Þjóðviljinn - 15.01.1986, Qupperneq 2
FRETTIR
Framboð
Verkalýðslisti í
Vestmannaeyjum
Ragnar Óskarsson efstur áframboðslista Alþýðubandalagsins íEyjum
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins í Vestmannaeyjum
vegna sveitastjórnarkosninganna
í vor var samþykktur á fundi í
félaginu í fyrrakvöld. Athygli
vekur að Sveinn Tómasson
bæjarfulltrúi flokksins gefur ekki
kost á sér aftur en í hans stað fer
Ragnar Oskarsson kennari í
fyrsta sætið. 13 manns af þeim 18
sem skipa listann eru verkafólk í
almennri merkingu orðsins. List-
inn lítur svona út:
1. Ragnar Óskarsson kennari,
2. Guðmunda Steingrímsdóttir
sjúkraliði, 3. Elías Björnsson for-
maður Sjómannafélagsins
Jötuns, 4. Jóhanna Friðriksdóttir
formaður Verkakvennafélagsins
Snótar, 5. Jón Kjartansson for-
maður Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja, 6. Svava Haf-
steinsdóttir starfsstúlka, 7. Þor-
steinn Gunnarsson nemi, 8.
Matthildur Sigurðardóttir verka-
kona, 9. Ástþór Jónsson varafor-
maður Sjómannafélagsins
Jötuns, 10. Aðalheiður
Sveinsdóttir verkakona, 11. Sæv-
ar Halldórsson varaformaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
12. EddaTegederpóstur, 13. Ar-
mann Bjarnfreðsson verkamað-
ur, 14. Gunnlaug Einarsdóttir
verkakona, 15. Hörður Þórðar-
son trésmiður, 16. Ólöf M.
Magnúsdóttir kennari, 17. Dag-
.mey Einarsdóttir verkakona og
18. Hermann Jónsson verkamað-
ur. -gkm
Gerðuberg
Konur í
myndlist
Um næstu helgi hefst sýning í
Gerðubergi á verkum kvenna í
eigu Reykjavíkurborgar. Hér er
um að ræða 2. hluta sýningarinn-
ar og þar eru til sýnis verk eftir
núlifandi listakonur. Þar verða til
sýnis málverk, vefnaður, grafík
og fleira.
Það er Gerðuberg sem stendur
fyrir sýningunni í samráði við stjórn
Kjarvalsstaða. Þessir listamenn eiga
verk á sýningunni sem lýkur 15.
febrúar: Ása Ólafsdóttir, Ásgerður
Búadóttir, Björg Þorsteinsdóttir,
Guðmunda Ándrésdóttir, Ingunn
Eydal, Jóhanna Bogadóttir, Karen
Agnete Þórðarson, Karolína Lárus-
dóttir, Kristín Jónsdóttir, Louisa
Matthíasdóttir, Margrét Jóelsdóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir, Sigrid Valt-
ingojer, Sigrún Guðjónsdóttir, Sól-
veig Eggerts Pétursdóttir, Svala Þór-
isdóttir og Þorbjörg Höskuldsdóttir.
f Gerðubergi. Umsjónarmaðurinn Gerla stillti sér upp. Ljósm. E.ÓI.
Grípum til aðgerða
Fulltrúaráð KÍ: Launamunur grunnskólakennara verði leiðrétturþegar.
Valgeir Gestsson formaður KÍ: Bullandi óánœgja í skólunum
Við Geir leyfum sko engum
rússum að kíkja upp undir okk-
ur hér á íslandi.
Grandi hf.
Enn verður
kært
Félagsmálaráðuneytið
veigrarsér við að taka
afstöðu til kœru
minnihlutans í
borgarstjórn um stjórn
Granda hf.
Sú ákvörðun Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra að skeyta í
engu um vilja minnihluta borgar-
stjórnar við skipan fulltrúa borg-
arinnar í stjórn Granda hf. á sín-
um tíma verður að öllum líkind-
um kærð til félagsmálaráðuneyt-
isins að nýju innan skamms, en
nýlega tilkynnti ráðuneytið að
það gæti ekki tekið afstöðu til
fyrri kæru minnihlutans nema
málið fengi umijöllun og af-
greiðslu í borgarstjórn.
Sigurjón Pétursson og Kristján
Benediktsson lögðu í gær fram á-
lyktun í borgarráði þess efnis að
borgarstjóri hafi ekki haft heim-
ild til þess einn og sér að tilnefna
alla stjórnarmenn borgarinnar í
Granda hf. heldur heyri það
undir borgarstjórn að kjósa þá
með lýðræðislegum hætti. Af-
greiðslu ályktunarinnar var frest-
að til næsta fundar borgarráðs.
Verði hún felld þar eins og gera
má ráð fyrir, kemur málið til
kasta borgarstjórnar. Ef íhaldið í
borgarstjórn situr þá fast við sinn
keip, verður málið enn kært til
félagsmálaráðuneytisins.
Þegar af sameiningu BÚR og
Isbjarnarins varð í nóvember
skipaði Davíð þá Þröst Ólafsson
framkvæmdastjóra Dagsbrúnar,
Þórarin Þórarinsson fram-
kvæmdastjóra VSÍ og Ragnar
Júlíusson borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í stjórn fyrirtæk-
isins fyrir borgina. -gg
að er bullandi óánægja úti í
skólunum með þessa mismun-
un kennara í launum og við mun-
um á næstu dögum halda vinnu-
staðafundi til að koma af stað um-
ræðu um þessi mál, en það hefur
engin ákvörðun verið tekin um
aðgerðir, sagði Valgeir Gestsson
formaður Kennarasambands ís-
lands í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Fulltrúaráð Kennarasam-
bandsins samþykkti á fundi um
síðustu helgi ályktun þar sem því
er mótmælt harðlega að ekki hafi
verið staðið við loforð fyrrver-
andí fjármálaráðherra, Álberts
Guðmundssonar um jöfnun
launa á grunnskólastigi, en sem
stendur munar nú um 5% í
launum á félögum í KÍ og HÍK.
Nú nýlega hafnaði Þorsteinn
Pálsson þessari kröfu kennara í
KÍ. Nái þessi leiðrétting ekki
fram að ganga sjá kennarar sig
nauðbeygða til að grípa til að-
gerða.
Þá samþykkti fundurinn að
skora á fjármálaráðherra að beita
sér fyrir lagasetningu á þessu
þingi sem tryggi félögum KI full-
an samnings- og verkfallsrétt.
Fulltrúaráðið fjallaði einnig
um kjaramál og samþykkti eftir-
farandi ályktun:
„Undanfarnar vikur hafa dun-
ið á launafólki í landinu stans-
lausar hækkanir á vöruverði,
þjónustu og óbeinum sköttum.
Sem dæmi má nefna hækkun á
lyfjum og læknisþjónustu um allt
að 33%, 17% hækkun á gjaldskrá
pósts og síma, 20% hækkun dag-
vistargjalda, hækkun á flugvall-
arskatti og svo mætti lengi telja.
Laun hafa verið óverðtryggð
frá árinu 1983 sem hefur haft í för
með sér gífurlega kaupmáttar-
skerðingu. Benda má á að
kaupmáttur kauptaxta minnkaði
um 18,9% á árinu 1983 og um
7,7% á.árinu 1984. Á sama tíma
hefur lánskjaravísitala verið í
fullu gildi.
Frá því í maí 1983 hafa laun
hækkað um 83,9% en á sama
tíma hefur lánskjaravísitala
hækkað um 120,6% og fram-
færsluvísitala um 112,4%.
Launafólk þolir ekki frekari
kjaraskerðingu. Samningar eru
lausir og ekkert skrið komið á
samningaviðræður. Það er sjálf-
sögð krafa launafólks að samið
verði strax“. -gg
Leiðrétting
Misritun varð í frásögn blaðs-
ins í gær af keppni í unglinga-
flokki Skákþings Reykjavíkur.
Einn keppenda var nefndur
Ólafur Vídalín en nafn hans er
Ólafur Valdín Halldórsson. Við
biðjumst velvirðingar.
Námsmenn
Nýir stúdentagarðar áformaðir
Félagsstofnun stúdenta hyggst
reisa 150 íbúðir í stúdenta-
görðum á næstu þrem árum. Ætl-
unin er að fjármagna íbúðir þess-
ar með lánum úr Byggingasjóði
verkamanna, allt að 80% af bygg-
ingakostnaði, sem Félagsstofnun
á rétt á, en restina þarf stofnunin
sjálf að fjármagna. Það eru um 50
milljón krónur.
Ársæll Harðarson, fram-
150 nýjar íbúðir á þrem árum
kvæmdastjóri Félagsstofnunar, og fyrirtækjum. Ársæll sagðist
bjartsýnn á að það tækist. Benti
hann á að hjónagarðarnir hefðu á
sínum tíma verið reistir fyrir
framlög frá sveitarfélögunum.
sagði við Þjóðviljann, að sjóðs-
stjórnin myndi í samvinnu við
Félagsstofnun fara í að leysa það
verkefni. Stofnframlag í sjóðinn
kemur frá Stúdentaráði, og er
það 820 þúsund krónur. Þá
leggur FélagsstQfnun fram 1
milljón 640 þúsund. Afganginum
á svo að safna hjá sveitarfé-
lögum, bönkum, einstaklingum
Óvissuþátturinn í þessu er
einkum það sem bundið er í
lögum, sem sagt framlögin úr
Byggingasjóði verkamanna.
Sagði Arsæll að þeir hefðu þegar
fengið jákvæð svör frá sjóðnum,
en þó ætti eftir að reyna á efnd-
irnar.
Um þessar mundir er undir-
búningsvinnan að fara af stað,
hönnunarvinna og frágangur á
útboðum. Það verður svo í lok
þessa árs og upphafi næsta að
verulegur skriður kemst á út-
gjöldin.
Sáf
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN