Þjóðviljinn - 27.03.1986, Síða 3

Þjóðviljinn - 27.03.1986, Síða 3
FRETTIR Tónlistarskóli Vesturbœjar Bonjin neitar að borga Skólinn íhúsnœðishraki. Borgin neitar að borga kennurum laun, sem henni ber skilda til samkvœmt lögum. Stórar fjárhœðir útistandandi hjá borginni. Menntamálaráðherra viðurkennir réttskólans. Alma Hansen, skólastjóri: bitnar fyrst ogfremst á börnunum Tónlistarskóli Vesturbæjar hef- ur átt í húsnæðishraki frá því um áramót, en fékk nýlega inni í Hlaðvarpanum við Vesturgötu og er starfsemi skólans komin vei í gang. Það var um áramót að skólinn missti húsnæði sitt á Vesturgötu 17. Fékk hann þá inni í KR- heimilinu og hafði það verið sam- þykkt af æskulýðsráði. Var skólinn fluttur þar inn með hljóð- færi og annað þegar borgarhag- færðingur setti sig upp á móti því að skólinn væri þarna og úthýsti honum. Að sögn Ölmu Hansen, skóla- stjóra Tónlistarskólans, hefur verið mjög erfitt að eiga við borg- aryfirvöld í sambandi við starf- semi skólans, t.d. hefur borgin neitað að borga kennurum laun, sem henni ber skylda til sam- kvæmt lögum, og á skólinn nú stórar fjárhæðir útistandandi hjá borginni. Tónlistarskóli Vesturbæjar var stofnaður haustið 1984. yoru um 130 nemendur í skólanum en kennarar voru 7. Býður skólinn upp á alhliða tónlistarnám. Einsog fyrr segir hefur borgin neitað að greiða kennaralaunin, það þrátt fyrir að Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra hafi sagt að skólinn eigi fullan rétt á þessum greiðslum. Davíð Oddsson, borgarstjóri, hafði lýst því munnlega yfir við Ölmu Hansen, að ekki stæði á sér að grgiða þetta, ef menntamálaráð- herra telji að honum bæri að gera það. Þrátt fyrir það þráskallast hann enn við. Þó skólinn fái ekki þá fyrir- greiðslu sem honum ber sam- kvæmt lögum, segir Alma að hún muni halda áfram kennslu. Hún geti ekki sinnt öllum þeim fjölda sem vill sækja nám við skólann þannig að tímabundinn samdrátt- ur verður. „Þetta bitnar fyrst og fremst á börnunum, sem byrja full af áhuga og eiga sér miklar vænting- ar af náminu. Mér finnst það ekki forsvaranlegt að borgaryfirvöld komi svona fram við þessi börn“, sagði Alma að lokum. -Sáf Lögreglan Fjölda- uppsagnir Meirihluti lögreglumanna á landinu sagði upp störfum sínum í gær og vitað er að fjölmargir lögreglumenn til viðbótar munu skila inn uppsögnum á næstu dögum. Astæðan er fyrst og fremst óánægja með launakjör og langan vinnutíma. Uppsagnir lögreglumanna koma í kjölfar samningavið- ræðna sem félag lögreglumanna á nú í við stjórnvöld. Þar er megin- áherslan lögð á stórhækkun á fastakaupi og minnkun vinnu- tíma, en yfirvinna og aukavaktir eru almennt kontnar langt fram úr hófi að mati lögreglumanna. Hafa þeir lýst vilja sínum til að koma á hagræðingu varðandi vaktir og vinnutíma þannig að kröfur þeirra þyrftu ekki að þýða hækkun á heiidarlauna- greiðslum. -Ig* Kvenréttindafélagið Skörp kvenna- pólítík Lára V. Júlíusdóttir nýkjörinn formaður Kvenréttindafélags Islands: Engar byltingarkenndar breytingar Ég á ekki von á að formennska mín í Kvenréttindafélagi íslands boði byltingarkenndar breyting- ar á starfsemi félagsins. Félagið hefur rekið skarpa kvennapóli- tík, en það mætti auðvitað hamra betur á henni hvar sem er, sagði Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur ASI og nýkjörinn formaður Kvenréttindafélags íslands í sam- tali við Þjóðviljann í gær. Kvenréttindafélagið hélt aðalf- und fyrir skömmu og þar var Lára kosin til formennsku. Fráfarandi formaður er Esther Guðmunds- dóttir, en hún baðst undan endurkjöri. Stjórn félagsins skipa auk Láru: Arndís Steinþórsdóttir varaformaður, Jónína Margrét Guðnadóttir, Erna Halldórsdótt- ir, Ásthildur Ketilsdóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Áslaug Brynj- ólfsdóttir, Valgerður Sigurðar- dóttir, Ragnheiður Guðmunds- dóttir, Kristín Jónsdóttir, Dóra Guðmundsdóttir, Edda Herm- annsdótttir, Dóra Eyvindardóttir og Sólveig Ólafsdóttir. í maí býður Kvenréttindafé- lagið konum af framboðslistum stjórnmálaflokkanna fyrir Þarf að hamra betur á baráttumálum kvenna. Mynd E. Ól. sveitarstjórnarkosningarnar til mað að halda ráðstefnu um fram- opins fundar, og í haust er áfor- tíð jafnréttismála á íslandi. -gg Háskólapólitík íhaldsstjóm í bígerð Umbótasinnar ákveða að hefja viðrœður við Vöku. Áhersla áfélagsmál Hafnarfjörður - kjörskrá Kjörskárstofn til bæjarstjórnarkosninga sem fram eiga aö fara 31. maí 1986 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni Strandgötu 6, Hafnarfiröi, á skrifstofutíma alla virka daga nema laugardaga frá 26. mars til 5. maí nk. Kærur vegna kjörskrár skulu hafa borist skrif- stofu minni fyrir 17. maí nk. Hafnarfirði, 25. mars 1986. Bæjarstjóri 1 Hafnfirðingar Bæjarstjórn hefur ákveðið að bæjarfulltrúar verði með viðtalstíma 3. og 17. apríl og 15. maí nk. milli kl. 17:00-19:00 í Ráðhúsinu að Strandgötu 6, 2. hæð. Þann 3. apríl verða til viðtals bæjarfulltrúarnir Andrea Þórðardóttir og Markús Á. Einarsson. Bæjárstjóri Móöir mín Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunarkona verður jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 3. apríl kl. 15.15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð Þorvalds Finnbogasonar við Háskóla íslands. Vigdís Finnbogadóttir. Móöir mín, tengdamóðir og amma Stjórn Félags umbótasinnaðra stúdenta í Háskólanum ákvað á fundi í vikunni að hafna við- ræðum við Félag vinstri manna og hefja þess í stað viðræður um stjórnarmyndun við Vöku, félag íhaldsmanna. Áður hafði hug- mynd umbanna um stjórn allra fyíkinga verið hafnað eindregið. „Þeir hafa orðið ástáttir um að leggja áherslu á félagsstarf í skólanum og maður getur ekki annað en hrist hausinn þegar svona er komið“, sagði Björk Vil- helmsdóttir formaður stúdenta- ráðs þegar Þjóðviljinn spurði hana álits á þessu í gær. „Fra- mundan er gífurlega mikil og erf- ið barátta í lánamálum, sjóðir LÍN eru að tæmast og frumvarp Sverris Hermannssonar um breytingar á sjóðnum geta komið upp á yfirborðið hvenær sem er, en það virðist ekki skipta umba og íhaldsmenn nokkru. Þeir ætla að setja í fluggírinn í fél- agsmálum", sagði Björk í gær. -gg Olga Valdimarsdóttir frá Æðey verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 2. apríl kl. 15. Anna Jensdóttir Sigurður Jónsson Arnaldur Sigurðsson, Árdís Sigurðardóttir, Olga Sigurðardóttir. Fimmtudagur 27. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.