Þjóðviljinn - 03.05.1986, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 03.05.1986, Blaðsíða 6
IÞROTTIR Handbolti Liðsauki til Fram? Allar líkur eru á að Framarar fái tvo efnilega leikmenn til liðs við sig fyrir næsta keppnistíma- bil. Birgir Sigurðsson, línumaður úr Þrótti, og Árni Friðieifsson, unglingalandsliðsmaður úr Gróttu og einhver efnilegasti handknattleiksmaður landsins, munu báðir hafa í hyggju að ganga í raðir Framara. Þjálfari Iiðsins verður eins og kunnugt er danski landsliðsmaðurinn Per Skaarup. —VS Evrópubikarinn Stórgóðir Sovétmenn Yfirburðir Dynamo Kiev gegn Atletico Madrid í úrslitaleiknum í Lyon og sigurinn síst ofstór Frakkland Bordeaux bikar- meistari Bordeaux varð franskur bikar- meistari í knattspyrnu á miðviku- dagskvöldið, sigraði MarseiIIes 2- 1 í úrslitaleik í París. Alain Gir- esse skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru eftir af fram- lengingu. Abdoulaye Diallo hafði komið Marseille yfir cn Jean Tig- ana jafnaði fyrir Bordeaux. —VS/Reuter Dynamo Kiev er tvímælalaust komið í hóp stórveldanna í evróp- skri knattspyrnu. Það dylst varla nokkrum sem sá frábæra frammistöðu Sovétmannanna gegn Atletico Madrid frá Spáni í úrslitaleik Evrópukeppni bika- rhafa sem fram fór í frönsku borginni Lyon í gærkvöldi. Spán- verjarnir máttu teljast heppnir að eiga möguleika í leiknum þar til 5 mínútur voru til leiksloka en tvö mörk í lokin innsigluðu sigur Kiev og úrslitin voru við hæfi, 3- 0. Sovétmennirnir komu vörn Atletico úr jafnvægi strax í byrj- un með því að pressa hana stíft. Aðferð sem jafnan hefur reynst bresku liðunum vel í Evrópu- leikjum. Þetta skilaði sér með marki strax á 5. mínútu, miðherj- inn leikni Zavarov skallaði í net- ið, óverjandi fyrir Fillol hinn arg- entínska í marki Atletico. Hver stórsókn Kiev rak aðra og Spánverjarnir hefðu lítið get- að sagt við því að vera þremur til fjórum mörkum undir í hléi, í stað 1-0. Þeir tóku á það ráð að spila gróft, að hætti spænskra þegar illa gengur, og það var ótrúlegt hve leikmönnum Kiev tókst að halda ró sinni og yfirveg- un. Þeir fengu margar slæmar byltur, leikgleðin fleytti þeim greinilega mörgum í gegnum leikinn. Atletico náði sínum besta kafla í byrjun seinni hálfleiks og þá varði Tchenov stórkostlega skot frá Da Silva úr aukaspyrnu. En Kiev náði smám saman undir- tökunum á ný og hefði átt að vera búið að bæta við markatöluna áður en Blokhin og Evtuschenko gerðu útum leikinn með góðum mörkum á síðustu fimm mínútun- um, 3-0. Sovéska liðið er mjög heilsteypt. Góður markvörður, samhent vörn sem hélt jafnvægi sínu þótt landsliðsmaðurinn Balt- asha yrði að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik. Kuznetsov (nr. 4) var þar í aðalhlutverki. Tengiliðir og sóknarmenn unnu vel saman, flestir stórsnjallir með boltann og komu vörn Atletico í bobba hvað eftir annað. Blokhin er orðinn 33 ára en þótt hraðinn sé minni en áður eru leikni hans og útsjónar- semi söm við sig. Zavarov, Yako- venko og Belanov (nr. 9,7 og 10) eru eftirtektarverðir leikmenn sem allir geta gert góða hluti uppá eigin spýtur. Atletico náði ekki að beita sínu skæðasta vopni, snöggu hrað- aupphlaupunum, að neinu gagni, Oleg Blokhin er ekki jafn fljótur nú og fyrir 11 árum þegar hann varð Evr- ópubikarmeistari með Kiev. En snillin er enn fyrir hendi, það sást vel í gær- kvöldi, og það var vel við hæfi að hann rak endahnútinn á sóknina glæsilegu sem gaf annað markið og tryggði sigur Kiev. sterk vörn Kiev sá til þess. Þar með var mesti broddurinn úr leik liðsins — það mætti einfaldlega ofjarli sínum. Landaburu (nr.10) lék einna best Spánverjanna. —VS Knattspyrna Ardiles kveður Tottenham vann Inter Milano Tottenham sigraði Inter Milano 2-1 í kveðjuleik fyrir argentínska landsliðsmanninn, Osvaldo Ardi- les, á White Hart Lane í London á miðvikudagskvöldið. Ardiles hefur leikið með Tott- enham í 7 ár en misst mikið úr vegna meiðsla. Og gegn Inter varð hann að yfirgefa völlinn eftir aðeins 8 mínútur. Tottenham Belgía Jafntefli í Brussel Anderlecht og FC Brugge skildu jöfn, 1-1, í fyrri úrslita- leiknum um belgíska meistaratit- ilinn í knattspyrnu sem fram fór á miðvikudagskvöldið. Liðin urðu efst og jöfn í 1. deildinni á dögun- um. Leikið var í Brussel og scinni leikurinn fer fram í Brugge í næstu viku. —VS/Reuter Valsmenn hafði yfirburði í leiknum en það var ekki fyrr en á lokasekúndun- um sem Clive Allen skoraði sigurmarkið. Mark Falco skoraði glæsimark strax á 4. mínútu en Liam Brady jafnaði fyrir Inter með fallegu skoti úr aukaspyrnu á 73. mínútu. Argentínumaður- inn Diego Maradona lék með Tottenham og sýndi snilldar- takta. / Rúmlega 30 þúsund áhorfend- ur mættu til að kveðja snillinginn og troðningurinn var svo mikill að seinka þurfti leiknum um 15 mínútur. Ardiles fær ágóðann af leiknum og ætti að geta tekið líf- inu með ró áður en hann tekur til við lögfræðistörfin, sem hann er menntaður til. —VS/Reuter Körfubolti Lakers sigruðu Los Angeles Lakers héldu áfram sigurgöngu sinni í úr- slitakeppni bandarísku NBA- dcildarinnar á miðvikudags- kvöldið. Þeir sigurðu þá Dall- as Mavericks 117-113. Lakers hafa þá unnið tvo fyrstu leiki liðanna en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki fer í úrslita- leik vesturstrandarinnar. —VS/Reuter Visa-lsland veitti í gær fimm íþróttamönnum 50 þúsund króna styrk hverjum vegna afreka þeirra. Þeir eru Bjarni Friðriksson, júdómaður, sem tekur við sínum hlut á mynd E.ÓL Einar Vilhjálmsson, spjótkastari, Eðvarð Þ. Eðvarðs- son, sundmaður, EinarÓlafsson, skíðamaður, og Jón L. Arnason, skákmaður. Fyrirtækið hefur hug á að gera þessa styrkveitingu að árlegum viðburði. Knattspyrna Síðbúið sigurmark Guðmundur skoraði á 93. mínútu og Fram íúrslit Nítugasta og þriðja mínútan var runnin upp I leik Fram og Vals. Áhorfendur og leikmenn bjuggu sig undir framlengingu — en Guðmundur Steinsson var ekki á sama máli. Hann fékk boit- ann í erfiðri aðstöðu í vítateig Vals, sneri sér laglega og skoraði með óvæntu skoti. Fram hafði Hreinsað til í dag í tilefni 75 ára afmælis Knatt- spymufélagsins Vals þann 11. maí efnir félagið til hreinsunar- dags í dag, laugardaginn 3. maí. Aðalstjóm Vals heitir á félags- menn að koma og taka þátt í hreinsun á félagssvæðinu. Byrjað verður kl. 9.30 og verða verkfæri og ruslapokar á staðnum. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Körfuknattleikssamband l’slands færði Guðrúnu Ólafsdóttur, umboðs- aðila fyrir Lotto-íþróttafatnað hér á landi, gullþening í fyrradag, sem þakklæti fyrir ómetanlegan stuðning hennar þegar Evrópukepþni landsliða fór fram hér á landi á dögunum. Guðrún gaf búninga og verðlaun og aðstoðaði dyggilega við framkvæmd mótsins. Myndina tók E.ÓI. þegar Guðmundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri kepþninnar, afhenti Guðrúnu peninginn og Björn M. Björgvinsson, formaður KKÍ, er til vinstri á myndinni. sigrað Val 1-0 í fyrri leik undan- úrslita Reykjavíkurmótsins og leikur til úrslita á fimmtudaginn. Valsmenn vom mun sterkari í fyrri hálfleik en Fram hafði undir- tökin í þeim síðari. Bestu færin komu á síðustu mínútunum. Fyrst var Guðmundur Steinsson kominn í dauðafæri en Stefán Arnarson bjargaði meistaralega með úthlaupi. A 88. mín. útfærðu Valsmenn aukaspyrnu á stór- skemmtilegan hátt. Vippað yfir varnarvegg Fram, Sigurjón Krist- jánsson stakk sér innfyrir og skallaði yfir Friðrik markvörð en vamarmaður Fram bjargaði á línu á síðustu stundu. Bæði lið urðu að sjá á bak lykil- mönnum. GuðmundurTorfason, Fram, yfirgaf völlinn vegna meiðsla í fyrri hálfleik og Valur Valsson, Val, var borinn af leikvelli í seinni hálfleik, meiddur á hné. —VS Samningur KSIogOLÍS KSÍfær hlut af bensínsölunni í sumar Olíuverslun íslands hf, OIís, hefur ákveðið að 5 aurar af hverj- um seldum bensínlítra á tímabil- inu maí-september renni til Knattspyrnusambands íslands. Olís ábyrgist að upphæðin nemi a.m.k. einni miljón fyrir tímabil- ið. Olís styrkti handknatt- leikslandsliðið á svipaðan hátt í vetur. í staðinn munu allir landsliðs- og æfingabúningar KSÍ verða merktir Olís, fyrirtækið fær pláss fyrir a.m.k. fjögur auglýsinga- spjöld á áberandi stað á lands- leikjum og landsliðsmenn munu koma fram á bensínstöðvum Olís, t.d. til að auglýsa landsleiki eða aðra starfsemi KSÍ. Hér er um að ræða einhvern stærsta samning sem gerður hefur verið af íslensku sérsambandi. Þórður Ásgeirsson forstjóri Olís sagði að fyrirtækið væri ekki að auka fjármagn sitt til auglýsinga með þessu heldur væri um á- herslubreytingu að ræða á því sviði. —VS Laugardagur 3. maí 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.