Þjóðviljinn - 17.05.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJOÐVILJINN 50 ÁRA
Sjálfstœðisflokkurinn
Þorir ekki í slaginn
Sjálfstœðisflokkurinn hafnarþátttöku íkosningafundi DV. Telur sig eiga
rétt á meiri tíma en hinirflokkarnir. Lítilsvirðing við kjósendur
Með þessu er Sjálfstæðisflokk-
urinn að sýna kjósendum í
Reykjavík lítilsvirðingu. Þeir
þora ekki í slaginn og það segir
sitt um málefnastöðu þeirra,
sagði Steinar Harðarson kosn-
ingastjóri ABR þegar Þjóðviljinn
innti hann álits á þeirri ákvörðun
Sjálfstæðisflokksins að hafna
þátttöku í kosningafundi DV.
DV hafði boðið öllum flokkum
til þátttöku í almennum kosn-
ingafundi um borgarmál í Há-
skólabíói, en Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur afþakkað boðið eins og
áður segir.
„Við teljum það ekki
jafnréttisgrundvöll að við fáum
sama tíma og allir hinir flokkarn-
ir,“ sagði Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson kosningastjóri
Sjálfstæðisflokksins þegar blaða-
maður Þjóðviljans innti hann
eftir ástæðu fyrir neituninni.
Samkvæmt bréfi flokksins til rit-
stjóra DV, virðist fíokkurinn
telja að sér beri lengri tími í um-
ræðum en hverjum hinna flokk-
anna, þar sem þeir muni allir
„ráðast að Sjálfstæðisflokknum."
„Það er hreint furðuleg afstaða
að treysta sér ekki til að mæta
fulltrúum annarra flokka á
jafnréttisgrundvelli,“ sagði
Steinar í gær.
—gg
Gæludýr
Burstið
tennumar
Lundúnum - Bandarískur dýra-
læknir sagði í gær að nauðsynlegt
væri að tennur gæludýra væru
burstaðar daglega og að fylgjast
yrði reglulega með tönnum
þeirra.
„Þú gerir gæludýrinu þínu ekk-
ert betra en að-bursta tennur þess
á hverjum degi,“ sagði dýra-
læknirinn Jean Hawkins á fundi
með starfsbræðrum sínum. Ekki
mun hún þó ekki hafa ætlast til að
fólk færi meðkettina sína til tann-
lækna, dýralæknir í Bretlandi
bjóða nú upp á tannviðgerðir á
gæludýrum, jafnvel holufyl-
lingar. - IH/Reuter
Jóhann Óli Hilmarsson: Mér er ekki kunnugt um að haft hafi verið samráð við fagfólk um hvernig að hreinsuninni ætti að standa. Ljósm.: Sig.
Tjörnin
Vafasamt þrífnaðaræði
Jóhann Óli Hilmarsson: Hreinsunaraðgerðir borgarinnar á Tjörninni stefna
dýralífi í hœttu. Vatnstœmingin ofmikil. Vorið ekki rétti tíminn
Próunarfélagið
Árlax og
sveppa-
konur
fengulán
Áfjórða tug umsókna
bárust. Björn Pór-
hallsson: Mörg áhug-
averð mál. Margar
umsóknir í biðsal
dauðans
Á meðan að allt logar í ill-
deilum í stjórn Þróunarfélagsins
streyma inn umsóknir til þess um
ýmisskonar fyrirgreiðslu. Alls
hafa borist umsóknir frá 30-40
aðilum.
Björn Þórhallsson, stjórnarfor-
maður félagsins, sagði við Þjóð-
viljann að mörg þeirra mála væru
áhugaverð, en þegar hafa tvær
umsóknir verið afgreiddar já-
kvætt en 7 hafnað.
Björn vildi ekki upplýsa hvaða
umsóknir þetta voru en sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
var önnur umsóknin frá tveim
ungum konum, grasafræðingi, og
líffræðingi sem höfðu sótt nám-
skeiðið Taktu þér tak. Eru þær að
hefja ræktun á nýrri tegund æti-
sveppa við Korpu. Fengu þær lán
til að byggja upp hús á staðnum.
Hin umsóknin var frá Árlaxi í
Kelduhverfi, en þar er að dómi
margra ein besta aðstaða til
seiðaeldis hér á landi. Hafði fyrir-
tækið fengið lán erlendis en það
var fryst hér heima vegna þess að
veð vantaði fyrir láninu. Þróun-
arfélagið ákvað að ganga í ábyrgð
fyrir láninu.
Töluvert af þeim umsóknum
sem berast til félagsins eru í bið-
sal dauðans. Þar er um að ræða
umsóknir um aðstoð við að koma
fyrirtækjum sem eiga í erfið-
leikum á réttan kjöl. Félagið hef-
ur tekið upp þær vinnureglur að
hlaupa ekki undir bagga í slíkum
tilvikum, enda er því ætlað að
veita fé í nýsköpun í atvinnulíf-
inu.
Sjá fréttaskýringu á bls. 17 í
Sunnudagsblaðinu. —Sáf
essi öra tæming á vatnsmagn-
inu í Tjörninni getur haft
mjög slæmar afleiðingar fyrir
dýralíflð, sagði Jóhann Óli Hilm-
arsson, fyrrum umsjónarmaður
Tjarnarinnar, um hreinsunarað-
gerðir borgarinnar á Tjörninni.
Vatnsyfirborðið hefur lækkað
um u.þ.b. 30-40 sentimetra sem
er mjög mikið þegar haft er í huga
að dýpst er Tjörnin u.þ.b. 70
sentimetrar. Á steinunum og í
leðjunni við bakkana eru t.d.
rykmýs- og vorflugulirfur, mar-
flær og vatnabobbar en það er
undirstöðufæða fuglanna og sér-
staklega andarunganna fyrstu
vikurnar. Einnig eru hrygningar-
stöðvar hornsílanna í hættu, en
hrygning stendur nú yfir hjá
þeim. Þau eru mikilvæg fæða
fyrir fugla, þ.ám. kríu og topp-
önd. Þetta líf þornar upp og deyr
og getur þannig haft keðjuverk-
andi áhrif. Þess misskilnings gæt-
ir nefnilega oft að brauðgjafir
hafi einhver grundvallaráhrif á
vöxt og viðgang fuglalífsins, en
það er ekki rétt.
Það er jafnframt hætta á því að
Tjörnin fylli sig hægt aftur því
undanfarin ár hafa flugmálayfir-
völd staðið fyrir fyrirhyggjulausri
þurrkun á Vatnsmýrinni þaðan
sem Tjörnin fær vatnsforða sinn,
auk þess sem mýrin er mikilvægt
varpsvæði anda og mófugla.
Vegna þurrka undanfarið er nú
mjög lítið aðstreymi vatns í
Tjörnina.
„Mér er ekki kunnugt um að
haft hafi verið samráð við fagfólk
um hvernig að hreinsuninni ætti
að standa, en í fyrsta lagi hefur
Tjörnin verið tæmd of ört og í
öðru lagi er þessi hreinsun fram-
kvæmd á alvitlausum tíma. Það
ætti að gera á haustin en ekki á
vorin þegar lífið er að kvikna,“
sagði Jóhann Óli að lokum.
-K.ÓI.