Þjóðviljinn - 08.03.1986, Side 4

Þjóðviljinn - 08.03.1986, Side 4
LEIÐARI Svikin em byrjuð Allra augu beinast nú aö því, hvort ríkisstjórn- in standi viö loforðin sem hún gaf varöandi kjarasamningana. Samningarnirhafa veriö um- deildir, ekki síst hér í Þjóðviljanum, og þaö er alveg Ijóst aö menn munu ekki veröa á eitt sáttir um ágæti þeirra. Hins vegar er líka jafn Ijóst, aö allir, hvaöa skoðun sem þeir kunna aö hafa á samningunum og aödraganda þeirra, veröa aö sameinast í því aö standa vörö um aö ríkis- stjórnin bregðist ekki þeim loforðum sem hún gaf viö undirritun samninganna og eru raunar hornsteinar þeirra. Þaö er klárt, að verkalýðsforystan skrifaöi undir samningana í trausti þess aö ríkisstjórnin stæöi viö loforö sín um hóf í hækkunum. En nú eru svikin byrjuö, og miklu fyrr en jafnvel þá sem mest efuðust um samningana, óraöi fyrir. Ríkis- stjórnin sjálf hefur nú gengiö á undan meö illu fordæmi og hleypt hækkanahrinunni af staö. Þetta er dæmigert fyrir svikaeöli stjórnarinnar. Henni er alls ekki aö treysta, einsog Þjóöviljinn eitt blaöa benti harkalega á viö undirritun samn- inganna, og ekki viö miklar vinsældir. Nú sem sagt standa menn frammi fyrir því aö ríkisstjórnin sjálf er byrjuö að leyfa hækkanir á þjónustu ríkisstofnana. Ríkisbankarnir urðu þannig fyrstir til að hækka þjónustugjöld sín, beint ofan í kjarasamningana og loforö ráöherr- anna um hið gagnstæöa. Og þaö verður aö segjast, aö þessar hækkanir eru engar smá- ræðishækkanir. Þjónustugjöldin hækkuöu allt upp í 100 prósent, og einkabankarnir voru meö í hrinunni. Þaö er athyglisvert aö eini bankinn sem ekki hækkar, er Alþýðubankinn, sá banki sem verkalýöshreyfingin hefur stofnsett og allir verkalýössinnar eiga auðvitaö aö skipta viö. Þaö er Ijóst, að þessi hækkun er ekkert annað en hrein storkun við þá sem undirrituðu samn- ingana fyrir hönd verkalýðshreyfingarinnar. Hún er ekkert annaö en ögrun viö alþýðufólk í landinu og viö þeirri ögrun veröa samtök verka- lýösins aö bregðast af fullri hörku. Veröi þaö ekki gert strax, þá er auðvitað morgunljóst að fleira siglir í kjölfariö. Þess vegna verða samtök verkafólks að stappa niður fæti og hreinlega sjá til þess að þessi hækkun verði dregin til baka. Matthías Bjarnason ráöherra hefur aö vísu skrifaö bönkunum kurteislegt bréf á vestfirska vísu og beöiö þá vinsamlegast að hætta viö hækkanirnar. En það er ekki nóg. Þeim er í lófa lagið aö hundsa tilmæli ráöherrans, og alþýðan étur ekki bréf ráöherra. Það verður að draga hækkunina til baka. Þaö þurfa líka fleiri en ríkisstjórnin aö standa við orö sín. Viö skulum ekki gleyma, aö í sigur- vímunni í lok samninganna lofuöu iönrekendur því aö beita sér fyrir lækkunum á framleiöslu sinna félaga. Hvar eru þessar lækkanir? - Það er sennilega dæmigert fyrir hversu innan- tóm loforö atvinnurekenda voru líka, aö Víg- lundur Þorsteinsson, einn af oddvitum iðnrek- enda og aöalmaöur í samningunum lýsir því blákalt yfir í Þjóðviljanum í dag, aö hann muni ekki lækka sína framleiðslu. Þannig standa þessir herrar viö orö sín. Þannig eru efndirnar, hvort heldur er hjá ríkis- stjórn eöa atvinnurekendum: svik, svik og ekkert nema svik! Þeim mun hins vegar ekki veröa kápan úr þessu klæði. Þó aðrir horfi meö blinda auganu á hækkanirstjórnarog burgeisa, þástendur Þjóö- viljinn vöröinn og mun gera allt sem í hans valdi stendur til aö upplýsa um svik stjórnar og at- vinnurekenda. Hann er málsvari róttækrar verkalýðsstefnu, og mun starfa í anda hennar hvaö sem á dynur. Þaö munu menn sjá í þeim darraðardansi sem framundan er í glímunni viö ríkisstjórnina og atvinnurekendur. Þeim mun ekki takast að fela svikin! -ÖS ! LJÖSÖPÍÐ Ljósmynd: Einar Ól. DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guömundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: GaröarGuöjónsson, Guölaugur Arason (Akureyri), Ing- ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Möröur Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Friö- þjófsson, Víðir Sigurösson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar Ólason, Siguröur Mar Halldórsson. Útlit: Sævar Guöbjörnsson, Garöar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríöur Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríöur Kristjánsdóttir. Húsmóðir: ólöf Húnfjörö. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Roykjavík, sími 681333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 40 kr. Helgarblöð: 45 kr. Áskriftarverð á mánuði: 450 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.