Þjóðviljinn - 14.03.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663.
DIOÐVIUINN
Föstudagur 14. mars 1986 61. tölublað 51. örgangur.
Mjólkur-
fræðingar
felldu
Geir Jónsson formaður
Mjólku rfrœðinga -
félagsins: Höfurn óskað
eftir samninga-
viðrœðum. Bíðum eftir
svarifrá atvinnu-
rekendum
Afunduni í félaf>i mjólkurfræð-
inf<a sl. þriðjudaKof> miðviku-
da;> voru nýgerðir kjarasamning-
ar felldir með 28 atkvæðum gegn
5. Mjólkurfræðingafélagið er
landsfélag með 75 félaga með at-
kvæðisrétt.
Geir Jónsson formaður félags-
ins sagði í samtali við Þjóðviljann
í gær, að félagið hefði nú óskað
eftir viöræöum við atvinnurek-
endur, þar sem ræða á sérkröfur
mjólkurfræðinga. Hann sagði að
atvinnurekendur hefðu enn ekki
svarað og því mætti segja að
framhald málsins væri í þeirra
höndum. -S.dór
Jóhanna Leopoldsdóttir: Ábyggilega skemmtilegt starf, í þaö minnsta í hálfan mánuð. Mynd: E.ÓI.
Alþingi
Mjolkurkvotar brenna á fólki
Jóhanna Leopoldsdóttir útibússtjóri á Vegamótum ífyrsta sinn á Alþingi:
Mjólkurmálin skipta mestu í minni byggð
Kannaðar verði allarfœrar leiðir til aðfullnýta mjólk til iðnaðar
Mér líst ágætlega á þetta starf
og held að það sé ábyggilega
skemmtilegt, í það minnsta í hálf-
an mánuð“, sagði Jóhanna Leop-
oldsdóttir sem nú situr á Alþingi í
fyrsta skipti. Hún hefur tekið sæti
Skúla Alexanderssonar og inun
sitja á þingi fram að páskahléi.
Jóhanna er útibússtjóri versl-
unar Kaupfélags Borgfirðinga á
Vegamótum. Aðspurð hvort
ekki hefði veriö erfitt að hlaupa
burt frá verslunarrekstrinum
inná Alþingi sagði hún að það
hefði allt gengið vel með góðu
samstarfi við samstarfsfólkið.
„Ég ætla að leggja fram þings-
ályktunartillögu um könnun á
fullnýtingu mjólkur. Mjólkur-
kvótarnir brenna mjög á fólki í
mínu kjördænri og byggðin stend-
ur og fellur með þessari fram-
leiðslu. Mér finnt eins og fleirum
að það sé byrjað á öfugum enda
þegar skera á niður framleiðsluna
og þá um leið grunninn undir
þessum byggðum í stað þess að
Íeita allra ráða til að vinna úr
mjólkinni ýmsar afurðir til iðnað-
ar sem við flytjum inn til landsins
í dag í stórum mæli. Þar er um að
ræða ýmis konar mjólkurduft til
matargerðar og eins má nefna
aðrar landbúnaðarafurðir eins og
eggjaduft, þurrkaðan kjötkraft
og súpukraft að ég tali ekki um
frosið og niðursoðið grænmeti
sem flutt er til landsins í stórum
stíl. Ég trúi ekki öðru en þing-
menn taki vel í þessa tillögu og
þessi mál verði könnuð ræki-
lega“, sagði Jóhanna Leopolds-
dóttir.
-lg-
Framsóknarflokkurinn
Breytingar á æðsta ráðinu?
Miðstjornarfundur Framsóknarflokksins haldinn um helgina:
Vangaveltur um að Erlendur Einarsson, Valur Arnþórsson og Guðmundur G. Þórarinsson muni hætta
Ahugi á að Páll Pétursson taki að sérforystu íflokknum
£ g tel allar líkur á því að miklar
mannabreytingar verði
æðstu stjórn Framsóknarilokks-
ins; að Guðmundur G. Þórarins-
son muni hætta scm gjaldkeri
flokksins og að Sambandsmcnn-
irnir þeir Erlendur Einarsson og
Valur Arnþórsson muni hætta í
framkvæmdastjórn ilokksins,
sagði miðstjórnarmaður sem
Þjóðviljinn hatði samband við í
gær vegna miðstjórnarfundar
Framsóknarflokksins um helg-
a ina.
Heimildamenn blaðsins sögðu
að það væri opinbert leyndarmál í
Framsókn að menn væru að
hætta í æðstu stjórninni af ýmsum
ástæðum. Sambandsmennirnir
væru að hætta vegna þess að þeir
vildu draga úr tengslunum við
Framsóknarflokkinn - eða þá að
reyna að koma nýjum Sambands-
mönnum að svosem Þorsteini Ól-
afssyni.
„Það er ekkert launungarmál,
að við á landsbyggðinni bæði við
bændur og aðrir byggðarmenn
erum sáróánægðir með stjórnar-
þátttökuna og ekki síst nýjustu
tíðindi þaðan", sagði einn bóndi
úr hópi miðstjórnarmanna í sam-
tali við Þjóðviljann. Hann kvað
menn vera að íhuga þann mögu-
leika að fá Ingvar Gíslason eða
Pál Pétursson til formennsku í
flokknum, „og það væri ekkert
vitlaust núna að kjósa Pál Péturs-
son til að byrja með í gjaldkera-
stöðuna í stað Guðmundar áður
en Páli væri falin formennska í
flokknum".
Aðrir heimildamenn kváðu
það liggja í stöðunni, að miðju-
menn og vinstri menn í Fram-
sóknarflokknum myndu styrkja
stöðu sína í flokknum enda ættu
þau öfl sem lent hefðu í ýmsum
leiðindamálum og hneyksli síð-
ustu misseri ekki uppá pallborðið
meðal miðstjórnarmanna. Auk
Páls og Ingvars hefur Finnur Ing-
ólfsson verið orðaður við gjald-
kerastöðuna, en menn eru minna
farnir að spá í það hverjir eigi að
leysa þá Val og Erlend af í fram-
kvæmdastjórninni.
-óg
Kjarasamningarnir
Verðlagsstofn un
Fólk
besta
gæslan
Verðlagsstofnun kannar
verð á heimilistœkjum og
matvöru. Jóhannes
Gunnarsson: Allar
ábendingar vel þegnar
Verðlagsstofnun er að safna
gögnum og kanna verð á
heimilistækjum auk þess sem ver-
ið er að kanna verðlag í matvöru-
verslunum. Er búist við niður-
stöðum úr þessum könnunum í
næstu viku.
Jóhannes Gunnarsson, útgáfu-
stjóri Verðlagsstofnunar sagði
við Þjóðviljann í gær að það væri
mikið um að fólk hefði samband
við Verðlagsstofnun og væru all-
ar ábendingar vel þegnar. Stofn-
unin tekur allar slíkar ábendingar
alvarlega og kannar hvað hæft er í
þeim. „Það er augljóst að fólk er
vakandi og ber að fagna því enda
er það besta verðgæslan", sagði
Jóhannes.
Bankagróðinn
Hagnaður hjá einkabönkunum
Enginnþeirra vildiþó gefa upp hve mikill hagnaðurþeirra
var á síðasta ári. Bíða verður aðalfunda þeirra
ÍUósi hins gífurlega hagnaðar
hjá ríkisbönkunum, spurðumst
við fyrir um afkomu einkabank-
anna í gær. Enginn forsvarsmað-
ur þeirra vildi gcfa upp hver af-
koman var og sögðust þeir ekki
geta gert það fyrr en á aðalfundi
þeirra. Ekki náðist í neinn svara-
mann fyrir Samvinnubankann.
Guðmundur Ágústsson hjá Al-
þýðubankanum sagði að senni-
lega yrði Alþýðubankinn við
núllið eins og hann orðaði það,
en að öðru leyti sagðist hann ekki
geta gefið afkomuna upp.
Valur Valsson hjá Iðnaðar-
bankanum sagði að afkoman
1985 væri betri en 1984 en þá var
tap á rekstri bankans. Hann var
þá spurður hvort um hagnað
hefði verið að ræða og sagði hann
svo vera en vildi ekki gefa upp að
svo komnu hve mikill hann væri.
Það sama var uppá teningnum
hjá Kristjáni Oddssyni í Verslun-
arbankanum, hagnaður á árinu
1985 eftir tapár 1984. En tölurnar
yrðu að bíða aðalfundar. -S.dór