Þjóðviljinn - 21.01.1986, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 21.01.1986, Qupperneq 13
HEIMURINN Skák Lesotho Herínn steypir stjóminni Sokolof rúllar Vaganjan Moskvu, Tilburg — Askorenda- einvígið í Minsk þar sem sovét- mennirnir Andrei Sokoiof og Rafael Vaganjan eigast við er nú hálfnað og stefnir allt í stór- sigur Sokolofs. Eftir fimm skákir hefur hann 4 vinninga gegn einum vinningi Vaganj- ans. 1. og5. skákinni í einvígi sovét- mannanna lyktaði með jafntefli en Sokolf vann hinar þrjár. Þarf hann aðeins að fá hálfan annan vinning úr skákunum sem eftir eru til að sigra. í Tilburg í Hollandi er einvígi hollendingsins Jan Timmans og sovétmannsins Júsupofs skemmra á veg komið. Timman vann í fyrstu skákinni en í annarri skák gerðu meistararnir jafntefli. Þriðja skákin var svo tefld í gær en engar fréttir höfðu borist um úrslit hennar í gærkvöldi. Bahrain — Samið var um vopnahlé í borgarastyrjöldinni sem geisað hefur í Suður- Jemen i viku og gekk það í giidi á sunnudag. í gær var svo að sjá sem það væri virt en erfitt er að gera sér grein fyrir hver hefur undirtökin í landinu. Um 3.000 erlendir borgarar voru um helgina fluttir sjóleiðina til Djibouti og segja þeir ófagrar sögur af átökunum. Að þeirra sögn er höfuðborgin, Aden, að stórum hluta í rúst og um tíma tókust deiluaðilar á um hverja götu og hvert hús. Miklir eldar hafa geisað í borginni og er gisk- að á að uþb. 9.000 manns hafi fallið í bardögunum. Útvarpsstöð í höndum upp- reisnarmanna skýrði frá því í gær að andstæðingar Nasser Moham- meds forseta hefðu undirtökin í landinu og að forsetinn hefði flúið land meðan átökin stóðu yfir. Aðrar fregnir herma að hann sé á heimaslóðum sínum þar sem liðsmenn hans ráða lögum og lofum. Svo virðist sem fyrrverandi varnamálaráðherra landsins, Ali Ahmed Nasser Ant- ar, hafi komið sterkur út úr þess- um átökum og grafið undan völd- Maseru — Herinn í smáríkinu Lesotho sem er umlukið Suður-Afríku gerði í gærmorg- un stjórnarbyltingu og fór hún fram án blóðsúthellinga. For- sætisráðherranum, Leabua Jonathan, var vikið til hliðar en við tekur herforingjaráð undir forystu lítt þekkts hershöfð- ingja, Justice Lekhanye. Aðdragandi þessa valdaráns var sú ákvörðun stjórnar Suður- Afríku að svo gott sem loka land- amærum ríkjanna. Var látið heita að þetta væri gert til að hamla gegn starfsemi skæruliða Afríska um forsetans og Ismails fyrrver- andi forseta sem bitust um völd- in. En eins og áður er nefnt er Suður-Jemen þjóðarráðsins, ANC, í Lesotho. Jonathan forsætisráðherra hefur á síðustu árum snúist til andstöðu við stjórn hvíta minnihlutans í Pretoríu og tekið undir með ANC þó hann hafi neitað þvi, að skæruliðar fengju að nota landið til árása á Suður-Afríku. Lokun landamæranna hófst á nýársdag og var farin að valda alvarlegum vöruskorti í Lesotho. Samningaviðræður höfðu staðið milli stjórnanna en miðaði lítið. Talið er víst að nýju valdhafarnir muni fylgja stefnu sem er Suður- Afríku meira að skapi en stefna óvarlegt að segja neitt um valda- hlutföllin í landinu eins og stend- ur. Jonathans. I gærmorgun var létt mjög á landamæragæslunni og fyrsti lestarfarmurinn af eldsneyti barst til Maseru stuttu síðar. Lítið er vitað um pólitíska af- stöðu Lekhanye sem er 45 ára að aldri. Þó er vitað að hann er sanntrúaður kaþólikki og ákafur andkommúnisti. Mun hann vafa- laust binda endi á samskipti Le- sotho við Sovétríkin og fylgiríki þeirra sem hófust í stjórnartíð Jonathans og hafa farið vaxandi, stjórnvöldum í Pretoríu til mikill- ar hrellingar. Vopnahlé virt en Aden í rúst og óvíst hver ræður í landinu Samgöngur England tengist meginlandi Evrópu Tœplega tveggja alda gamall draumur Napóleons um göng undir Ermarsund virðist loksins œtla að rœtast. Samningarundirritaðir ígœr Þannig er ætlað að göngin undir Ermarsund verði. Tvennir gangar fyrir járn- brautarlestir og einn fyrir viðhald, loftræstingu og þjónustu. Um aldamótin er áformað að bæta tvennum göngum við fyrir bílaumferð. Lille — í gær hittust þau Fra- ncois Mitterrand forseti Frakk- lands og Margaret Thatcher forsætisráðherra Bretlands hittust í gær í borginni Lille í Norður-Frakklandi til að taka afstöðu til fjögurra tilboða í gerð jarðganga eða brúar yfir Ermarsund. Niðurstaðan af fundinum varð sú að tekið var tilboði ensk-frönsku sam- steypunnar France Manche/ Channel Tunnel Group um gerð 50 km langra járnbrautar- ganga. Tilboð samsteypunnar var hið lægsta og hljóðaði upp á rúmlega 150 miljarða króna en þegar fjár- magnskostnaður hefur verið reiknaður með er áætlað að kostnaðurinn fari upp í liðlega 280 miljarða. Að samsteypunni standa frönsku bankarnir Crédit Lyonnais, Banque Indosuez og Banque Nationale de Paris og bresku bankarnir Midland og National Westminster auk verk- takafyrirtækja úr báðum löndum. Það var skilyrði bresku stjórnarinnar fyrir gerð ganganna að breska ríkið þyrfti ekki að veita neinu fé til verksins né held- ur að veita ríkisábyrgðir og hefur samsteypan tryggt sér áhættufjár- magn frá bönkum og lánastofn- unum í fjölmörgum Evrópuríkj- um. Draumur Napóleons Það var Napoleon sem fyrstur hreyfði hugmyndinni um sam- tengingu Englands og Frakk- lands árið 1802 en fyrsta tilraunin til að láta draum keisarans rætast var þó ekki gerð fyrr en um 1880. Sú tilraun skildi eftir sig 2 km löng göng í nágrenni Dover og rúmlega 200 m löng göng Frakk- landsmegin. Á þessari öld hefur oft verið bryddað á þessari hug- mynd en eins og á 19. öldinni strandaði framkvæmdin á and- stöðu áhrifaafla í Bretlandi, ekki síst hershöfðingja sem óttuðust að samtenging við meginlandið byði heim árásarhættu. Árið 1973 ákváðu stjórnir Frakklands og Bretlands að gera alvöru úr samtengingunni og var hafist handa um undirgöng sem taka átti í gagnið árið 1981. Svo kom olíukreppan og meðfylgj- andi verðbólga sem ma. orsakaði það að kostnaðaráætlunin meira en tvöfaldaðist. Stjórn Harold Wilsons ákvað að rifta samningn- um við frakka og hætta við verk- ið. Þá var búið að verja 200 milj- ónum dollara til járnbrautar- ganganna og frakkar brugðust reiðir við þessum samningsrofum breta. Þegar þau Thatcher og Mitter- rand hófu viðræður að nýju um samtengingu landanna voru frakkar mjög varkárir, minnugir svikanna frá 1974. Settu þeir fram kröfur urn pottþéttar trygg- ingar fyrii því að ekki yrði hlaupið frá verkinu í miðju kafi. Þær virðast hafa fengist því nú liggur samningurinn fyrir. Göng eða brú? Tilboðin fjögur sem komu fram voru æði ntisjöfn. í einu þeirra var gert ráð fyrir því að byggja brú frá Doverút á uppfyll- ingu úti í sundinu. Þar áttu bílarn- ir að aka niður einskonar „hring- stiga“ niður í 20 km löng neðan- jarðargöng sem lágu yfir í aðra uppfyllingu úti fyrir Frakklandi en þar tæki svo við brú upp á land. Annað tilboð gerði ráð fyrir tvöföldum neðanjarðargöngum, öðrum fyrir bíla og hinum fyrir járnbrautarlestir. Þriðja tilboðið gerði ráð fyrir hengibrú fyrir bíla og neðanjarðargöngum fyrir lest- ir. Tilboðið sem varð ofan á gerir ráð fyrir neðanjarðargöngum fyrir járnbrautarlestir sem flytja bíla yfir sundið. Bílunum verður ekið upp í lestirnar en síðan geta bílstjórar setið í veitingavagni lestarinnar þann hálftíma sem ferðin tekur. Gert er ráð fyrir því að á mestu annatímum verði lest- arferðirnar á þriggja mínútna fresti og segja verktakarnir að lestirnar muni anna 4.000 bílum á kiukkustund í hvora átt. Samningurinn miðast við að samsteypan annist rekstur gang- anna fram til ársins 2020 en þau eiga að komast á gagnið árið 1993. í tilboðinu eru nefndar hugsanlegar tölur um verð á þjónustunni en samkvæmt þeim myndi hver farþegi í bíl greiða liðlega 1.200 kr. fyrir aðra leiðina en lestarfarþegi um 350 kr. Á síð- ustu stundu var bætt við tilboðið gerð jarðganga fyrir bíla og segir í samningnum að samsteypan verði að leggja fram framkvæmd- aáætlun um þau fyrir aldamót, ella missir hún rekstrarleyfið. Áhyggjur Eins og áður segir verða göngin 50 km löng en þar af eru 3/4 hlutar undir sjó. Göngin verða á 40 metra dýpi undir hafs- ERLENDAR FRÉTTIR haraldsson/R E U1E R botninum. Eftir undirritun verk- samningsins í gær sagði Mitter- rand að hér væri um að ræða stærsta viðfangsefni aldarinnar á sviði verkfræðinnar. Verktakarn- ir segja að 60 þúsund manns fái vinnu við gerð ganganna og 7.500 við rekstur þeirra eftir að þau verða opnuð fyrir umferð. Atvinnuleysið í báðum löndum átti stóran þátt í að samkomulag náðist um gerð ganganna. Bygg- ingariðnaður og verktakastarf- semi hafa dregist mjög saman og gæti þetta risaverkefni haft mikil og jákvæð áhrif á þessar starfs- greinar. Á móti kemur að fjöldi manns missir vinnu sína við ferj- urnar sem nú flytja fólk, bíla og járnbrautarlestir yfir sundið. Viðbrögð ferjueigenda í gær voru þau að tilboðið sem varð ofan á væri illskársti kosturinn því það hefði í för með sér 50% samdrátt í ferjuflutningunum, önnur tilboð hefðu haft mun meiri áhrif. Umhverfisverndarmenn hafa einnig haft áhyggjur af því raski sem göngin muni valda, einkum hafa slíkar raddir verið háværar í héraðinu Kent á Englandi. Þeir sem Reuter ræddi við í gær tóku þó í sama streng og ferjueigendur og sögðu að járnbrautargöngin væru illskársti kosturinn. í Frakklandi hefur verið mjög lítil andstaða gegn göngunum, það er helst að ferjusjómenn og hafnar- verkamenn í Calais hafi möglað. Borgarstjórinn í Calais sem er kommúnisti var í upphafi andvíg- ur göngunum en honum hefur snúist hugur. Segir hann eins og margir aðrir frakkar að gerð ganganna og rekstur þeirra muni hafa það mikil og góð áhrif á at- vinnuástandið og efnahagslífið í Norður-Frakklandi að það vegi upp neikvæðu hliðarnar. Leiðin styttist Það sem snýr að ferðamönnum og öðrum þeim sem yfir Ermar- sund eiga erindi er að ferðatí- minni milli Lundúna og Parísar styttist úr fimrn tímum í hálfan fjórða tíma með tilkomu gang- anna. Járnbrautarfyrirtæki beggja landa hafa uppi áform um að koma upp sérstökum hraðlest- um sem tengjast göngunum og sjá frakkar þar möguleika á að nýta betur hraðlestina fínu TGV sem hefur gert það gott á leiðinni París-Lyons-Marseilles. Göngin munu einnig verða til þess að auðvelda og efla viðskipti breta við meginlandið og önnur rfki í EBE en þau viðskipti hafa reyndar þegar aukist verulega eftir inngöngu breta í bandalagið. Enn rnunu þeir bretar þó vera margir sem hafa mestar áhyggjur af því að göng undir Ermarsundið neyði þá til að taka upp þann Ijóta sið íbúa meginlandsins að aka á hægri helming vegarins. Víst er um að sá vandi krefst lausnar þegar bílagöngin koma til sögunnar en fram að aldamótum ættu bretar þó að geta ekið vinstra megin eins og þeir hafa gert frá því bíllinn hélt innreið sína í siðmenninguna fyrir réttri öld. (Stuðst við Time) ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.