Þjóðviljinn - 25.01.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Skæruliðar hertaka Kampala
s
Uganda
kirkjuna í Kampala á sitt vald en manns sem leitað hafa skjóls ógnaraldar sem ríkt hefur
þar hafast við allt að 4 þúsund vegna bardaganna og þeirrar landinu.
Suður-Jemen
Átökunum lokið með sigri
uppreisnaraflanna
Kampala — Skæruliðar úr
Þjóðlega andspyrnuhernum,
NRA, réðust inn t Kampala,
höfuðborg Úganda í gær og
virðast hafa stökkt stærstum
hluta stjórnarhersins á flótta.
, Ekkierljósthverfermeð völd-
in í Kampala en skæruliðar hafa
amk. nokkur hverfi hennar á
valdi sínu, þám. miðborgina. Við
innrásina brast á mikil ringulreið
meðal stjórnarhermanna sem
brugðust fyrst við með því að ráð-
ast á óbreytta borgara. Skutu þeir
marga til bana en skáru aðra á
háls. Síðan flúðu þeir í stórum
hópum í austurátt til borgarinnar
Jinja.
A veginum þangað urðu átök
sem benda til þess að NRA hafi
umkringt Kampala því þeirra
yfirráðasvæði eru suður og vestur
af borginni. Útvarpsstöðin í
borginni þagnaði í gær og flug-
vellinum í Entebbe var lokað.
Sjónarvottar sögðu að skærulið-
um hefði verið tekið fagnandi
þegar þeir tóku kaþólsku dóm-
ERLENDAR
FRÉTTIR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Aden — Borgarastyrjöidinni
sem háð hefur verið í Suður-
Jemen undanfarna 12 daga
virðist nú lokið með fullnaðar-
sigri uppreisnarmanna.
Skipuð hefur verið bráða-
birgðastjórn í landinu og í gær
var tilkynnt að forseti lands-
ins, Ali Nasser Mohammed,
yrði dreginn fyrir rétt.
Sendingar útvarps og sjón-
varps hófust að nýju síðdegis í
gær og að sögn sjónarvotta var
lífið í höfuðborginni Aden að
færast í eðlilegt horf í gær. Gífur-
legar skemmdir hafa þó orðið þar
í bardögunum sem kostuðu amk.
10 þúsund manns lífið. Átökin
munu svo til eingöngu hafa átt sér
stað í Aden og næsta nágrenni
hennar en lítið breiðst til annarra
landshluta.
Nýju valdhafarnir greindu frá
því í gær að 55 háttsettir flokks-
og embættismenn hefðu fallið í
átökunum. Meðal þeirra er Ali
Ahmed Nasser Antar fyrrverandi
varnarmálaráðherra en sam-
kvæmt fréttum leit út fyrir það
um tíma að hann hefði treyst
mjög stöðu sína í átökunum.
Yfir 6.000 útlendingar voru
fluttir burt frá landinu meðan á
átökunum stóð til borgarinnar
Djibouti handan Rauðahafsins.
Bretland
Annar ráðherra kveður
London — Leon Brittan viö
skipta- og iðnaðarráðherra
bresku stjórnarinnar sagði af
sér í gær í kjölfar deilnanna
sem orðið hafa um framtíð
breska þyrlufyrirtækisins
Westland. Er hann annar ráð-
herrann í stjórn Thatchers sem
segir af sér á tveimur vikum.
Ástæðan fyrir afsögn Brittans
var sú að hann hafði gerst sekur
um að „leka“ til þingmanna bréfí
sem ekki átti að fara út fyrir
stjórnina. Bréfið var þýðingar-
mikið í deilunum um Westland
og kom birting þess sér illa fyrir
Michael Heseltine varnarmála-
ráðherra og helsta andstæðingi
Brittans í Westland-málinu.
/REUIER
Andlát
Joseph Beuys
myndlistar-
maður látinn
Dusseldorf — Vesturþyski
framúrstefnulistamaðurinn
Joseph Beuys lést í gær eftir
langa sjúkdómslegu. Hann
varð 65 ára gamall. Beuys er
talinn einn fremsti myndlistar-
maður Þýskaiands eftir síðari
heimsstyrjöld og hefur haft
áhrif á amk. tvær kynslóðir ís-
lenskra myndlistarmanna.
Beuys kallaði sjálfan sig „fíflið
með flókahattinn" og fór hann
sjaldan alfaraleiðir í list sinni.
Hann vakti oft athygli og
hneykslan í heimalandi sínu fyrir
gerninga og verk sín vann hann
gjarnan úr algengum brúkshlut-
um. Hann var geysiafkastamikill
oggerði yfir 15 þúsund teikningar
og um 30 þúsund klippimyndir,
skúlptúra og önnur verk. Verk
Beuys voru á sínum tíma sýnd í
Gallerí SÚM við Vatnsstíg.
Beuys var mjög virkur í
stjórnmálum og einn af stofnend-
um flokks Græningja í Vestur-
Þýskalandi. Varð hann fyrir
barðinu á atvinnuofsóknum yfir-
valda á síðasta áratug þegar hann
var rekinn frá Listaháskólanum í
Dusseldorf en settur aftur í starf
sitt eftir mikla mótmælaöldu.
Portúgal
Fjögur slást um forsetastoiinn
Hœgriöflin sameinuð en vinstriöflin þríklofin. Verðurfyrsta konaforseti?
Diogo Freitas do Amaral frambjóðandi hægriaflanna þykir líklegastur sigurveg-
ari í fyrri umferðinni en ólíklegt má telja að hann beri sigurorð af sameinuðum
vinstrivængnum í þeirri seinni.
Sjóslys
Olíuskip
í árekstri
Cromer—Grísktolíuskip lenti í
árekstri við hollenskan togara
60 mílur undan austurströnd
Englands í gærmorgun. Gat
kom á síðu olíuskipsins og olía
streymdi t sjóinn þar sem hún
brann.
Um tíma rak skipið í átt að
borpalli sem vinnur jarðgas en
áður en til árekstrar kom tókst að
koma taug um borð í skipið og
draga það í burtu. Olíuskipið er
76 þúsund tonn að stærð og lekur
olían úr því.
Argentína
Allsherjar-
verkfall
gegn IMF
Buenos Aires — Athafnalíf í
Argentfnu lamaðist gersam-
lega í gær þegar verkalýðs-
hreyfing landsins efndi til sól-
arhrings allsherjarverkfalis til
að mótmæla stefnu stjórnar
Raul Alfonsin forseta í
efnahags- og kjaramálum.
í yfirlýsingu sem verkalýðs-
hreyfingin gaf út í gær segir að
verkfallsþátttakan hafi verið
97%. Þar segir einnig að verkfall-
ið sé í raun þjóðaratkvæða-
greiðsla gegn því að efnahagslífi
Argentínu sé stjórnað af Alþjóða
gjaldeyrissjóðnum, IMF.
Efnahagsstefna stjórnvalda
tekur mið af þeirri kröfu IMF að
allt kapp sé lagt á að draga úr
verðbólgu svo efnahagslífið rétti
úr kútnum og þjóðin geti endur-
greitt hinar miklu erlendu
skuldir. Síðari hluta ársins 1985
ríkti bann við launahækkun og
vissulega tókst að draga verulega
úr verðbólgunni en kaupmáttur
launa minnkaði um 30% að mati
verkalýðshreyfingarinnar.
Hreyfingin er sammála forset-
anum um nauðsyn þess að efla
atvinnulífið en telur að eina
leiðin til þess sé að hækka launin,
rjúfa tengslin við IMF og hætta
endurgreiðslum af erlendum lán-
um um einhvern tíma.
Lissabon — Á sunnudaginn
fara fram forsetakosningar í
Portúgal. Fernt er í framboði,
þrír karlar og ein kona, og nái
ekkert þeirra hreinum meiri-
hluta, sem telja má mjög ólík-
legt, verður kosið aftur milli
tveggja efstu þann 16. febrúar
nk.
Kosningabaráttan hefur þótt
lífleg og tvísýn. Frambjóðandi
hægriaflanna er talinn líklegastur
til að fá flest atkvæði en ekki eins
líklegt að honum takist að sigrast
á vinstriöflunum sameinuðum í
seinni umferðinni. Vinstriöflin
bjóða fram tvo karla og eina
konu en sennilegt má teljast að
þau sameinist í seinni umferð-
inni. Og þar sem vinstriöflin hafa
hlotið meirihluta atkvæða í öllum
kosningum sem fram hafa farið í
Portúgal síðan lýðræði var endur-
reist í landinu vorið 1974 er á
brattann að sækja fyrir Diogo
Freitas do Amaral.
Frjálshyggja
og ríkisrekstur
Amaral er yngstur frambjóð-
endanna, 44 ára gamall lögfræði-
prófessor sem nam lög undir
handleiðslu Marcelo Caetanos en
hann tók við embætti forsætisráð-
herra eftir að Salazar einræðis-
herra féll frá árið 1968. Það er því
engin furða á að vinstrimenn hafi
beitt því gegn honum að hann sé
fulltrúi gamla tímans og að hon-
um fylgi andblær einræðisins.
Amaral var einn helsti hvata-
maður að stofnun flokks kristi-
legra demókrata og gegndi ráð-
herraembættum fyrir flokkinn
þegar hann komst til valda árið
1980. Amaral dró sig í hlé árið
1982 og hóf á ný háskólakennslu
en birtist aftur í sviðsljósinu þeg-
ar hann bauð sig fram til forseta
sl. haust. Hann leggur í áróðri
sínum áherslu á nauðsyn þess að
losa efnahagslífið úr fjötrum
ríkisvaldsins og sú stefna hefur
aflað honum opinbers stuðnings
kristilegra demókrata og núver-
andi stjórnarflokks, Sósíaldem-
ókrata.
Elstur og þekktastur fram-
bjóðendanna er án efa Mario So-
ares sem hefur haft forystu fyrir
þremur ríkisstjórnum á undan-
förnum áratug. Hann stofnaði
Sósíalistaflokkinn árið 1973 og
hefur verið óskoraður leiðtogi
hans alla tíð eða fram á síðasta
haust þegar hann lét af for-
mennsku til að bjóða sig fram til
forseta. Soares er lögfræðingur
eins og Amaral en 18 árum eldri.
Soares lýsir sjálfum sér sem
lýðræðissinnuðum sósíalista og
raunsæismanni í stjórnmálum.
Auk sinna eigin flokksmanna
höfðar hann til miðjukjósenda og
þeirra sem ekki eru ginnkeyptir
fyrir frjálshyggju Amarals. Telur
hann sér það mjög til tekna að
hafa stuðlað að inngöngu portúg-
ala í Efnahagsbandalag Evrópu
en hún öðlaðist gildi nú um ára-
mótin.
Óþekkt stærð
Þriðji lögfræðingurinn í hópn-
um er Salgado Zenha, 61 árs að
aldri. Hann var náinn félagi Soar-
es í Sósíalistaflokknum fram til
1980 þegar deilur um hugmynda-
fræði olli því að leiðir skildi með
þeim. Hann komst æ meir upp á
kant við flokkinn uns hann sagði
sig úr honum í fyrra þegar hann
bauð sig fram til forseta.
Zenha nýtur ekki eins mikillar
alþýðuhylli og tveir fyrstnefndu
frambjóðendurnir en þykir koma
vel fram í sjónvarpsumræðum
þar sem hæðni hans nýtur sín.
Hann boðar það serri hann nefnir
„nýtt lýðræði" en boðskapur
hans einkennist af sterkum sið-
gæðiskröfum til stjórnvalda sem
hann vill að séu áreiðanleg,
heiðarleg og starfi sínu vaxin.
Zenha nýtur opinbers stuðnings
hins moskvuholla kommúnista-
flokks og, merkilegt nokk, einnig
Ramalho Eanes forseta sem ekki
má bjóða sig fram vegna ákvæða
stjórnarskrárinnar um að enginn
megi gegna embætti forseta
lengur en tvö kjörtímabil.
Síðast en ekki síst ber að nefna
Mariu de Lourdes Pintasilgo sem
er að flestu leyti frábrugðin
körlunum þremur. Fyrir það
fyrsta er hún kona og ógift og þar
að auki ekki lögfræðingur heldur
efnaverkfræðingur að mennt.
Hún er líka óbundin stjórnmála-
flokkum þótt hún hafi setið í
tveimur ríkisstjórnum og verið
forsætisráðherra bráðabirgða-
stjórnar um fimm mánaða skeið
árið 1979.
Pintasilgo er 56 ára gömul og
hún hefur háð baráttu sína með
allt öðrum hætti en andstæðing-
arnir. Hún lætur sér ekki nægja
að halda fundi með íbúum borg-
anna og stærri bæja heldur leggur
sérstaka áherslu á að þræða smá-
bæi og þorp til sveita. Hún notar
ekki hefðbundið málfar
stjórnmálamanna heldur reynir
að höfða beint til hjartans í fólki.
Hún segist vera frambjóðandi
grasrótarinnar í portúgölskum
stjórnmálum og þótt hún þyki
ögn menntamannsleg í máli bætir
hún það upp með afar líflegri
framkomu og fasi.
Pintasilgo er sanntrúaður
kaþólikki og blandar trúnni sam-
an við heimspekilega þanka og
sterka réttlætiskennd. Hún er
óþekkt stærð í kosningunum og
andstæðingarnir óttast að hún
kunni að sópa til sín fylginu.
Platframboð
Kosningabaráttan hefur að
mestu leyti gengið áfallalaust
fyrir sig utan hvað Soares mátti
þola nokkra pústra á einum fund-
inum en slapp þó ósár. Framboð
fulltrúa kommúnistaflokksins olli
nokkrum deilum en hann lýsti því
yfir í miðri kosningabaráttunni
að hann myndi draga sig í hlé
áður en kjördagur rynni upp. Við
það stóð hann nú í vikunni en
tímann og athyglina notaði hann
til að hvetja kjósendur til að
greiða Salgado Zenha atkvæði.
Það þykir tíðindum sæta að nú
er ljóst að embætti þjóðhöfðingja
verður ekki skipað herforingj a en
þeir hafa setið einir að þessu
embætti í sextíu ár. Það yrðu þó
öllu meiri tíðindi ef kona veldist
til starfans því öllu lengra mun
vera síðan slík manntegund hefur
vermt æðsta valdastól í þessu
forna sjóveldi.
Laugardagur 25. janúar 1986 iÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13