Þjóðviljinn - 14.03.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 14.03.1986, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR Körfubikarinn Haukar úr skugga UMFN Bikarmeistarar aftur eftir hörkuspennandi úrslitaleik og 93-92 sigur Haukarnir tryggðu sér bikar- meistaratitilinn annað árið í röð í hreint ótrúlega spennandi leik. Þeir sigruðu Islandsmeistara UMFN með 93 stigum gegn 92 í Laugardalshöll í gærkvöldi. Lokamínútur leiksins voru ótrúlegar. Ellert jafnar fyrir Njarðvík 89-89 þegar 1 mínúta og 15 sekúndur eru eftir. ívar Ás- grímsson kemur Haukum yfir á ný þegar 1 mínúta er eftir. Njarð- víkingar missa boltann þegar 50 sekúndur eru til leiksloka og Henning skorar þegar 25 sekúnd- ur eru eftir, staðan þá 93-89. Jó- hannes skorar 3 stiga körfu fyrir Njarðvík þegar 15 sekúndur eru eftir. Haukarnir byrja með bolt- ann, en missa hann og Njarðvík- ingar reyna ákaft að skora en Haukavörnin er sterk. Loks þeg- ar 3 sekúndur eru til leiksloka er dæmt uppkast og ívar Webster slær boltann langt yfir á vallar- helming Njarðvíkinga og þeir náðu ekki boltanum fyrr en leikurinn var úti. Sigurgleði Haukanna í lokin var mikil. Eftir að hafa staðið í skugga Njarðvíkur í allan vetur fengu þeir loks uppreisn æru. Róleg byrjun Leikurinn var rólegur framan af, en þegar líða tók á hann fór hraðinn að aukast. Leikurinn var opinn og menn hittu mjög vel. Liðin skiptust á að vera með for- ystuna, en Haukarnir voru yfir í hléi 48-45. Haukarnir hófu síðari hálf- leikinn með miklum látum. Þeir náðu 11 stiga forskoti og þá fékk Valur Ingimundarson sína 5. villu. Bjuggust flestir við því að það myndi draga úr Njarðvíking- um, en svo fór ekki. Barátta þeirra jókst til muna og þeir söx- uðu á forskotið. Hraði leiksins jókst stöðugt og þegar 11 mínútur voru til leiksloka fór Ólafur Rafnsson útaf með 5 villur, en Haukarnir héldu alltaf 5-7 stiga forystu. Þegar 8 mínútur voru eftir náðu þeir 11 stiga forskoti á ný. Njarðvíkingar skoruðu þá 8 stig í röð og minnkuðu muninn í 3 stig. Þeir náðu svo að jafna og lokamínútunum var lýst hér að framan. Haukarnir sýndu ótrúlega góða baráttu. Þeir voru sem einn maður og lagði það öðru fremur grunninn að sigri þeirra. Þeir léku hraðan og skemmtilegan körfubolta og var þessi leikur líklega þeirra besti í vetur. Þeir Pálmar, Webster, Henning og Ólafur i, voru í lykilhlutverkum eins og fyrri daginn og skiluðu sínu mjög vel. Attu allir mjög góðan leik. Pálmar var potturinn og pannan í sóknarleiknum og ívar Webster sterkur í vörninni, hitti einnig mjög vel í sókninni. Þeir Kristinn, Eyþór og fvar Ásgrímsson áttu góðan leik og Hálfdán lék ótrú- lega vel miðað við hve lítið hann hef- ur æft. Þeir sýndu það þarna Haukarnir að þeir eru með samstillt lið og eru vel að sigrinum komnir. Njarðvfkingar léku einnig vel, þó að þeir hafi ekki náð Haukunum. Baráttan var góð og hreint ótrúlegt að sjá hvernig menn sameinuðust þegar Valur fór útaf. Mesta athygli vakti góður leikur þeirra Teits og Jóhann- esar, en Valur var undir gæslu allan leikinn og náði ekki að sýna sitt rétta andlit. Þeir Kristinn, Helgi og ísak áttu allir góðan leik og Ellert kom á óvart með mikilli baráttu lokamínút- urnar. Leikjum Hauka og Njarðvíkur hef- ur lengi fylgt gæðastimpill og eru þetta yfirleitt góðir og skemmtilegir leikir og var þessi engin undantekn- ing. Stig Hauka: Ivar Webster 28, Pálmar Sigurðsson 24, Henning Henningsson 17, Hálfdán Markússon 7, Kristinn Kristinsson 6, Ólafur Rafnsson 5, Eyþór Arnason 4 og Ivar Ásgrímsson 2. Stig UMFN: Jóhannes Kristbjörnsson 25, Teitur Örlygsson 18, Helgi Rafnsson 12, Valur Ingimundarson 10, ísak Tómas- son 9, Ellert Magnússon 8, Kristinn Einars- son 6, Hreiðar Hreiðarsson 2 og Ingimar Jónsson 2. Pálmar Sigurðsson, fyrir- liði Hauka: „Þetta var hraður og skemmtilegur leikur og bæði liðin hittu mjög vel. Liðin komu vel stemmd til leiks og við vorum ákveðnir í að halda í titilinn. Við tókum Val stíft og það kom okk- ur á óvart hvernig þeir tvíefldust þeg- ar hann fór útaf. Við unnum þetta á góðri breidd, við misstum 3 menn útaf og þeir sem komu inná komu beint inní leikinn. Það skipti líka miklu máli að við vor- um að fá trú á okkur. Ég hefði ekki mætt í vinnuna ef við hefðum tapað, en sem betur fer unnum við og ég held að við höfum átt það skilið. Einar Bollason, þjálfari Hauka: „Það er stórkostlegt að enda þetta svona og það er ekkert vafamál að þetta eru tvö langbestu liðin í dag. Við höfðum undirtökin allan síðar hálfleikinn og vorum betri. Það sýnir Pálmar Sigurðsson, fyrirliði Hauka, lyftir bikarnum eftirsótta. Mynd: E.ÓI. Cora Barker, fyrirliði KR, með bikarinn. Mynd: E.ÓI. HandboltUbikar ^ Fram vann IBK Leiðrétting Þróttur áfram í blaðinu í gær snerust við úrslitin í leik Ármanns-b og Þróttar í bikar- keppninni í handknattleik. Það voru Þróttarar sem unnu leikinn 34-33 og komast áfram í keppninni og biðjumst við velvirðingar á ruglingnum. Spútniklið ÍBK í handknattleik sem vann 3. deildina örugglega í vetur mætti ofjarli sínum í 1. deildarliði Fram í bikarkeppn- inni í Keflavík í gærkvöldi. Keflvíkingar stóðu þó í Frömmurum í fyrri hálfleik og lyktaði honum með stöðunni 10-9 fyrir Fram. f seinni hálfleik höfðu piltarnir úr Álftamýrinni öll ráð í hendi sér og sigruðu með 28 mörkum gegn 20. Hermann Björnsson var markahæstur í liði Fram með 9 mörk, Dagur Jónasson skoraði 8 og Egill Jóhannsson 3. Gísli Jó- hannsson var drýgstur í liði ÍBK og skoraði 7, Freyr Sverrisson skoraði 5 og Theodór Sigurðsson 4 mörk. í Vestmannaeyjum stóð til að 3. deildarlið Týs keppti við 1. deildarlið KA í sömu keppni en norðanmenn komust ekki til Eyja sökum ófærðar. ÞH kannske best andann í liðinu að Hálf- dán, sem kemur inná hefur lítið æft og hefur lítið úthald, keyrir hreinlega áfram á baráttunni. En það sem ein- kennir þetta lið er sterk trú.“ Gunnar Þorvarðarson, þjálfari UMFN: „Mistök dómara að taka af okkur stig (þriggja stiga skot Jóhannesar) og þannig jafntefli og framlenging. Og ég er ekki þannig maður að ég sætti mig við annað sætið. En þetta var hraður og skemmtilegur leikur, rétt eins og bikarleikir eiga að vera og ég óska Haukunum til hamingju með sigurinn.“ Þrjú stig? Um miðjan síðari hálfleik átti Jó- hannes Kristjbörnsson skot fyrir utan og hitti. Njarðvíkingar héldu því fram að þetta hefði verið 3 stiga karfa, en þeir fengu aðeins 2 stig. Ekki er hægt að fullyrða svona eftirá hvort þetta var þriggja eða tveggja stiga karfa, en ef þetta hefur verið 3 stiga karfa hefði það getað skipt miklu því leiknum Íauk með aðeins eins stigs mun. - Logi. ívar Webster átti stórgóðan leik með Haukum og skorar hér tvö stiga sinna Mynd: E.ÓI. Kvennakarfa Tvöfalt hjá KR-stúlkum Sigríður skoraði 33 af47 stigum í sigrinum á IS! KR-stúlkurnar urðu í gær- kvöldi bikarmeistarar kvenna í körfuknattlcik er þær sigruðu ÍS 47-28 í úrslitaleik í Laugardals- höll. KR varð Islandsmeistari fyrir skömmu, tapaði fyrsta leik Isiandsmótsins en vann hina 11. Yfirburðalið í körfuknattleik kvenna í vetur. Fyrri hálfleikur var jafn. KR átti þá erfitt með að komast áleiðis gegn hávöxnu liði Stú- denta og staðan í hálfleik var 18- 15, KR í hag. En í seinni hálfleik náðu KR-stúlkurnar að keyra upp hraðann, Sigríður Baldurs- dóttir var í fararbroddi í fjöl- mörgum hraðaupphlaupum og þegar upp var staðið hafði KR unnið öruggan sigur. Sigríður var í miklum ham í leiknum, skoraði 33 af 47 stigum KR sem er ein- stakt hlutfall í úrslitaleik. Stig KR: Sigríður Baldursdóttir33, Cora Barker 6. Erna Jónsdóttir 5 og Kristjana Hrafnkelsdóttir 3. Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 12, Kolbrún Leifsdóttir 4, Anna Björk Bjarnadóttir 4, Vigdís Þórisdóttir 2, Ragnhildur Steinbach 2 og Helga K. Friðriksdóttir 2. —Logi/VS Föstudagur 14. mars 1986: ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.