Þjóðviljinn - 27.03.1986, Page 5

Þjóðviljinn - 27.03.1986, Page 5
Lukkupottar og lán útá framtíðina Eftir Hörð Bergmann Það er búið að segja margt um þáttaskil sem síðustu kjarasamn- ingar marka í verðbólgustríðinu, þann kaupmátt sem þeir eiga að tryggja og hverjir hagnast á þeim og hverjir ekki. Minna hefur ver- ið rætt um siðferðilegan grund- völl þeirra og væntanlega áhrif á framtíðarhorfur þjóðarinnar. Mótast þeir af sömu skammsýni og alltaf er verið að kvarta um í þjóðmálaskrifum - eða bera þeir vott um einhvers konar endur- fæðingu, ábyrgðartilfinningu gagnvart framtíðinni? Hér á eftir verður fitjað upp á umræðu um þetta efni. Það er alveg jafn mikilvægt að meta pólitísk stór- tíðindi frá siðferðilegu sjónar- miði eins og efnahagslegu. Neyttu nú - borgaðu seinna Versti gallinn á kjarasamning- unum frá siðferðilegu sjónarmiði er sá að þeir hvíla m.a. á grunni sem ríkissjóði er ætlað að leggja með því að taka há og dýr lán. Ein leiðin, sem farin er til að halda kaupmætti og hækka hann lítil- lega, er sú að lækka vöruverð með því að lækka tekjur ríkis- sjóðs af aðflutningsgjöldum, tekjuskatti o.fl.. Til þess að mæta þessu tekjutapi samþykkti Al- þingi að heimila fjármálaráð- herra að auka áætlaðar lántökur innanlands um 850 milljónir. Nokkur hundruð milljóna þarf til viðbótar til að brúa það bil milli tekna og gjalda rfkissjóðs sem samningarnir skapa. Til þess að ná í lánsfé af þeim sem eiga peninga í þessu landi hefur ríkissjóður að undanförnu „Versti gallinn á kjarasamningunum frá siðferðislegu sjónarmiði ersá að þeir hvíla m. a. á grunni sem ríkissjóði er œtlað að leggja með þvíað taka há og dýrlán“. verið að bjóða 9% vexti auk veð- tryggingar. Lán tekin með slíkum afarkostum tvöfaldast að raun- gildi á rúmlega átta árum. Við erum því enn við sama heygarðs- hornið - ætlum að éta sæmilega í dag og borga á morgun. Þeir sem kynnu að halda að síðustu kjara- samningar beri vott um sérstaka ábyrgðartilfinningu verða að læra lexíuna sína að nýju. Það bætir enginn kjör sín með því að slá lán fyrir matnum nú og greiða það á tvöföldu verði eftir átta ár eða með öðrum tilsvarandi hætti. Þeir sem hafa rýnt í samnings- ákvæðin vita líka að farið er enn lengra en fyrr út á þá braut að láta ríkissjóð borga vexti (vaxtamis- mun) fyrir þá sem fá lán úr Bygg- ingarsjóði ríkisins. Þeir sem eiga eftir að reyna að hreiðra um sig í landinu eiga sem sagt að borga hluta af fjármagnskostnaði þeirra sem eru að byggja yfir sig núna. Skammsýnin og ábyrgðarleysið, sem einkennir margt í íslenskri pólitík, fær því nýjar víddir í um- ræddum kjarasamningum. Ábyrgðartilfinning þeirra sem gerðu þennan samning virðist svo einskorðuð við að láta verðbólg- una hjaðna að hliðarverkanir meðalanna gleymast. Tilviljanakenndar tilfærslur í ákafa verðbólgubaráttunnar eru nú t.d. tugir og hundruð þús- unda færð til og frá fólki með til- viljanakenndum hætti vegna á- kvæða í kjarasamningunum og lána sem sett eru vegna þeirra. Sá sem seldi bílinn fyrir nokkru fyrir samninga og keypti annan eftir þá „græðir “ (?) nokkra tugi þús- unda á skiptunum. Sá sem keypti gamla bílinn hans tapar að sama skapi. Sá sem ætlaði að selja bíl- inn sinn til að eiga fyrir afborgun af húsnæðisláninu í maí situr í súpunni. Þeir sem keyptu mynd- bandstæki fyrir jól eru óheppnir. Kjarasamningar þessir skapa al- veg nýjar forsendur fyrir því að detta í lukkupottinn. Maður verður að keppast við að kaupa til þess að njóta þess sent þeir bjóða upp á! Auðvitað er öldungis óþarft að láta kjarasamninga hafa tilvilj- anakennd áhrif á hagi manna með þeim hætti sent hér er ýjað að. Það var vandalaust að fara hægar í sakirnar og leyfa fólki að átta sig á hvað væri að gerast og ætti að.gerast. Lækka t.d. tolla á bílum um 10% nú og 10% unt næstu áramót. Ef launþegar í landinu hafa meiri áhuga á að bíl- ar séu ódýrir en að ríkissjóöur standi í framkvæmdum og rekstri. Hafa þeir verið spurðir unt það hvort þeirn þyki vænna unt bíl sinn en barnaskóla svo dæmi sé tekið? Með almennum orðum mætti spyrja hvort launþegasamtökin hafi í alvöru tekið þá stefnu að þrengja að samneyslunni til að auka einka- neysluna. Grundvallar- spurningum ósvarað Því ntiður er ekki hægt að kom- ast hjá því að varpa fram spurn- ingum um hvað menn kjósa helst, úr því ekki er hægt að fá allt. Þetta sent við köllum á hátíðlegu rnáli forgangsröð. Ég býst ekki viö að neinn vilji draga í efa að með síðustu kjarasamningum hefur verið þrengt að sam- neyslunni. því sem ætlunin er að leggja fé til úr ríkissjóði og sjóð- um sveitarfélaganna. Nýju lánin jafna ekki metin - og þrengja kosti okkar í framtíðinni. Þetta hefur verið gert í því skyni að reyna að halda einkaneyslunni uppi. Og bæta stöðu fyrirtækj- anna sem fá lægri flutnings- og orkukostnað og losna í sumunt greinum við að borga launaskatt. Mér er spurn: Hvernig ætla op- inberir starfsmenn að styrkja stöðu sína til frambúðar með þeirri stefnu að þrengja að sam- neyslunni, draga úr fjárráðum ríkissjóðs og sveitarfélaga? Hlýtur það ekki að bitna á kaupinu þeirra áður en langt um líður? Er kannski ætlunin að leggja einhverja opinbera starf- senú niður til að komast hjá því? Hvar fer frani umræða þar sem þessi mál eru skoðuð í því sam- hengi sem verður að skoða þau í hvort sem okkur líkar betur eða verr? Hverjir ráða? Hverjir gleðjast? Siðferðilegan grundvöll samn- Framhald á bls. 6 Eflum innri umræðu í flokknum eftir Ingólf V. Gíslason Nýju lýðrœðisöflin höfðu það frarn að fœra að hafaþyrfti nánara samráð við borgarbúa, tala við fólkið og jafnvelhlusta áþað. Ekki varð þess vart að hinir eldri jálkar andmæltu þessu Síðasti landsfundur Alþýðu- bandalagsins þótti nokkrum tíð- indum sæta. Mun margt hafa ver- ið skrafað og skeggrætt fyrir og eftir þann fund en þar eð mikið af þeirri umræðu fór fram í öðrum blöðum en Þjóðviljanum sem og í símum og skúmaskotum nýttist hún sósíalískri hreyfingu ver en skyldi. Nú er að mörgu leyti erfitt fyrir þá sem dveljast erlendis eins og undirritaður, að fá heildar- mynd af því, sem er að gerast á íslandi, en þó virtist svo sem Al- þýðubandalagið væri að rísa úr öskustónni. Nýtt fólk með fersk- ar hugmyndir og öðruvísi áhersl- ur væri að hasla sér völl. Nokkuð af því fólki tók síðan þátt í forvali flokksins í Reykjavík og skrifaði í Þjóðviljann í því sambandi og var kynnt þar nokkuð. Verður ekki annað sagt en að sú sýning öll hafi valdið vonbrigðum. Mér gekk ákaflega illa að finna einhver át- akaefni í þeirri ameríkaníseruðu auglýsingastofukynningu á fram- bjóðendum, sem Þjóðviljinn stóð fyrir og ég varð litlu fróðari af þeim skrifum frambjóðenda sem í Þjóðviljanum birtust. Allt virtist þetta vera ákaflega velmeinandi fólk og þó einn léti þess getið að sér væri sérlega annt um að sinna þörfum unga fólksins og annar að staða gamla fólksins hvíldi þungt á sér, er ég nokkuð sannfærður um að allir frambjóð- endur geta sameinast um að vilja gera ungu fólki og gömlu gott og jafnvel einnig þeim sem á miðj- um aldri eru. Einn taldi sér reynslu til tekna en annar reynsluleysi og þegar upp var staðið kom í ljós að list- inn þótti sigurstranglegur þar eð á honum væri hæfileg blanda reynds fólks og reynslulauss. Nýju lýðræðisöflin höfðu það fram að færa að hafa þyrfti nán- ara samráð við borgarbúa, tala við fólkið og jafnvel hlusta á það. Ekki varð þess vart að hinir eldri jálkar andmæltu þessu. Þeir sem leituðu að pólitískum ágreinings- efnum, nýjum raunhæfum til- lögum eða einhverju bitastæðu höfðu fátt uppúr krafsinu. Nú má það vel vera að þetta sé nýi stíllinn margumræddi, sem víða 'erlendis hefur gefið góða raun. Ekkert má segja sem hægt er að hanka mann á. En mér er nú þannig farið að þykja þetta held- ur lágkúrulegt, sérstaklega af só- síalistum og ekki vænlegt til ár- angurs eigi að breyta samfélag- inu. Því þó ekkert sé sagt verða menn þó trúlega, að gera eitthvað komist þeir í valdaað- stöðu og þá tala verkin. Og er þá hætt við að flestir verði fyrir von- brigðum. Ef til vill er ég of þolinmóður. Vera má að Reykjavíkurdeildin sitji nú sveitt við að sjóða saman kosningastefnuskrá þar sem lið fyrir lið verði sagt hvað Alþýðu- bandalagið vill gera í borginni og hvernig. (Og ég á ekki við að rað- að sé saman setningum af gerð- inni „AB í Reykjavík vill bæta hag fatlaðra og stuðla að þvi að listir blómgist“). í þeirri von að eitthvað sé í gerjun og talið um aukið lýðræði meira en orðin tóm vil ég koma á framfæri nokkrum hugmyndum sem mér þætti eðli- legt að bandalagið tæki upp. 1. Að ákveðinn hundraðshluti borgarbúa geti með undirskrift sinni krafist bindandi atkvæða- greiðslu meðal borgarbúa um til- tekið mál. Ákveðinn hundraðs- hluti borgarfulltrúa gæti gert sömu kröfu. 2. Borginni verði skýrar skipt í hverfi og íbúar hverfanna fái neitunarvald um skipulagsbreyt- ingar innan þeirra. 3. Smíðuð verði áætlun um hvernig tryggja megi starfsfólki borgarfyrirtækja meirihlutavald í stjórnum þeirra. í kosningastefnuskrá þyrfti að orða kröfurnar þannig að fólki sé fullljóst hvað það er að kjósa yfir sig og geti fylgst með að staðið sé við gefin fyrirheit. Framgangur þessara hugmynda væri stór þátt- ur í þeirri lýðræðislegu um- sköpun íslensks samfélags sem mér skilst að Alþýðubandalagið vilji berjast fyrir. Þó þessar hugmyndir séu mið- aðar við Reykjavík eiga þær að sjálfsögðu ekki síður við önnur bæjarfélög og raunar landið í heild. Ég sé í Þjóðvilja sem mér var að berast að innan flokksins sé að fara af stað lýðræðisnefnd einhvers konar og er þessu hér með komið á framfæri við hana. Flokkurinn þarf raunar víða að taka til hendi ef lýðræðiskrafan á að verða verulega trúverðug. Til að efla innri umræðu í flokknum væri eðlilegt að gefa út fyrir fé- laga fjölritað blað þar sem skoðanaskipti færu fram og hægt væri að ræða stefnumótun svo hún sé ekki eftirlátin forystu (þ.e. þingflokki) bandalagsins. Einnig virðist eðlilegt að flokk- urinn taki upp kröfuna um hlut- fallskosningar í stjórnir verka- lýðsfélaga og annarra fjöldasam- taka. Væru þessi mál tekin upp og tækist að bera þau fram til sig- urs væru stór skref stigin í þá átt að grafa undan ægivaldi íhalds og siðspillingar á íslandi og opna samfélagið. Ingólfur V. Gíslason stundar nám ■ Lundi í Svíþjóð. Fimmtudagur 27. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.