Þjóðviljinn - 19.01.1986, Síða 12

Þjóðviljinn - 19.01.1986, Síða 12
SJÓNVABP Námskeið í náttúruvernd - Landvarðanámskeið - Náttúruverndarráö auglýsir námskeiö í náttúru- vernd. Tilgangur námskeiösins er aö gefa fólki innsýn í náttúruvernd á íslandi, þjálfa þaö til aö hafa eftirlit meö friðlýstum svæöum og fræöa fólk um náttúru landsins. Þátttakendur í námskeiðinu skulu vera orönir 20 ára og hafa staögóöa framhaldsmenntun. Fjöldi þátttakenda veröur takmarkaöur. Þátttaka í námskeiöi sem þessu er skilyrði fyrir ráðningu til landvörslustarfa á vegum Náttúru- verndarráös, en tryggir þátttakendum þó ekki slík störf. Námskeiðið veröur haldiö á Akureyri og í Mý- vatnssveit og fer fram eftirfarandi daga: 14., 15. og 16. mars á Akureyri, 4., 5. og 6. apríl á Akureyri, og 24.-27. apríl í Mývatnssveit. Skriflegar umsóknir, meö heimilisfangi og síma, er greina frá menntun, aldri, störfum, áhugamál- um og ööru sem máli skiptir, skulu berast Náttúr- uverndarráöi, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, fyrir 10. febr. 1986. Árbæjarbúar Eftirfarandi námsflokkar eru í boði á vorönn 1986 í Félags- miðstöðinni Árseli. Enska 1.fl. mánud. Enska 2.fl. mánud. Enska 3.fl. mánud. Þýska 1.fl. miðv.d. Þýska 3.fl. miðv.d. Leikfimi mánud. og miðvikud. A-hópur kl. 1710-1750 B-hópur kl. 1755-1835 C-hópur kl. 1840-1920 Aöeins er hægt að bæta örfáum við í leikfimi hópanna. Lokainnritun fer fram í Árseli mánud. 20. jan. kl. 17-19. Kennsla hefst sama dag. Námsflokkar Reykjavíkur símar: 12992-14106 Miðbæjarskólanum kl. 1800-1920 kl. 1925-2050 kl. 2100-2220 kl. 1800-1920 kl. 1925-2050 Breiðholtsbúar Eftirfarandi námsflokkar eru í boði á vorönn 1986 í Menning- armiðstöðinni við Gerðuberg: Þýska 1.fl. mánud. kl. 1800-1920 Enska byrj. mánud. kl. 1800-1920 Enska 1.fl. þriðjud. kl. 1925-20so Enska 2.fl. þriðjud. kl. 2100-2220 Enska 2.fl. mánud. kl. 1925-2050 Enska 3.fl. fimmtud. kl. 1925-2050 Enska 4,fl. fimmtud. kl. 2100-2220 Saumar miðvikudaga eða fimmtudaga kl. 1925-2220 Fullbókað er á mánudögum og þriðjudögum. Lokainnritun fer fram í Gerðubergi mánudaq 20. ianúar kl 17 til 19. Kennsla hefst 20. janúar. Námsflokkar Reykjavíkur símar 12992 og 14106. Cyrano greifi af Bergerac (Derek Jacobi) og stúlkan fagra, Roxane (Sinead Cusack). Rómantískur greifi með stórt nef Sjónvarpið sýnir margverðlaunaða uppfœrslu Royal Shakespe- are Company á Cyrano de Bergerac á mánudagskvöldið Sviðsmynd úr Cyrano de Bergerac. Eins og sjá mátti í Nikulási Nickleby er sviðið í Barbican geysistórt og Ralph Koltai þótti nýta það mjög vel þegar hann gerði leikmynd sína. Annað kvöld, mánudag kl. 21.05, sýnir sjónvarpið okkur margverð- launaða uppfærslu Royal Shak- espeare Company á leikritinu Cyrano de Bergerac eftir frakk- ann Edmond Rostand. Er sýn- ingin tekin upp á sviði Barbican- leikhússins í London líkt og gert var við þættina um Nikulás Nic- kleby sem sjónvarpið sýndi í fyrra. Leikritið um Cyrano greifa af Bergerac var frumsýnt í París um jólin 1897 og varð þegar í stað geysivinsælt. Síðan hefur það verið sýnt víða um heim og er fyrir löngu komið í hóp sígildra verka leikhússögunnar. Nefstórt skóld Leikritið gerist í Frakklandi á 17. öld þegar rómantíkin var og hét. Sögusviðið er það sama og við könnumst við úr verki Victor Hugo, Skyttunum þremur, og reyndar kemur ein þeirra við sögu, gaskóninn hugrakki d Art- agnan. Andi Richelieu kardínála svífur yfir vötnunum og karl- menn taka upp sverð af minnsta tilefni. Efni leiksins er hinn sígildi þríhyrningur. Cyrano greifi ann stúlkunni fögru, Roxane, hugást- um en hún sér ekki sólina fyrir ungum og fríðum pilti sem er kadett í herflokki greifans. Úr þessu verður heilmikið drama og þar leikur gríðarstórt nef Cyran- os stóra rullu. Auk þess að vera riddari og að- alsmaður er Cyrano skáld gott og allur texti verksins er í bundnu máli. Leikflokkurinn flytur okk- ur margrómaða enska þýðingu Anthony Burgess en Óskar Ing- imarsson fékk það erfiða hlut- verk að koma honum til skila á íslensku. Margverðlaunuð sýning Leikstjóri í sýningunni er Terry Hands en með aðalhlut- verkið, Cyrano greifa, fer hinn þekkti enski leikari Derek Jacobi en hann lék ma. aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum sem byggðir voru á leikritinu Ég, Kládíus. Roxane er leikin af Sinead Cus- ack en Tom Mannion fer með hlutverk Christian, unga kadetts- 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ins. Höfundur leikmyndarinnar er íslendingum að góður kunnur. Þar er á ferð Ralph Koltai sem gerði leikmynd við umtalaða sýn- ingu Þjóðleikhússins á Lé kon- ungi sem Hovhannes Pilikian setti á svið árið 1977. Eins og áður segir fór upptaka fram á sviði Barbican-leikhússins en henni stjórnaði Michael Simp- son. Þessi sýning var fyrst færð á svið árið 1983 en síðan hefur hún farið víða, ma. til Broadway þar sem hún hlaut mikið lof gagnrýnenda. Á Englandi sópaði sýningin til sín verðlaunum. Leikárið 1983-84 fékk Derek Jac- obi fern verðlaun fyrir túlkun sína á Cyrano greifa, Terry Hands tvenn fyrir uppfærsluna og Ralph Koltai ein fyrir leikmynd- ina. Sýningin á Cyrano de Bergerac tekur hálfan þriðja klukkutíma í flutningi en leikritið er í fimm þáttum. Kíkóti og Moliére Mánudagsleikrit sjónvarpsins hafa oft þótt verulega bitastæð og víst er um að leikhússáhugafólk kíkir alltaf í dagskrána til að sjá hvað er á boðstólum á mánu- dögum. Það verður ekki svikið á næstu vikum og mánuðum því ýmis merk leikrit verða á dag- skránni. Þar má nefna sýningu Royal Shakespeare Company á Moliére eftir rússann IVIikhail Bulgakof og Herra Kíkóti eftir Graham Greene. Inn á milli verða sýndar sjónvarpsmyndir og kvikmyndir og má þar nefna leikna heimildarmynd frá BBC sem nefnist Threads en hún fjall- ar um ógnir kjarnorkustríðs og er einskonar svar breta við banda- rísku kvikmyndinni The Day After. Nánar verður greint frá mánudagsleikritum sjónvarpsins þegar þau verða tekin á dagskrá. —ÞH Aðalfundur Framleiðslusamvinnufélag iðnaðarmanna boðar til framhaldsaðalfundar laugardaginn 25. janúar að Smiðshöfða 6, Reykjavík, og hefst kl. 10 árdegis. Dagskrá: venjuleg aðalfundastörf. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.