Þjóðviljinn - 26.04.1986, Page 14

Þjóðviljinn - 26.04.1986, Page 14
ÞJÓÐMÁL því að það verði haustkosningar, sagði Jóhanna Sigurðardóttir. —lg- Stefán Valgeirsson. Stefán Valgeirsson Framsóknarflokki Erfitt og leiðinlegt —Þetta hefur ekki gengið mjög vel og þetta hefur oft verið erfitt og leiðinlegt en það hefur líka verið það fyrr. Það hefur alltaf verið nóg að gera og þegar þing stendur stutt eins og nú þá er óvenju mikil pressa á mönnum, sagði Stefán Valgeirsson þing- maður Framsóknarflokksins. —Stærstu málin sem hafa verið afgreidd á þinginu eru að mínu mati Sveitarstjórnarlögin sem eru merkileg lög þó að ég geri ráð fyrir því að reynslan ntuni sýna að það þurfi að breyta þeim á næst- unni, en þetta er merk löggjöf og ætti að breyta ntiklu. Hvaða skýringu hefur þú á því að stjórnarþingmenn hafa tafið afgreiðslu hvers málsins á fætur öðru síðustu daga þingsins? —Menn eru ekki sammála. Menn voru ekki sammála um sveitarstjórnarlögin og sama er að segja um selinn, þar voru mikil átök. Húsnæðisfrumvarpið er mikið og merkilegt mál en ég harma að ekki skyldi tekið nægi- lega á vanda þeirra sem hafa ver- ið að byggja á undanförnum árum þó margt sé búið að gera. Átt þú von á þingkosningum í haust? —Það er ómögulegt að spá um það. Það ræðst af fjárhagsstöðu ríkissjóðs og hvort samkomulag næst um afgreiðslu fjárlaga. Auðvitað er þessi möguleikí alltaf fyrir hendi og ekki síst þeg- ar illa stendur á hjá ríkissjóði, sagði Stefán Valgeirsson. —lg- Ólafur G. Einarsson Sjálfstœðisflokki Þægilegt þing —Þegar á heildina er litið þá finnst mér þetta hafa verið þægi- legt þing. Þetta hefur ekki verið Ólafur G. Einarsson. átakaþing þó auðvitað hafi verið snarpar umræður á stundum en yfirhöfuð nokkuð rólegt, sagði Ólafur G. Einarsson þingflokks- formaður Sjálfstæðismanna. —Ég er ekki sammála þeirri gagnrýni sem heyrst hefur að þingið hafi verið afgreiðslustofn- un fyrir aðila úti í bæ. Ég tel þvert á móti að þetta sé í mjög langan tíma sem samið er um kaup og kjör í samræmi við stjórnarstefn- una en geri samt ekki lítið úr þeim þætti sem samið var um uppi í Garðarsstræti Stjórnarandstæðingar kvarta undan því að mál hafi komið seint fram og það hafi gengið illa fyrir stjórnarandstæðinga að fá mál sín í gegn, verr en oft áður. —Þeir hafa nokkuð rétt fyrir sér með sum mál sem seint hafa komið frá ríkisstjórninni. Ég tek undir, en tel að það hafi ekki komið niður á þeim málum sem þeir hafá flutt. Það hefur verið þokkalegasta samkomulag um afgreiðslu mála yfirleitt og mér finnst rétt að taka fram að stjórn- arandstaðan hefur ekki verið stjórninni til trafala á þessum lok- adögum og ég er ekki að segja þeim það til lasts, síður en svo. Hvað heldur þú með næsta haustþing. Eigum við von á haustkosningum? —Nú er of stórt spurt. Ég treysti mér ekki til að vera með spádóma á þessu stigi hvort að það verði kosningar fyrr en kjör- tímabilinu lýkur, sagði Ólafur G. Einarsson. —lg. Kristín S. Kvaran utan flokka Gengið slælega fyrir sig —Ég get ekki kallað þctta starfssamt þing. Þetta hafa verið óvenju léleg afköst í vetur og þing- haldið gengið mjög slælega fyrir sig á allan hátt, sagði Kristín S. Kvaran þingmaður utan flokka. Hvernig hefur þér sem stjórn- arandstöðuþingmanni gengið að koma málum fram? —Það er nánast útilokað. Ég kynnti snemma í vetur brýnt mál er varðar úttekt á aðstæðum barna undir 12 ára aldri. Nú á síðustu dögum þingsins er síðan samþykkt mál frá stjórnarþing- manni um úttekt á lífskjörum al- Kristín S. Kvaran. mennt. Ég lagði til við þá nefnd sem hafði málið til umfjöllunar, að mín tillaga yrði felld inní hina tillöguna en það var ekki einu sinni hlustað á það. En mér tókst með lagni, að fá það fram að minnar tillögu yrði getið í álitinu og það var gert neðanmáis við sjálft álitið. Þetta þingskjal er ör- ugglega einsdæmi og þetta er með því lengsta sem maður kemst, að verða getið neðan- máls. Hvað með næsta haustþing, heldur þú að hugsanlega komi til kosninga? —Ég ætla ekki að spá til um það. Eg hef svo oft haldið því fram að þetta stjórnarstarf gæti ekki staðið lengur og mér finnst það raunar með ólíkindum að þetta skuli hanga saman, sagði Kristín S. Kvaran. —Ig. HVAÐ ER AÐ GERAST 1ALÞÝÐUBANDALAGINU? AB - Akureyri Kosningaskrifstofan verður fyrst um sinn opin virka daga kl. 17 00 til 19.00 í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18. AB Kópavogi 1. maí kaffi Að venju verður Alþýðubandalagið í Kópavogi með 1. maí kaffi á baráttudegi verkalýðsins í Þinghóli, Hamraborg 11. Húsið opnað kl. 14.30. Kaffiveitingar, ávörp og uppákomur. Nánar auglýst síðar. Stjórn ABK Alþýðubandalagið í Reykjavík Fáið frambjóðendur á fund! Hafið samband sem allra fyrst og fáið frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík á vinnustaðafundi því oft reynist erfitt að verða við áskorun um fundi síðustu vikurnar fyrir kjördag. Hringið í síma 17500 og ræðið við Gísla Þór. Alþýöubandalagið í Reykjavík AB Akranesi Félagar og stuðningsmenn! Fundur í Rein mánudaginn 28. apríl kl. 20.30. Umræðuefni: Skólamál - Dagvistunarmál - Félagsleg þjónusta - Málefni aldr- aðra - Menningarmál - Jafnréttismál. Unnið í starfshóþum. Lokafrágangur stefnuskrár laugardaginn 3. maí og sunnudag- inn 4. maí í Rein kl. 14-18. Mætum öll - Kosningastjórn Alþýðubandalagið Hafnarfirði Opið hús Opið hús verður hjá Alþýðubandalaginu í Hafnafirði í Skálanum Strandgötu 41 á laugardagsmorgnum frá kl. 10-12 fram að kosningum. Félagar og stuðningsmenn eru hvattir til áð líta inn og taka þátt í kosningastarfinu. Heitt á könnunni og frambjóðendur á staðnum. - Kosningastjórnin. Utankjörstaða-kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins • Kærúfrestur vegna kjörskrár rennur út 16. maí. • Kjörskrá liggur frammi fyrir allt landið. • Kjósendur eru hvattir til að athuga hvar og hvort þeir eru á kjörskrá. • Að láta skrifstofuna vita af þeim sem verða líklega ekki heima á kjördag 31. maí n.k. (vegna páms, atvinnu, sumarleyfa, ferða- laga o.s.frv.). • Kosningaskrifstofan er I Miðgarði Hverfisgötu 105, risi. Símarnir eru 91-12665 og 12571. Umsjónarmaður skrifstofu er Sævar Geirdal. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið í Reykjavík Viðtalstímar borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins eru á þriðjudögum frá kl. 17.30-18.30 í Miðgarði Hverfisgötu 105. Þriðjudaginn 29. apríl verður Adda Bára Sigfúsdóttir til viðtals. ABR Adda Bára Alþýðubandalagið Hafnarfirði 1. maí kaffi í Skálanum Að venju verður oþið hús hjá Alþýðubandalaginu í Hafnarfirði í Skálanum, Strandgötu 41, á 1. maí, baráttudegi verkafólks. Boðið verður upp á veitingar og þau Sigurður T. Sigurðsson varafor- maður Verkamannafélagsins Hlífar og Sigurbjörg Sveinsdóttir iðnverkakona og stjórnarmaður í Landssambandi iðnverkafólks, flytja stutt ávörþ. Dagskráin í Skálanum hefst þegar að loknum útifundi Verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. Félagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta. Stjórn ABH. AB Kópavogi Fundur með frambjóðendum Frambjóðendur G-listans í Kóþavogi eru boðaðir til fundar í Þing- hóli þriðjudaginn 29. apríl nk. kl. 20.30. Mætum öll og tökum þátt í kosningastarfinu. AB Selfoss Opið hús að Kirkjuvegi 7 laugardaginn 26. apríl kl. 14.00. Guðrún Helgadóttir alþingismaður verður gestur okkar. Kaffi og meðlæti venju. Aprilnefndin Guðrún Aiþýðubandalagið á Suðurlandi Árshátíð Abl. á Suðurlandi verður haldin í Félagsheimili Ölfusinga í Hveragerði föstudaginn 2. maí. Hefst með borðhaldi kl. 20.30 og að því loknu verða ýmis skemmtiatriði. Miðaverð kr. 500. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Kosningaskrifstofa G-listans Mosfellssveit Skrifstofan hefur verið oþnuð í Kvennabrekku (beygja til hægri fyrir neðan Reykjalund). Skrifstofan er fyrst um sinn opin frá kl. 20.00 til 22.00 á virkum dögum, kl. 10.00-16.00 á laugardögum og 14.00 til 17.00 á sunnudögum. Síminn er 667113. Nefndin AB Hafnarfjörður Kosningaskrifstofa hefur verið opnuð í Skálanum Strandgötu 41. Opin daglega 15.- 18.30 fyrst um sinn svo og á laugardagsmorgnum. Síminn á skrifstofunni er 651925. Kosningastjórn Málefnahópar Alþýðubandalagsins Hópur um utanríkismál kemur saman til fundar í Miögarði Hverfisgötu 105 þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.00. Formaður AB Keflavíkur og Njarðvíkur Baráttu- og skemmtifund- ur verður haldinn í Verslunarmannafélags- húsinu 1. maí kl. 20.30. Ræðumaður kvöld- sins verður Birna Þórðardóttir. Frekari dag- skrá auglýst síðar. Stjórnín. Birna AB Kópavogi Kosn i ngaskrif stofa hefur verið opnuð í Þinghóli, Hamraborg 11. Oþið fyrst um sinn frá kl. 15-19. Síminn nú er 45715. Kosningastjóri er Ásgeir Matthias- son. Kjörskrá liggur frammi! ABK AB Borgarnesi Fundur í Röðli sunnudaginn 26. apríl kl. 15.00. Fundarefni: 1) undirbúningur kosninga, 2) framboðslisti AB, 3) önnur mál. Kvöldvaka 1. maí í Röðli. Dagskrá hefsl kl. 20.00. Nánar auglýst síðar. AB - Vestmannaeyjar Kosningaskrifstofa hefur verið opnuð að Bárugötu 9 (Kreml). Opið fyrst um sinn kl. 20-22 á þriðjudögum og kl. 14-16 á laugardögum og sunnu- dögum. Síminn er 1570. Umsjónarmaður skrifstofunnar er Einar Birgir Steinþórsson. AB-V- ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Æskulýðsfylkingin í Reykjavík Opinn stjórnmálafundur verður haldinn í dag laugardag kl. 14.00 í Miðgarði Hverfisgötu 105. Almennar umræður um starfið framundan o.fl. Stjórnin. 14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. apríl 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.