Þjóðviljinn - 25.01.1986, Page 15
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrír
hönd Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboö-
um í byggingu dælustöövar við Réttarháls.
Full stærö húss um 700 m3.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 15. þús kr.
skilatryggingu.
Tilboðin veröa opnuö á sama stað,
fimmtudaginn 6. febrúar n.k. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REVKJAVIKURBORGAR
Fiiknk|uvcgi 3 Simi 25800
5j| Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd Rafmagnsveitu Reykjavíkur óskar eftir
tilboðum í götuljósaperur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboöin verða opnuð sama staö, miðviku-
daginn 5. mars n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvogi 3 Simi 25800
Greiningar og ráðgjafarstöð ríkisins
Sæbraut 1-2, Seltjarnarnesi
Lausar stöður
1. Óskaö er eftir sálfræöingi í 1/2 starf.
Æskilegt aö viðkomandi hafi reynslu í at-
ferlismótun og/eöa þekkingu í taugasál-
fræöi.
2. Félagsráðgjafi í V2 starf.
Möguleiki á heilli stööu síðar.
Æskilegt að viökomandi hafi þekkingu á
málefnum fatlaðra.
Upplýsingar veitir forstööumaður í síma
611180.
Umsóknum ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf berist fyrir 7. febrúar.
RITARI
Fjármálaráöuneytiö óskar aö ráöa ritara all-
an daginn.
Umsóknum sé skilað í fjármálaráðuneytið
fyrir 30. janúar 1986.
Fjármálaráðuneytið,
23. jan. ’86.
Mann vantar,
karl eöa konu, til aðstoðar viö framleiðslu á
bóluefni.
Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 8540
128 Reykjavík.
Tilraunastöðin á Keldum
Verkamannaf élag i ð
Hlíf Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarr-
áös Verkamannafélagsins Hlífar, um stjórn
og aöra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið
1986, liggja frammi á skrifstofu félagsins frá
og með mánudeginum 27. janúar.
Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu
Hlífar, Reykjavíkurvegi 64, fyrir kl. 17
fimmtudaginn 30. janúar 1986 og er þá fram-
boðsfrestur útrunninn.
Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlífar,
Hafnarfirði.
Ullarfatnaður
Góðar
söluhorfur
erlendis
Að undanförnu hefur verið
kynntur ullarfatnaður frá Iðnað-
ardeild SÍS, sem ætlaður er tii
sölu á erlendan markað. Hefur sú
kynning farið fram bæði austan
hafs og vestan og vörunum verið
vel tekið.
Aðalsölustarfsemin er nú að
hefjast hjá deildinni. Stendur
hún yfir frá janúarlokum og fram
í apríl. Ullarfatnaðurinn verður
svo afgreiddur frá deildinni frá
júní og til ársloka. -mhg
SÍS-frystihúsin
Framleiðsla
eykst enn
Framleiðsla Sambandsfrysti-
húsanna og útflutningur og sala
Sjávarafurðadeildar í Bandaríkj-
unum og Bretlandi fer stöðugt
vaxandi. Á síðasta ári nam
heildarverðmæti allra útfluttra
vara á vegum Sjávarafurða-
deildar 5118 milj. kr. á móti 3374
milj. árið 1984. Aukning 51,6%.
Sé upphæðunum breytt í doll-
ara rniðað við meðalgengi hvort
árið um sig var veltan 106,6 milj.
dollara árið 1984 en 123,4 niilj.
1985 og er aukningin um 15.8%.
Megninhluti þessa útflutnings
voru frystar sjávarafurðir og cif-
verðmæti þeirra, sem er innifalið
í heildartölunni, var 4923 milj.
1985 en 3195 milj. 1984.
Aukningin 54%.
Heildarntagn útfluttra frystra
sjávarafurða var 48.790 tonn
1985 á móti 47.160 tonnum árið
1984, aukning um 3,5%. Af
þessu nam botnfiskur 42.800
tonnum á síðasta ári en 41.390
tonnum 1984, aukning 3,4%.
Aukning á útflutningi botnfiskaf-
urða til Bandaríkjanna varð
6,5% og til Bretlands 30,1%. Til
Japan voru seld 2.275 tonn, 5,3%
minna en árið áður, en þess ber
að gæta að vegna minnkandi
karfaafla, reyndist ekki unnt að
fullnægja eftirspurn. Útflutning-
ur á frystri rækju jókst úr 997
tonnum í 1883 tonn eða um 89%.
Kaupfélag
Eyfirðinga
100 ára
Kaupfélag Eyfirðinga var
stofnað 1886 og er því næstelst
íslenskra kaupfélaga. Stofndag-
urinn er 19. júní og verður 100
ára afmælisins þá minnst með
veglegum hætti. Kosin hefur ver-
ið sérstök afmælisnefnd og er for-
maður hennar Sigurður Jó-
hanneson, aðalfulltrúi Vals Arn-
þórssonar kaupfélagsstjóra.
Myndarlegu almanaki kaupfé-
lagsins var dreift nú fyrir ára-
mótin, þar sem rækilega er minnt
á afmælisárið. Þá er og í vinnslu
sérstök afmælisbók og er ritstjóri
hennar Hjörtur E. Þórarinsson,
bóndi á Tjörn og stjórnarformað-
ur kaupfélagsins. Fyrirhugað er
að afhjúpa á afmælisdaginn
minnismerki eftir Ragnar Kjart-
ansson. Er það höggmynd af
hinni nafnkunnu kú, Auðhumlu,
ásamt mjaltakonu og verður
stærsta minnismerki landsins, 3
m á hæð. Sérstök hátíðahöld
verða í „kringum'" afmælisdaginn
og aðalfund kaupfélagsins, sem
væntanlega verður haldinn um
þessar mundir. Að því er stefnt
að hinum umfangsmiklu fram-
kvæmdum við Hótel KEA verði
lokið fyrir afmælið. -mhg
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15
Hafnarfjörður
- Dagvistarheimili
Eftirtalda starísmenn vantar á dagvistar-
heimili í Hafnarfirði:
Fóstru og stuóningsfóstru á leikskólann Álfa-
berg.
Starfsfólk á leikskóladeild eftir hádegi á
Smáralund.
Upplýsingar um störfin gefur dagvistarfulltrúi
í síma 53444 á Félagsmálastofnun Hafnar-
fjarðar Strandgötu 4, þar sem umsóknar-
eyðublöð liggja frammi.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsmenn til eftirtalins
starfs. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum:
• Mælaálestur fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.
Verksvið mælaálesara yrði álestur af mæl-
um Hitaveitunnar vegna eftirlits með ást-
andi mælanna, og vegna athugana á inn-
heimtukerfi Hitaveitu Reykjavíkur. Starfs-
menn þurfa að leggja til bifreið.
Upplýsingar gefur Eysteinn Jónsson í síma
82400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást,
fyrir kl. 16:00 mánudaginn 3. febrúar 1986.
HUGMYNDA-
SIEFNA
Framkvæmdamenn og
hugmyndasmiðir hittast
Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að gangast fyrir
hugmyndastefnu ef næg þátttakafæst.
Fyrirhugað er að sýna á hugmyndastefnunni upp-
finningar og framleiðsluhæfar hugmyndir, sem til-
búnar eru til markaðsfærslu af hálfu höfunda.
Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að miðla fram-
leiðsluhugmyndum til þeirra sem hafa hug á aðfram-
leiða, fjármagna eða setja á markað nýjungar í iðn-
aði en einnig er henni ætlað að veita upplýsingar um
þjónustu og fyrirgreiðslu opinberra aðila við ný-
sköpun í atvinnulífinu.
Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í hugmynda-
stefnunni er bent á að snúa sértil Iðnaðarráðuneytis-
ins er veitir allar nánari upplýsingar. Þátttökutilkynn-
ingum ber að skila til Iðnaðarráðuneytisins fyrir 10.
febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í
ráðuneytinu. Þátttökugjald verður auglýst síðar.