Þjóðviljinn - 26.04.1986, Side 1
Holland
Ruddalegir
leigu-
bílstjórar
Haag - Hollenskir bílstjórar
hafa nú verið skikkaöir til að
taka próf í almennri kurteisi og
góðurr) siðum.
Þeir munu vera annálaðir fyrir
ruddaskap gagnvart viðskipta-
vinurn, eftir því sem segir í skýrsl-
um hollenskra neytendasamtaka.
Eiga þeir að gangast undir sér-
stakt próf sem mælir „eðlisþætti
samskiptaforma þeirra", eins og
segir í tilkynningu Hins konung-
lega hollenska flutningasam-
bands.
Salvör Nordal með eitt Picassomálverkið: „Þetta verður mikil og falleg sýning". (Mynd Sig.)
Málverk Picassos
Valin sérstaklega
fyrir Listahatid
55 málverk og teikningar. Lögregluvarsla allan sólarhringinn.
Nokkrar myndanna aldrei verið sýndar áður opinberlega
Nú eru myndirnar komnar
hingað til lands og komnar í
skothelda geymslu þar til sýn-
ingin verður sett upp cn hún
opnar 31. maí, sagði Salvör
Nordal framkvæmdastjóri
Listahátíðar er Þjóðviljinn f'or-
vitnaðist um Picassomálverkin
sem verða sýnd hér á Kjarvals-
stöðum í vor. „Þetta eru 55
myndir í allt, aðallega málverk
en nokkrar blýantsteikningar
eru með líka. Elsta myndin er
frá 1920 og þær yngstu frá 1971
og 72. Meðal þessara mynda cru
23 myndir sem voru á sýningu í
Avignon 1973 og var stolið það-
an. Það var mikið mál þá eins og
geta má nærri en svo fundust
þær aftur en hafa ekki verið
sýndar síðan fyrr en núna“.
Sýningin verður í austursal
Kjarvalsstaða og Jacqueline
Picasso ekkja málarans mun
koma hingað til lands og stjórna
uppsetningu sýningarinnar.
Ríkið sér alfarið um trygginga-
málin sagði Salvör enda eru
þessi málverk milljarðaverð-
mæti. Stöðug varsla verður á
sýningunni, bæði dag og nótt og
sagðist Salvör gera ráð fyrir að
lögreglan tæki hana að sér.
Aðspurð hvernig það hefði
komið til að þessar myndir
kæmu hingað á listahátíð sagði
Salvör það hafa verið í gegnum
Erro. „Þau sátu saman ásamt
einum vini sínum og voru að
drekka morgunkaffi og tala um
sýningar á Picassoverkum og
Erro sagði „Af hverju ekki á
Islandi?" „Já, af hverju ekki?“
mun frúin hafa svarað og þar
með fór boltinn að rúlla“.
„Þetta eru allt myndir úr
einkasafni frúarinnar, nokkuð
margar þekktar myndir eru
þarna með, - allflestar hafa
myndirnar verið sýndar áður en
þó eru málverk þarna sem hafa
ekki farið áður á sýningar." Sal-
vör sagðist auðvitað vera stress-
uð yfir aö vera með þetta í
höndunum en hún hefði verið
mikið fegin þegar flugvélin var
lent með allt heilt innanborðs.
Myndirnar komu beint úr safni
frú Picasso og fara beint þangað
aftur. „Þær eru valdar sérstak-
lega fyrir þessa sýningu" sagði
Salvör að lokum. ing.
Borgarmötuneyti
Allt að 80% hækkun
Matarmiðar ímötuneyti borgarinnar við Skúlatún hœkkaðir um allt að 80%.
Engar skýringar. Haraldur Hannesson: Munum óska eftir skýringum. Leggjum
áherslu á að verðlagi verði haldið í skefjum
Þessari hækkun var skcllt á al-
veg óforvarindis og okkur
þvkir þetta auðvitað óeðlilegt á
sama tíma og talað er um að halda
eigi verðlagi í skefjum, sagði
starfsmaður á Vélamiðstöð
Reykjavíkurborgar í samtali við
Þjóðviljann í gær, en matarmiðar
í mötuneyti borgarinnar við
Skúlatún hafa verið hækkaðir um
allt að 80%, án þess að nokkrar
skýringar hafi verið gefnar á
hækkuninni að sögn starfs-
manna.
Starfsmenn Vélamiðstöðvar-
innar og fleiri starfsmenn borgar-
innar borða hádegismat í þessu
mötuneyti. Á mánudaginn var
hækkuðu matarmiðar talsvert.
Þannig kostar kjötmáltíð með
súpu nú 180 krónur en kostaði
áður 100 krónur, sem var staðlað
verð allra máltíða fyrir hækkun.
Eftir hækkun kostar fiskréttur
með si^pu 120 krónur. Hægt er að
fá einungis súpu og eina
brauðsneið með smjöri á 60 krón-
ur, en ef keyptur er aðalréttur
fæst ekkert brauð, segja starfs-
menn.
„Við munum óska skýringa á
þessu, þeir þurfa að færa fyrir því
gild rök að þessi hækkun sé rétt-
lætanleg. Það er beinlínis hluti af
síðustu kjarasamningum og við
leggjum auðvitað á það mikla
áherslu að verðlagi verið haldið í
skefjum," sagði Haraldur Hann-
esson formaður Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar og for-
maður Verðgæslunefndar BSRB
þegar Þjóðviljinn bar þetta undir
hann í gær.
Til samanburðar má geta þess
að matarmiðar í mötuneyti borg-
arinnar í Austurstræti kosta 85
krónur og í öðrum mötuneytum
borgarinnar er verðið svipað,
sums staðar lægra, sums staðar
hærra. Mötuneytið við Skúlatún
var því í hærri kantinum fyrir
hækkun.
Haraldur sagði í gær að sam-
kvæmt samningum hefðu fulltrú-
ar starfsmanna rétt á að skoða
reikninga mötuneytisins og sá
réttur yrði iíklega nýttur í þessu
tilviki.
-gg
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Arnarflug
Helgi með
46 þúsund
kr. útsvar
Helgi Þór Jónsson, sem snar-
aði út 3 miljónum króna til að
staðgreiða hlutabréf Flugleiða í
Arnartlugi, - var með 46 þúsund
krónur röskar í útsvar og að-
stöðugjald á sl. ári.
Sjá bls. 5
Innflutningur
Útlendu
grænmeti
pakkað
Davíð Scheving hefur hafið
innflutning á 11 tegundum af
frystu grænmeti frá Danmörku
og hefur komið hér upp fullkom-
inni pökkunarstöð. Oskar Þor-
móðsson hjá Sól h.f. sagði að
þetta hefði byrjað um síðustu jól
með innfiutningi á jarðarberjum
en nú væru tegundirnar orðnar
11.
Niels Marteinsson hjá Sölute-
lagi garðyrkjumanna sagðist að-
spurður ekki hafa trú á því að
þessi innflutningur drægi neitt úr
sölu innlends grænmetis vegna
þess að fólk tekur alltaf ferskt
grænmeti framyfir frosið. Aftur á
móti væri gott að hafa á boðsól-
uni frosið grænmeti þegar ferskt
er ekki til. -S.dór
Grásleppuhrogn
Umtalsverð
hækkun
Verðhœkkunin nemur
13% ígjaldeyrien vegna
hœkkunar þýska marks-
ins erhœkkunin enn
meiri.
Umtalsverð verðhækkun hefur
orðið á grásleppuhrognum
frá því í fyrra. í fyrra fengust 925
v-þ mörk fyrir 105 kg. tunnu en
nú fást 1050 mörk í'yrir sama
magn. Þetta segir þó ekki alla sög-
una, því að vegna hækkunar á
þýska markinu er hækkunin hér
innanlands raunar mun meiri. í
fyrra fengu menn 12-13 þúsund
krónur fyrir tunnuna en í ár 17
þúsund krónur.
Alfreð Þórsson hjá Steinavör,
sem er stór útflutningsaðili grá-
sleppuhrogna, sagði að fyrir
norðan væru grásleppuveiðar
hafnar fyrir all nokkru og hefðu
gengið sæmilega. Hér syðra og
fyrir Vesturlandi væru veiðarnar
rétt að hefjast.
Verð á grásleppuhrognum frá
sjómönnum til verkenda er frjálst
og liggur á bilinu 75-113 krónur
fyrir kflóið. Sumir grásleppukarl-
arnir verka hrognin sjálfir en aðr-
ir veiða bara og selja til verk-
enda.
Skortur er nú á hrognum og
mikið spurst fyrir um grásleppu-
hrogn nú. -S.dór