Þjóðviljinn - 19.01.1986, Side 2
\iku
skammtur
af gliðnun í Texas
í skoöanakönnun sem gerö var hér á landi
einhvern tímann í fyrra, kom það í Ijós aö íslend-
ingar væru trúaðasta og hamingjusamasta þjóö
veraldar. En nú vaknar sú spurning hvert sé
þanþol hamingjunnar í heimi hroöalegra hörm-
unga. Hve lengi getum viö setið í sálarjafnvægi
og látiö ástandiö úti í hinum stóra heimi eins og
vind um eyrun þjóta. Viö getum auövitað safnaö
fé handa hungruðum heimi og friðað samvisk-
una meö því. Viö getum gefiö Vetrarhjálpinni
fötin okkar, keypt blys af flugbjörgunarsveitinni,
perur af Kívanísmönnum, miða í happdrætti
Þjóðviljans og slegiö þannig á sárustu neyð
þeirra sem verst eru settir. Viö getum látið
hungraöa og klæölitla njóta molanna af boröum
okkar, gefiö fuglum fræ og börnum brauö.
Já, þar sem neyðin er stærst, getum viö veriö
hjálpin sem er næst.
En sumstaðar í heiminum er ástandiö þannig
að viö fáum ekkert aö gert. Þannig er þaö lengi
búiö aö vera í einu af fylkjum Bandaríkjanna,
nánar tiltekiö í Texas.
Viku eftir viku, mánuö eftir mánuö og ár eftir
ár höfum viö þurft aö fylgjast meö gífurlegri
óhamingju bjargarlauss fólks, sem hefur oröiö
illum örlögum aö bráö og viö erum gersamlega
ráðalaus því ekkert þaö sem er í okkar valdi
getur komiö þessu fólki til hjálpar. Vandi þessa
fólks verður nefnilega ekki leystur með fjársöfn-
un, matargjöfum, plötuútgáfu, rakettum eöa
perum.
Vandi þessa fólks er af öðrum toga en þriöja
heimsins.
Ástandið í Dallas er nú oröið slíkt aö ég fæ
ekki lengur oröa bundist. þaö er í rauninni
hroðaleg tilhugsun að þurfa að sitja hjá og geta
ekki látið neitt gott af sér leiða eins og komið er
fyrir Ewing fjölskyldunni og þeirra nánustu. Oft
hefur ástandiö verið slæmt og örvænting óham-
ingjunnar á næsta leiti, en nú er reiðarslagið
dunið á.
Sue Ellen er farin aö drekka aftur,sprungin.
Þaö veröur raunar aö segja þaö eins og er, og
þýðir ekki aö vera aö reyna aö draga fjööur yfir
það, aö ástandiö hefur fariö hríöversnandi á
Southfork aö undanförnu. Þaö er eins og allt
hafi verið aö gliðna bæði innvígö hjónasam-
bönd, sambúðir og jafnvel konurnar sjálfar í
eiginlegri merkingu.
Samband Bobbís og Pam er þegar gliönaö og
hún sömuleiðis í samskiptum viö Mark Gray-
son. Miss Ellí hefur hægt en sígandi verið aö
gliöna fyrir Clayton Marlow, en nú virðist sam-
band þeirra vera aö gliöna vegna þess aö Sue
Ellen gliðnaði til muna í ölæði í rúmi Claytons
bara núna í vikunni. Lúcý, sem oröin var afar
kynköld af samskiptum sínum viö karlmenn,
hefur nú bæöi bráðnað og gliðnað fyrir Mickey
frænda. Vonandi aö samband þeirra eigi ekki
eftir aö gliðna líka. Hin fjölmörgu ástarsambönd
Aftonar hafa í gegnum tíöina gliðnað og hún
sjálf væntanlega jafn oft bæöi til gagns og gam-
ans. Þaö virðist vera sammerkt með gliðnun
allra kvennanna í Dallas, aö þær gliöna af fús-
um og frjálsum vilja, nema ein og þaö er Holly
Harwood sem meö klækjum lokkaöi J.R. uppí
rúm til sín og þóttist gliðna til þess eins aö
hjónaband Sue Ellenar og J.R. gliönaöi endan-
lega. Það sem uggvænlegast virðist í stööunni
núna er aö Katherine, systir Cliffs og Pamillu
hefur verið að gliöna til muna í samskiptum
sínum viö Bobbí og þaö gæti orðið til þess aö
samband þeirra Bobbís og Pam gliönaöi enn
meira en oröiö er. Satt aö segja er varla hægt aö
gera sér í hugarlund hve uggvænlegar afleiö-
ingar þaö gæti haft ef Mark Grayson hlypi end-
anlega í skarðið hjá Pam.
Þá hugsun vil ég helst ekki hugsa til enda.
Sá þanki gerist æ áleitnari, hvort þaö sé
eitthvað sem maöur geti gert fyrir þetta óham-
ingjusama fóik á Southfork, Dallas, Texas og
nístandi vonleysi grípur mann. Þaö er endalaust
hægt aö bjarga soltnum og klæðlausum börn-
um, hungruðum heimi meö því aö skjóta saman
í púkk, en hér á sú aðferð ekki viö. Þaö virðist
deginum Ijósara aö enginn getur bjargað Ewing
fjölskyldunni frá glötun, nema famelían sjálf. En
þá veröur fólkiö líka aö fara aö talast við eins og
heilbrigöar manneskjur.
Nú er þaö oddur á olíubor sem veldur gliönun,
upplausn, úlfuð og hatri. Wentworth hefur sem
sagt endanlega hannað bor með oddi sem
hugsanlegt er aö vinni á freranum sem er í jörð í
Kanada. Sá er bara gallinn á gjöf Njarðar að
Cliff neitar aö láta Bobbí hafa borinn, en þaö
liggur í loftinu aö systurnar Pamilla og Katherine
muni sameinast gegn Cliff og stuðla að því aö
Bobbí fái borinn. Þær vita báöar sem er aö
borinn er þaö sem framtíð Bobbís byggist á,
bæöi í frosthörkunum í Kanada, sem og heima í
Texas. Þær vita sem er, systurnar, aö Bobbí
stendur meö bornum eöa fellur.
Og því á þessi vísa svo undur vel viö núna:
Þó kalt sé í Kanada á vorinn
fer kannske bráðum að þiðna.
Og þegar hann Bobbí fær borinn
munu báðar systurnar gliðna.
Dýrasta
landafræði-
ritgerðin
Eins og menn muna eyddi
fyrrverandi iðnaöarráöherra
stórfé til þess aö láta Hag-
vang gera úttekt á ýmsum
stofnunum sem undir þetta
ráðuneyti heyra. Ein af þeim
var Orkustofnun. Ritgeröin
um hana var á sínum tíma
kölluð dýrasta landafræðirit-
gerö sögunnar, talin kosta aö
minnsta kosti 1800 þúsund
krónurfyrra bindi. Ekki ertalið
að árangur hafi að sama
skapi orðið af þessu mikla
verki. Yfirlýst markmið þess
var að tryggja að hæfir - en
kannski fáir - menn væru við
störf ástofnuninni. Sams kon-
ar úttekt var líka gerð á Vita-
og hafnarmálastofnun. Al-
mælt var að þar væri styrjald-
arástand innanhúss. Verk-
fræðingur nokkur þar var tal-
inn fremstur í flokki. Honum
átti því að hagræða burt. En
nýlega var auglýst eftir manni
til starfa á orkuspárdeild
Orkustofnunar. Tvær
umsóknir bárust, önnur frá
ungum, efnilegum hagfræð-
ingi sem er að Ijúka námi í
Bandaríkjunum. Aður en yfir-
menn Orkustofnunar fengu
ráðrúm til þess að mæla með
hagfræðingnum hafði Albert
Guðmundsson sett Berg-
stein Gizurarson verkf-
ræðing og framsóknarmann (
starfið. Er mælt að
Steingrímur Hermannsson
hafi stuðlað að þessu, þegar
Ijóst var að Matthías Bjarna-
son vildi losna við manninn af
Hafnarmálastofnun. Yfir-
menn Orkustofnunar eru að
vonum hissa á því hve stutt
entist hagræðingarandinn ...
Jón og séra Jón
Framkoma yfirvalda varðandi
sígarettuauglýsingar tímarits
sem kallast „Samúel“ á dög-
unum vekur nokkra athygli ef
borið er saman við hvernig
komið var f ram við útgefendur
Spegilsins á sínum tíma.
Fyrst þusuðu yfirvöld um mál-
ið og hægri pressan auglýsti
hefti Samúels vel upp. Þetta
vakti forvitni og blaðiö rok-
seldist. Síðan var ákveðið að
innkalla ritið utan Reykjavíkur
en leyfa sölu á því í Reykjavík.
Stendur þessi kabarett raunar
enn. En þegarSpegillinn birti
Ijósmynd og greinarkorn sem
einum hæstaréttardómaran-
um líkaði ekki, þá hljóp Þórður
frændi til, þótt hægfara sé, og
stöðvaði sölu á blaðinu strax
um allt land og engin umfjöll-
un um það átti sér stað fyrr en
búið var að stöðva sölu þess.
Aðstandendur Samúels eru
velmetnir félagar í Sjálfstæð-
isflokknum en útgefandi
Spegilsins Alþýðubanda-
lagsmaður. Það er ekki sama
Jón og séra Jón.B
„ Kitlur” á Skaga
Steinunn Jóhannesdóttir
leikkona er nú að leggja síð-
ustu hönd á unglingaleikritið
„Kitlur”, sem hún ætlar að
leikstýra hjá Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi. Verkið
samdi hún upphaflega að
beiðni barna- og unglinga-
deildar Útvarpsins, en hún og
leiklistarstjórinn, Jón Viðar
Jónsson hafa ekki getað
komið sér saman um endan-
lega gerð þess. Nemendur
Fjölbrautaskólans hafa nú fal-
ast eftir verkinu og er
Steinunn að endurvinna það
fyrirsvið. Fjölbrautaskólinn er
annars þekktur af leiklistaraf-
rekum, en í fyrra var farið í
mikla frægðarför til Finnlands
með „Grænjaxl” Péturs
Gunnarssonar í leikstjórn
Sigríðar Hagalín. ■
Má treysta því
Og nú ætla Norðmenn að
slíta samstarfinu við okkur
frændur sína og hóta að
hætta að senda okkur sjón-
varpsleikrit. Raunar hafa
Norðmenn aldrei verið sér-
lega hátt skrifaðir á þessu
sviði og enginn grét þegar
hætt var við að senda yfir okk-
ur norskt sjónvarp í gegnum
gervihnött. Þeim tókst nú
samt að sigra með hinum ó-
gleymanlegu „Bobbysocks"
og laginu „La det svinge" í
Evrópusöngvakeppninni. Við
íslendingar glöddumst með
frændum vorum, þótt öllu
hörmulegri lagasmíð hafi
varla heyrst pg sést. Nú
skorum við á íslendinga að
senda til Noregs í komandi
keppni skemmtiatriðið úr ára-
mótaskaupinu með Tinnu og
Eddu sem „Bobbysocks". Þá
getur verið að norsararnir
standi við hótuninaB
AB með
galopið prófkjör
Alþýðubandalagið í Garða-
bæ mun fyrir vorið halda það
galopnasta prófkjörsem hald-
ið hefur verið hér á landi.
Samþykkt hefur verið að aug-
lýsa í blaði félagsins, Alþýðu-
bandalaginu, eftir frambjóð-
endum til prófkjörsins og eftir
að þeir hafa gefið sig fram út-
býr þriggja manna kjörnefnd
kjörseðilinn. Kjörseðillinn
verður síðan prentaður í
málgagninu sem borið verður
í hvert hús í Garðabæ. Menn
geta fengið fleiri en eitt blað á
hvert heimili og póstleggja
kjörseðilinn síðan til kjör-
nefndar. Er ekki að efa að
Garðbæingar munu notfæra
sér þetta einstæða tækifæri til
að velja næsta meirihluta í
bæjarfélaginu því Alþýðu-
bandalagið þar syðra stefnir
auðvitað að því að velta þeim
gamla! ■