Þjóðviljinn - 29.01.1986, Síða 8
Silfur-
tunglið
Silfurtunglið
Leikfélag Akureyrar
Silfurtunglið eftir Halldór Laxness
Lag við barnagaelu: Jón Nordal
Leikstjórn, búningar: Haukur J.
Gunnarsson
Leikmynd: Örn Ingi
Lýsing: Ingvar Björnsson
Hljómsveitarstjórn og útsetning:
Edvard Friðriksson.
Undarleg þessi árátta mann-
anna að drepa yndi sitt, og enn
undarlegra að selja sjálfan sig,
landið og þjóðina. Ekki að á-
stæðulausu að íslenskum lista-
mönnum er efnið hugleikið. Nó-
belsskáldinu hefur til að mynda
þótt ástæða til að áminna okkur.
Og ef marka má fjölda upp-
færslna á verkum hans í leikhús-
um landsins virðast þau okkur
kær þótt undirlægjuhættinum ætli
seint að linna. Við viljum styðja
þá ríku einsog Laugi gamli í Silf-
urtunglinu og viljum flottheit í
þjóðfélaginu.
Það er því ánægjulegt að L.A.
skuli bjóða okkur Silfurtunglið.
Silfurtunglið, harmleikinn gamni
ODDA
MARGRÉT
JÚLÍUSDÓTTIR
blandinn um norðankonuna sak-
lausu sem býr með manni sínum
við lygnan fjörð og syngur syni
sínum barnagælu. Heldur samt
að það hljóti að vera yndislegt að
syngja fyrir heiminn. í því birtist
okkur ein af konum Kiljans.
Sennilega hefur leikstjórinn,
Haukur J. Gunnarsson, valið
mjög góða leið til uppfærslu. f
stað þess að beita háðinu, skerpa
andstæðurnar, eða draga upp
glitveröld, sýnir hann okkur
natúralisma, trúr höfundinum,
sem hefur sagt að menn eigi ekki
að leita annars í verkum sínum en
þess sem stendur í textanum eða
er að gerast á sviðinu. Því til
stuðnings leitast Haukur við að
laða fram andrúmsloft ársins
1954, meðal annars með réttum
og góðum búningum, leikmynd
sem hvorki lyftir né styður þrátt
fyrir rétt tímabil og sólid efni,
hlutlausri lýsingu, tónlist sem
bregst í breytingum, og síðast en
ekki síst leikurum sem ekki eru
með á nótunum.
Sýningin silast áfram, en
sprengjan springur í lokin.
Vilborg Halldórsdóttir var þó
svo sannarlega í takt frá fyrstu
innkomu og sýndi okkur Lóu á
sannverðugan hátt. Og í lokaat-
riðinu þegar niðurlæging hennar
er alger rís leikur Vilborgar hæst.
Megi hún gleðja norðanfólk sem
lengst.
Lítið hlutverk náttvarðar varð
stórt hjá Barða Guðmundssyni, -
meiri áherslu hefði mátt leggja á
Nóra Þráins Karlssonar, -
aflraunamaður Péturs Eggerz
vakti í senn bros og með-
aumkvun. í hlutverki Feilans var
Theódór Júlíusson, sem líklega
hefði náð sér betur á strik í háði
og skopi, en var of daufur í dálk-
inn.
Og þegar upp var staðið virtist
samt sem áður einsýnt að leikur-
inn bar eðlilega hugmynd
leikstjórans ofurliði.
Vilborg og Ellert Inigmundarson í Silfurtunglinu hjá LA.
Allir eru listamenn
Nokkur orð um Joseph Beuys
Joseph Beuys er látinn á 65.
aldursári. Með honum er hniginn
í valinn einn margslungnasti og
áhrifamesti listamaður eftir-
stríðsáranna. Allt frá því hann
var tilnefndur prófessor við
Listaakademíuna í Dússeldorf
árið 1961, hafa verk hans og
kenningar verið leiðandi afl í hin-
um alþjóðlega listheimi. Þótt Be-
uys hafi verið titlaður mynd-
höggvari, ná verk hans langt út
fyrir venjulega skilgreiningu þess
sviðs og hugmyndir hans hafa
ekki síður haft áhrif á málara en
myndhöggvara.
Beuys var fæddur í borginni
Krefeld í Rínarhéruðunum, ná-
lægt landamærum Hollands, árið
1921. Hann var kominn af mið-
stéttarfólki og ólst upp í smáþorpi
nálægt borginni Kleve. Hugur
hans stóð til vísinda og ætlaði
hann sér að gerast barnalæknir
þegar stríðið braust út.
Tvítugur varð hann orrustu-
flugmaður og ári síðar var hann
sendur á austurvígstöðvarnar.
Þar var flugvél hans skotin niður
árið 1943, yfir Krímskaga. Hópur
tatara fann hann nær helfrosinn,
og var honum hjúkrað í búðum
þeirra þar til þýskur leitarflokkur
hafði upp á honum. Þessi reynsla
hafði djúp áhrif á Beuys og varð
til þess að hann fékk ævilangan
áhuga á hirðingjaþjóðum, eink-
um þeim sem byggja suðurhéruð
Sovétríkjanna. Ofá verk hans og
gjörningar byggjast á kynnum
hans af þessu asíatíska fólki.
Eftir stríðið ákvað Beuys að
læra höggmyndalist. Hann bjó þá
yfir staðgóðri þekkingu á ýmsum
sviðum vísinda og hafði einnig
sökkt sér niður í heimspeki og
bókmenntir. Hann varð m.a.
fyrir miklum áhrifum af kenning-
um Rudolfs Steiners. Þýskar
bókmenntir gleypti hann í sig;
Goethe, Schiller og Novalis, en
fyrst og fremst voru það ritsmíðar
James Joyce sem fönguðu huga
hans og gáfu list hans mikinn
innblástur. Þá sökkti hann sér
niður í marxisma, enda er furðu
margt í kenningum hans um list-
ina samhljóma hugmyndum Her-
berts Marcuses.
Öllum áhugamálum sínum og
yfirgripsmikilli þekkingu reynd-
ist Beuys auðvelt að veita inn í list
sína. Ein kenninga hans var sú að
allir séu listamenn í sjálfu sér, því
maðurinn sé skapandi vera og
einungis með sköpunarmættin-
um öðlaðist líf hans tilgang. Beu-
ys tókst að tengja list sína félags-
legum og pólitískum hræringum
samtíðarinnar og kostaði lýðræð-
isleg afstaða hans til skólamála
hann stöðuna við Listaakademí-
una í Dússeldorf á árunum 1972-
78-,
Árið 1971 tókst honum ásamt
nemendum sínum að bjarga
Greifenbergerskóginum utan við
Dússeldorf, en þar átti að ryðja
burt trjám til að búa til tennisvelli
fyrir borgarbúa. Markaði það
upphaf hans sem Græningja.
1973 stofnaði hann svo „Frjálsa
háskólann“ ásamt Heinrich Böll
og var markmið þeirra að undir-
búa breytingu á þjóðfélaginu;
skapa frjálsan grundvöll fyrir
frjálst þjóðfélag, þar sem menn
gætu notið sín sem skapandi,
andans manneskjur.
Jósef með nemendum við gjörning til
verndunar skógum.
Nú þegar hann er allur er hætt
við að menn einblíni um of á ein-
stök verk Josephs Beuys og slíti
þau úr öllu marktæku samhengi.
Til að hægt sé að skilja manninn
og hin ótrúlegu afköst hans á hin-
um ýmsum sviðum nýlista, verð-
ur að skoða verk hans og kenn-
ingar saman. Að öðrum kosti
missa menn marks og botna lítið í
því sem þeir sjá. En hvað sem má
um manninn segja, þá er víst að
Joseph Beuys gaf þýskum lista-
mönnum nýjan grundvöll til að
standa á eftir að sá gamli hafði
verið lagður í rúst á dögum þriðja
ríkisins.
Kristín Þorkelsdóttir opnar á morgun fimmtudag sýningu í Gallerí Borg og
nefnir hana Víddir. Kristín hefur starfað viðauglýsingagerð frá 1960 og rekur nú
eigin stofu, AUK. Hún lauk námi frá MHÍ 1954 og hefur kennt við skólann í
auglýsingadeild á kvöldnámskeiðum. Á sýningunni eru á fjórða tug vatnslita-
mynda flestar gerðar á sl. ári. Þetta er önnur einkasýning hennar, en hún hefur
tekið þátt í sjö samsýningum. Sýningin opnar á morgun kl. 17.00 og stendur til
2. febrúar. Myndin sýnir „Hafnarfjall í morgunbirtu".
HBR
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. janúar 1986
Héma
sama
og þar
Bókaormurinn, tímarit um
bækur og samtímamálefni, og
málgagn Páls Skúlasonar lög-
fræðings og bókamanns, er nú
komið út í sextánda sinn og flytur
sem fyrr fræðslu ýmsa og
skemmtan.
Þarna er endurprentuð grein
Sigurðar Nordals um Benedikt S.
Þórarinsson og bókasafn hans
sem nú er einn bitastæðasti kjarni
Háskólabókasafnsins; í Ormi er
líka grein um tölvunotkun rithöf-
unda, þar fjallar Eiríkur Jónsson
um tilurð smásögu Halldórs Lax-
ness, Temúdjín snýr heim, birt er
brot úr kvikmyndahandriti eftir
Eyvind Erlendsson, þýðing Er-
lings E. Halldórssonar á Panta-
grúl eftir Frakkann Rabelais, og
þýðing Steingríms Gauta Krist-
jánssonar á kvæði eftir Kínverj-
ann Ó Sjang Sjú, ennfremur ljóð
eftir Jón Hjartarson og eftir Her-
mann Pálsson.
Sá sem síðast var nefndur hefur
þann formála að ljóði sínu að
honum teljist svo til að meiri
skáldskapur búi í góðri málfræði
en sjálfan Hrein Benediktsson ís-
lenskuprófessor hafi órað fyrir,
og Þjóðviljinn tekur sér það
bessaleyfi að birta úr Bókaormi
Hermannsljóð með haus og
sporði:
ATVIKSORÐ í PÁTÍÐ
Mig dreymdi að ég vœri varla til
og vissi ekki hót um sjálfan mig.
En svo fór ég að hugsa helst
um þig
og hœtti við að leita neitt að mér.
Pá varð mér spurn: Ó hvar er
okkar hvar?
Ó hvenœr verður annars staðar
hér?
Því allt sem kemur einhvern
veginn fer,
á endanum er hérna sama og þar.
Söngvakeppnin
Yfir 250
lög
Fyrsta skrefið að þátttöku íslenska
sjónvarpsins í söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva hefur þegar
verið stigið, og það nokkuð snöfur-
mannlega. Þegar frestur rann út um
helgina höfðu borist meira en 250 lög
til umsjónarmanna, og verður þraut-
in væntanlega nokkuð þung að velja
þau tíu sem valin verða til úrslita.
Egill Eðvarðsson sem hefur verið
umsjónarmaður þess arna fyrir sjón-
varpið sagði þátttöku í samkeppnina
hafa farið frammúr öllum vænting-
um.
Egill sagði Þjóðviljanum að hann
væri nú ásamt félögum sínum búinn
að skila kostnaðaráætlun um keppn-
ina til Hrafns Gunnlaugssonar stjóra í
sjónvarpi. Tölur fást ekki uppgefnar
fyrr en að loknum vangaveltum í
sjónvarpssölum, en Agli sýndist
dæmið líta ljómandi vel út; þetta væri
alltént ekki óviðráðanlegt: „það eina
sem við höfum ekki efni á er að missa
þetta tækifæri". Á blaðamannafundi
fyrir helgi sagði Hrafn að vonir stæðu
til að auglýsingafé fengist uppí mik-
inn hluta kostnaðar.
Næst mála á þessari dagskrá er að
dómnefnd velji úr bunkanum lögin
tíu. Síðan er að útsetja, velja fimm
flytjendur og sýna í sjónvarpi, hvert
lag fyrir sig, og öll saman 15. mars. Þá
verður valið úr þátttökulagið sjálft og
byrjar þá undirbúnings- og kynning-
arballið fyrir alvöru. Björgvinjarhá-
tíðin er 3. maí.
- m.