Þjóðviljinn - 03.05.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 03.05.1986, Blaðsíða 15
1. MAI Margrét Pála Ólafsdóttir Nátttröll og ryðgaðir herlúðrar Paö var mikill baráttuandi og stemmning á fundir Samtaka kvenna á vinnumarkaði á Hallærisplaninu. Inn á milli beittra ávarpa léku Svölurnar á létta strengi með alvarlegum undirtónum og sungu fyrir fundinn. Mestum vinsældum náði lag þeirra Skuldabankinn. Lljósm: Sig. Ragnheiður Asta Pétursdóttir Þá verður 1. maí dagur verkalýðsins Ragnheiður Ásta Pétursdóttir út- varpsþulur hélt ræðu fyrir hönd BSRB á fundi fulltrúaráðsins á Lækjargötu. Félagar, verkalýður! Sumarbyrjun, vorvindar, rauðir fánar og við samankomin hér á hátíðisdegi verkalýðsins. Nei, 1. maí er ekki hátíðisdag- ur verkalýðsins, nógu er orðnir margir dagarnir með fjálglegum hátíðisbrag. 1. maíeralþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins og við komum saman til að minnast bar- áttu og fórna brautryðjendanna og þakka þeim, líta yfir farinn veg okkar sjálfra, íhuga það sem er og hvað koma skal. Til að efla með okkur baráttuhug. Baráttuhug, nú á dögum þjóð- arsáttar? Já baráttuhug, því þjóð- arsáttin er hvergi til nema í munnum fésýslumanna, sem skipta tekjum þessarar þjóðar, hinum 6. hæstu á mann í heimi, svo réttlátlega, að fjórðungur heimila hennar hjarir undir fá- tæktarmörkum. Frelsi er annað tískuorð þeirra og frjálshyggja, frjáls álagning, frjáls samkeppni, það er frelsið til skefjalauss gróða á kostnað al- þýðu í þjóðfélagi nauðungarupp- boða og sultarlauna í góðæri til lands og sjávar. Ekki er það frelsi þeirra, sem ekkert eiga að selja nema vinnu sína, því gróðaþjóðin hefur vald, og beitir því, til að svipta launa- fólk samningsrétti og draga það fyrir dómstóla fyrir aðgerðir í vinnudeilu. Skrifað stendur: Verður er verkamaðurinn launanna. Ekki eru þau orð efst á vinsældalista atvinnurekenda nú, þegar fullvinnandi fólki er réttur fátækrastyrkur tvisvar á ári. Atvinnuvegirnir verða að bera sig, segja máttarstólparnar, en láta sig engu varða afkomu heimilanna í sveitum og bæjum landsins, vinnuþrælkun almenn- ings og allt það böl, sem hún veld- ur. Þeir beita sjónhverfingum til að telja fólki trú um að allt, sem miður fer sé óbilgirni launafólks að kenna, og margir glepjast til að trúa þeim söng. Grýlan þeirra, verðbólgan, þrífst á óþekkum verkalýð eins og forna Grýlan þreifst á óþekk- um krökkum, en hún fitnar víst bara af þeim launum, sem um er samið opinberlega, það er svo skrítið, að launaskriðið, sem er dulnefni á launamisrétti, það er að segja hálaunabæturnar, sem greiddar eru með leynd umfram það, sem um er samið, hafa engin áhrif á verðbólguna frekar en frjálst verðlag. En nú er okkur talin trú um, að senn verði hún gamla Grýla dauð, þ.e.a.s. ef við höfum hægt um okkur, en skilyrðin eru fleiri: Ef dollar verður stöðugur, hann hefur fallið um 3.85% frá ára- mótum. - Ef olíuverð helst lágt - það verður lágt meðan olíuríkin eiga í verðstríði. Og enn heldur verðlag áfram að hækka. Pað nálgast víst landráð að segja upphátt, það sem ýmsir hugsa með sjálfum sér: Leið okk- ur ekki betur áður en við gerð- umst þátttakendur í verðbólgu- krossferðinni. Verkalýðshreyf- ingin er fjölmenn, og fáum kem- ur á óvart þótt félagana greini á um leiðir, enda vill víst ekkert okkar henni svo illt, að hún verði hallelújasamkoma jábræðra og -systra. Sumir telja að leita beri nýrra leiða. Peir segja að venju- legar baráttuaðferðir okkar hafi engan veginn dugað. Kannski telja þeir nýju leiðtogar samráðs- hópa launamanna og atvinnurek- enda heppilega og vænta áran- gurs af því að við gleymum hvor- um megin samningaborðs við eigum heima. Nei, verkalýður ber enga ábyrgð á debet- og kre- ditdálkum allsnægtalýðs og ríkis- stjórna. En ekki erum við þó ábyrgðarlaus. Með láglaunastefnunni er veg- ið að þeim þáttum velferðar- þjóðfélags, sem verkalýður hefur knúið fram með áratuga baráttu og þrautum, gegn þeirri stefnu ber okkur að rísa, það er okkar ábyrgð. Fjöldi í okkar röðum lifir í sárri neyð, á honum berum við ábyrgð. Vegið er að heilbrigðis- þjónustu og jafnrétti til náms, gegn því rísum við, það er ábyrgð okkar. Félagar, í dag er 1. maí, bar- áttudagur verkalýðsins. Megi all- ir dagar verða okkur dagar bar- áttu, þar til rétti alls verkalýðs, mannsæmandi kjörum og félags- legu réttlæti er náð. Sú barátta verður ekki unnin með línuritum og glærum hag- fræðinga, brosi eða blómum. Sú barátta verður hvorki unnin með samábyrgð né samráði við þá sem að okkur vega. Hún verður ekki unnin með sundrungu og sér- hyggju heldur samtakamætti alls launafólks. Hún vinnst með því að halda áfram þá leið, sem brautryðjendurnir vörðuðu okk- ur. Með því að gleyma aldrei hvorum megin við stöndum. Þegar sú barátta er unnin verð- ur 1. maí hátíðisdagur verkalýðs- ins. Margrét Pála Ólafsdóttir flutti ræðu á fundir Samtaka kvenna á vinnumarkaði sem fórfram áHallærisplaninu. Hér eru birtir kaflar úr ræðu hennar. „En við, venjulegt launafólk, hjörðin ykkar, hljótum að krefj- ast skýringa. Hvaða gagn hafa sauðirnir af því að leiða hjörðina út í þetta fen? Eruð þið ekki kjörnir og launaðir til að starfa fyrir okkur - og jafnvel með okk- ur. Eigið þið ekki að vera í broddi fylkingarinnar í baráttunni, blása í herlúðrana og leiða okkur til sig- urs? Hvers vegna í ósköpunum ryðga lúðrarnir af notkunar- leysi?? Asmundur og Þröstur eru greinilega ekki draumahetjur fiskverkakvenna, - við þurfurn nýja forystu - og þá fyrst og fremst annars konar forystu. En það skulum við vita að ekki er nóg að skipta um forystumenn. Það eru margir fuglar í skóginum og nóg er til af Þröstum og Ás- mundum og öðrum.“ Nátttröllin mun daga uppi „Þeir sem komast til valda renna saman við báknið og velja sér samstarfsfólk - og arftaka, þegar þeir komast á eftirlaun. Og stundum er konum leyft að vera með. Nýir menn þiggja valdið frá forverum sínum - og skrifa undir það að viðhalda kerfinu og ganga inn í vitleysuna og engu má breyta - aldrei má losa um tökin. Þetta er íhaldssemi, sem ekki einu sinni Sjálfstæðisflokkurinn getur státað af. Stjórnmálaflokk- arnir hafa lagt sitt af mörkum í valdakerfið og eigna sér verka- lýðshreyfinguna með því að troða flokksgæðinum sínum að í stjórn- ir og forystu. Á þennan hátt eru gömlu flokkarnir hluti af valdak- erfi verkalýðsblokkarinnar og voga sér að kalla sig verkalýðs- flokka, út á það eitt að hafa versl- að með embætti varaforseta og forseta ASf. Þeir trúa meira að segja að flokksgæðingarnir Ás- mundar, Þrestir og Gvendar gefi flokknum sínum ítök í verkalýðs- hreyfingunni - þvílík fjarstæða. Það er nefnilega eitt að fá ítök í spilltu valdakerfi verkalýðsb- lokkar - verði þeim að góðu - en allt annað að vera í tengslum við launafólk sjálft. Þannig eru verkalýðsforystan og flokkarnir fastir í sama feni tímaskekkjunn- ar - nátttröll í okkar veruleika og þekkja ekki sinn vitjunartíma. Nátttrölla dagsins í dag bíða sömu endalok og fyrri trölla, þau ein að daga uppi.“ „í dag gengur launafólk í skugga nýgerðra kjarasamninga. Sá skuggi grúfir yfir Lækjartorgi 1. maí, en hér erum við saman komin, sem göngum lengra og viljum ýmislegt á okkur leggja - meira en göngu - til að komast út í birtuna. Á Lækjartorgi er hnípin verka- lýðshreyfing í vanda; þeim mikla vanda að sitja uppi með forystu- sauði, sem löngu hafa glatað öllum áttum - nema þá helst þeirri, sem liggur í Garðastrætið. Sú leið er auðrötuð bjöllusauðum og víst eru það engar fréttir að líkur sækir líkan heim. Fram- kvæmdastjórar, forsetar og hag- fræðingar tala sama tungumál - og trúlega er ekki mikill launamismunur á milli herranna við svonefnt samningaborð." „Á undangengnum vikum hafa svo allir þessir aðilar háð harða baráttu um útnefningu HÖF- UNDAR TÍMAMÓTASAMN- INGANNA, allir eigna sér þann vafasama heiður að „eiga samn- ingana“ - þeir þurfa ekki að ótt- ast kröfur um höfundaréttinn frá okkur hér á Hallærisplaninu." „Ég þarf ekki að lýsa efnisat- riðum samninganna hér fyrir ykkur sem fáið alla vega launayf- irlitið ennþá. Kauphækkanir voru litlar og fátækrabætur til að gauka að blessuðu láglaunafólk- inu. Og auðvitað tók því ekki að verðtryggja þessar fáu krónur, þetta svosem smottirí, sem venjulegt launafólk fær um mánðamótin. Hins vegar var far- ið að semja um alla þætti efna- hagslífsins NÝ LEIÐ sagði Þröstur - og til að lækka verð- bólgu fyrir ríkisstjórn og bjarga atvinnurekendum var upphafið eitt allsherjar hagræði- sjónarspil - og vísitalan fölsuð niður.“ Samstaða um ekki neitt „Við sem hér stöndum, hljót- um að ákæra forystumenn verka- lýðshreyfingarinnar fyrir niður- lægjandi samningamakk, fyrir samninga, sem viðhalda fátækt á íslandi. Það er of seint að afmá smán fátæktar, þegar búið er að undirrita. Og syndalistinn er lengri. Við ákærum ykkur fyrir þátttöku ykkar við að búa til handónýtt launakerfi, þar sem kauptaxtar með 30% afföllum eru kúgunartæki á láglaunafólk, konur, unglinga og aðra undir- málshópa, meðan aðrir skammta sér launin sjálfir. Verkalýðsfor- ystan veit allt, sem vita þarf um faldar tekjur, aukasposlur - m.ö.o. LAUNASKRIÐIÐ upp á 24% - þið hafið í reynd viður- kennt þetta margfalda launa- kerfi, sem atvinnurekendur hafa notað til að sundra launafólki og etja okkur saman. Þannig hafið þið sjálfir rofið samstöðuna, þið sem nú kallið á samstöðu um ekki neitt á Lækjartorgi!“ „Viljum við að verkalýðshreyf- ingin eigi sér framtíð? Þá er skylda okkar að ráðast gegn spilltu valdakerfi heildarsamtaka og flokka og afneita forræðis- hyggju þeirra. Við skulum losa kverícatak valdakerfisins af launafólki. Lögbinding og skyld- uaðild leiða ekki af sér samstöðu, þróun og endurnýjun. Dæmi þar um er Pólland sem á sína lög- bundnu ríkisverkalýðshreyfingu, en valdakerfið er að riðlast. Nei, eina lífsvon launafólks felst í ný- sköpun verkalýðshreyfingarinn- ar, og þar hafa Samtök kvenna á vinnumarkaði gegnt forystuhlut- verki - og rnunu gera áfram. Við skulum byggja raunverulegt verkalýðsafl, brjóta af okkur klafa heildarsamtakanna og berj- ast fyrir frjálsri verkalýðshreyf- ingu á íslandi.“ Laugardagur 3. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.