Þjóðviljinn - 17.05.1986, Blaðsíða 3
_________________________FRETTIR___________
Arnarflug
Samið við skuldunauta
Allar líkur á að viðunandi samningar náist við skuldunauta Arnarflugs
h.f Hluthafahópurinn settiþað sem skilyrði að viðunandi samningar næðust.
Agnar Friðriksson forstjóri: Málið liggur endanlegafyrir um nœstu helgi
að hafa nú þegar tekist samn-
ingar við nokkra af okkar
stærstu skuidunautum og samn-
ingar munu halda áfram strax
eftir heigi, og úrslit liggja því
væntanlega fyrir í lok næstu viku.
Og ég er mjög bjartsýnn á að okk-
ur takist að ná viðunandi samn-
ingum við alia okkar skuldu-
nauta, sagði Agnar Friðriksson
forstjóri Arnarflugs í gær.
Hluthafahópurinn, sem svo
hefur verið nefndur og vill leggja
fé í Arnarflug setti það sem skil-
yrði fyrir fjárframlögum að við-
unandi samningar tækjust við alla
skuldunauta Arnarflugs áður en
gengið yrði frá hluthafamálinu.
Að þessu hafa stjómendur Arn-
arflugs h.f. nú unnið og eins og
Agnar sagði er útlit fyrir farsæl
málalok.
Agnar tók fram að enginn
skuldunautanna, sem þegar hef-
ur verið rætt við hefði neitað að
gera samninga um skuldirnar og
hann sagðist ekki eiga von á því
að þeir sem eftir er að funda með
myndu gera það.
Takist að ná samningum við
alla aðila ætti ekkert að vera því
til fyrirstöðu að fjármálaendur-
reisn Arnarflugs h.f. hefjist en þó
eru margir enn svartsýnir á að
takast muni að rétta fyrirtækið
v‘ð. -S.dór.
Orður
Sæmd
fyrir
Steingrím
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hefur verið
sæmdur heiðursviðurkenningu
skólans Californian Institute of
Technology, en þar stundaði
hann nám á árum áður. Háskól-
inn veitir þessa orðu fyrir afburða
frammistöðu manna. Forsætis-
ráðherra tekurámóti orðunni 17.
maí nk. á samkomudegi fyrrum
nemenda skólans.
Matarlystin var sko aldeilis í lagi hjá krökkunum í Öskjuhlíðarskóla sem heimsóttu sýninguna Matarlist í Laugardalshöll ígær. Ljósmyndarinn okkar festi
hópinn á filmu við Stígvélaða köttinn eftir að hann hafði sagt þeim sögur. Ljósm. Sig.
Herstöðvaandstœðingar
Okkur stendur ógn af kjamorku
Kjarnorkuslysið í Tsjérnóbil minnir okkur á eyðileggingarmátt kjarnorkunnar. Vísum öllum
kjarnorkuknúnum förum burt úr okkar lögsögu!
Samtök herstöðvaandstæðinga
hafa sent frá sér ályktun vegna
slyssins í Tsjérnóbil kjarnorkuver-
inu í Sovétríkjunum. Þar segir
m.a.:
„Enn einu sinni höfum við verið
minnt á ógn og eyðingarmátt kjarn-
orku. Um leið og Samtök her-
stöðvaandstæðinga votta fórnar-
lömbum kjarnorkuslyssins í Sovét-
ríkjunum samúð, fordæma þau
tregðu stjórnvalda þarlendis að
veita upplýsingar um bilunina í
kjarnorkuverinu. Það er ljóst að
aldrei mun unnt að búa svo um
hnútana að bilanir verði ekki í
kjarnorkuverum. Slysið í Sovét-
ríkjunum með þeim víðtæku áhrif-
um, sem það hefur nú þegar haft,
hlýtur að vekja upp spurningar um
réttmæti orkuvinnslu með kjarn-
orku. Það er auðsætt, að meðan
kjarnorkuver eru starfrækt, ber
brýna nauðsyn til að komið verði
upp alþjóðlegum reglum um upp-
lýsingaskyldu og viðbrögð við bil-
unum í þeim.“
Síðan segir:
„Sú staðreynd, að kjarnorkuslys-
ið stefnir í voða afkomu og búsetu
fjölda fólks sem hefur lifað af
matvælaframleiðslu, hlýtur að
vekja ugg meðal íslensku þjóðar-
innar, sem byggir afkomu sína að
mestu á matvælaframleiðslu, eink-
um sjávarfangi. Fjölmörg skip og
kafbátar knúin kjarnorku og búin
kjarnorkuvopnum eru á sífelldu
sveimi umhverfis landið. Það þarf
ekki að leiða neinum getum að því
að kjarnorkuslys á miðunum við
landið gæti kippt grundvelli undan
tilveru þjóðarinnar."
í lokin:
„Við skorum því á ríkisstjórn Is-
lands að banna umferð skipa og
kafbáta, sem knúin eru kjarnorku,
um efnahagslögsögu landsins og
vinna ótrauðlega að því marki að
Norður-Atlantshafið verði friðlýst.
Jafnframt skorum við á ríkisstjórn-
ina að fylgia eftir þingsályktunartil-
lögu gegn kjarnorkuvígbúnaði,
sem var samþykkt samhljóða á Al-
þingi þann 23. maí 1985. Ennfrem-
ur heitum við á alla þegna þessa
lands að fylkja sér um þessar kröfur
og fylgja þeim eftir hver á sínum
vettvangi, því að hér eru lífshags-
munir þjóðarinnar í veði.“
Leiktœkjasalir
Enn
bætist við
Vilhjálmur Svan Jóhannsson
veitingamaður hefur fengið leyfi
borgarstjórnar til að reka
leiktækjasal við Rauðarárstíg.
Allir borgarfulltrúar minnihlut-
ans voru á móti veitingu leyfisins
og fyrir lá umsögn barnaverndar-
nefndar þar sem lagst var gegn
bví að þarna yrði rekinn leiktækj-
asalur. Barnaverndarnefnd hefur
oftast áður tekið afstöðu gegn
leiktækjasölum af þessari gerð.
Þess má geta að reksturinn hófst
nokkru áður en formlegt leyfi var
gefið, sem var á borgarstjórnar-
fundi á fimmtudagskvöldið. -gg
Bíldudalur
Listi óháðra
Framboð F lista óháðra á Bíldu-
dal hefur komið fram og skipa
þessir menn fimm efstu sæti list-
ans:
1) Jón Guðmundsson húsas-
miður, 2) Hrafnhildur Jóhannes-
dóttir húsmóðir, 3) Kolbrún
Jónsdóttir fóstra, 4) Páll Ágústs-
son sjómaður og 5) Þórður Ósk-
arsson sjómaður.
Reykjavík
Kosningasjónvarp 2
2. í hvítasunnu
Sjónvarpið sýnir kl. 16.00
kosningadagskrá úr Reykjavík.
Þar verður kynning á framboðs-
listum.
Fyrir G-lista Alþýðubanda-
lagsins koma fram Anna Hildur
Hildibrandsdóttir, Guðrún
Ágústsdóttir, Kristín Ólafsdóttir,
Sigurjón Pétursson, Tryggvi Þór
Aðalsteinsson og Össur Skarp-
héðinsson.
Sinfóníuhljómsveit íslands Fimmtudagstónleikar
Stjórnandi: (Æ&té JEAN-PIERRE JACQUILLAT Hamrahlíðarkórinn og kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Kórstjóri: Þorgerður Ingólfsdóttir í Háskólabíói fimmtuda 3| ^^^Efnisskrá: p M. Ravel Pavane og „Dafnis og Klói”, ballettmúsik H. Berlioz „Symphonie Fantastique”, op. 14 ginn 22. maí kl. 20.30
Aðgöngumiðasala í Bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar, Lárusar Blöndal oa í ístóni.