Þjóðviljinn - 14.03.1986, Page 3

Þjóðviljinn - 14.03.1986, Page 3
FRÉTTIR Framfœrsluvísitalan Lækkunin meiri en búist var við Framfœrsluvísitalan lœkkaði ífyrsta skipti á 15 árum. Ásmundur Stefánsson: Tryggir engan veginnframhaldið. Verður að fylgjaþessu eftir affullumþunga r Ifyrsta sinn í 15 ár hefur vísitala framfærslukostnaðar lækkað en hún lækkaði um 1,53% milli mánaðanna febrúar og mars, en höfuðástæðan fyrir þessari lækk- un, er að verð á nýjum fólksbif- reiðum lækkaði að meðaltali um 26,1% í marsbyrjun. Aðrir þættir sem höfðu áhrif á lækkun- ina var bensínlækkunin, lækkun á rafmagni og hitaveitu, lækkun á aðflutningsgjöldum á grænmeti, svo og lækkuná heimilistækjum. „Þetta er meiri lækkun á fram- færsluvísitölunni, en við höfðum búist við“, sagði Ásmundur Stef- ánsson, forseti ASÍ, við Þjóðvilj- ann í gær. ASI hafði reiknað með því að lækkunin yrði 1,28% í stað 1,53%, sem er um 0,25% meira en búist hafði verið við. „Þetta tryggir þó engan veginn fram- haldið, þó vissulega sé meiri ástæða til bjartsýni þegar svona vel tekst til strax í upphafi. Á milli mars og apríl er búist við að framfærsluvísitalan hækki um 0,74% og 0,69% milli apríl og maí, en l.-maí er fyrsta rauða strikið. Enn er of snemmt að full- yrða að tilraunin hafi tekist þó þetta lofi góðu.“ Ásmundur sagði að það væri óhjákvæmilegt að fylgja þessu eftir af fullum þunga, en verka- lýðsfélögin og Verðlagsstofnun munu fylgjast mjög náið með öllum verðlagsbreytingum. í næstu viku mun ASI senda út til- lögur til verkalýðsfélaganna hvernig þau skuli haga starfi sínu með verðlagseftirlit. „Við viljum koma því ástandi á að í hvert skipti sem fólk verður vart við einhverja hækkun á vöru eða þjónustu, snúi það sér annað hvort til félaganna eða Verð- lagsstofnunar. Einnig er mikil- vægt að fjölmiðlar sýni málinu áfram sama áhuga og þeir hafa gert“, sagði Ásmundur að lok- um. - Sáf. Fjölmenn ráðstefna um „Fátækt á Islandi?". Ljósm.: Sig. Ráðstefna Bamastefna nauðsyn Ráðstefna um „Fátœkt á íslandi?“ hófst í gœr. Félagsleg þjónusta og fátœkt rœdd frá öllum sjónarhornum Hafnarfjörður Safnað fyrir röntgen- tækjum Nú stendur yfir fjársöfnun til kaupa á röntgentækjum fyrir St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þegar hafa safnast rúmlega 2 milj. kr. en talið er að 4,5 milj. þurfi til miðað við verð á slíkum tækjum nú. Það er Bandalag kvenna í Hafnarfirði, sem hefur veg og vanda af þessari söfnun. Fyrir um það bil ári síðan kvaddi það til fundar ýmis félög og félaga- samtök í því augnamiði að kanna áhuga þeirra á þátttöku í fjár- söfnun til kaupa á tækjunum. Undirtektir reyndust mjög já- kvæðar og var þá skipuð einskon- ar framkvæmdanefnd undir for- ystu Hjördísar Þorsteinsdóttur, 'fulltrúa Bandalags kvenna. Hef- ur nefndin unnið mikið og gott starf og orðið vel ágengt. Eftir er þó drjúgt átak því ákveðið hefur verið, að bestu manna yfirsýn, að taka tilboði í tæki frá Siemens í Vestur- Þýskalandi, sem hljóðar upp á kr. 4.047.000. Að því er stefnt að tækin verði komin upp á 60 ára afmæli spítalans þann 5. sept. nk. Röntgentæki St. Jósefsspít- alans í Hafnarfirði eru gömul orðin og svara engan veginn nú- tímakröfum. Stór hluti fólks af Hafnarfjarðarsvæðinu (Hafnarf- jörður, Garðabær, Álftanes), hefur því orðið að sækja röntgen- myndatöku til Reykjavíkur. Með tilkomu hinna nýju tækja í Hafn- arfirði ætti þeim ferðum að geta fækkað verulega. - mhg. Igær var fyrsti dagur ráðstefnu sem haldin er á vegum Samtaka íslenskra félagsmálastjóra undir nafninu Fátækt á íslandi?, en síð- asti dagur ráðstefnunnar verður laugardaginn 15. mars. í gær var viðfangsefni ráðstefn- unnar umræða um lagafyrirmæli um félagslega þjónustu sveitarfé- laga. Að sögn Braga Guðbrands- sonar félagsmálastjóra eru fram- færslulögin sem í gildi eru í dag frá árinu 1947 og endurskoðun á þeim því tímabær. Á ráðstefn- unni voru þessi lagafyrirmæli m.a. rædd m.t.t. félagslegrar þjónustu sveitarfélaga við börn og unglinga en Guðrún Kristins- dóttir félagsráðgjafi hélt erindi um það efni. I erindinu lagði Guðrún áherslu á það að brýnt væri að móta stefnu í málefnum barna, að það þyrfti að aðlaga opinbera þjónustu að breyttum lífsaðstæðum þeirra. Meðal efnis á ráðstefnunni í dag er umræða um mat á fjárþörf til félagslegrar þjónustu en í því sambandi munu fulltrúar nokk- urra sveitarfélaga gera grein fyrir þeim viðmiðunum sem þau byggja á þegar fjárþörf er metin. Eftir hádegið hefst sá hluti ráð- stefnunnar sem nefndur hefur verið málþing en á málþinginu í dag verður rætt um fyrirbærið fá- tækt m.a. út frá heimspekilegu og sagnfræðilegu sjónarmiði. Á morgun hefst ráðstefnan með erindi landlæknis um heilsufar og efni en því næst mun Ásmundur Stefánsson fjalla um tekjuskiptingu og skynjun fólks á henni. Onnur erindi eru m.a. um þróun launa í láglaunahópum, tekjujöfnun á íslandi, umræða um niðurstöður launakönnunar og að lokum erindi um fátækt kjaramál og velferðarríkið. Ráðstefnan, sem haldin er að Borgartúni 6, er öllum opin og getur fólk skráð sig á málþingið á milli kl. 12.30 og 1.30 í dag. - K.Ól. Neskaupstaður 22 taka þátt í forvali Alþýðubandalagið íNeskaupstað meðforval á laugardag. lósem ekki hafa verið á listaflokksins áður BSRB Atkvæða- greiðslu lýkur í dag Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning hófst hjá BSRB í gær og henni lýkur í dag. Áður höfðu kjörgögn verið send til félaga í BSRB sem búa úti á landi. Þarf að póstleggja at- kvæðin fyrir lokun í dag eigi þau að teljast gild. _ Sáf. Alþýðubandalagið í Neskaup- stað heldur forval fyrir flokksfélaga og aðra stuðnings- menn flokksins á iaugardag, vegna komandi bæjarstjórnar- kosninga. Utankjörstaðakosning er þegar hafin en alls taka 22 ein- staklingar þátt í forvalinu, þar af eru 16 sem ekki hafa áður átt sæti á lista flokksins. Alþýðubandalagið hefur 5 af 9 bæjarfulltrúum í bæjarstjórn Neskaupstaðar og af þessum 5 fulltrúum gefa allir kost á sér í forvalinu nema Lilja Aðal- steinsdóttir sem var í 6. sæti á síðasta framboðslista en tók sæti í bæjarstjórn þegar Logi Kristjáns- son lét af störfum bæjarstjóra fyrr á kjörtímabilinu. Áf frambjóðendunum 22 er rétt tæpur helmingur konur. Eng- inn býður sig fram í sérstök sæti en raða á frambjóðendum í 9 sæti. Kosningin fer fram í Kreml, að Egilsbraut 11 og stendur kosn- ing frá kl. 10-22 á laugardag. _lg Föstudagur 14. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Finnland Stuðningur NFS við verkfallið Vegna allsherjarverkfalls finnska Alþýðusambandsins, SAK sem nú er skollið á, og fyrir- sjáanlegra átaka á finnskum vinnumarkaði hefur Norræna verkalýðssambandið, sem ASÍ og BSRB eru aðilar að, sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Norræna verkalýðssamband- ið, NFS, sem hefur innan sinna vébanda rúmlega sex og hálfa milljón launþega í verkalýðsfé- lögum á öllum Norðurlöndunum, er uggandi yfir þeim vinnu- brögðum sem finnskir atvinnu- rekendur hafa viðhaft í yfirstand- andi kjaraviðræðum, og lýsir full- um stuðningi við finnska alþýðu- sambandið vegna fyrirsjáanlegra átaka á finnskum vinnumarkaði. Finnska alþýðusambandið og að- ildarsambönd þess mega treysta á samstöðu norrænu bræðrasam- takanna í baráttu sinni fyrir bætt- um kjörum, launajafnrétti og styttri vinnutíma. Tilraun finnskra atvinnurek- enda til að veikja verkalýðssam- tökin og svipta hvern einstakan launþega þeirri vernd sem hann hefur gegn geðóttaákvörðunum vinnuveitandans, er þáttur í al- þjóðlegri herferð atvinnurek- enda. Barátta finnska alþýðu- sambandsins er þess vegna bar- átta fyrir réttindum launþega á Norðurlöndum öllum og verður studd með ráðum og dáð.“ Penninn 5% vöru- hækkun Skrifstofustólar, möppur, gatararofl. hœkka um5% í Pennanum. Hannes Guðmundsson skrifstofustjóri: Vegur upp á móti hœkkun. þýska marksins Nokkrar vörutegundir í pappírs- og ritfangaverslun- inni Pennanum f Reykjavík hækkuðu um fimm prósent dag- inn eftir að kjarasamningarnir voru undirritaðir í febrúarlok, og stafar það að sögn Hannesar Guðmundssonar skrifstofustjóra Pcnnans af því að þarna er um að ræða þýskar vörur og hækkunin vegur upp á móti hækkun marks- ins miðað við krónuna. Vörurnar, sem hækka eru möppur, tölvumöppur, gatarar, skrifstofustólar og umslög, sem hækkuðu að sögn Hannesar um 3.5%. Þessar vörur voru leystar út hjá tollvörugeymslunni skömmu fyrir undirritun samn- inganna og verðið miðað við gengi marks á þeim tíma. Aðrar vörur hækka ekki hjá Pennanum og munu ekki hækka að sögn Hannesar meðan gengi helst stöðugt. „Við erum auðvit- að í himnasælu meðan gengið helst stöðugt“, sagði Hannes í gær. -gg- Mishermi í viðtali við Kristjönu Kristins- dóttur í Þjóðviljanum þann 12. mars varð mishermi í mynda- texta. Einkaskjalasafn Þorsteins Péturssonar var ánafnað af hon- um til Sögusafns verkalýðshreyf- ingarinnar og afhent af dóttur hans en ekki gefið af henni eins og segir í textanum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.