt“ sagði Karl
að lokum. -Jg
Strokufangar
Hverslags
þjónusta
er þetta
Osló — Tveir norskir stroku-
fangar sem við sögðum frá á
dögunum og hafa verið á
heimsreisu út á krítarkort sem
gefið var út á pappírsfyrirtæki
sem þeir stofnuðu eftir að þeir
flýðu úr fangelsi sl. haust hafa
nú látið í sér heyra.
Strokufangarnir hafa eytt hátt í
20 miljónum króna í ýmsum
heimshornum. Nú í vikunni
hringdu þeir hins vegar til útgef-
anda krítarkortanna í Osló og
spurðu, ákaflega móðgaðir,
hvernig í ósköpunum stæði á því
að menn væru hættir að taka
kortin þeirra gild. Kvörtuðu þeir
sáran undan þessari slæmu þjón-
ustu.
Félagamir hringdu frá Thai-
landi en létu þess ekki getið hve-
nær þeir hygðust snúa heim til að
halda áfram að afplána dóma sem
þeir fengu fyrir fíkniefnasölu.
—ÞH/reuter
Sjónvarpið
Dýrskot
Tvö innskotí
dansskemmtun
sjónvarpsins á
gamlárskvöld kostuðu
800þúsund krónur
Pótt dagskrá sjónvarpsins á
gamlárskvöld hafi almennt
líkað vel, eru ekki allir jafn
ánægðir. Starfsmenn sjónvarps-
ins sem unnu á sínu lága kaupi við
útsendingu og aðra vinnslu þetta
kvöld eru mjög óánægðir. Ástæð-
an er sú að tvö innskot þetta
kvöld, á miðjum dansleik í sjón-
varpssal kostuðu 800 þúsund
krónur en það var Saga fílm sem
vann innskotin. Hér er um að
ræða lögin sem Stuðmenn fluttu
„Fegurðardrottning“ og „Segðu
mér satt“.
Sagafilm hefur sent reikning
uppá 600 þúsund krónur og
stjórnandi upptöku og aðstoðar
manneskja hans setja upp 200
þúsund krónur, þannig að sam-
tals er um að ræða 800 þúsund
krónur. Viðar Víkingsson sem sá
um dagskrána á gamlárskvöld
sagði að þar sem um beinar út-
sendingar hefði verið að ræða
hefði ekki annað komið til greina
en eiga tilbúið efni ef eitthvað
hefði brugðist í beinu útsending-
unni. Þar á meðal var ákveðið að
fá Saga film til að gera þessi tvö
myndbönd og stjórnandi upp-
töku þeirra ráðinn ásamt aðstoð-
armanneskju.
Um kostnað kvöldsins í heild
sagðist Viðar ekki geta sagt til
um. En hann benti á að aðkeypt
efni kostaði alltaf sitt, en síðan
væri tilhneiging til að líta á það
sem unnið er í sjónvarpssal af
starfsfólki sjónvarpsins, sem ó-
keypisefni í stað þess að reikna
hvern upptöku tíma þar á 30-50
þúsund krónur.
Viðar sagði að reiknað hefði
verið með tveimur 5 mínútna
auglýsingatímum um kvöldið og
áttu þeir að færa sjónvarpinu eina
miljón í tekjur. Minna varð úr en
efni stóðu til og auglýsingatekj-
urnar urðu aðeins 200 þúsund
krónur. -S.dór
Björk Vilhelmsdóttir, Hrólfur Ölvisson, Ágúst Hjörtur Ingþórsson, Ólafur Sigurðsson og Guðmundur Auðunsson ræða málin fyrir fund stúdentaráðs í
gærkvöldi. Mynd: E.ÓI.
Stúdentaráð
Frjálshyggjan varð undir
Stúdentaráð lýsiryfir vantrausti á stjórn Vöku og umbótasinna. Félag vinstri manna og
umbótasinnar vinna að málefnasamningi. Ný stjórn kosin á sunnudaginn.
Rœtt um að Björk Vilhelmsdóttir verði nœsti formaður SHI
að verður til umræðu næstu
daga hvernig hugsanlegu
samstarfí okkar við umbótasinna
verður háttað. Það sem nýr
meirihluti þarf fyrst og fremst að
snúa sér að er að móta ábyrga
stefnu í lánamálum námsmanna
og fá menntamálaráðhcrra til
samstarfs við námsmenn um þau
og ekki síður um stefnu í
menntamálum sem nú eru mjög
til umræðu i háskólanum, sagði
Ólafur Sigurðsson formaður
framkvæmdaráðs Félags vinstri
manna í HÍ í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Umbótasinnar samþykktu á
fundi í fyrrakvöld að slíta sam-
starfi við íhaldsmenn í stúdenta-
ráði og í gærkvöldi lýsti stúdenta-
ráð yfir vantrausti á stjórn Vöku
og Félags umbótasinna vegna að-
gerðaleysis hennar í lánamálum.
Stjórnin fer frá í þessari viku og á
fundi stúdentaráðs á sunnudag-
inn verður mynduð ný stjórn Fé-
lags vinstri manna og Félags um-
bótasinna. Málefnasamningur
félaganna verður tilbúinn innan
tíðar og lagður fyrir félagsfundi
um helgina.
Ólafur Arnarson og aðrir emb-
ættismenn Vöku fyrir hönd stúd-
enta munu því víkja úr stöðum
sínum og aðrir taka við, en óá-
nægjan meðal umbótasinna hefur
ekki hvað síst stafað af störfum
Ólafs í stjórn LÍN.
Á fundi umbótasinna á mánu-
dagskvöldið var lýst yfir stuðn-
ingi við Hrólf Ölvisson formann
félagsins, en hann hafði forgöngu
um að samstarfinu yrði slitið.
Fyrr um daginn höfðu Vöku-
menn boðist til að láta Ólaf Arn-
arson víkja úr LÍN gegn því að
Hrólfur léti af embætti sínu sem
formaður og ræddi ekki frekar
við fjölmiðla, en hann hafnaði
því.
Hrólfur sagðist í gær vera
ánægður með þessa niðurstöðu.
„Það er grundvallaratriði að
hagsmuna námsmanna sé gætt í
hvívetna, en störf Vökumanna
hafa brotið freklega í bága við þá
hagsmuni“.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hefur verið rætt um að
Björk Vilhelmsdóttir Félagi
vinstri manna verði næsti for-
maður stúdentaráðs.
- gg-