Þjóðviljinn - 08.03.1986, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 08.03.1986, Qupperneq 9
MENNING Saraste einn af þessum stóru Jukka Pekka Saraste. Sinfóníuhljómsveit íslands Stjórnandi Jukka Pekka Saraste Einleikari János Starker Verk eftir Jón Leifs, Prokofieff, Brahms Háskólabíó, fimmtudag Það er ótrúlegt hvað hljóm- sveitin okkar getur spilað fallega, þ.e.a.s. hafi hún yfir sér almenni- legan stjórnanda. Að vísu er það alltof sjaldgæft. En í fyrrakvöld var Jukka Pekka Saraste í pont- unni og þá skeði eitt kraftaverk- ið. Það er langt síðan maður hefur heyrt svona eðlilegan og stfl- hreinan Brahms, einsog undir hans stjórn í fjórðu sinfóníunni. Án þess að ofgera nokkursstaðar kom hljómsveitin öllu sem máli skiptir til skila og það svo örugg- lega að manni fannst á köflum að þarna væri komið allt annað app- arat en síðast. Pað er greinilegt að Saraste er á leiðinni að verða einn af þessum stóru. Þó hann slái bæði mikið og sterkt, þá er múseringin hjá hon- um aldrei stíf eða skólameistara- leg, heldur lifandi og full af þeirri hlýju sem skiptir öllu máli. En hún er nákvæm og gáfuleg, ekki vantar það, en þegar Brahms, af öllum tónskáldum, hljómar eins- og risavaxin en tær kammermús- ík, og ekki útblásin píanómúsík, sem oft vill brenna við hjá með- aldírigentum, þá er gaman að lifa. Þá er Brahms besta tónskáld í heimi. Fyrir hlé var sá stórkost- legi Janos Starker sólisti í selló- sinfóníu Prokoffjefs. Þó undirrit- aður sé ekkert yfir sig hrifinn af því verki, þá hreif Starker (með aðstoð Saraste) bæði hann og alla viðstadda held ég inn í sögur og ævintýri sem lengi verða að hverfa úr vitundinni. Og hjart- anu, já. Tónleikarnir hófust með „Leiðslu" eftir Jón Nordal, sem svo skemmtilega vildi til að varð sextugur þennan sama dag. Já við eldumst án þess að taka eftir því. Mér finnst það hafa verið í fyrra- gær að Jón var að reyna að kenna mér að spila úr Mikrokosmos (og Haydn) og hreinsa eyrun á mér með tónheyrnaræfingum, sem tókst stundum svo vel að maður sveif um göturnar í sæluvímu á eftir. Heyrði og sá allt í nýju ljósi, himnesku. Kynnti mann fyrir Stravinsky Bartók og Berg og klassíkerunum upp á nýtt: Moz- art varð mesti módernistinn eftir tíma hjá Jóni. En það eru 30 ár síðan og rúmlega það. Og lífið rétt að byrja. Leiðsla er að vísu ekki endilega það verk Jóns sem maður hefði helst kosið að heyra núna, hann hefur samið svo margt og meira spennandi, en það var samt góð áminning um að við eigum fast iand undir fótum hvað tónsmíðar snertir hér á landi. Það er allsekki svo langt síðan að maður frétti að okkur stæði Saraste til boða sem aðaldírigent, en honum hefði verið hafnað af því S.B. forstjóri áleit hann hafa of litla reynslu í faginu. Hvort öðrum snillingi á stjórnpalli, Páli Zukofski, var hafnað af sömu ástæðuin veit ég ekki, (sumir segja það sé að þjóðernisástæð- um), en þar misstum við af strætó rétt einu sinni og þurfum kannski að bíða lengi eftir næsta. Vel á minnst: Zukofski ætlar að stjórna 9. Mahlers á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Æskunnar núna kl. 11 í M.H. Ní- undu sinfóníu Mahlers, hvorki meira né minna. Það er eins gott að taka sprettinn svo maður missi ekki af því. LÞ. Ljúfir draumar með Starker strandaglópur á einhverjum fiug- velli í útlöndum vegna verkfalla. Við misstum því af því að heyra / Starker að þessu sinni í Debussy- sónötunni stórkostlegu og A dúr sónötu Beethovens, ásamt fleiru, en í staðinn fengum við t.d. tvær sólósvítur eftir Bach, og enginn getur talið sig svikinn af því. Starker leikur Bach af fullkom- inni ró og gefur aldrei tilfinning- um lausan tauminn, þó ieikur hans sé fullur af hlýju og manngæsku. Samt er leikur hans langt frá að vera haminn og undir yfirborði hins fullkomna listræna valds heyrir maður frjálst hugar- flug snillings, sem er músíkin í blóð borin. Til að stytta þeim stundir sem ekki láta sér sellóið eitt nægja, hafði Starker fengið í staðinn fyrir píanóið hvorki meira né minna en milli 20 og 30 hljóð- færaleikara úr S.í. og hljóm- sveitarstjórann Jukka Pekka Sar- ase. Með þessu liði lék hann Rokkókótilbrigðin eftir Tsjækof- skí og þarna var leikstíllinn auðvitað allt annar en í Bach. Þarna svifu hárómantískir og við- kvæmir andar yfir vötnum og var ótrúlegt hvað samleikur Starkers og lítt undirbúinna hljómsveitar- manna var öruggur og tær. Enda var enginn aukvisi við stjórnvöl- inn... Jukka Pekka Saraste er áreiðanlega með albestu hljóm- sveitarstjórum sem hér hafa komið í seinni tíð. Svo lauk Starker þessum yndis- legu tónleikum með sólósvítu eftir spánska sellóvirtúósinn Gaspar Cassado... svítu sem að sumu leyti er kannski sniðin eftir Bachsvítunum... en svo spænsk í anda að manni fannst maður augnablik vera staddur í Katalón- íu á leiðinni suður til Andalúsíu. Já, það fylgja ljúfir draumar leik snillingsins Janos Starker. LÞ ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Janos Starker með félögum úr S.í. undir stjórn J.P. Saraste Verk eftir Bach, Tsjækovskí, Cassado Tónlistarfélagið Austurbæjarbíó, þriðjudag Einn fremsti sellóleikari okkar tíma, Janos Starker, lék fyrir Tónlistarfélagið s.l. þriðjudag i Austurbæjarbíó. A síðustu stundu varð hann að breyta efn- isskránni allverulega, því auglýst- ur undirleikari, Alain Planés, pí- anóleikari frá Frakklandi, varð Frönsk kvikmyndavika Tvennir tímar Myndir frá gullöldum frakka Alliancefrancaise, Regnboginn og franska sendiráðið heiöra okkur nú í viku með kvikmynda- viku þarsem sýndareru franskar kvikmyndirfrá þeim tvennum tím- um sem frönsk kvikmyndalist rís einna hæst, - „gullöldinni" báðu- megin við stríðið og „nýbylgju" sjöunda áratugarins. Frá fyrra tímabilinu eru mynd- ir eftir Renoir, René Clajr og Autant-Lara þarsem fólk einsog Louis Jouvent og Jean Gabin eru í aðalhlutverkum: Le Crime de Monsieur Lange/Glæpur herra Lange eftir Renoir frá 1935, Les bas Fonds/Undirheimar Renoirs frá 1936, Le silence est d’or/Þögn er gulls ígildi eftir René Clair frá 1947 og Le rouge et le noir/Rautt og svart eftir Claude Autant- Lara. Frá nýbylgjuárum eru Tirez sur le pianiste/Skjótið píanóleik- arann eftir Francois Truffaut frá 1960, Alphaville Jean-Luc Go- dards frá 1965 og Le genou de Claire/Hnéð á Clarie eftir Eric Rohmer frá 1965. Að auki eru tvær nýjar myndir á dagskrá, Une chambre en ville/ Herbergi í bænum frá 1982 eftir Jacques Demy og Un mauvais fils/Vondi sonurinn eftir Claude Sautet frá 1980. Kvikmyndavikan hefst í Regn- boga í dag og myndir sýndar frammá fimmtudag kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins Sæbraut 1-2, Seltjarnarnesi Laus staða Deildarstjóri óskast á dagdeild frá 1. apríl nk. Viðkomandi þarf að hafa uppeldisfræðilega menntun auk sérþekkingar og reynslu í starfi með fötluð börn. Umsóknir berist til forstöðu- manns fyrir 15. mars nk. Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í end- urnýjun hitaveitulagna í steyptum stokk í Hverfis- götu, Snorrabraut, Rauðarárstíg og Stórholt. Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkir- kjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 10.000 skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 13. mars nk. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR F i ikir kjuvogi 3 Simi 25800 Útboð Tilboð óskast í eftirfarandi vegna Slökkvistöðvar- innar í Reykjavík. Ford F 600, slökkvibifreið, árgerð 1962. Bifreiðin er með 171 ha. vél og tvískiptu drifi. Dælan er þriggja þrepa Champion lág- og háþrýstidæla. Afköst 3000 l/mín. við 7/rúmcm, og 250 l/mín. við 70 kg/rúmcm, miðað við 1,5 metra soghæð. Vatnstankur rúmar ca. 1100 lítra. Bifreiðin er tii sýnis á Slökkvistöð Reykjavíkur. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, fimmtudaginn 3. apríl 1986 kl. 14. INNKAUPASTOFNUNREYKJAVIKURBORGAR Fnkuk|uvcgi 3 Smii 25800 Utboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í undir- byggingu Djúpvegar - Óshlíð III. (Lengd 1760 m, skering 125.000 m3). Verki skal lokið í síðasta lagi þann 1. september 1986. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 10. mars nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 1. apríl 1986. Vegamálastjóri

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.