Þjóðviljinn - 03.05.1986, Qupperneq 12
MINNING
Helga M. Níelsdóttir
F. 2
Á mánudag verður jarðsett í
Reykjavík Helgu M. Níelsdóttir
ljósmóðir, sem lést 28. apríl sl. á
83ja aldursári. Um Helgi má með
sanni segja að þar fór framsýn
kona sem vissi hvað hún vildi og
gerði það sem gera þurfti án þess
að spyrja um fé eða fyrirhöfn.
Margt hafði ég heyrt af Helgu,
sem var amma skólasystur
minnar Auðar Eir Guðmunds-
dóttur. Það var þó ekki fyrr en
1977 þegar ég gat afsakað forvitn-
ina með blaðamannsnafnbót að
ég heimsótti hana í fylgd Auðar
ogátti við hana samtal, reyndar
mun lengra en síðurnar tvær sem
ég hafði í Þjóðviljanum þoldu.
Það sýndi sig líka að fleiri vildu
kynnast lífsstarfi Helgu, því ævi-
saga hennar „Þegar barn fæðist“
sem Gylfi Gröndal skráði, seldist
upp þessi sömu jól.
En hvað var það sem vakti
löngunina til að kynnast þessari
.6. 1903 D. 28.4.
koriu nánar? Ég hafði m.a. heyrt
að Helga hefði ásamt tveimur
ljósmæðrum öðrum verið kærð
og naumlega sloppið við tugthús
árið 1936 fyrir það eitt að vilja
svæfa sængurkonur þvert á þann
bókstaf biblíunnar sem segir að
konan skuli fæða barn sitt með
þjáningum. - Að hún hefði reist
Fæðingarheimilið við Eiríksgötu
af eigin rammleik, haldið úti at-
vinnumiðlun fyrir einstæðar
mæður sem ekki áttu í nein hús að
venda eftir barnsburð og rekið
barnaheimili svo þessar sömu
konur gætu unnið fyrir sér, kom-
ið undir sig fótunum og loks tekið
börnin til sín. Ég hafði reyndar
líka heyrt að hún hefði verið
kvenna fyrst til að taka meirapróf
á bfl og keyrt vörubfl um götur
bæjarins á því herrans ári 1931
sem ekki þótti víst par kvenlegt! í
stuttu máli sagt reyndist þetta allt
saman satt og meira til.
1986
Helga M. Níelsdóttir hóf
ljósmóðurstörf í Reykjavík 21 árs
gömul eftir 6 mánaða nám en sigl-
di fljótlega til Hafnar og kom
þaðan 1927 með fyrstu einkunn.
Þá voru skipaðar ljósmæður í
bænum aðeins þrjár og ekkert
fæðingarheimili til. Konur fæddu
börn sín heima við misjafnar að-
stæður og vandalausar konur sem
ekkert áttu heimilið gátu fengið
inni hjá góðhjartaðri gamalli
konu á Bragagötunni, þar sem
ljósmóðirin vitjaði þeirra. Helga
taldi það sína gæfu að hafa aldrei
þurft mikinn svefn og víst hlýtur
það að hafa komið sér vel 1930
þegar hún tók á móti 28 börnum á
25 dögum. Það var atvinnuleysi í
Reykjavík, fátæktin var mikil og
allsleysi á mörgum heimilum.
Feðurnir fengu viku vinnu í Flóa-
áveitunni gegn framvísun vott-
orðs frá Ijósmóður um að kona
þeirra lægi á sæng. Helga var ein
þeirra sem ekki spurði um
greiðslu áður en hún líknaði kon-
um í barnsnauð en ljósmóður-
launin voru þá 45 krónur sem
jafngiltu vikulaunum verka-
manns. Á þessum árum eignaðist
hún trausta vini og þegar hún
réðst í byggingu Fæðingarheimi-
lisins 1931-1932 án minnsta opin-
bers stuðnings komu þessir feður
og unnu dagstund við bygginguna
án þess að taka fyrir það greiðslu.
Þeir mundu að Helga hafði ekki
tekið neitt fyrir að sitja yfir hjá
þeim um árið, þó ekki þekkti hún
þá lengur með nafni. Á Fæðing-
arheimilinu var rúm fyrir 16 kon-
ur og þangað og á Fæðingar-
heimilið Sólheima við Tjarnarg-
ötu leituðu einstæðar mæður sem
eftir fæðinguna höfðu fyrir
minnst tveimur að sjá. Starfa
Helgu lauk ekki þegar hún hafði
skilið á milli. Konumar vantaði
vinnu, barnapössun og húsnæði
ef þær áttu ekki að láta börnin frá
sér. Meðan þær voru að koma
undir sig fótunum voru börnin í
umsjá Helgu og þegar Fæðingar-
heimilinu var lokað 1940 af því
sjúkrasamlagið hætti að greiða
vist nema á ríkisspítölunum, voru
þar 10 börn til heimilis, mest ung-
abörn.
Helga M. Níelsdóttir var kona
sem gekk hiklaust til verks, hún
þekkti ekki tæpitungu eða hál-
fkák. í jafnréttis- og kjarabaráttu
líðandi stundar hættir okkur oft
til að sjást yfir verk þeirra sem á
undan eru gengnir. Framlagi
Helgu M. Níelsdóttur skulum við
þó ekki gleyma því enn er þörf
baráttu til að allar konur hafi
góða aðstöðu til að fæða og sjá
fyrir börnum sínum.
Ég votta dætrum Helgu, Auði
og öðrum aðstandendum hennar
innilega samúð mína.
Alfheiður Ingadóttir.
HVAÐ ER AÐ GERAST IALÞÝÐUBANDALAGINU?
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Framhaldsaðalfundur 4. deildar
verður haldinn mánudaginn 5. maí í Miðgarði Hverfisgötu 105 kl.
20.30. 1) Kosning stjórnar, 2) Starfið framundan.
Stjórn 4. deildar
AB Akureyri
Kosningaskrifstofa hefur verið opnuð í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu
18. Opið frá 13-19. Framlögum í kosningasjóð veitt viðtaka á
skrifstofunni og á tékkareikning nr. 8790 í Alþýðubankanum Akur-
eyri. Kosningasímar eru 26013 og 25875. Kosningastjóri er Helgi
Guðmundsson og starfsmaður á skrifstofu Arnfríður Kjartansdótt-
ir.
AB - Vestmannaeyjar
Kosningaskrifstofa
hefur verið opnuð að Bárugötu 9 (Kreml). Opið fyrst um sinn kl.
20-22 á þriðjudögum og kl. 14-16 á laugardögum og sunnu-
dögum. Síminn er 1570. Umsjónarmaður skrifstofunnar er Einar
Birgir Steinþórsson.
AB Akureyri
Félagsfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18, laugardaginn 3.
mai kl. 14.00. Dagskrá: 1) málefnahópar leggja fram drög að
stefnuskrá ABA í bæjamálum, 2) önnur mál.
Áríðandi að sem allra flestir mæti. - Stjórnin.
AB Hafnarfjörður
Kosningaskrifstofa
hefur verið opnuð í Skálanum Strandgötu 41. Opin daglega 15.-
18.30 fyrst um sinn svo og á laugardagsmorgnum. Síminn á
skrifstofunni er 651925.
Kosningastjórn
Kosningaskrifstofa G-listans
Mosfellssveit
Skrifstofan hefur verið opnuð í Kvennabrekku (beygja til hægri
fyrir neðan Reykjalund). Skrifstofan er fyrst um sinn opin frá kl.
20.00 til 22.00 á virkum dögum, kl. 10.00-16.00 á laugardögum
og 14.00 til 17.00 á sunnudögum. Síminn er 667113. Nefndin
AB Kópavogur
Frambjóðendur G-listans
eru boðaðir til fundar í Þinghóli þriðjudaginn 6. maí kl. 20.30.
AB Siglufirði
Kosningaskrifstofa
hefur verið opnuð að Suðurgötu 10 Siglufirði. Opið fyrst um sinn
frá kl. 13-18 alla virka daga. Síminn er 71294.
AB Kópavogi
Kosningaskrifstofa
hefur verið opnuð í nýjum sal ABK Þinghóli, Hamraborg 11. Oþið
frá kl. 15-19 og frá kl. 10-17 á laugardögum. Símarnir eru 41746
og 641712. Kosningastjórinn, Ásgeir Matthíasson, veitir allar upp-
lýsingar.
ABK
AB Akranesi
Kosningaskrifstofa
hefur verið opnuð í Rein. Opið fyrst um sinn frá kl. 15-18 alla daga.
Síminn er 1630. Kosningastjóri er Jóna Kr. Ólafsdóttir. Kjörskrá
liggur frammi. - Kosningastjórn AB.
AB Keflavík
Kosningaskrifstofa G-listans
Skrifstofa hefur verið opnuð að Hafnargötu 49 annarri hæð. Skrif-
stofan verður fyrst um sinn opin frá kl. 20-22 á virkum dögum,
10-16 á laugardögum og 14-17 á sunnudögum. Síminn er 4198.
AB Mosfellssveit
AB Akranesi
Félagar og stuðningsmenn!
Lokafrágangur stefnuskrár laugardaginn 3. maí og sunnudag-
inn 4. maí í Rein kl. 14-18.
Mætum öll - Kosningastjórn
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Opið hús um málefni fatlaðra
verður í Miðgarði Hverfisgötu 105 sunnudaginn 4. maí kl. 14-18.
Stutt framsöguerindi: Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi,
Guðrún Helgadóttir alþingismaður, Kristín Jónsdóttir þroska-
þjálfi, Ólöf Ríkharðsdóttir forstöðumaður félagsmáladeildar
Sjálfsbjargar í Reykjavík og nágrenni, Sigurrós Sigurjónsdóttir
varaformaður Sjálfsbjargar í Reykjavík og nágrenni.
Fyrirsþurnir og umræður. Tónlist, kaffi og kökur. Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
ABR
AB Kópavogur
Hver er stefna ABK?
Fáið frambjóðendur Alþýðubandalagsins í Kópavogi á vinnustaði
og spyrjið þá um stefnu ABK í bæjarmálum. Kosningaskrifstofan
hefur milligöngu um að senda frambjóðendur á fundi. Kosninga-
skrifstofan er opin daglega frá 15-17 og kl. 10-17 á laugardögum.
Símarnir eru 41746 og 841712.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
AB- Vestmannaeyjar
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum að
Bárugötu 9 (Kreml) er oþin mánudaga-fimmtudaga kl. 20-22,
föstudaga kl. 15-19 og 20-22, laugardaga 14-16. Lítiö inn og
ræðið bæjarmálin. Kaffi á könnunni. Síminn er 1570. Kosninga-
stjóri er Einar Birgir Steinþórsson.
ABV
AB Akureyri
Bæjarmálaráð
er boðað til fundar í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 mánudaginn 5.
maí kl. 20.30. Dagskrá: 1) Farið yfir dagskrá bæjarstjórnarfundar
6. maí, 2) Önnur mál.
Stjórnin.
AB Selfoss og nágrennis
Opið hús
laugardaginn 3. maí kl. 14-17 að Kirkjuvegi 7. Gestur dagsins er
Garðar Sigurðsson alþingismaður. Kaffi og meölæti. Allir vel-
komnir. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Opið hús
Opið hús verður hjá Alþýðubandalaginu í Hafnafirði í Skálanum
Strandgötu 41 á laugardagsmorgnum frá kl. 10 - 12 fram að
kosningum.
Félagar og stuðningsmenn eru hvattir til að líta inn og taka þátt í
kosningastarfinu. Heitt á könnunni og frambjóðendur á staðnum.
- Kosningastjórnin.
Utankjörstaða-kosningaskrifstofa
Alþýðubandalagsins
• Kærufrestur vegna kjörskrár rennur út 16. maí.
• Kjörskrá liggur frammi fyrir allt landið.
• Kjósendur eru hvattir til að athuga hvar og hvort þeir eru á
kjörskrá.
• Að láta skrifstofuna vita af þeim sem verða líklega ekki heima á
kjördag 31. maí n.k. (vegna páms, atvinnu, sumarleyfa, ferða-
laga o.s.frv.).
• Kosningaskrifstofan er í Miðgarði Hverfisgötu 105, risi.
Símarnir eru 91-12665 og 12571.
Umsjónarmaður skrifstofu er Sævar Geirdal.
Alþýðubandalagið
AB Reykjavík
X-G OPIÐ HÚS DAGLEGA X"G
í kosningamidstödinni Miðgarði Hverfisgötu 105
Kosningaskrifstofa ABR í Miðgarði er opin kl. 10-18 alla virka daga. Það er hægt að fá
upplýsingar um kjörskrá og leiðbeiningar um utankjörfundarkosningu og kærur. Alltaf heitt á
könnunni! Þú nærð sambandi við starfsmenn skrifstofunnar, þau Steinar Harðarson, kosninga-
stjóra, Björk Vilhelmsdóttur og Gísla Þór Guðmundsson í síma 17500.
SJALFBOÐALIÐA VANTAR
Góður árangur í baráttunni við íhaldið byggist ekki síst á
öflugu og vel skipulögðu starfi. Margar hendur vinna létt
verk! Alþýðubandalagið í Reykjavík vantar heilan her sjálf-
boðaliða til ýmissa starfa. Líttu við eða hringdu og láttu
skrá þig til starfa.
HVAÐ SEGJA FRAMBJÓÐENDUR?
Hvað hefur verið að gerast í Reykjavík undanfarin 4 ár?
Fyrir hverja hefur verið stjórnað? Fáðu frambjóðendur
ABR á fund á vinnustað eða í skólann! Ekki veitir af að fólk
heyri eitthvað annað um borgarmálin en auglýsingar um
borðaklippingar og hornsteina Davíðs Oddssonar. Kosn-
ingaskrifstofan hefur milligöngu um að senda frambjóð-
endur á fundi. Sláðu á þráðinn í síma 17500.
Kosningastjórn
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. maí 1986