Þjóðviljinn - 17.05.1986, Blaðsíða 12
HELLISSANDUR/RIF / GRUNDARFJÖRÐUR/ÓLAFSVÍK
Ólafsvík
Óreynd en ómenguð
Rætt við Herbert Hjelm sem skipar 1. sæti á lista
Alþýðubandalagsins í Ólafsvík sem nú býður fram
sérstakan lista í fyrsta sinn í 20 ár
Alþýðubandalagið hefur
ekki boðið fram sjálfstæðan
lista hér í Ólafsvík sl. 20 ár
heldur verið aðili að H-
listanum sem var listi allra
flokka og félaga nema Sjálf-
stæðisflokksins. I haust var
ákveðið að Alþýðubandalagið
byði fram sjálfstæðan lista
vegna þess að okkur þótti H-
listamenn vera orðnir daufir
og úr tengslum við fólkið. Við
sem að AB-listanum stöndum
nú erum vissulega óreynd, en
við erum líka alveg ómenguð
og tilbúin til að takast á við
þann vanda sem bæjarfélagið
á í um þessar mundir og þola
enga bið, sagði Herbert Hjelm
sem skipar 1. sæti á lista Al-
þýðubandalagsins í Ólafsvík
við kosningarnar 31. maí.
Lánastarfsemi
bæjarsjóðs
Herbert var spurður hvað hann
teldi vera mál málanna hjá þeim í
Ólafsvík nú.
Það er án vafa fjárhagsstaða
bæjarfélagsins, sem er vægt sagt
erfið. Bæjarsjóður hefur gengið
mjög slæglega eftir innheimtu op-
inberra gjalda hjá ákveðnum
fyrirtækjum í bænum og má
nefna í því sambandi að Hrað-
frystihús Ólafsvíkurskuldar bæn-
um í opinber gjöld um 9 miljónir
króna. Fleiri fyrirtæki skulda
bæjarsjóði stórfé og fyrir bragðið
hafa framkvæmdir í bænum verið
litlar. Fjárhagsstaða hans leyfir
svo lítið vegna þessa. Á liðnu
kjörtímabili hefur aðeins verið
unnið að þeim verkefnum, sem
fyrri bæjarstjórnir byrjuðu á.
Sem dæmi um hvernig fjár-
hagsstaðan er má nefna, að um
síðustu áramót var innheimtu-
hlutfallið hjá bæjarsjóði aðeins
59,14%, þ.e. útsvör og aðstöðu-
gjöld. Innheimtuhlutfall fast-
eignagjalda var enn lægra eða
51,87%. Þetta er með því lægsta
sem þekkist á landinu. Við lítum
svo á Alþýðubandalagsmenn að
eitthvað meira en lítið sé að í
stjórnun bæjarins þegar svona er
ástatt.
í lok síðasta árs var útlit fyrir að
við misstum togarann á nauðung-
aruppboð, sem hefði þýtt gjald-
þrot fyrir bæjarfélagið. Málinu
var þó bjargað fyrir horn með því
að láta togarann sigla með afla og
þannig hefur það verið síðan.
Segja má að staða togarans sé
hengingaról sem herst getur að
hvenær sem er og fólk hér þorir
ekki að hugsa þá hugsun til enda
ef hann færi á nauðungaruppboð.
Þetta er eitt af þeim vandamálum
sem leysa þarf.
Ferðamál
Eitt málefni langar mig að
nefna sem við höfum hug á að
vinna að á komandi árum, en það
eru ferðamálin. Við teljum að
Ólafsvík eigi mikla möguleika í
ferðamálum ef rétt er á málinu
haldið. Við teljum að bæta og
stækka þurfi Hótel Nes og gera
það að alvöru hóteli. Hér eru
möguleika á að halda stór og veg-
leg sjóstangaveiðimót og laða
ferðamenn að með þeim hæfti.
Einnig þarf að skipuleggja úti-
vistarsvæði, koma á skipulagðri
fuglaskoðun, koma upp hesta-
leigu og fleira og fleira. En til
þess að þetta sé hægt þarf að auka
og bæta alla ferðamannamóttöku
frá því sem nú er. Við viljum að
bæjaryfirvöld hafi frumkvæði í
þessum málum.
Félagsheimilið hér er búið að
vera lengi í byggingu og enn er
langt í land að því verði lokið.
Það er eitt af þeim málum sem við
viljum drífa áfram enda til vansa
að láta þetta dragast svona eins
og gert hefur verið.
Loks langar mig að nefna mál,
sem við munum berjast fyrir í
bæjarstjórn. Annars vegar mun-
um við leggja til að allir þeir sem
byggðu á „misgengistímanum"
og nú eru að kikna undan lánum
af húsnæði sínu, verði undan-
þegnir fasteignagjöldum þar til
þeirra málum hefur verið kippt í
lag. Og í annan stað vil ég nefna
að við munum leggja til að hér
verði gert „Bolungarvíkur-
samkomulag“ við starfsmenn
bæjarins, sagði Herbert Hjelm.
Það var ljóst af viðtölum við
það hressa fólk sem nú skipar sér
í fylkingarbrjóst Alþýðubanda-
lagsins í Ólafsvík að þar er svo
sannarlega ómengað fólk í þess-
um málum, sem er tilbúið að
berjast og hrista upp í doða kerf-
isins. -S.dór
INNLEND - ERLEND
BANKAVIÐSKIPTI
LEITIÐ EKKI LANGT
YFIR SKAMMT
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
Útibúið Grundarfirði
sími 93-98880
Herbert Hjelm: Fjárhagsstaða bæjarins alvarleg.
Ólafsvík
Langur
dagvistunar
biðlisti
Margrét Jónasdóttir 3ji
maðurálista
Alþýðubandalagsins
Það þykir mörgum einkenni-
leg hagspeki hjá bæjaryfir-
völdum að hafa dagvistunar -
málin í þeim ólestri að 38 eru á
biðlista eftir dagvistun barna,
sem að sjálfsögðu leiðir til
þess að húsmæður geta ekki
unnið utan heimilis. En á sama
tíma verður að flytja til bæjar-
ins vinnuafl á vertíðinni. Þetta
aðkomufólk greiðir að sjálf-
sögðu ekki útsvar hér, en það
myndu heimamenn að sjálf-
sögðu gera ef þeir kæmust út
að vinna, sagði Margrét Jónas-
dóttir 3ji maður á lista AB í Ól-
afsvík.
Margrét sagði að húsnæði dag-
vistunarheimilisins væri þannig
að auðvelt væri að bæta við það
og nú stæðu mál þannig að það
bráðvantaði 2 deildir. Hún sagði
að nú væri til umræðu að koma á
dagvistun 6 ára barna frá kl. 13-
17 í skólanum yfir veturinn, en
enn sem komið er væri þetta bara
á umræðustigi, ekkert hefði verið
ákveðið með þetta enn. Margrét
var spurð hvernig staða íþrótta-
og æskulýðsmála væri í Ólafsvík.
Vegna aðstöðuleysis er íþrótt-
alíf hér einhæft. Yfir veturinn er
iðkað badminton og körfubolti
en aðeins knattspyrnu yfir sumar-
ið. Hér sárvantar góða leiðbein-
endur, en þeir fást ekki vegna að-
stöðuleysis.
Margrét Jónasdóttir: Viljum bæta að-
stöðu til íþrótta og útilífs.
Við Alþýðubandalagsmenn
viljum vinna að því að koma upp
fullkominni íþróttaðastöðu með
Neshreppi utan Ennis í landi
Sveinsstaða. Þar er hægt að koma
upp fullkomnum keppnisvelli
fyrir knattspyrnu, frjálsar íþrótt-
ir, hestamennsku og fyrir hvers-
konar útivist að ógleymdum golf-
velli. Nú sem stendur er hér mal-
arvöllur sem tekinn var í notkun
fyrir 2 árum, en hann er mjög
óheppilega staðsettur að okkar
mati.
Varðandi æskulýðsstarf hér,
þá er það lítið vegna aðstöðu-
leysis. Unglingarnir hafa fengið
inni í skólahúsinu og komið sér
þar upp diskóteki, en það er mjög
ófullkomin aðstaða. Einmitt
vegna þessa viljum við hraða
byggingu nýja félagsheimilisins,
en þar er fyrirhugað að opna fé-
lagsmiðstöð. Ég lenti í æskulýðs-
og íþróttanefnd hér en það hefur
ekki gefist tækifæri á að koma
okkar skoðunum varðandi þessi
mál að þar, vegna þess að engir
fundir hafa verið haldnir í nefnd-
inni. Við viljum að unglingarnir
sjálfir fái að taka þátt í undirbún-
ingi þessarar félagsmiðstöðvar.
Vissulega eru mörg verkefni
sem bíða næstu bæjarstjórnar, en
ég tel að lokaáfangi byggingu fé-
lagsheimilisins sé forgangsverk-
efni og það að bæta hér alla
útivistar- og íþróttaaðstöðu,
sagði Margrét Jónasdóttir.