Þjóðviljinn - 21.03.1986, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 21.03.1986, Qupperneq 8
GLÆTAN „Haföu fyrirsögnina: Ungtfólk á uppleið", sagði Ólafur Guð- mundsson, 21 árs gamall á upp- leið, sem blm. Glætunnar tókst að fá í lauflétt viðtal, fyrir gamalla vina sakir, til að forvitnast um feril hans. Byrjum þegar þú varst fímmtán ára. Þá fluttirðu til Sví- þjóðar. Af hverju og hvernig var? „Ég flutti út með mömmu því hún var að fara í nám þar og ég fylgdi bara með. Ég ætlaði að klára grunnskólann þarna úti og fara svo í sænskan menntaskóla en ég fór heim eftir eitt ár“. Enginn uppakomplex „Við bjuggum í smábæ rétt fyrir utan Lund. Hann heitir Kávlinge. Mér gekk mjög vel í skólanum, var t.d. hærri en Sví- arnir í sænsku. Þetta er ekkert mont. Ástæðan er kannski sú að íslenskan er flóknari en sænskan og því er maður vanur að þurfa að velta fyrir sér málinu. Svo lagði ég líka meira á mig en sænsku krakkarnir því ég stefndi jú að því að fara í menntó en ekki var metnaðinum fyrir að fara hjá krökkunum í þessum smábæ. Lífið hjá strákunum snýst um það að verða kallar, ná sér í kerlingu og vera þarna áfram alla ævi. Þarna var sláturhús sem hægt var að fá vinnu í án þess að hafa mikla menntun og þau stefndu mörg að því að vinna þar. Sem sagt enginn uppakomplex hjá þeim“. Náði ekki kontakti Af hverju fórstu svona fljótt heim? „Það var þroskandi að prófa þetta en ég bara náði ekki kon- takti við krakkana, var utan við. Ég umgekkst mest fullorðið ís- lenskt fólk sem var þarna og ég saknaði vinanna heima. Þó að ég hafi verið hár í sænsk- unni á prófum þá gat maður lítið tjáð-sig. Fólkið talaði skánsku sem er hryllingur að skilja svo ég skellti mér bara heim. Það er að mínu mati frekar erfitt að flytja milli landa á þessum aldri“. Leigði hjá afa „Þegar ég kom heim, án mömmu, fór ég að leigja í íbúð- inni hans afa og svo byrjaði ég í MH“. Komstu inn í klíku? „Já, ég byrjaði strax í leiklist- inni og maður var alltaf í klíku sem myndaðist í kringum hvert leikrit sem við settum upp. Fyrsta árið voru þetta dæmigerð „ung- lingamenntaskólapartý“. Einn í klikunni hélt alltaf partý og þar sátu allir og enginn átti pening. Skríðandi frummenn Svo fór maður seinna að vera líka í klíkum fyrir utan leiklistina". uppleið „í MH settum við oft upp mjög skemmtileg leikrit en stundum gerðum við eintómt flipp og vit- leysu. T.d. vorum við heilan vet- ur í einhverjum spunahóp þar sem við vorum í hópvinnu út frá allskyns textum. Eftir veturinn vildum við sýna einhvern afrakst- ur (og líka eignast einhvern pen- ing) og því vorum við með pró- gramm í Norðurkjallara MH. Þetta var þannig að einn var völva sem stóð á miðju gólfi og sagði allskyns speki sem við fund- um í bókinni Um veginn. Við öll hin skriðum í kringum völvuna eins og einhverjir frummenn. Þetta var ferleg vitleysa en það komu fullorðnir leikarar sem sögðu að þetta væri frábært, við hefðum verið svo einlæg, þeir göptu alveg af hrifningu“, sagði Óli og skríkti. Varstu búinn að ganga lengi með þann draum í maganum að komast í leiklistarskólann? „Nei, ég ákvað það ekki fyrir en rétt fyrir inntökuprófin að reyna að komast inn í leiklistar- skólann. Maður ætlar sér alltaf svo stórt. Ég hafði t.d. hugsað mér að fara til Frakklands, læra frönsku og látbragðsleik. En ég sem sagt komst inn í skólann hér og það er mjög gaman en getur líka verið erfitt". Ballett „Þetta er mjög tímafrekt nám. Ég hef mjög gaman af að hreyfa mig og dansa og var byrjaður í ballettskóla Þjóðleikhússins en þurfti að hætta vegna leiklistar- skólans. Þetta var of mikið". Hvað lærirðu á 1. ári í leiklist- arskólanum? „Mér finnst ég vera að læra að þekkja vinnu leikaranna. Hvern- ig maður nálgast hlutverkin í handritinu og hvernig maður út- færir karakterinn og ekki síst hvernig maður nær til áhorfand- ans. Við lærum ákveðna tækni til að ná út í sal. Svo er maður nátt- úrlega að læra að draga fram allt það sem maður hefur upp á að bjóða. í menntó gerði maður bara það sem leikstjórinn sagði manni að gera en nú er verið að víkka út möguleika manns sem leikara. Annars vil ég ekki tala mikið um þetta nám því ég er rétt að byrja“. Segðu okkur samt hvað er erf- itt við þetta og hvernig skóladag- urinn gengur fyrir sig. „Það er stundum dálítið erfitt þegar maður heldur að maður sé að gera eitthvað voðalega flott og svo er fundið heilmikið að því. Þá verður maður bara að átta sig á því að það er verið að setja út á vinnuna en ekki mann sjálfann. Stundum fer maður samt heim og heldur að maður eigi ekki eftir að geta leikið neitt almennilega í framtíðinni". Út um allar trissur „Ef ég á að segja hvernig venjulegur skóladagur er þá eru miðvikudagarnir t.d. þannig að við byrjum í leikfimi upp í Kram- húsi íd. 8.40. Svo er pása frá 10- 12. En frá 12 til rúmlega 13 er íslenskutími í Lækjargötunni og þá tekur við leiktúlkun á Frí- kirkjuveginum til kl. 18. Á kvöld- in erum við alltaf niðri í Lindarbæ þegar Nemendaleikhúsið er með sýningar. Við þurfum að sjá um ljósin og selja aðgöngumiða og fleira. Svo er dálítið heimanám. Annars fer mesta orkan í þennan flæking út um allan bæ til að kom- ast í tímana. Skólinn er á svo mörgum stöðum. Við erum sem betur fer að fá nýtt húsnæði bráð- lega“. Með það var Óli rokinn heim til að safna kröftum fyrir næsta dag. SA. FeUaheUir (1) When the going get’s tough - Billy Ocean (2) Sara - Starship (3) In a livetime - Clanad (4) Sanctify yourself - Simple Minds (5) West end girls - Pet Shop Boys (6) Burning heart - Survival (7) Living in America - James Brown (8) Great Wall of China - Rikshaw (9) Boarder line - Madonna (10) Rebei yell - Billy Idol Grammió (9) 1. Raindogs -Tom Waits (1) 2. Holidays in Europe - Kukl (6) 3. Kona - Bubbi Morthens (2) 4. Once upon a time - Simple Minds (-) 5. Mcalla - Clannad (-) 6. From the cradle to the grave - Sub Humans (-) 7. Steve McQueen - Prefab Sprout (-) 8. Kill me in the morning - Float up CP (-) 9. The missins Brazilians - Warzone (-) 10. Biography - Bob Dylan Rás 2 1. ( 1) System Addict - Five Stars 2. ( 3) Gaggó Vest - Gunnar Þórðarson, Eiríkur Hauksson ofl. 3. ( 4) King for a Day - Thompson Twins 4. ( 2) How will I know - Whitney Houston 5. ( 6) When the goin’ gets tough - Billy Ocean 6. ( 8) Tears are falling - Kiss 7. (16) Won’t Forget - Herbert Guðmundsson 8. (26) La-líf - Smartband 9. ( 9) Borderline - Madonna 10. (19) Little Girl - Sandra SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNlFöstudagur 21. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.