Þjóðviljinn - 21.01.1986, Blaðsíða 9
VIÐHORF
Er borain óvinnandi vígi?
Það fer víst ekki á milli mála að
kosningabarátta Sjálfstæðis-
flokksins er hafin. Nú á auðsjáan-
lega að taka Reykvíkinga með
trompi; syngjandi borgarstjórinn
með glænýja fjárhagsáætlun
uppá vasann á afmælisári borgar-
innar þar sem aldeilis verður slett
úr klaufunum. Skoðanakannanir
berma að Davíð sé vinsæll og fjöl-
miðlar keppast hver um annan
þveran við að koma honum í
sviðsljósið.
Margt bendir vissulega til að
staða íhaldsins sé mjög sterk í
Reykjavík og víða heyrist
uppgjafa- og vonleysistónn í
röðum vinstri manna. Er borgin
þá óvinnandi vígi? Ég segi nei!
En til þess að hnekkja ofurvaldi
íhalds- og gróðaaflanna þarf
öfluga vinstri hreyfingu, sem
framar öllu byggir afl sitt á lifandi
og virkum tengslum við launafólk
og ýmsa hagsmunahópa þeirra,
sem búa við misrétti undir núver-
andi stjórn borgarinnar.
Ég hef starfað með Alþýðu-
bandalaginu s.l. tvö ár og á þeim
tíma hef ég oft þurft að svara
þeirri spurningu, hvers vegna í
ósköpunum ég sé að eyða öllum
mínum frístundum í „þetta“.
Margir félaga minna og ég sjálf,
erum af þeirri kynslóð sem vakn-
aði til vitundar í kjölfar stúdent-
auppreisnanna 68 og höfum eytt
ómældum tíma í starf með náms-
mannahreyfingunni, kvenna-
hreyfingunni og
stjórnmálahópum á vinstri kant-
inum. Mörg höfum við búið er-
lendis um árabil og tekið þátt í
baráttunni á þeim vettvangi.
í dag erum við flest ósköp
venjulegt launafólk sem eins og
aðrir glíma við að koma yfir sig
húsnæði og að ná endum saman.
Höfum við þá engan tíma til að
taka þátt í stjórnmálastarfi lengur
eða eru baráttumálin og hugsjón-
irnar gleymdar í dagsins önn?
Það held ég varla að sé rétta orð-
Helga Sigurjónsdóttir skrifar
ið. Undrun félaga minna á því að
nokkur skuli vilja eyða tíma í að
starfa með Alþýðubandalaginu,
byggist fremur á þeirri skoðun að
manna ef við viljum og erum til-
búin til að taka stefnu og starf til
nauðsynlegrar endurskoðunar.
Því miður hefur sáralítil urn-
sú skylda að gera það sem í okkar
valdi stendur til að sameina alla
þá krafta, sem vilja vinna að
hagsmunum launafólks og ann-
„Við getum lagtgrunn að öflugri sókn vinstri
manna efvið viljum og erum tilbúin til að taka
stefnu ogstarftil nauðsynlegrar
endurskoðunar“
það sé bara eins og allir hinir
flokkarnir. Vonlaust að hafa
áhrif á stefnu og starf. Bara hluti
af „kerfinu" sem virðir þarfir
okkar og annarra launamanna í
sömu sporum að vettugi.
f mínum augum er þó grund-
vallarmunur á Alþýðubandalag-
inu og öðrum flokkum, og mér
finnst tímanum að mörgu leyti vel
varið við störf fyrir það. Sá mun-
ur er fyrst og fremst fólginn í því
að Alþýðubandalagið er sterk-
asta stjórnmálaaflið, sem byggir
á hagsmunum og afli launafólks
og annarra undirokaðra hópa.
Hins vegar er AB alls ekki nógu
öflugur málsvari þessa fólks og
ekki nærri nógu vel í takt við þær
hræringar, sem eiga sér stað með-
al þess. Nærtækasta staðfesting
þess er einmitt óhugnanlega sterk
staða íhaldsins í borginni og
tregða margra fyrrum baráttugl-
aðra félaga við að koma til starfa.
Ég er hinsvegar mjög bjartsýn
og álít að einmitt í komandi borg-
arstjórnarkosningum sé tækifæri
til að breyta stöðunni. Við getum
lagt grunn að öflugri sókn vinstri
ræða farið fram um stefnu Al-
þýðubandalagsins í borgarmál-
um. Það er ekki bara spurning
um að stja fram vel orðaða og
fallega uppsetta kosningastefnu-
skrá eða að finna „góð mál“ til að
klekkja á íhaldinu með. Virkt
starf og lifandi umræða um mál-
efni borgarbúa þarf að vera órjúf-
anlegur hluti af starfi allra virkra
Alþýðubandalagsfélaga í
Reykjavík.
Við Alþýðubandalagsfólk
eigum að rífa okkur upp úr þeirri
ládeyðu sem hefur ríkt gagnvart
borgarmálum. Tökum nú af-
dráttarlaust frumkvæði að því að
virkja þau samtök og það fólk,
sem lætur sig málefni íbúa borg-
arinnar varða og hefjum víðtæka
umræðu um nýja stefnu í borg-
armálum. Nýja stefnu sem hefur
félagshyggju og virkt lýðræði að
hornsteinum og getur orðið raun-
hæfur valkostur við þá
einstaklings- og gróðahyggju,
sem nú ræður ríkjum í stjórn
borgarinnar og hefur gert alltof
lengi. Á okkur sem stekasta
stjórnmálaafl vinstri manna hvílir
arra undirokaðra hópa, í öfluga
sókn gegn ofurvaldi íhaldsins.
Ég get nefnt nokkur atriði, sem
að mínu áliti eru í takt við skoð-
anir og þarfir fjölmargra
Reykvíkinga og ættu erindi í slíka
umræðu.
- Það þarf að gjörbreyta
embættismanna- og stjórnkerfi
borgarinnar og korna því í lýð-
ræðislegra og nútímalegra horf.
Þar á að vera í fyrirrúmi góð
þjónusta við borgarbúa, öflugt
upplýsingastreymi til þeirra og að
íbúum borgarinnar verði gefinn
kostur á að hafa bein áhrif á á-
kvarðanir, sem snerta nánasta
umhverfi þeirra og lífsskilyrði.
- Það verður að vera forgangs-
verkefni að stuðla að bættum
skilyrðum fyrir uppvöxt og upp-
eldi barna og unglinga í borginni.
Það þarf að marka stefnu í þess-
um málum sem tekur mið af því
að í Reykjavík nútímans vinna yf-
irleitt báðir foreldrar utan heimil-
is og því er uppeldishlutverk fjöl-
skyldunnar mjög breytt frá því
sem var fyrir bara einum áratug.
Það þarf að gera ýmsar breyting-
ar sem snerta bæði dagvistun
ungra barna, starfssemi skól-
anna, tómstundastarf barna og
unglinga og umferðamál, svo
nokkur dæmi séu tekin
- Það þarf að leggja áherslu á
miklu fjölbreyttari stefnu í hús-
næðismálum þar sem ýtt er undir
húsnæðissamvinnufélög, leigu-
húsnæði í eigu borgarinnar og
fleiri sambýlisform sent korna til
móts við mismunandi þarfir borg-
arbúa í samræmi við aldur og aðr-
ar aðstæður.
- Sem einn stærsti atvinnu-
rekandi landsins gæti borgar-
stjórn, hliðholl launafólki, tekið
forystu um að konia til móts við
kröfur kvenna um endurmat á
kvennastörfum og hrint í fram-
kvæmd hugmyndum um atvinnu-
lýðræði í fyrirtækjum og stofnun-
um borgarinnar.
- Borgin getur og á að hafa
ótvíræðu hlutverki að gegna í
uppbyggingu fjölbreytts atvinnu-
lífs bæði með beinni þátttöku og
stuðningi við nýjar atvinnugrein-
ar.
Ég er sannfærð um að opinská
og víðtæk umræða um nýja stefnu
í borgarmálum, sem bæði gæti
farið fram hér í Þjóðviljanum og
á opnum fundum víðsvegar um
borgina þar sem ýmsum sam-
tökum og öðrum stjórnmála-
flokkum vinstri manna væri boð-
in þátttaka, gæti lagt grunninn að
öflugri sókn í komandi kosninga-
baráttu og myndi laða áhugasamt
fólk til starfa.
Að lokum vil ég skora á sem
flesta stuðningsmenn og félaga
að taka þátt í forvali um fram-
boðslista til borgarstjórnarkosn-
inganna, sem fer fram þann 31.
janúar og 1. febrúar
næstkomandi. Það skiptir miklu
hverjir veljast til forystu í þeirri
baráttu sem framundan er.
Reykjavík 19. janúar 1986
Helga Sigurjónsdóttir
Fyrri hluta desembermánaðar
flutti Ragnar Arnalds tillögu á al-
þingi um stofnun opins háskóla
hér á landi. Samkvæmt fréttatil-
kynningu Morgunblaðsins hinn
29. desember hlaut tillaga Ragn-
ars góðar undirtektir þingmanna
úr öllum flokkum.
Vegna áhuga míns á fullorðins-
menntun setti ég mig í samband
við opna háskólann í Bretlandi og
hef nú haft samband við hann síð-
an 1983. Þar sem ég geri ráð fyrir
því að almenningur geri sér litla
grein fyrir því hvað opinn háskóli
er mun ég nú lýsa í nokkrum
dráttum opna háskólanum í Bret-
landi (U.K.), en hugmyndin um
opinn háskóla var framkvæmd
þar og hafa nú ýmsar aðrar þjóðir
tekið Breta sér til fyrirmyndar í
þessu efni.
Breski opni háskólinn vinnur á
tveimur sviðum. Hér er um að
ræða almennt fræðslusvið (Com-
munity Education Courses) sem
eru námsáfangar ætlaðir til upp-
rifjunar á fyrra skólanámi. Enn-
fremur er hér um að ræða námsá-
fanga sem eru fólgnir í því að
dregin er saman ýmis þekking
sem kann að fara fram hjá okkur í
önn og erli dagsins og er aðallega
birt í blöðum og tímaritum. Þess-
ir námsáfangar eru ekki prófá-
fangar og gefa því ekki stig til
háskólagráðu. Um þátttöku í
þessum áföngum eru ekki gerðar
aðrar kröfur en að væntanlegur
nemandi sé orðinn fullra 16 ára
og sé búsettur í Bretlandi. Hér er
því að nokkru leyti um að ræða
almenna fullorðinsfræðslu.
Um opinn háskóla
Hitt fræðslusviðið er hið eigin-
lega háskólanám (Associate Stu-
dent Courses). Um inngöngu
gilda þær reglur um að umsækj-
andi verður að vera orðinn 21 árs
að aldri og búsettur í Bretlandi.
Námið fer þannig fram að
nemandi velur sér ákveðna
áfanga og við valið á nemandinn
kost á því að ráðfæra sig við
námsráðgjafa. Að áfanga lokn-
um tekur nemandi próf í áfangan-
um og safnar stigum en hver
áfangi fyrir sig gefur ákveðinn
stigafjölda. Algengast er að
áfangi sé metinn eitt stig eða hálft
stig en til BA prófs þarf 6 stig.
Að sjálfsögðu er öllum heimilt
að taka einstaka áfanga þótt ekki
sé stefnt að ákveðinni náms-
gráðu, þó það sé algengast. Þetta
hefur þýðingu fyrir þá sem þegar
hafa námsgráður fyrir en vilja
bæta við sig áföngum sem ef til
vill hafa ekki verið í boði þegar
viðkomandi lauk sínu námi.
Kennslan fer þannig fram að í
upphafi námsáfanga fær nemandi
send gögn til námsins svo sem
pappírsgögn með upplýsingum
um útsendingar kennsluefnis í út-
eftir Má Arsœlsson
varpi og sjónvarpi, videospólur,
hljóðsnældur og ef áfanginn
krefst, þá einnig ýmis tilrauna-
tæki til þess að gera tilraunir í
heimahúsum. Slík tæki lánar há-
skólinn nemendum sínum, en
annars eru einnig reknir æfingaá-
fangar um sumartímann þegar
ekki er eins mikið að gera á
rannsóknarstofum skólanna við
almenna kennslu.
Sérhver áfangi er undir stjórn
ákveðins aðila sem síðan hefur
sambönd við kennara sem eru
staðsettir um allt landið. Opni
háskólinn hefur skipt Bretlandi
niður á svæði og eru innan hvers
svæðis ákveðnar námsmiðstöðv-
ar (Study Centres), en þar starfa
kennarar sem leiðrétta verkefni
sem eru send með pósti og enn-
fremur geta nemendur ráðfært
sig við þessa kennara. Hér er um
að ræða menn sem eru gjarnan
háskólakennarar eða
menntaskólakennarar eða því
líkt. Þessir kennarar standa svo í
nánu sambandi við viðkomandi
stjórnunaraðila. Fjöldi slíkra
námsmiðstöðva er í Bretlandi
geysimikill sem dæmi má nefna
að í Skotlandi einu eru a.rn.k.
milli 30 og 40 slíkar miðstöðvar.
Rekstur svona skóla er að sjálf-
sögðu mjög dýr og eru skólagjöld
fyrir alla áfanga auk þess sem
nemdur verða að greiða bækur og
rituð gögn. Bretar hafa þó rekið í
tengslum við opna háskólann
stofnun sem veitir illa stæðum
nemendum fjárhagslega aðstoð
við námið. Fyrir ríkið (rekstra-
raðila) er kostnaður að mestu
fólginn í viðhaldi kennsluefnis og
launum. Hins vegar ber á það að
líta, að hér er skóli sem veitir
þjónustu fólki sem af ýmsum
ástæðum hefði enga möguleika til
náms. Má hér nefna fólk sem hef-
ur af einhverjum ástæðum lent
utan hins almenna skólakerfis
svo sem vegna búsetu, erfiðrar
fjárhagsaðstöðu eða vegna fötlu-
nar. Opni háskólinn í Bretlandi
veitir fötluðum ýmsa séraðstoð
sem þeim kemur að haldi.
Ef vinna á að því að koma slík-
um skóla á fót á íslandi myndi
þurfa töluverða fjárveitingar frá
opinberum aðilum til undirbún-
ings og skipulagningar. Skipu-
lagning myndi væntanlega vera
tvenns konar annars vegar
heildarskipulagning og hins veg-
ar skipulagning einstakra námsá-
fanga. Þetta hvort tveggja er
mikið verk og kostnaðarsamt
ekki síst hið síðara. Útbúa þyrfti
námsgögn þar sem ekki er hægt
að gera ráð fyrir því að nota er-
lend námsgögn nema að litlu leyti
og þau sem eru fyrir hendi þarf að
Efvinna á aðþvíað koma slíkum skóla áfótá
Islandi myndi þurfa töluverðarfjárveitingar
frá opinberum aðilum til undirbúnings og
skipulagningar
athuga, breyta og fella að íslensk-
um skóla. Hér væri um að ræða
myndbönd, hljóðsnældur, prent-
uð og fjölfölduð gögn e.t.c. Enn-
fremur þarf að fella þetta inn í
dagsskrá útvarps og sjónvarps.
Hér rná geta þess að fyrir fáum
árum settu Danir á stofn Jóskan
opinn háskóla í tengslum við þrjá
háskóla á Jótlandi, þ.e. Há-
skólann í Árósum, Háskólamið-
stöðina í Álaborg og Suðurjósku
háskólamiðstöðina. Fastar stöð-
ur við þann skóla nema aðeins
tveimur hálfum stöðugildum, þar
sem kennslu annast kennarar við
aðra skóla á svæðinu þ.e. Jót-
landi. Eins og er (þ.e. 1986) fer
aðeins fram kennsla í 11 námsá-
föngum og eru þeir aðallega á
sviði málvísinda og sagnfræði.
Hér er því urn að ræða áfanga
sem að mestu eru bóklegir og
krefjast ekki mikilla tækja, en
kostnaður við þennan skóla er á
milli 2 og 3 milljónir danskra
króna á árinu 1985. Hér er þó
aðeins um að ræða rekstrarfé en
ekki stofnkostnað nema að mjög
óverulegu leyti.
Inntökuskilyrði í þennan skóla
er aðeins aldur, umsækjendur
þurfa að vera 25 ára að aldri, en
alveg óháð búsetu, atvinnu og
fyrri menntun.
Ég hef nú skráð hér fáeinar
upplýsingar og hugleiðingar um
þetta mál og vona ég að þetta
verði ef til vill einhverjum að
gagni en þá er tilgangi þessara
skrifa minna náð.
Reykjavík, 9. janúar 1986
Már Ársælsson.
Þriðjudagur 21. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13