Þjóðviljinn - 14.03.1986, Qupperneq 5
DJQÐVIUINN
Palme
Hreyfing í morörannsókn
Sœnska lögreglan hefur handtekið Svía áfertugsaldri sem
hún hefur grunaðan um aðild að morðinu á Olof Palme
Stokkhólmi — Sænska lög-
reglan tilkynnti í gær að hún
hefði handtekið mann sem
hún grunaði að hefði átt þátt í
morðinu á Olof Palme, forsæt-
isráðherra Svía.
Talsmaður lögreglunnar, Leif
Hallberg, sagði að maðurinn
hefði verið handtekinn á mið-
vikudagskvöldið. „Hann er grun-
aður um að hafa átt þátt í morð-
inu“, sagði Hallberg og neitaði að
gefa frekari upplýsingar. Lög-
fræðingur sem ræddi við hinn
grunaða sagði hins vegar að mað-
urinn væri sænskur ríkisborgari á
fertugsaaldri. Lögfræðingurinn,
Gunnar Falk, sagði að maðurinn
hefði verið í nágrenni morðstað-
arins þegar morðið var framið og
hefi ekki getað gefið fullnægjandi
skýringar á nærveru sinni.
Falk sagði í sjónvarpsviðtali að
maðurinn hefði alist upp í
norðurhluta Svíþjóðar og væri í
góðu starfi en hefði engin tengsl
erlendis. „Hann neitar því að
hafa átt nokkurn þátt í morðinu á
Palme“, sagði Falk sem líklega
tekur að sér mál mannsins.
Talsmaður lögreglunnar sagði
að maðurinn hefði verið færður
til yfirheyrslu og síðan verið
formlega handtekinn í fyrra-
kvöld. Samkvæmt sænskum
lögum getur lögreglan haft hann í
haldi í 5 daga en verður þá annað
hvort að ákæra hann eða láta
hann lausan. Talsmaður lögregl-
unnar sagði að þeir vonuðust hins
vegar til að verða búnir að taka
ákvörðun mun fyrr um framhald-
ið. Lögfræðingurinn sagði að
maðurinn hefði verið handtekinn
á heimili sínu.
Lögreglunni í Svíþjóð hafði
orðið lítið ágengt við rannsókn á
morðinu þar til í dag, ef frá er
talin birting teikningar af grunuð-
um morðingja Palmes. Hingað til
hefur lögreglan afneitað öllum
þeim tilkynningum sem borist
hafa frá ýmsum skæruliðahópum
þar sem ábyrgð er lýst á morðinu.
Hins vegar fékk lögreglan utan-
ríkisráðuneytið í síðustu viku til
aðstoðar við rannsókn morðsins.
í gær var Palme grafin gröf,
næstum gegnt þeim stað þar sem
hann var myrtur. Undirbúningur
er nú í fullum gangi fyrir jarðar-
förina sem verður á morgun. Von
Hans Holmer svarar spurningum blaðamanna. Birting teikningarinnar kallaði fram...
er á leiðtogum 90 þjóða til útfar- Foulkes einn þingmanna Verka- til að skipta um skoðun þó seint
arinnar sem hefur verið lýst sem mannaflokksins hvatti Thatcher væri og verða við útförina.
einum mikilvægasta leiðtoga-
fundi ársins. Það vakti hins vegar
mikla athygli í Englandi þegar
Margaret Thatcher lýsti því yfir
að hún yrði ekki við útförina.
Hún segist verða upptekin við
ræðuhöld á fundi íhaldsflokksins
á laugardaginn og hyggst senda
varaforsætisráðherrann, Visco-
unt Whitelaw, í sinn stað. George
Finnland
Allsherjarverkfall
Helsinki — Mestallur iðnaður
og öll utanríklsverslun í Finn-
landi stöðvaðist í gær þegar
rúmlega 240.000 verkamenn
lögðu niður vinnu sína til að
krefjast styttri vinnutíma og
hærra kaups.
Það var finnska alþýðusamb-
andið, (SAK) sem lýsti yfir verk-
fallinu. Meðlimir í sambandinu
eru 1 milljón og verkfallið stöðv-
ar lykil iðngreinar í Finnlandi.
Stærstu járn- og pappírsfyrir-
tækin hafa orðið að hætta fram-
leiðslu. Öll utanríkisverslun, all-
ar flugsamgöngur, jafnt innan-
lands sem úr landinu stöðvast.
Gert er ráð fyrir að rafmagns-
skortur geri vart við sig innan
nokkurra daga. Kaupmenn segja
að birgðir séu nægar af matvöru
en kjötskortur gæti farið að gera
vart við sig ef verkfallið stendur
lengur en eina viku. Þeir segja að
brauð- og mjólkurframleiðsla
stöðvist ekki.
Sak hefur farið fram á að
vinnuvikan verði stytt úr 40
stundum í 35 fyrir árið 1990 og
kauphækkanir verði rúmlega 3 %
á næstu þremur árum. Rétt áður
en verkfallið skall á í gær buðu
vinnuveitendur alþýðusamband-
inu að vinnuvikan yrði stytt úr 40
í 38 vinnustundir fyrir árið 1990
og kauphækkanir yrðu 2,3 % á
þessu ári og 2,5 % á því næsta.
Þessu neitaði alþýðusamb rndið
og verkfallið hófst á hádegi.
Formaður SAK, Pertti Viinan-
en, sagði að tilboðið hefði komið
of seint til þess að verkfallið yrði
stöðvað en talið var í gær að
málamiðlunartillaga væri ef til
vill ekki langt undan. Miðnefnd
alþýðusambandsins finnska kem-
ur saman á morgun og ræðir
stöðu mála.
Þau hafa ekki ætlað að verða hungurmorða í ellinni.
Marcos
Hvar er auðurinn?
Hversumiklu kom Marcos undan?
Manila — Afrit af um það bil
1,500 skjölum sem Ferdinand
Marcos tók með sér til Hawaí-
eyja frá Filippseyjum, verða
bráðlega afhent bandaríska
þinginu og stjórninni á Filipps-
eyjum. Talið er að í þessum
skjölum sé að finna sönnunar-
gögn fyrir þvi hversu miklu
fjármagni Marcos hafi tekist að
koma til Bandaríkjanna.
Stephen Solarz, bandarískur
þingmaður, sagði í sjónvarpsvið-
tali í gær að skjölin hefðu verið
tekin af Marcos þegar hann fór í
gegnum tollinn við komuna til
Hawaieyja í síðasta mánuði. Sol-
OLISt N S BILD poLISENS BILD
v Palmes mördare i ov pa\mes mördare
Umsjón:
Ingólfur
Hjörleifsson
Kjarnorkuvopn
Sovétmenn
framlengja
frystingu
Gorbatsjofsvarar
bréfi Palme ogfimm
annarra
þjóðarleiðtoga með
því aðframlengja
frystingu á tilraunum
með kjarnorkuvopn
Moskvu — Sovésk yfirvöld til-
kynntu í gær að þau ætluðu að
framlengja frystingu á tilraunir
með kjarnorkuvopn sem átti
að Ijúka 31. mars
næstkomandi. Framlengingin
gildir þar til Bandaríkin hafa
sprengt næstu tilrauna-
sprengingu.
Þetta kemur fram í svari Mik-
hail Gorbatsjofs við bréfi þjóð-
arleiðtoganna sex sem þeir sendu
Reagan og Gorbatsjof fyrir
nokkru. í svari Gorbatsjofs sagði
einnig að strax yrði hafist handa
um að búa til samning um alþjóð-
legt bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn. Frysting Sovét-
manna var sett á í ágúst á síðasta
ári og átti að gilda út síðasta ár en
var framlengd um þrjá mánuði.
Viðbrögð í Bandaríkjunum
voru á þá leið í gær að stjórnvöld
þar væru enn á móti frystingu til-
rauna með kjarnorkuvopn. Larry
Speakes, talsmaður Bandaríkja-
forseta, sagði við fréttamenn:„Sú
staða hefur komið upp að Sovét-
mönnum hefur orðið vel ágengt í
þessum málum og því er
nauðsynlegt fyrir okkur og
bandamenn okkar að halda
áfram tilraunum með kjarnorku-
vopn í náinni framtíð."
Gorbatsjof sagði hins vegar að
frystingin hefði verið Sovét-
mönnum dýrkeypt, bæði hernað-
arlega og efnahagslega en Sovét-
menn gætu ekki haldið áfram að
framlengja hana í hið óendan-
lega.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR ,/o r i n C D
HJÖRLEIFSSON/ R t U I t K
arz sagði einnig að einn af fulltrú-
um Reagans Bandaríkjaforseta
hefði sagt sér að skjölinh yrðu
afhent bandaríska þinginu og
stjórninni á Manila á næstu
dögum. Fulltrúi stjórnarinnar á
Filippseyjum sagði að Filippsey-
ingar hefðu orðið fyrir vonbrigð-
um með hversu sein bandarísk
yfirvöld væru í því að afhenda
gögnin. Hann sagði einnig að það
væri skylda Bandaríkjamanna að
afhenda þessi gögn og einnig
friðþæging henni til handa.
Þessi fulltrúi stjórnar Filipps-
eyja, Bonifacio Gillego sagðist
telja að þeir peningar sem Marc-
os hefði safnað saman í Banda-
ríkjunum næmu allt að einum
milljarði dollara. Fulltrúi stjórn-
arinnar á Filippseyjum sagði í
fyrradag að talið væri að það fjár-
magn sem Marcos hefði tekist að
koma fyrir víða í heiminum næmi
10 milljörðum dollara.
Solarz er formaður nefndar á
Bandaríkjaþingi sem sett var á
laggirnar til að rannsaka þær full-
yrðingar að Marcos og kona hans
ættu nú eignir i New York ríki
sem væru að verðgildi allt að 350
milljónir dollara.
Föstudagur 14. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA