Þjóðviljinn - 19.01.1986, Síða 4

Þjóðviljinn - 19.01.1986, Síða 4
rásargirnina við taflborðið. Núm- er eitt er að óttast ekki andstæð- inginn. Áður bar maður ótta- blandna virðingu fyrir leikjum þekktra andstæðinga. Var stöðugt á nálum um að þeir væru að leggja gildrur fyrir mann og sá drauga í hverju horni. En það má eiginlega orða þetta einsog einn góður vinur minn sagði: Pó þetta séu frægir menn þá verða þeir þó að fara mannganginn. Þó ég hafi öðlast stórmeistaratitilinn, þá veitir það mér ekki undanþágu frá mannganginum.” Ungu mennirnir „Mér líst vel á þessa unglinga sem eru að koma upp núna. Ég fæ ekki betur séð en að breiðfylking 10-15 unglinga geti átt framtíðina fyrir sér við taflborðið. Þeir mættu þó leggja meiri vinnu í þetta og leggja meiri, rækt við fræðin.” -— Hvað með þig sjálfanfHvernig heldurðu þér við efnið milli móta? „Einsog þú sérð þá er ég í fullu starfi hér í bankanum en tafl- mennska mín nýtur skilnings hjá vinnuveitandanum, annars væri þetta ekki hægt. Ég legg að vísu ekki eins mikla rækt við fræðin og áður og á milli móta líða jafnvel vikur án þess að ég tefli eina ein- ustu skák. Ég nota hinsvegar tím- ann á mótum til að stúdera en það er mjög nauðsynlegt að fylgjast stöðugt með því sem er að gerast í skákheiminum. í Hastings höfðu andstæðingar mínir 100 síðustu skákir mínar fyrir framan sig og því vita allir hvaða vopnum mað- ur beitir. Það er hægt að gjör- þekkja andstæðinginn án þess að hafa nokkurntímann teflt við hann.” Áhugamál „Því miður hef ég lítinn tíma til að sinna öðru en vinnu, skák og fjölskyldu, þó reyni ég að fylgjast með því sem er að gerast í bók- menntum, og les töluvert bæði ís- lenskar og enskar bækur. Þeir höfundar sem ég held mest upp á eru Saul Bellow, en ég hef lesið allt sem ég hef komist yfir eftir hann. Þá held ég mikið upp á Tjekov, þó ég sé ekki enn búinn að sjá Þjóðleikhússýninguna á Villihunangi. Vonast þó til að geta gefið mér tíma til þess.” Líkamleg þjálfun. Purfa skák- menn ekki að vera í toppformi þegar þeir setjast við taflborðið? „Ekki er það verra en ég geri alltof lítið af því. Áður var ég töluvert í fótbolta en svo fót- brotnaði ég fyrir tveim árum og hef ekki lagt í knattspyrnuna aft- ur. Ég fer oft í göngutúra, það má segja að það sé eina líkamlega þjálfunin mín.” Og hvort er nú mikilvœgara Margeir, skákin eða lögfrœðin? Nú brosir stórmeistarinn og hugsar sig um áður en hann svar- ar: „Ég veit ekki hvort er mik- ilvægara en það er meiri alvara í dómsmálum en við taflborðið þótt við virðumst mjög alvöru- gefnir þar. Leiki maður af sér í skák er það bara maður sjálfur sem geldur þess, en leiki maður afleik fyrir dómi geta aðrir þurft að gjalda þess.” Sáf Titillinn veitir engar undanþagur Hver stóratburðurinn rekur ann- an í lífi Margeirs Péturssonar þessa dagana. Um síðustu helgi kom hann heim frá Hastings í Englandi með stórmeistaratitil og sigur í mótinu upp á vasann og á fimmtudaginn flutti hann sitt fyrsta prófmál í borgardómi, en hann er nýbúinn að fá réttindi til að verða héraðsdómslögmaður. Þegar Margeir er ekki að tefla, stúdera skák eða sinna fjölskyld- unni situr hann á skrifstofu sinni í Austurstræti. Margeirerlögfræð- ingur Búnaðarbankans. Blaða- maður Þjóðviljans leit við á skrif- stofu Margeirs nú í vikulokin, ekki í þeim tilgangi að kvarta undan vaxtaokrínu, heldur til að eiga stutt spjall við nýorðinn stór- meistara. Margeir segist ekki endilega hafa átt von á að ná stórmeistar- atitlinum á Hastingsmótinu, hinsvegar hefði hann gert sér miklar vonir um að ná titlinum í ár. Vissulega skipti það miklu að vera orðinn stórmeistari, en þó kannski ekki eins miklu og ætla mætti. Margeir hefur verið það hár að stigum að hann hefur get- að valið úr mótum til að keppa á. Á hinn bóginn getur hann átt von á hagstæðari boðum nú og ætlast til að mótshaldarar greiði allan útlagðan kostnað, ferðir, uppi- hald og annað, þannig að hann komi ekki út með tapi, þó svo að hann vinni ekki mótin. „Þetta hefur verið dýrt. Ætli ég hafi ekki sótt um 50-60 mót er- lendis á undanförnum árum og einkum fyrstu árin kom ég iðu- lega út með tapi. Á sfðustu árum hefur þetta þó skilað örlitlum hagnaði.” En hvernig gekk að fjármagna þetta fyrstu árin? „Skáksambandið og Taflfélag Reykjavíkur styrkti mig, einkum fyrstu árin, en það hefur verið minna seinni árin, enda eðlilegt að unglingarnir séu mest styrktir. Þá skilst mér að ríkið styrki stór- meistarana, en enn hefur enginn rætt við mig um það.” Hvað veldur því að svona margir sterkir skákmenn eru af þinni kyrtslóð? „Tvímælalaust á heimsmeistar- aeinvígi í Reykjavík milli Fisc- hers og Spasskís stærstan þátt í því. Þá var ég 12 ára og einvígið varð til þess að ég gerði ekkert annað en að tefla í öllum mínum fnstundum, auk þess, sem ég fór að stúdera skák um það leyti. Þá hafa verið mjög góðar aðstæður hér heima, þannig að við höfum Viðtal við Margeir Pétursson, nýbakaðan stórmeistara í skák aldrei slakað á. Hvert stórmótið rekur annað og í því felst mikil hvatning. Ef við berum okkur saman við Svíana t.d. þá kom upp hópur af sterkum skákmönnum þar um 1975 og fram til 1980 voru þeir mun sterkari en við. Nú eiga Svíar bara tvo menn í Norður- landaúrvalinu, sem mun keppa við Bandaríkin en íslendingar fimm og gætu átt sex ef Friðrik Ólafsson hefði getað verið með. Ástæðan fyrir því að Svíarnir hafa dalað er sú að í Svíþjóð virð- ist skákin ekki eiga upp á pall- borðið í umræðunni og fjölmiðlar sinna henni því lítið, auk þess sem engin stórmót eru haldin í landinu, að minnsta kosti ekkert í líkingu við hér.” Reykjavíkurmótið Þú munt vœntanlega taka þátt í Reykjavíkurmótinu? „Ég býst við því. Þetta verður spennandi mót því þarna tefla margir sterkir menn. Þó er það svo að þeir sem telja sig eiga litla vinningsmöguleika á mótinu sækja það ekki og ástæðan er ein- faldlega sú að það er dýrt að ferð- ast hingað. Verðlaunin eru mjög há, ég veit bara um eitt mót þar sem verðlaun eru hærri en það er Opna mótið í New York. Aftur á móti dreifast verðlaunin á mun færri. Fyrstu verðlaun eru hálf milljón íslenskra króna.” Nú hefur Kasparov sýnt mótinu áhuga. „Ég vona bara að hann láti ekki verða af því að koma hingað og tefli einvígið við Karpov.” Hvað finnst þér um þá ákvörð- un Campomanes að endurtaka einvígið strax? „Það er hneyksli að Kasparov þurfi að verja titilinn strax eftir þrjá mánuði. Fram til þessa hafa menn fengið að njóta þess að minnsta kosti í eitt ár að vera heimsmeistarar áður en þeir hafa þurft að verja titilinn. En valdið er hjá Campomanes. Sovétmenn og aðrir sem studdu hann gegn Friðriki Ólafssyni eru nú að súpa seyðið af þessu. Ég hef heyrt háttsetta og virta menn innan FIDE segja að það sé brjálað hvernig hann stjórni samband- inu. Ég vona samt að Kasparov tefli og vinni hann einvígið aftur er hann sá heimsmeistari, sem er best kominn að titlinum í sögu skákarinnar.” Gömlu meistararnir „Það hafa verið uppi margir gífurlega miklir hæfileikamenn í skákinni, en ég er hræddur um að það þýddi lítið fyrir gömlu meistarana að setjast við tafl- borðið og heyja kapp við þá Kasparov og Karpov. Þeir þyrftu fyrst að setjast niður og stúdera í minnst þrjú ár, því skákin hefur þróast mikið og mun halda áfram að þróast. Möguleikarnir eru ótæmandi. Hver miðjutaflstaða býður t.d. upp á ótrúlega margar áætlanir og mörg byrjunaratriði eru lítið stúderuð.” Hvað með að skákin muni deyja jafnteflisdauða, einsog margur hefur haldið fram? „Jú, menn hafa verið hræddir við þetta en gerum okkur bara grein fyrir því að það vinnur eng- inn skák nema andstæðingurinn leiki af sér. Það er stundum erfitt að sj á h var maður lék af sér, eink- um á þetta þó við þegar teflt er við Karpov, þá getur oft verið erfitt að sjá hvar mistökin voru, en einhversstaðar var samt af- leikur.” Hvernig fá menn andstœðing- inn til að leika af sér? „Það eru til ýmis ráð til þess. Algengast er að leika óvæntan leik og hleypa þannig skákinni upp og koma andstæðingnum úr jafnvægi. Vissulega getur slíkt brugðist til beggja vona, en þú nærð aldrei langt með því að tefla upp á öryggi. Kasparov hefur sýnt fram á að ef menn finna rétta aijgnablikið til að koma skákinni úr jafnvægi og leggja þannig nógu erfið vandamál fyrir andstæðing- inn, þá er hægt að sigra hvern sem er. Sem dæmi um það er hægt að nefna 16. einvígisskákina, sem var stórkostleg.” Skapgerð skákmanna „Fyrst og fremst verður skák- maður að búa yfir þolinmæði og gefast ekki upp þó á móti blási. Hann má ekki láta töp fara í taugarnar á sér. Hann verður að hafa sjálfstraust og má ekki vera hræddur við andstæðinginn.” Er ekki nauðsynlegt að vera árásargjarn við taflborðið? „Jú, við taflborðið, en það er ekki þar með sagt að skákmenn séu árásargjarnir dags dagléga. Svo er að minnsta kosti ekki með mig. Kannski fæ ég útrás fyrir á- 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. janúar 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.