Þjóðviljinn - 29.01.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.01.1986, Blaðsíða 2
Okur FRÉTTIR Okrið til Þórðar Rannsóknarlögreglan skilaði okurmálinu til ríkissaksóknara síðdegis ígœr 011 skjöl varðandi okurmálið svokallaða voru síðdegis í gær send embætti ríkissaksóknara til umfjöllunar, en að sögn Þórðar Björnssonar ríkissaksóknara gæti orðið talsverð bið á að gefn- ar verði út ákærur á hendur þeim sem viðriðnir eru málið. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur haft málið til rannsóknar í nær fjóra mánuði og hafa fjórir starfsmenn unnið að rannsókninni allan þann tíma. Geysilegt magn skjala hefur safn- ast upp vegna okurmálsins og úr- vinnsla hjá saksóknara getur sem fyrr segir tekið all langan tíma. Ekki hefur verið gefið upp hverjir það eru sem tengjast þessu máli en á annað hundrað manns hafa verið yfirheyrðir vegna gruns um að þeir hafi lagt Hermanni Björgvinssyni okur- lánara fé til ávöxtunar. Um er að ræða hundruðir miljóna í krón- um, erlendum gjaldmiðli og ávís- unum, sem hafa gengið manna á milli með okurvöxtum. - gg. „Ég er ekki viss um að þessi framleiðsla þín standist ströngustu kröfur, Albert ofan í við Albert Guðmundsson, iðnaðarróðherra, á kynningu Iðntæknistofnun- minn.“ Valgeir Guðjónsson, stjórnandi skólaþáttar Framleiöniátaksins setur ar í gær. Mynd: Sig. Iðntœknistofnun Nemendur kynna sér framleiðni Framleiðniátak lðntœknistofnunar kynnt9. bekkjarnemendum um alltland Ifcbrúarmánuði fer af stað kynning í öllum grunnskólum landsins á mikilvægi framlciðni fyrir atvinnulífið. Tilgangurinn er að vekja vitund unglinga um gildi vinnunnar og fræða um upp- byggingu atvinnulífs á Islandi. Þetta skólaverkefni er hluti af svonefndu „Framleiðniátaki í iðnaði“ sem stendur yfir um tveggja ára skeið. Kynningin er skipulögð í tengslum við starfs- fræðslu skólanna og mun ná til 1809. bekkjardeildaumalltland. Stjórnandi þessa skólaþáttar framleiðniátaksins er Valgeir Guðjónsson og hefur hann undir- búið og reynslukennt námsefnið. „Kynningin fer þannig fram“, sagði Valgeir, „að kennt verður í þrjár kennslustundir í hverjum skóla og þeir sem leiðbeina eru starfsmenn Iðntæknistofnunar og síðan iðnráðgjafar hvers lands- hluta fyrir sig. Á Norðurlandi eystra verða það einnig starfs- menn Iðnþróunarfélags Eyja- fjarðar. Það verða notaðar myndskyggnur til þess að sýna þróun atvinnulífsins á Islandi. Nemendur verða einnig látnir spreyta sig á framleiðslu. Þau munu stofna fyrirtæki og reikna kostnað og arðsemi, hugleiða markað og vöruþróun, laun og aðbúnað starfsfólks og önnur atr- iði sem snerta atvinnurekstur. Ég er búinn að prófa þetta í tímum hjá krökkum í 9. bekk og það hefur gengið alveg glimrandi vel. Krakkarnir hafa verið mjög áhugasamir um þetta", sagði Valgeir. _ ih. Hekla Akureyri Starfsmannafélagið hunsað Starfsfólki tilkynnt á föstudaginn að fataverksmiðjan Hekla verði lögð niður í vor. Bjarni Jónsson formaður starfsmannafélagsins: Ekki nóg verið gert til að rétta fyrirtœkið við Astæðan sem gcfín er fyrir lok- un Hcklu er sú að rekstrar- grundvöllurinn sé brostinn, en okkur fínnst að ekki hafí nóg ver- ið gert til að rétta fyrirtækið við. Fólk er alls ekki búið að sætta sig við þessa ákvörðun, málið er í at- hugun, sagði Bjarni Jónsson for- maður Starfsmannafélags Sam- bandsverksmiðjanna í samtali við Þjóðviljann í gær. Starfsfólki Fataverksmiðjunn- ar Heklu á Akureyri sem er í eigu SÍS var tilkynnt á föstudaginn að rekstri verksmiðjunnar yrði hætt frá og með 1. maí nk. og öllu starfsfólki yrði sagt upp 64 að tölu. Þar af eru 40 saumakonur og hluti þeirra kominn á efri ár. Þessari ákvörðun var mótmælt á fundinum, enda kom þetta fólki á óvart og ekkert samráð hafði ver- ið haft við starfsmannafélagið. Hekla laut þar til fyrir einu og hálfu ári síðan yfirstjórn iðnaðar- deildar Sambandsins, en þá tók verslunardeildin við og ákvörðun um að loka verksmiðjunni er tekin þar. Yfirmaður verslunar- deildar er Hjalti Pálsson. Bjarni sagði í gær að mikil eftir- spurn hafi ávallt verið eftir vörum frá Heklu og naumast hafi hafst undan. En jafnframt því sem Hekla framleiðir ýmsar flíkur eins og Puffys úlpur, sem áður kölluðust Hekluúlpur, flytur verslunardeild SÍS inn sambæri- legar vörur, t.d. frá Taiwan. Hekluúlpur hafa notið mikilla vinsælda en framleiðslu þeirra verður sem sé hætt í vor. - gg. Það er ekki að undra þótt ein- hverjir þjófstarti eftir alla þessa bið. Samningar Þjóf- start Benedikt Davíðsson: Ekki búið að gangafrá neinu samkomulagi. Bíðum eftir svörum frá VSÍ „Þessi frétt er algert þjófstart. Það hefur ekki verið gengið frá einu né neinu samkomulagi um lífeyrismálin, hvorki um hækkun iðgjalda né um afgreiðslu frum- varpsins um starfsemi lífeyris- sjóða“, sagði Benedikt Davíðsson stjórnarformaður Sambands al- mennra lífeyrissjóða og formaður starfshóps ASÍ í viðræðum við VSÍ um lífeyrismál. Tilefnið var frétt Þjóðviljans í gær um að línur væru að skýrast í samningum varðandi lífeyrismál. Benedikt sagði að vinnuhópur- inn um lífeyrismál hefði aðeins komið einu sinni saman og engin formleg svör hefðu ennþá borist frá fulltrúum VSÍ við hinum ýmsu kröfum ASÍ. Þá væri hvorki farið áð ræða um frumvarpið um starfsemi lífeyrissjóða, enda væri nefnd sú sem unnið hefur að þeim málum á undanförnum árum enn að störfum. - Ig. Grikklandsvinir Fundur á morgun Grikklandsvinafélagið Hcllas efnir til fundar, annað kvöld, fímmtudaginn 30. janúar kl. 20.30 á Hótel Esju (2. hæð). Fundurinn hefst á því að „ís- lenska búsúkí-tríóið“ leikur vin- sæl grísk lög. í tríóinu eru þeir Haraldur Arngrímsson, Hilmar J. Hauksson og Matthías Kristi- ansen. Siðan verður kynning á grískum nútímabókmenntum. Þorsteinn Þorsteinsson menntaskólakennari flytur erindi um efnið, en hann er manna kunnugastur grískum nútíma- skáldskap. í tengslum við efnið flytja ieikararnir Kristín Anna Þórarinsdóttir, Erlingur Gíslason og Helga Bachmann Ijóð eftir þrjú af kunnustu skáldum Grikkja á þessari öld, Konstant- ínos Kavafís, Gíorgos Seferis og Jannis Ritsos, í þýðingum Þor- steins Þorsteinssonar, Geirs Kristjánssonar og Sigurðar A. Magnússonar. Að lokinni bók- menntakynningunni verður rætt nánar um fyrirhugaða „menning- arferð“ til Grikklands í júní næstkomandi, sem heita má af- ráðin, þar eð 30 manns hafa þeg- ar skráð sig í hana. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.