Þjóðviljinn - 25.01.1986, Page 8
RœttviðBirgi
Engilberts, höfund
Upphitunar.eina
nýja íslenska
leikritsins.sem
Þjóðleikhúsið
frumsýniráþessu
leikári
MENNING
Birgir Engilberts, höfundur Upphitunar, hefur komið sérfyrir í rósótta hægindastólnum í kjallaranum á sviði Þjóðleikhússins.
Hafsbotnamósaik
voru skrifaðir 1972. Síðan birtist
ekkert eftir mig fyrr en 1982, að
Andvökuskýrslurnar voru gefnar
út, en þær innihalda þrjár sögur.
Ástæðan fyrir þessari löngu þögn
er fyrst og fremst sú, að ég fékk
nóg af leikhúsinu að starfa í því
frá níu til fimm. í>ó hætti ég aldrei
algjörlega að skrifa og á tímabili
skrifaði ég töluvert fyrir rusla-
tunnuna, en ég tel að allir höf-
undar hafi gott af slíku. Reynslan
af leikhúsinu nýtist mér mj ög vel í
Upphitun. Áhorfendur munu
uppgötva að leikritið er skrifað af
manni sem gjörþekkir leikhúsið,
sérstaklega í öllu sem viðkemur
ballettinum.“
Einrœðis-
herrann
„Það er tvennt ólíkt að skrifa
sögu og að skrifa leikrit. Leikrit-
inu er aldrei fulllokið. Stöðugt
hægt að breyta og bæta og kann-
ski verður fyrst hægt að setjast
niður að frumsýningu lokinni og
skrifa endanlega gerð leikritsins.
Það er hætt við að ég myndi al-
gjörlega umskrifa það þá. Þegar
saga er rituð er maður sjálfur ein-
ræðisherra og ákveður allt upp á
sitt eindæmi, t.d. hvenær loka-
punkturinn er settur. Ljóð hef ég
aftur á móti aldrei reynt að skrifa,
ekki einusinni á unglingsárunum.
Ég býst við að það sé álíka mikill
munur á ljóði og sögu og á sögu
og leikriti.“
Djúp
sálarlffsins
„Upphitun var lengi í smíðum
hjá mér, en skriftirnar fóru fyrst
og fremst fram 1984. Það má
segj a að ég rói þarna á svipuð mið
og í Andvökuskýrslunum, mið
sálarlífsins. í mínum huga er
Upphitun einskonar hafsbotn-
amósaik og alls ekki fylgt hefð-
bundinni leikritagerð. Sjálfsagt
mun einhverjum þykja það sér-
kennilegt. í leikritinu er sögð viss
saga en farið öfugan hring að
henni. í sjálfu sér er ekkert nýtt
eða frumlegt við það, enda efast
ég um að nokkuð nýtt sé til undir
sólinni. Við erum stöðugt að fara
í hringi. Rétt er þó að leyfa
yngstu kynslóðinni að trúa á
frumleikann því annars er hætt
við stöðnun. I Upphitun er engin
bein atriðaskipting heldur leiðir
eitt af öðru og hefst leikurinn á
sama stað eftir hlé og honum
lauk.“
Konurnar
lykillinn
„Upphitun fjallar um konur og
konur eru lykill að þeim heimi
sem leikritið fjallar um. Ég vil
síður tjá mig um hversvegna karl-
mennirnir eru víðs fjarri, heldur
eftirlæt ég hverjum og einum að
draga sínar ályktanir í leikslok."
Um 20 manns koma fram í
Upphitun og eru það allt konur.
Mest mæðir á leikkonunum
Kristbjörgu Kjeld, sem er á svið-
inu alían tímann og Þóru Frið-
riksdóttur, en þær leika systurnar
Þórey og Sóley.
„Titillinn Upphitun hefur
margræða merkingu. Leikritið
fjallar töluvert um ballett og
dansarar verða að hita upp áður
en þeir taka sporið. Annars er
hægt að hiita svo margt upp, t.d.
má hita upp fortíðina."
„Það er mjög einkennilegt, já
eiginlega skrýtið, að sjá þetta,
sem byrjaði sem óljós hugmynd
verða að raunveruleika á sviðinu.
Utkoman verður aldrei eins og
maður bjóst við. Þó er ég sjálfs-
agt í betri aðstöðu en höfundur
sem er að senda frá sér sitt fyrsta
leikverk, þar sem ég gjörþekki
leikhúsið og vinnubrögðin sem
þar eru tíðkuð. Það er hætt við að
nýgræðingur myndi ekki þekkja
eigið verk þegar það er komið á
fjalirnar. I Upphitun byggi ég
töluvert á eigin persónulegri
reynslu. Hversu mikið maður
notar úr eigin lífi er þó erfitt að
gera sér grein fyrir. Nú svo koma
leikararnir með sitt og miðla af
sinni reynslu þegar þeir skapa \
persónurnar og ekki má gleyma
leikstjóranum, sem einnig leggur
sitt til og oft á tímum mjög mikið.
Þau áhrif, sem áhorfandinn verð-
ur fyrir, er svo útkoman úr öllum
þessum þáttum. Það getur því
verið erfitt að átta sig á hvað
sprottið er frá höfundi og hvað
frá hinum.“ _sáf
„Gömlu leiöslumar þagna
aldrei," segir Sóley við Þórey
systursína, semsiturog
blaöar í gömlu eintaki af Life.
Þetta tölublaö er frá stíðslok-
um og prýöir baksíðuna mynd
af kjarnorkusprengjunni.
Sviðið er geymsla í kjallara og
ægirþarýmsum munum
saman, munum sem kveikja
minningar í hugum systranna
sem komnar eru á miðjan
aldur. Móðir þeirra nýlátin og
nú skal kofinn seldur. Þessi
gömlu bárujárnshró eru kom-
in í tísku. Sóley æðir um sviðið
og fyllir hvern ruslpokann á
fætur öðrum gömlu skrani, en
Þórey hálf dofin í stóinum,
keðjureykir á mörkum þessa
heims og veraldar minning-
anna.
Neigömlu leiðslurnar
þagna aldrei, hvorki í kofan-
um né í hvelfingu kúpunnar.
Á stóra sviðinu í Þjóðleikhús-
inu átti sér stað fyrsta rennslið á
nýju íslensku leikverki, Upphit-
un eftir Birgi Engilberts fyrr í vik-
unni. Blaðamaður leit við á æf-
inguna til að fá smjörþefinn af
leikritinu og rabba við höfund.
„Einsog þú sérð, þá er þetta
kjallarageymsia í gömlu húsi og
hér er alls ekki allt sem sýnist,“
sagði Birgir rétt áður en rennslið
hófst. Og viti menn þegar líða tók
á fyrri helming sýningarinnar
lifnaði sviðið og eiga lausnir
leikmyndateiknarans, Sigurjóns
Jóhannssonar, eflaust eftir að
koma áhorfendum á óvart.
„Þessi sýning hefur verið mjög
erfið í uppfærslu og takist hún vel
þá eiga þeir Sigurjón og Þórhall-
ur Sigurðsson, leikstjóri, stóran
þátt í því. Og ekki má heldur
gleyma Nönnu Ólafsdóttur, sem
hefur samið og æft dansa, en þeir
skipa stóran sess í leikritinu."
„Við Þórhallur erum báðir
nemendur Benedikts Árnasonar.
Hann er fyrrverandi kennari Þór-
halls og ég hef unnið sviðsmyndir
fyrir hann. Höfum við báðir lært
mikið af honum. Benedikt er
mjög sjónrænn leikstjóri og það
vildi mér til happs að hann komst
fyrstur mann í leikritið eftir að ég
hafði lokið því. Sá hann hvaða
möguleika það bauð upp á og
hvatti mig til að koma því á fram-
færi. Ég býst líka fastlega við því
að það verði hinn sjónræni þáttur
verksins sem muni standa upp
úr.“
Of mikið
af því góða
„Það hefði verið of mikið af því
góða að vera bæði höfundur
leikritsins og sviðsmyndateikn-
ari,“ segir Birgir, en hann er
starfandi sviðsmyndateiknari hjá
Þjóðleikhúsinu.
„Ég skrifaði nokkra einþátt-
unga áður. Sá fyrsti. Loftbólur,
var frumsýndur í Lindarbæ 1966
og síðustu tveir einþáttungarnir
Kristbjörg Kjeld í hlutverki Þóreyjar. Gamla brúðan má muna sinn fífil fegri, þegar hún fékk að kúra við hlið Þóreyjar.
Myndir E.ÓI.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. janúar 1986