Þjóðviljinn - 03.05.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.05.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJOÐVILJINN 50 ARA 3 mai 1986 laugar- dagur 98. tölublað 51. örgangur DJOÐVIUINN Pýskíslenska Miljónir í sektir Ríkisskamtjóri leggur á Þýsk íslenska 38.8 miljónir króna vegna skattsvikafyrirtœkisins. Auk þess verður Þýsk íslenska að greiða 12.8 miljónir í sektir. Málinu vísað til dómsyfirvalda innan tíðar ýsk íslenska verslunarfc- íaginu hefur verið gert að greiða rúmlega 50 miljónir króna til ríkissjóðs vegna skattsvika fyrirtækisins á liðnum árum. Um er að ræða viðbótarskatta, sektir og dráttarvexti. í frétt frá Þýsk íslenska segir að „mjög hraður vöxtur félagsins á undanförnum árum hafi leitt til verulegra erfið- leika í tölvumálum fyrirtækisins sem orsökuðu mikla galla og óná- kvæmni í bókha)di“. Það er ríkisskattstjóraembætt- ið sem ákvað viðbótargjöldin og viðurlögin á Þýsk íslenska versl- unarfélagið. Um er að ræða sölu- skatt upp á 2.771.659 krónur og tekju- og eignarskatta upp á 38.824.493 krónur. Auk þess er félaginu gert að greiða í sektir og dráttarvexti samtals 12.882.207 krónur. Búist er við að eftir þennan úr- skurð ríkisskattstjóraembættisins muni skattrannsóknarstjóri fljót- lega vísa málinu til úrskurðar dómsyfirvalda gegnum Rann- sóknarlögreglu ríkisins. -v. MENNING SUNNUDAGS- BLAÐ Þýsk-íslenska Afar lík- lega til RLR „Það er afar líklegt að mál Þýsk-íslenska verslunarfélagsins verði sent Rannsóknarlögreglu ríkisins til umfjöllunar, þó ekki væri nema vegna þess hve stórt það er,“ sagði Garðar Valdi- marsson skattrannsóknarstjóri þegar Þjóðviljinn ræddi við hann í gær. Hann kvaðst ekki geta greint frá því hve langt aftur í tímann skattsvik fyrirtækisins nái fyrr búið sé að taka ákvörðun um frekari meðferð málsins. „Það sem við höfum gert er að tryggja þær skattkröfur sem ríkið hefur gert til fyrirtækisins. Það er svo hlutverk dómsvalda að leggja mat á það hvort hér er um refsi- vert athæfi að ræða og hver ber ábyrgðina á því,“ sagði Garðar. —ÞH Borgaryfirvöld Furðulegt áhugaleysi Styrkur tilSamtaka um kvennaathvarf skilyrtur. Þarf sérstaka samþykkt borgarráðs. Guðrún Agústsdóttir: Engar skýringar frá borgarstjóra. Mjög óvenjuleg afgreiðsla Borgarstjóri hefur aldrei gefið fullnægjandi skýringar á því hvers vegna styrkur til Samtaka um kvennaathvarf var skilyrtur þannig að sérstaka samþykkt borgarráðs þyrfti til að fá hann greiddan. Eg tel að öll framkoma meirihlutans í þessu máli beri þess merki að hann hefur fyrir- litningu á því starfi sem samtökin Flugslysanefnd Rann- sakaði 120 tilvik 1985 Árið 1985 áttu sér stað 120 atvik varðandi flug á íslandi sem ástæða var talin til að Flugslysa- nefnd rannsakaði. Þetta kemur fram í ársskýrslu Flugslysanefn- dar, sem kom út í gær. Það er tekið fram að lang flest þesara tilvik hafi verið minniháttar. í fyrra áttu sér stað 4 slys og óhöpp þar sem flugkennarar voru við stjórnvölinn og telur Flug- slysanefnd áríðandi að átak verði gert í því að kanna hæfni flug- kennara hér á landi. Telur nefnd- in að flugöryggi verði ekki komið í gott horf nema vel sé staðið að flugkennslu. A fréttamannafundi í gær kom það fram hjá Flugslysanefnd að tíðni óhappa og slysa í flugi hér á landi sé há miðað við fjölda flug- véla í landinu. f landinu eru nú 197 flugvélar, 3 þyrlur og 21 svif- fluga. Flugskírteini í gildi við síð- ustu áramót voru 1554 og er það um að ræða flugnema, flugmenn með-mismunandi mikil réttindi, flugvélatækna, flugvélstjóra, flugumsjónarmenn, flugum- ferðarstjóra. -S.dór vinna, sagði Guðrún Agústsdóttir borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins í samtali við Þjóðviljann í gær. Þjóðviljinn hefur skýrt frá því að borgin hefur enn ekki greitt styrk til Samtaka um kvennaat- hvarf, sem samþykktur var með ofangreindum skilyrðum við gerð fjárhagsáætlunar. Fyrir borgar- ráði liggur nú tillaga Sigurjóns Péturssonar um að styrkurinn verði greiddur og er búist við að tillagan verið afgreidd á fundi ráðsins í næstu viku. Guðrún sagði í gær að það væri mjög óvenjulegt að samþykkja styrkveitingar með slíkum skil- yrðum. „Meirihluti borgarstjórn- ar hefur sýnt þessari starfsemi furðulegt áhugaleysi, og það vek- ur sérstaka athygli að nágranna- sveitarfélögin hafa staðið sig mun betur. En ég vona að borgaryfir- völd sjái að sér í þessu máli. Það hefur komið fyrir áður,“ sagði Guðrún í gær. -gg Blásið í lúðra í broddi fylkingar á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins 1. maf. Sjá kafla úr ræðum dagsins og svipmyndir frá baráttudeginum á bls. 14 og 15. Farmgjöldin Viðskiptavinir kvarta Félag íslenskra iðnrekenda og Félag íslenskra stórkaupmanna munu kanna málið. Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri iðnrekenda: Kvartað undan hækkun er búist var við lœkkun. ÁrniReynisson, framkvœmdastjóristórkaupmanna: Erfiðara að eiga við skipafélögin eftir að Hafskip leið „Það hefur talsvert borið á því að menn hafi kvartað undan hækkunum á farmgjöldum skip- afélaganna, þegar búist var við lækkun, vegna lækkandi olíu- verðs og betri nýtingar skipanna eftir að Hafskip varð gjald- þrota,“ sagði Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra iðnrekenda í samtali við Þjóðviljann í gær. Árni Rcynisson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra stórkaup- manna, tók mjög í sama streng. „Menn hafa fundið töluverðan mun á að erfiðara er að eiga við skipafélögin eftir að Hafskip leið.“ Sagði Árni að þetta væri mál sem félagið myndi fara í al- veg á næstunni og kanna þá hvernig á þessu standi. „Við erum þátttakendur í þeirri þróun sem nú á sér stað í samfélaginu, sem stefnir að því að halda öllu verðlagi í lágmarki og farmgjöld og fjármagnskostnaður eru þeir liðir sem hafa hvað mest áhrif þar á.“ Ólafur Davíðsson sagðist ekki geta nefnt bein dæmi um hækkun farmgjalda en hinsvegar hefðu menn kvartað töluvert undan þessu. Munu iðnrekendur líkt og stórkaupmenn kanna þetta mál. —Sáf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.